Morgunblaðið - 22.12.1991, Síða 4
4 FRETTIR/YFIRLIT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. DESEMBER 1991
ERLENT
INNLENT
Fjárhag-sáætl-
un Reykjavík-
ur lög-ð fram
í borgarstjórn
í fjárhagsáætlun Reykjavíkur-
borgar, sem lögð var fram til fyrri
umræðu í borgarstjórn á fimmtu-
dag, kemur fram að heildartekjur
borgarsjóðs eru áætlaðar tæplega
þrettán milljarðar króna. Gert er
ráð fyrir að rekstrargjöld borgar-
sjóðs lækki um 1,4% og þar af
lækki gjöld til gatnaframkvæmda
mest. I áætiuninni er gert ráð
fyrir að framlög til nýbygginga
skóia verði aukin um 22% á næsta
ári og verði 780 milljónir. Áætlað
er að verja 279 milljónum til smíði
bamaheimiia og framkvæmda á
gæsluvöllum.
Þjóðartekjur dragast saman
um 6.1%
Samkvæmt endurskoðaðri þjóð-
hagsspá munu þjóðarútgjöld drag-
ast saman um 6,4% frá yfirstand-
andi ári og þjóðartekjur dragast
saman um 6,1%. Þetta er mesti
samdráttur þjóðartekna frá árinu
1950 og mun meiri en gert var
ráð fyrir í þjóðhagsáætlun í byijun
október, en þá var því spáð að
þjóðarútgjöld myndu dragast sam-
an um 1,5% og þjóðartekjur um
3,1%.
Engir nýnemar í haust verði
fjárveiting ekki hækkuð
Háskólaráð sendi í vikunni frá
sér ályktun, þar sem segir að verði
fjárveiting til Háskóla íslands á
Qárlögum ekki hækkuð, muni eng-
ir nýnemar verða teknir inn í skói-
ann á næsta hausti, þrátt fyrir
áform um skólagjöld og ýtrasta
niðurskurð kennslu og þjónustu. í
ályktuninni segir að með nýja fjár-
lagafrumvarpinu yrði fjái-veiting
til háskólans um 253 milljónum
króna lægri en hún þyrfti að vera.
Misheppnuð ránstilraun
gerð við útsölu ÁTVR
Hettuklæddur árásarmaður
með jámstöng- að vopni réðist á
útibússtjóra ÁTVR í Lækjargötu
í Hafnarfirði á föstudagskvöld og
gerði tilraun til að ræna af honum
andvirði dagsölu útibúsins. Úti-
bússtjórinn varðist en árásarmað-
urinn lagði á flótta eftir átök.
Talið er að um þaulskipulagt rán
hafi verið að ræða.
Sjómenn mótmæla
samkomulagi um afsláttinn
Forystumenn sjómanna víða um
Iand hafa mótmælt harðlega sam-
komulagi sem náðist meðal stjóm-
arliða um útfærslu á skerðingu
sjómannaafsláttarins á Aiþingi á
fimmtudag. Samkomulagið gerir
ráð fyrir að það markmið ríkis-
stjómarinnar að spara 180 millj-
ónir með breytingu á afslættinum
náist.
Framlag til Landakots verði
skorið niður um þriðjung
Niðurskurður á rekstrarfjár-
veitingu til Landakotsspítala sam-
kvæmt tillögu heilbrigðisráðherra
nemur talsvert á fjórða hundrað
miiljóna króna. Að sögn Sigurðar
Bjömssonar, varaformanns lækn-
aráðs Landakots, er á móti gert
ráð fyrir að spítalinn geti aflað
150 milljónum með sértekjum og
er framlag til spítalans því lækkað
um tæplega þriðjung af heildar-
rekstrarfé hans. Sigurður segir
að verði tillagan samþykkt á Al-
þingi þýði hún að segja verði upp
150-200 starfsmönnum spítalans
og starfsemi hans muni koðna
niður.
