Morgunblaðið - 25.10.1991, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 1991
Arsþing LH:
Fækkun þinga enn
og aftur á dagskrá
42. ARSÞING Landsamabands hestamannafélaga hefst í dag og fer
þinghaldið fram í félagsheimili Kópavogs. Sautján tillögur liggja fyrir
þinginu að meðtalinni fjárhagsáætlun. Þrjú erindi verða flutt í dag
undir liðnum „Hrossabúskapur á íslandi” og verða þar með framsögu
Sveinn Runólfsson, landgræðslustjóri, dr. Olafur Dýrmundsson, land-
nýtingarráðunautur og Birna Hauksdóttir, hrossabóndi.
Af þeim tillögum sem liggja fyrir samtakanna en einn fulltrúi hefur
þinginu er tillaga frá fimm formönn-
um hestamannafélaga innan samtak-
anna þar sem lagt er til að þingum
verði fækkað á þann veg að þau
verði haldin annað hvert ár í stað
þess að vera haldin árlega. Þess á
milli verði haldnar formannaráð-
stefnur. Tillögur sama efnis hafa
verið fluttar á hveiju þingi undan-
farin ár en ávallt verið felldar. Frá
unglinganefnd LH kemur tillaga þar
sem lagt er til að ráðnir verði þrír
æskulýðsfulltrúar til starfa á vegum
Eitt verka Halldórs, Krýndir
sæfarar.
Rekaviðar-
skúlptúr
í Nýlista-
safninu
HALLDÓR Ásgeirsson opnar
myndlistarsýningu í öllum söl-
um Nýlistasafnsins við Vatns-
stíg 3b laugardaginn 26. okt-
óber, fyrsta vetrardag, kl. 16.
Halldór mun sýna skúlptúra
unna í rekavið. Viðurinn er
hogginn, tálgaður, brenndur og
sveigður undir hveija hugmynd
fyrir sig. Listamaðurinn tengir
gjarnan lifandi eld við verkin,
einnig notar hann uii, járn og
litapúður svo eitthvað sé nefnt.
Sæfarar skóganna eru mættir
til leiks, því efniviðurinn á að
baki langt ferðalag. Hann hefur
mótast í hafinu og heldur áfram
að mótast í höndum listamanns-
ins. Verkin eru samspii ótal
þátta og mörg hver eru hugsuð
beinlínis fyrir ákveðin rými í
Nýlistasafninu, segir í fréttatil-
kynningu frá safninu.
Halldór hefur sýnt og starfað
í myndlist á íslandi og víða er-
lendis undanfarin 10 ár. Sýning-
in er opin alla daga milli ki.
14-18 og stendur til 10. nóvemb-
verið í starfi um árabil.
Frá hestamannafélaginu Fáki er
m.a. tillaga þar sem lagt er til að
öllum verði skylt að nota reiðhjáima
í keppni á vegum LH. Þá leggur
félagið tii að þingið samþykki til-
mæli til ráðunauta Búnaðarfélags
íslands um að teknir verði upp svo-
kallaðir spjaldadómar við hæfileika-
sýningar kynbótahrossa.
Nokkrar tillögur liggja fyrir varð-
andi stórmótahald en ein þeirra frá
Funa í Eyjafirði gerir ráð fyrir að
landsmót verði haldin á tveggja ára
fresti og verði þau tvískipt þannig
að á öðru hveiju móti verði lögð
megin áhersla á sýningu og dóma
kynbótahrossa en á hinum mótunum
verði sýningar og keppni gæðinga í
öndvegi.
Á laugardag fer fram stjómarkjör
og eiga út að ganga Skúli Kristjóns-
son varaformaður frá Faxa og Gunn-
ar B. Gunnarsson frá Sleipni og gefa
þeir að sögn ekki kost á sér til endur-
kjörs. Sá þriðji Guðmundur Jónsson
frá Herði mun gefa kost á sér til
endurkjörs. Þá verður kosið um fimm
varastjórnarmenn og tvo endurskoð-
endur. Þinginu lýkur síðdegis á laug-
ardag og um kvöldið verður boðið
upp á hátíðarkvöldverð og skemmti-
dagskrá á vegum hestamannafélags-
ins Gusts í Kópavogi en þeir sjá
um þinghaldið.
Borgarsveitin með Önnu Vilhjálms.
Tónlistardagskrá
á Kántrý-kránni
KANTRÝ-kráin í Borgarvirk-
inu heldur upp á eins ár af-
mæli sitt um helgina með við-
eigandi tónlist.
