Morgunblaðið - 15.12.1991, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 15.12.1991, Blaðsíða 8
8 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. DESEMBER 1991 Tveir tópíhafrar með ógnandi tilburði. Fáir sjónvarpsþættir hafa vakið eins mikla athygli og náttúru- lífsmyndir Sir David Atten- borough í breska sjónvarpinu. Hann byijaði á þáttaröð fyrir 40 árum og er stöðugt að bæta við nýjum og fullkomnari sjónvarpsmyndum. Samnefndar bækur byggðar á þátt- unum þykja frábærar bæði í texta- og myndvali. „Ég lít á það sem hlutverk mitt í lífinu að sýna fólki eins mikið og mögulegt er úr lífríkinu. Sannfæra það um þau undur og fegurð sem náttúran geymir,“ segir Sir David. „En þetta er eins og önnur störf. Maður verður að gefa af sjálfum sér til að árangur verði góður. Nú er allt myndað á vísindalegan hátt. Atferli dýranna sýnt eins nákvæm- lega og kostur er. Ef könguló er tekin fyrir, sést hvernig hún spinn- ur vef sinn, hvernig hún veiðir og ver sig, jafnvel kynlíf hennar er fest á filmu.“ Þróun í kvikmyndatækni „Þegar ég byijaði á fyrstu nátt- úrulífsþáttunum fyrir 36 árum, voru aðstæður mjög frábrugðnar. Hlut- verk sjónvarpsins var annað og lítið um fjárveitingar. BBC var þá eina sjónvarpsstöðin í Evrópu. Til að taka myndir af dýrum, varð ég að fara í dýragarðinn og stilla mynda- vélina. Ágætt, en hvílíkar myndir! Dýrin urðu afar torkennileg. Við vorum ekki nógu góð og mynd'avél- arnar voru ekki nógu góðar. Síðar fórum við að fara í ferðir með fólki úr dýragarðinum sem var að ná í dýr. Og ef ég fór að mynda á ijarlæg- um slóðum, var lágmarksdvalartími um 4 mánuðir. Allt var svo miklu erfíðara. Ferðalagið tók langan tíma. Og við gátum átt á hættu að verða skipreika. Þá voru teknar myndir af öllu sem gerðist. Og dý- rið sem átti að mynda, var kannski stillt upp á stól, ekki myndað í sínu rétta umhverfi! Tækninni hefur fleygt fram, enda eru myndir mínir síðustu 10-15 ár miklu fullkomnari og myndatakan auðveldari. Nú vel ég mér ákveðið þema um eitthvað líffræðilegt við- fangsefni. Ef ég tek t.d. viðfangsef- nið „þegar dýrin eru að velja sér maka“ verð ég að velja einhverjar tegundir sem eru með áberandi og ákveðin hegðunareinkenni. Segjum að ég velji paradísarfugl- inn, en fyrst verð ég að kanna á bókasafni, hvað búið er að skrifa um hann og hvort einhver er að mynda hann núna. Ef ekki, þá hef ég samband við vísindafólk í Nýju Gíneu. Síðan er að fínna rétta árs- timann, rétta tréð og rétta fuglinn. Tími er ákveðinn með símbréfi. Og flugvélin ber mig á 3-4 dögum frá London. Þetta eru vísindi. Við vitum ná- kvæmlega hvenær á að mæta til myndatöku. Engin bið. Og vísinda- menn á staðnum geta sagt ná- kvæmlega til um hvaða fugl sé best að mynda. En það væri alltof dýrt að fara til Nýju Gíneu fyrir aðeins eina mynd. Við vinnum að mörgum þáttum í einu og sameinum i einni ferð fleiri myndatökur. Ég skila 12 þáttum eftir 3 1/2 árs vinnu.“ Leikmanni finnst ótrúlegt að skoða þær myndir og lýsingar sem prýða bókina „Lífsbarátta dý- ranna.“ En Sir David segir, að ekk- ert sé í bókinni sem líffræðinemi á fyrsta ári myndi ekki vita. „Ekkert er umdeilt af þeim kenningum og staðreyndum sem koma þar fram. (arlbavíani óréttar vald sitt með lótbragði sínu. Ræstivari annast munnhirðingu vartara. Fiðrildislirfa dulbújn sem snókur. Hornafasani með þanda bringublöðru. Ég þarf aðeins að finna þeim fal- lega umgjörð," segir Sir David bros- andi. Er myrkrið ekki til? Hvað mun þróun í myndtækni leiða í ljós eftir 10-20 ár? „Vonandi sjáum við þá í gegnum myrkrið," segir Sir David. „Myrkur er ekki til í dýraríkinu. Mörg dýr hafa miklu fullkomnari skynjunarfæri og „sjá“ betur með þeim en við með augun- um. Áhugaverðasta hegðun dý- ranna fer fram í myrkrinu. Hugsum okkur t.d. Afríku, hvað margt þar er hulið sjónum okkar. Ótrúlegt að sjá öll fótsporin fyrir utan tjaldið á morgnana. Það væri stórkostlegt að geta tekið myndir af tækni dý- ranna til að sjá í myrkri. Eða geta fylgst með hegðun fiskanna í sjón- um. Nú erum við farin að beita raf- eindatækni til að mynda eldflugur. í þáttaröðinni „Talað við ókunn- uga“ sjáum við hegðan eldflugna sem ekki hefur verið fest á filmu áður. Sú myndataka mun örugglega þykja frumstæð eftir 20 ár eða svo,“ segir Sir David hlæjandi. „Myrkrið mun ekki hverfa, en með aukinni tækni munum við geta séð í gegnum það með myndavélar- auganu. Mannkynið þarf á myrkri að halda. Þessi tölva hér,“ Sir David bendir á kollinn á sér, „þarf að endurnýjast eins og aðrar tölvur. Kannski.býr sérstök manngerð á íslandi sem hefur þörf fyrir meira myrkur en aðrir!“ Sir David er glett- inn, þegar hann laumar þessu út úr sér. Sjáum við náttúruna í ævintýralj óma? „Maðurinn er að stöðugt að verða skipulagðari, meira borgarbarn. Síðustu 15-20 ár hefur fólk í aukn- um mæli verið að færast lengra frá náttúrunni. Við áttum á hættu að gleyma alveg lífríkinu umhverfis okkur. Þá kom sjónvarpið til. Eitt af því merkilegasta sem sjónvarpið hefur gert er að færa náttúruna nær manninum. Það hefur líka átt stóran hlut í að gera fólk meðvit- aðra um mengunarhættuna og mun halda því áfram. Það væri mikill skaði ef sjónvarpið myndi gleyma þessu hlutverki sínu, að gera fólk meðvitaðra um umhverfi sitt. En jafnvel þó að við séum meðvit- uð um náttúruna, þá skynjum við kannski ekki þau líffræðilegu lög- mál sem þar ríkja. Borgarfólk gerir sér oft ranghugmyndir um Iífríkið. Það er svo auðvelt að vera tilfinn- ingalega hrifnæmur og snúa náttú- runni upp í ævintýraríki, þar sem allt er svo fallegt, allt lifir, ekkert deyr, engin eyðilegging né ofbeldi. Það er mjög misjafnt hvernig

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.