ERLENT
Jeltsín kipp-
ir stoðun-
um undan
Gorbatsjov
Borís Jeltsín, forseti Rúss-
lands, gaf á fimmtudag út tilskip-
un þess efnis, að Kreml, vald-
amiðstöð Sovétríkjanna í 70 ár,
heyrði undir
rússneska sam-
bandslýðveldið
og afnam jafn-
framt sovéska
utanríkis- og
innanríkisráðun-
eytið og þann
hluta KGB, so-
vésku leyniþjón-
ustunnar, sem
starfar innanlands. Með þessum
ákvörðunum hefur Jeltsín gert að
engu vonir Míkhaíls Gorbatsjovs,
forseta Sovétríkjanna, um „iög-
legt“ valdaframsal til hins nýja,
sovéska samveldis en leiðtogar 10
sovétlýðvelda af 12 ræddu um
fyrirkomuiag þess á fundi í Alma-
Ata í Kazakhstan í gær. Sovésku
lýðveldin hafa að undanförnu látið
greipar sópa um stofnanir og eig-
ur sovéska ríkisins og hafa Rússar
verið stórtækastir. Eru fréttir um,
að þ'eir hafí ákveðið, að sendiherr-
ar Sovétríkjanna erlendis verði hér
eftir fulltrúar Rússlands.
Slóvenía og Króatía
viðurkennd
Evrópubandaiagið hefur ákveð-
ið að viðurkenna sjálfstæði júgó-
slavnesku lýðveldanna Slóveníu
og Króatíu 15. janúar nk. að upp-
fylltum ákveðnum skilyrðum og
hugsanlegt er, að Þjóðverjar gerí
það fyrir jól. Á fímmtudag urðu
Islendingar fyrstir vestrænna
ríkja til að veita lýðveldunum fuila
viðurkenningu en áður höfðu
Úkraína og Litháen gert það.
Slóvenar og Króatar hafa fagnað
þessum tíðindum en Serbar mót-
mælt þeim að sama skapi kröft-
uglega. Óttast sumir, að Serbar
auki nú hernaðinn á hendur ná-
grönnum sínum en aðrir segja, að
viðurkenningin sé aðeins staðfest-
ing á orðnum hlut og líklegust til
að koma vitinu fyrir serbnesku
ráðamennina.
NATO vill aðstoða sovésku
lýðveldin
Utanríkisráðherrar Atlants-
hafsbandalagsins, NATO, ákváðu
á fímmtudag, að bandalagið geng-
ist fyrir aðstoð við sovésku lýð-
veldin og buðust
til að láta her-
menn þess ann-
ast matvæla-
flutninga og
-dreifingu. Er
þetta í fyrsta
sinn J sögu
NATO, að það
tekur sér fyrir
hendur hjálp-
arstarf. Bauðst bandalagið jafn-
framt til að aðstoða við uppræt-
ingu sovéskra kjarnorkuvopna en
James Baker, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, segist fullviss um,
að í framtíðinni verði slík vopn
aðeins í Rússiandi en þau eru nú
í fjórum sovésku lýðveldanna. Á
fimmtudag var jafnframt haldinn
fyrsti fundur Norður-Atlantshafs-
samráðsvettvangsins en þar voru
saman komnir utanríkisráðherrar
NATO-ríkjanna og starfsbræður
þeirra í Varsjárbandalagsríkjun-
um fyrrverandi. Sagði Baker í
ræðu á fundinum, að NATO kynni
brátt að takast á hendur öryggis-
skuldbindingar gagnvart Austur-
Evrópuríkjunum. Borís Jeltsín,
forseti Rússlands, sem var í opin-
berri heimsókn á Ítalíu, sendi
fundinum kveðju sína og sagði,
að í fyllingu tímans vildu Rússar
gerast aðilar að Atlantshafsband-
alaginu.
Jeltsín
Irak:
Stj ómarbyltúig- í imdirbúningi
Kolachwalan í írak. Reuter.
JALAL Talabani, einn af leiðtog-
um Kúrda í írak, sagði á föstudag
að hreyfingar Kúrda og shíta
væru að undirbúa aðgerðir til að
steypa Saddam Hussein forseta af
stóli.
Talabani hóf viðræður við stjórn
Iraks í apríl og sýndar voru myndir
í sjónvarpi er hann faðmaði Saddam
við það tækifæri. Helsti keppinautur
Talabanis um forystuna meðal
Kúrda, Massoud' Barzani, hélt við-
ræðunum áfram og samdi um drög
að samningi um frið og sjálfstjórn
Kúrda um miðjan ágúst. Talabani
hefur hins vegar gagnrýnt samnings-
drögin og sagt að þau tryggi ekki
að mannréttindi verði virt, auk þess
sem íraksstjórn haldi svæðum, sem
Kúrdar háfa gert tilkail til.