Frá því í sumar hefur í Borgar-
virki eingöngu verið leikin kántrý-
tónlist. Fékk kráin til liðs við sig
tónlistarmennina Einar Jónsson,
Pétur Pétursson og Torfa Ólafs-
son í þeim tilgangi. Anna Vil-
hjálms kemur fram með hljóm-
sveitinni á fimmtudögum og
sunnudögum. Að undanförnu hef-
ur Bjarni Arason sungið sem gest-
asöngvari á föstudags- og laugar-
dagskvöldum.
Vegna sérstöðu sinnar hefur
Borgarvirki gengið til liðs við
nýstofnaðan Kántrýklúbb á ís-
landi en í klúbbnum eru nú um
170 manns. Er ætlunin að vera
með nýjungar í kántrýinu.
í tilefni af afmæli Kánatrý-krá-
arinnar í Borgarvirkinu er dag-
skrá um helgina. í kvöld ‘leikur
Borgarsveitin með Einari Júlíus-
syni, Önnu Vilhjálms, Viðari Jóns-
syni, Bjarna Arasyni og Ann
Andreasen. Laugardagskvöld
koma fram með hljómsveinni
Siggi Jonny, Ann Andreasen
ásamt Surfin in að Vega sem
verða með óvænta uppákomu. Á
sunnudagskvöld syngur Anna Vil-
hjálms með Borgarsveitinni.
Dagvist barna:
Leikskól-
inn Tjarnar-
borg 50 ára
Leikskólinn við Tjarnargötu,
Tjarnarborg hefur starfað í 50
ár um þessar mundir en Barna-
vinafélagið Sumargjöf kom þar á
fót dagheimili, vöggustofu og
leikskóla árið 1941. Fram að þeim
tíma hafði starfsemi félagsins
aðallega byggt á sumarstarfi.
í frétt frá Dagvist barna segir,
að með tilkomu Tjamarborgar hafi
verið brotið blað í sögu dagvistar-
mála borgarinnar. Barnavinafélagið
Sumargjöf hafi fram til þess tíma
rekið dagheimili og leikskóla í leigu-
húsnæði við Amtmannsstíg veturinn
1940 til 1941. Með ákvörðun um
kaup á húsinu við Tjarnargötu hafi
félagið viljað bregðast við þeim
vanda sem skapaðist í hersetnu
landi á tímum seinni heimstyijaldar-
innar.
Hinn 21. október 1941 hófst
starfsemi dagheimilis, leikskóla og
vöggustofu í Tjarnarborg og hófst
þar með rekstur dagheimilis allt
árið um kring, en leikskólinn starf-
aði yfir vetrarmánuðina. Um
tveggja ára skeið var einnig rekin
vöggustofa fyrir 16 börn sem dvöldu
þar í heimavist.
Fyrsta forstöpukona heimilisins
var Þórhildur Ólafsdóttir en auk
þess hóf Uppeldisskóli Súmargjafar
starfsemi sína í húsinu undir stjórn
Valborgar Sigurðardóttur. Dag-
heimilið sem rekið var í Tjarnarborg
var seinna flutt í Hagaborg árið
1960. Hefur síðan verið rekin 3ja
deilda leikskóli í Tjarnarborg.
Ráðstefna um hag-
kerfi heimilanna
LANDSSAMTÖK heimavinnandi fólks kynna ráðstefnuna „Hagkerfi
heimilanna — hugarburður eða veruleiki?” sem haldin verður laugar-
daginn 26. október i Gerðubergi í Breiðholti. Heiðursgestir ráðstefn-
unnar verða forseti Islands, ríkisstjórn íslands, biskup, landlæknir
og borgarstjórinn í Reykjavík.
Sérstakur gestur ráðstefnunnar
verður Anita J. Jörgensen frá Dan-
mörku en hún hefur verið ötull tals-
maður jafnræðis á heimilum og
velferðar fjölskyldunnar og fengið
viðurkenningar fyrir störf sín.
Fjölmargir fyrirlesarar verða á
ráðstefnunni sem hefst kl.10.00
með ávörpum heiðursgesta. Fj'allað
verður um félags- og skattamál,
Leiðrétting
í frásögn af ferð blaðamanns með
forsvarsmönnum norrænna farfugla-
heimila um hálendið og ferðamanna-
slóðir var ranglega farið með nafn
bóndans á Lónkoti í Skagafirði. Það
er Jón Torfi Snæbjörnsson núverandi
ábúandi sem byggt hefur upp far-
fuglaheimili og bátalægi á jörðinni.
