Morgunblaðið - 22.12.1991, Blaðsíða 29
29
MORGUNBLAÐIÐ
AFMÆLI
SUNNUDAGUR 22. DESEMBER 1991
T-Jöföar til
ii fólks í öllum
starfsgreinum!
ur, og í stjórn Alþýðuflokksins um
áratuga skeið. Hann var bæjarfull-
trúi á Akranesi 1946-1950 í yfir-
kjörstjórn Vesturlandsumdæmis
1959-71 og 1978-1990. Sveinn
hefur alla tíð verið mikilvirkur fé-
lagsmálamaður og er enn, hann var
endurskoðandi Sementsverksm.
ríkisins, Sparisjóðs Akraness, form.
stjórnar Skallagríms hf., í stjórn
Byggðasafns Akraness og nær-
sveita og svona má lengi telja.
.Ljveinn gerðist umboðsmaður Sam-
vinnutrygginga á Akranesi 1963
og jafnframt bankastjóri Sam-
vinnubankaútibúsins á Akranesi frá
stofnun þess, 3. jan. 1964.
Fjölmargir hafa notið þjónustu
Sveins í þeim störfum og embættum
sem hann hefur 'sinnt og notið hollra
ráða varðandi mismunandi ráðstaf-
anir hverju sinni. Undirritaður hef-
ur átt samskipti við Svein og notið
ráða hans oft á tíðum og hefur
myndast góður vinskapur og trún-
aður í gegnum þau, okkur hefur
greint á Um marga hluti og hug-
myndir sem hafa fengið farsæl lok
á endanum. Ég vil á þessum tíma-
mótum þakka Sveini mörg holl og
góð ráð á mínum skamma ferli í
pólitík og tel að ýmislegt færi betur
hjá landsfeðrunum ef ráð Sveins
og hans jafningja næðu eyrum
ráðamanna.
Sveinn kvæntist eiginkonu sinni,
Guðrúnu Þórey Örnólfsdóttur frá
Suðureyri i Súgandafirði, 14. okt.
1943. Má með sanni segja að þeirra
sambúð öll hefur verið til fyrir-
myndar og ljóst er að engin er einn
með slíkan kvenkost sér við hlið sem
Guðrún er. Þeim hjónum varð fjög-
urra barna auðið en eins og hjá
mörgum hefur sorg knúið dyra hjá
þeim er elsta barn þeirra, Guðrún,
lést í blóma lífsins 17. nóvember
1971 af völdum sjúkdóms. Þrír syn-
ir þeirra eru Örnólfur, lögreglumað-
ur í Reykjavík, Kristján, deildar-
stjóri hjá Olíufélaginu hf. og stjórn-
arformaður Sementsverksmiðju rík-
isins, og Sigurbjörn, sem er fulltrúi
á skrifstofu hjá vamarliðinu á
Keflavíkurflugvelli. Allir eru þeir
hinir mestu fyrirmyndarmenn sem
eiga góðar fjölskyldur og eru foreld-
rum sínum til sóma.
Það var ekki meining mín að rita
á blað einhverja lofgjörð eða því
um líkt heldur að nota þetta tæki-
færi til að þakka góða viðkynningu
og ánægjulegt samstarf um leið og
ég árna þér, Sveinn, og þinni ijöl-
skyldu heilla á þessum tímamótum
sem áttræðisafmælið er.
Gísli Einarsson og
Edda Guðmundsdóttir.
STEINAR WAAGE
Gjafakortin okkar eru góð, hentug og vinsæl jólagjöf.
Mikið úrval af hönskum og töskum.
5% staðgreiðsluafsláttur. Póstsendum.
DOMUS MEDICA,
Egilsgötu 3,
sími 18519.
KRINGLUNNI,
Kringlunni 8-12,
sími 689212.
TOPPSKÓRINN,
Veltusundi 1,
simi 21212.
Af.