Talabani sagði í samtali við frétta-
ritara Reuters að dagar Saddams
Husseins væru senn taldir og upp-
reisnarsveitir Talabanis væru að und-
irbúa lokauppgjör. „Staða Saddams
veikist dag frá degi. Hann er hatað-
ur innan hersins, jafnvel efnahags-
kreppan ein gæti riðið honum að
fullu,“ sagði hann. „Við höfum haft
samstarf við írösku stjómarandstöð-
una til að steypa núverandi stjórn í
írak.“
Stjómarandstöðuhreyfingarnar
eru rúmlega 60 og Talabani sagði
Að sögn Royal Greenland verður
magnið af frysta þorskinum sem
Rússarnir landa aukið í fimm þúsund
tonn ef tilraunin tekst vel og Græn-
lendingar geta selt fiskinn á banda-
rískum og kanadískum mörkuðum.
að nauðsynlegt væri að þær samein-
uðust gegn Saddam. Ennfremur
þyrfti Bandaríkjastjóm að ljá máls á
stuðningi við nýja stjóm, þar sem
Kúrdar og shítar hefðu mikil áhrif.
„Ef þessi tvö skilyrði vejrða uppfyllt
getum við steypt Saddam innan
mánaðar," bætti hann við.
Auk þorsksamningsins er í sam-
komulaginu rætt um möguleikann á
því að rússneskir togarar geti landað
2.000 tonnum af rækju til vinnslu í
verksmiðjum á Disko-svæðinu haust-
ið 1992.
Grænland:
Fiskveiðisamningur við Rússa
Kaupmannahöfn. Frá N.J. Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins.
RÚSSNESKA fyrirtækið Sevryba og grænlenska sjávarútvegsfyrlrtæk-
ið Royal Greenland haf gert með sér samning um samstarf. Fyrstu
fimm mánuði næsta árs eiga Rússar að landa 4.000 tonnum af frystum
þorski á Grænlandi en í staðinn fá grænlenskir togarar leyfi til veiða
á rússneskum svæðum á Barentshafi.
Nú er ekki tóm tfl að fagna
heldur leggja hart að sér
BORÍS Jeltsín, forseti Rúss-
lands, hefur ekki setið auðum
höndum síðan nýtt ríkjabanda-
lag var stofnað á rústum Sovét-
ríkjanna 8. desember síðastlið-
inn. Með tilskipunum hefur
hann lagt undir sig Kreml,
eignir sovéska forsetaembætt-
isins og sovésk ráðuneyti. í
samtali Morgunblaðsins við
ráðuneytisstjóra utanríkisráðu-
neytis Úkraínu á föstudag kom
fram að önnur fyrrum lýðveldi
Sovétríkjanna hlytu að eiga
kröfu á hendur Rússum um
hlut í þessum eignum. Yrðu þau
mál rædd á fundi sovétlýðvelda
í Alma Ata í dag, laugardag.
Að svo stöddu vildi hann ekki
tjá sig ítarlega um þetta efni,
þetta væri „fjölskyldumál".
Pol Tarasjuk, ráðuneytisstjóri
í utanríkisráðuneyti Úkra-
ínu, var fyrst spurður hver væru
viðbrögð ríkisstjórnarinnar við til-
skipunum Jeltsíns þar sem hann
yfírtók Kreml, sovésk ráðuneyti
og eignir forseta Sovétríkjanna.
„Úkraína sem einn af erfíngjum
sambandsríkisins hefur rétt til að
fá hluta af eign-
um Sovétríkj-
anna erlendis."
Tarasjuk sagðist
gera ráð fyrir að
þetta atriði yrði
rætt frekar í
Alma Ata. Hann benti á að Úkra-
ína hefði tekið á sig 16,37% af
skuldum Sovétríkjanna erlendis.
Tarasjuk var spurður hvers
fulltrúi sendiráð Sovétríkjanna
erlendis væru nú. „í raun einskis.
En aðilamir að nýja bandalaginu
hafa rétt á að notfæra sér þjón-
ustu þeirra." Sagði Tarasjuk að
þetta gilti þar til aðildarríkin hafa
samið um skiptingu sendiráðanna.
Hann sagði að Úkraínumenn ætl-
uðu að opna eigin sendiráð í þeim
ríkjum sem skiptu hvað mestu
máli. Sendiherrarnir þar myndu
svo vera fulltrúar Úkraínu í öðrum
ríkjum sem Úkraína hefði stjórn-
málasamband við. Ekki yrði um
það að ræða til frambúðar að
aðildarríki samveldisins (eða
bandalagsins eins og hann kaus
að kalla það [á ensku commun-
ity]) hefðu sameiginleg sendiráð.