Tryggvi Guðlaugsson hætti búskap
á Lónkoti fyrir allmörgum árum.
Beðist er velvirðingar á mistökunum.
með hvaða hætti viðurkenna megi
þau störf sem unnin eru innan
veggja heimilanna, sálfræðilega
þætti, tryggingamáí og annað sem
varðar velferð heimilanna.
Menn og konur, foreldrar, uppal-
endur og hjón eru livött til að koma
og taka þátt í að gera hugmyndina
um hagkerfi heimilanna að veru-
leika, segir í fréttatilkynningu
Landssambands heimavinnandi
fólks.
Ráðstefnugjald er 1500 kr. Inni-
falið í verðinu er eftirfarandi: Öll
ráðstefnugögn, kaffi (f.h. & e.h.)
og hádegisverður. Barnagæsla
verður á staðnum.
Að ráðstefnunni standa eftirfar-
andi aðilar: Landssamtök heima-
vinnandi fólks LHF, Landlæknis-
embættið, Biskupsembættið, Slysa-
varnafélag íslands, Sjómannafélag
Islands, Farmanna- og fiskimanna-
sambandið, Reykjavíkurborg og
Vélstjórafélag íslands.
Einn af aðalleikurum myndarinnar, Tom Berenger, í hlutverki sínu.
Laugarásbíó sýnir
myndina „Brot”
LAUGARASBIO hefur tekið til
sýningar myndina „Brot”. Með
aðalhlutverk fara Tom Berenger
og Bob Iloskins. Leikstjóri er
Wolfgang Petersen.
Það er frumsýning samtímis í
Los Angeles og Reykjavík á þessari
erótísku og duiarfullu hrollvekju
sem fjallar um arkitektinn Dan
Merrik en hann þjáist af sálrænum
kvillum og minnisleysi eftir að hafa
flogið fram af klettum í hrikalegu
bílslysi, segir í fréttatilkynningu frá
Laugarásbíói.
Eftir slysið er hann nánast
óþekkjanlegur og þegar hann kem-
ur heim af spítalanum berst hann
við að taka upp fyrri lifnaðarhætti
og raða saman brotunum úr lífi sínu
með hjálp eiginkonu sinnar.
Sýnir vatns-
litamyndir
í Keflavík
ÁSTA Árnadóttir sýnir vatnslita-
myndir í Keflavík á Tjarnargötu
12, 3. hæð, dagana 26. okt. til
3. nóv.
Ásta hefur tekir þátt í mörgum
samsýningum hér heima og erlend-
is. Þetta er 7. einkasýning hennar.
Ásta nam við Myndlista- og hand-
íðaskóia íslands um tíma og í Bað-
stofunni undir leiðsögn Eiríks
Smith. Síðustu 12 árin hefur hún
eingöngu unnið með vatnslit.
*
Ráðstefna Neytendasamtakanna:
Hvers vegiia verða svo
margir gjaldþrota?
Ásta Árnadóttir við nokkur verka sinna.
NEYTENDASAMTOKIN boða til
opins fundar um fjármál heimil-
anna og gjaldþrot laugardaginn
26. október nk. Fundurinn verður
haldinn í Rúgbrauðsgerðinni,
Borgartúni 6, og hefst kl. 13.00.
María E. Ingvadóttir , varaform-
aður Neytendasamtakanna verður
fundarstjóri en Jóhannes Gunn-
arsson formaður samtakanna set-
ur fundinn.
Dagskrá fundarins verður svo
þessi: Hvernig er staðan í dag? Ragn-
ar Hall borgarfógeti og Erla Þórðar-
dóttir félagsráðgjafi hjá Reykjavík-
urborg íjalla um hvernig málum er
háttað nú.
Lán eru ekki alltað guðsgjöf. Sólr-
ún Halldórsdóttir hagfræðingur
Neytendasamtakanna ræðir um
ástæður gjaldþrota og kynnir hug-
myndir um hvernig má fækka gjald-
þrotum. Hún fjallar m.a. um fjár-
hagsráðgjöf fyrir heimilin, en slík
ráðgjöf hefur skilað mjög góðum
árangri á öðrum Norðurlöndunum.
Hvernig á að fækka gjaldþrotum
einstaklinga? Jón Magnússon for-
maður Neytendafélags höfuðborgar-
svæðisins og Tryggvi Axelsson lög-
fræðingur í viðskiptaráðuneytinu
skoða hina lagalegu hlíð málsins.
Dagskrá fundarins lýkur svo með
umræðum og fyrirspurnum.