BarnapaKKar ver ra AgA,
SKíðapaKKar fyrir fuHorðna í
Göngu
sKíðapaKKar verð fra
AIIKUG4RDUR
MARKAÐUR VIÐ SUND
Nóttin fyrir dögun
Avallt mikið úrval af heilsuskóm, meðal annars frá Birkenstocl<
Óla-skóm, Táp, Berkemann, Ara Fittnes og fleiri.
Jóhanna Kristjónsdóttir
Martin Andersen Nexö: Pelli sig-
ursæli 3. Baráttan mikla.
Þýðing: Gissur Ó. Erlingsson.
Útg. Skjaldborg 1991.
Áfram segir af Pella sigursæla,
hann er kominn til stórborgarinnar
og býr í Örkinni þar sem fátækling-
ar hafa hnappast saman og er þó
reynt að lifa þar fögru mannlífi og
halda reisn.
Pelli vinnur við skósmíðar og
hann hefur gert sér grein fyrir
þeirri rangsleitni sem verkafólkið
býr við og hellir sér út í baráttuna.
Hann er ódeigur en jafnframt
undrandi á sjálfs síns krafti og
mælsku sem eftirtekt vekur. Og líf-
ið er þó fleira en strit og barátta,
kynni hans af munaðarleysingjun-
um litlu þremur í Örkinni eru ríkur
þáttur í sögunni. Pelli er vissulega
farinn að hafa náttúru til kvenna,
stúlkan Hanna spilar með tilfinn-
ingar hans og ruglar hann í ríminu.
En Pelli er nægilega raunsær og
jarðbundinn til að Iáta þetta ekki
eyðileggja allt og hann vaknar upp
áður en skaði er skeður.
Hann kynnist stúlkunni Ellen og
sú er nú aldeilis ekki að spila með
hann og ástin á milli þeirra verður
svo undursamleg og stjórnlaus að
það liggur við borð að baráttan
gleymist í bili, svo upptekin eru þau
af hvort öðru í sínum litla heimi.
Lassipabbi kemur til bæjarins og
er það Pella fagnaðarefni. Ellen og
honum fæðist sonur og Pella finnst
að ekkert muni nokkurn tíma breyta
þessum heimi þeirra í litlu fjölskyld-
unni. Ellen sér eitthvað í honum
sem hann veit ekki að hann hefur
til að bera. En hún er kröfuhörð
og vill síður afskipti hans af verka-
lýðsmálum. Framan af lætur hann
ýmislegt smálegt sem hún grípur
til svo hann sinni sér og láti félags-
málavafstur og baráttu lönd og leið
ekki raska ró sinni. En það harðnar
ekki bara á dalnum, hjónabandið
er ekki alveg eins og það ætti að
vera.
Smám saman dregst Pelli á ný
aftur að sínum fyrri baráttumálum.
Það er ekki vegna þess að sambúð-
in sé að fara í hundana. Hann get-
ur ekki setið hjá og horft upp á
eymd fólksins og misréttið sem það
viOF/i
Martin Andersen Nexo
er beitt og smám saman finnur
hann að starfið ber árangur, þó það
kosti fórnir og harðræði. Kannski
hjónabandið líði fyrir það. Kannski
hann líði. Það verður svo að vera.
Saga Martins Andersen Nexö er
svo hrífandi, og tær frásagnarmát-
inn, að það má vera dauður maður
sem verður ekki gripinn af sögu
fólksins sem hann segir í bókinni.
Hver persónan af annarri hættir
að vera „persóna" og öðlast sitt
eigið líf og stígur upp og fylgir les-
andanum. Það er mikil ánægja að
lesa þetta verk.
Gissur Ó. Erlingsson hefur þýtt
þennan hluta eins og hinar fyrri
Pellabækur og hefur á valdi sínu
að skila efni, stíl og orðfæri Anders-
en Nexö til lesandans svo að til
sóma er. Bókaútgáfan Skjaldborg
á mikið lof skilið fyrir að gefa les-
endum kost á að nálgast þetta lista-
verk á íslensku.
A Israelsríki meira land?
Spádómarnir rætast
Bkíðapakkar,
allir möguleikar,
Jtolomitc
4IRTEJC
TYROUA