Hins vegar þýddi þetta ekki það
að Úkraínumenn samþykktu þegj-
andi og hljóðalaust að Rússar yfir-
tækju sovésku sendiráðin erlendis.
Míkhaíl Gorbatsjov, (fyrrver-
andi) forseti Sovétríkjanna, sagði
á fimmtudag að hann teldi að
aðildarríki samveldisins hlytu að
hafa sameiginlega utanríkisstefnu
að einhvetju marki. Um þetta
Forseti Sovétríkjanna.
sagði Tarasjuk: „Úkraínska þing-
ið samþykkti Minsk-samkomulag
forsetanna þriggja með þeirri við-
bót að samveldisríkin ættu að
hafa samráð um utanríkismál. Við
erum andvígir sameiginlegu utan-
ríkisráðuneyti.
Aðildarríkin.
munu fram-
fylgja eigin
utanríkis-
stefnu.“ Tara-
sjuk sagði að
aðild að Atlantshafsbandalaginu
væri ekki á dagskrá hjá Úkraínu-
mönnum enda væri kveðið á um
það í sjálfstæðisyfirlýsingu Úkra-
ípu að ríkið væri hlutlaust. Að
sjálfsögðu útilokaði slíkt ekki
samskipti við hernaðarbandalög á
meðan einungis væri um „sam-
skipti" að ræða.
Tarasjuk ítrekaði það sem oft-
sinnis hefur komið fram að Úkra-
ínumenn ætluðu að hafa eigin
her. „Við viljum því ekki sameig-
inlegan her samveldisins eða sam-
eiginlegt varnarmálaráðuneyti.
En við munum taka þátt í starfi
sameiginlegs herráðs vegna
kjamorkuvopnanna í Úkraínu."
Ráðuneytisstjórinn var spurður
hvort það væri ásættanlegt fyrir
Úkraínumenn að Rússland yrði
eina fyrrum sovétlýðveldið sem
hefði kjarnavopn. „Stefna okkar
er sú að útrýma öllum kjarnavopn-
um í Úkraínu. Það er undir öðrum
lýðveldum komið hvað þau gera.“
En eruð þið reiðubúnir að eyða
ykkar kjarnavopnum þótt Rússar
haldi sínum? „Við ætlum ekki að
fara að halda kjamavopnunum til
að ógna einum eða neinum. Vopn-
in eru arfur frá Sovétríkjunum
sem við erum neydd til að ráð-
stafa. Hins vegar er það úrelt að
okkar mati að beita vopnunum
fyrir sig í pólitískum tilgangi.
Þangað til vopnunum á okkar
landi hefur verið eytt erum við
tilbúnir til að vinna með öðram
ríkjum í þessum efnum." Tarasjuk
sagði að best væri ef hægt hefði
verið að eyða kjarnavopnunum í
Úkraínu. En þar sem það væri
ekki hægt yrðu þau flutt til Rúss-
lands en þó með því skilyrði að
þeim yrði eytt þar.
Rússar hafa gert tilkall til þess
að taka við sæti Sovétríkjanna í
öryggisráði Sameinuðu þjóðanna.
Um þetta atriði sagði Tarasjuk:
„Við munum fallast á þetta svo
fremi sem öll önnur aðildarríki
bandalagsins geri það.“
Jeltsín hefur lýst því yfir að
Sovétríkin heyri fortíðinni til um
áramótin. Þá verði fáni Sovétríkj-
anna dreginn niður í Kreml. Tara-
sjuk sagði að Úkraínumenn litu
ekki svona á málið. „Úkraínu-
menn lýstu því yfir í byijun mán-
aðarins að stofnsamningur Sovét-
ríkjanna frá 1922 væri ógildur.
Þegar bandalagið var stofnað í
Minsk sagði þar að Sovétríkin
væru ekki lengur til. Auðvitað
tekur það einhvern tíma að leggja
heimsveldi niður. Það er ekki rétt
að einskorða það ferli við einhvern
einn dag.“ Þannig að Úkraínu-
menn munu ekki fagna sérstak-
lega á gamlárskvöld? „Nú er ekki
tími til að fagna heldur leggja
hart að sér. Við þurfum að tre-
ysta hið nýja ríki í sessi og leysa
efnahagsvandann. Okkar hátíða-
höld vora 1. desember [þegar
þjóðin samþykkti sjálfstæði lands-
ins með níu af hveijum tíu greidd-
um atkvæðum].“
BAKSVMÐ
eftirPál Þórhallsson