Morgunblaðið - 22.12.1991, Page 10

Morgunblaðið - 22.12.1991, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. DESEMBER 1991 eftir Guðm. Halldórsson ÞJÓÐVERJAR hafa ákveðið að viðurkenna Króatíu og Slóveníu eins og íslending- ar, líklega fyrir jól, ef skil- málum Evrópubandalagsins (EB) verður fullnægt. EB hefur samþykkt að viður- kenna Króatíu, Slóveníu og önnur júgóslavnesk lýðveldi 15. janúar ef þau uppfylla skilyrði um lýðræðislegt sijórnarfar, óbreytt landa- mæri og virðingu fyrir rétti þjóðarbrota og mannrétt- indum. Þjóðverjar hafa beitt sér fyrir viðurkenningu lýð- veldanna þrátt fyrir and- stöðu frá Sameinuðu þjóðun- um og helztu bandamönnum sínum, Bandaríkjamönnum, Frökkum og Bretum, og Helmut Kohl kanzlari telur ákvörðun EB „mikinn sigur fyrir þýzka utanríkis- stefnu“. Peir sem hafa verið tregir til að samþykkja skjóta við- urkenningu hafa óttazt að hún geti leitt til þess að átökin í Júgóslavíu breið- ist út til annarra lýðvelda, en stuðningsmenn stefnunnar telja að bardagarnir muni þvert á móti magnast ef skjót viðurkenning komi ekki til. Hans-Dietrich Genscher, utanríkisráðherra Pjóð- veija, hefur sagt að ef Króatar og Slóvenar fái ekki viðurkenn- ingu fljótlega muni Serbar líta á það sem stuðning við „landvinn- ingastefnu" sína og árásir sam- bandshersins undir þeirra stjórn aukast. ítalir hafa verið helztu stuðn- ingsmenn Þjóðveija, meðal annars vegna þrýstings frá Páfagarði, því að flestir íbúar Króatíu eru róm- versk-kaþólskir. Þjóðveijar hafa einnig notið stuðnings Austurrík- ismanna og Ungveija, sem einnig börðust með þeim í tveimur heims- styijöldum, og Serbar munu reyna að færa sér þetta í nyt í áróðri sínum gegn „Fjórða ríkinu“, sem er uppnefni þeirra á sameinuðu Þýzkalandi. Bretar og Frakkar hafa fengið stuðning frá Hollend- ingum, Grikkjum, Spánveijum og Portúgölum. Þýzkir fjölmiðlar hafa yfirleitt fagnað baráttu stjórnarinnar í Bonn og gagnrýnt EB fyrir hik og óákveðni, þótt sumir telji hana hafa farið of geyst. Þingleiðtogi sósíaldemókrata, Hans-Ulrich Klose, kvað ákvörðun EB skyn- samlega, þar sem komizt hefði verið hjá klofningi, en taldi að réttara hefði verið að fara hægar í sakirnar, því að ekki megi líta út fyrir að Þjóðveijar leggi á það ofurkapp að fara eigin leiðir. „Við verðum að hafa taumhald á okkur af sögulegum ástæðum," sagði hann. Suddeutsche Zeitung varaði við hættu á því að Serbar sýndu aukna harðýðgi, en viðbrögð þeirra hafa verið væg til þessa, þótt áfram sé barizt af hörku. Nýtt hlutverk Hugmyndir um nýtt hlutverk Þýzkalands í Evrópu eftir samein- ingu þess eru meðal annars taldar búa á bak við öflugan stuðning Bonn-stjórnarinnar við Króata og Slóvena. Stuðningurinn er oftast rökstuddur með skírskotun til sjálfsákvörðunarréttar, sem lá til grundvallar sameiningu þýzku ríkjanna. Þjóðveijar hafa haft samúð með sjálfstæðisbaráttu kaþólskra Króata gegn síðustu merkisberum stalínismans í Evr- ópu, Serbum. Engin þjóð hefur hagnazt eins mikið á endalokum kalda stríðsins og Þjóðveijar og þeir óttast að langvinn styijöld í Júgóslavíu geti komið í veg fyrir nýtt friðartíma- bil í Evrópu. Þar við bætist að í Þýzkalandi eru 700.000 júgóslavn- eskir verkamenn, aðallega króat- ískir. Þúsundir flóttamanna frá Júgóslavíu hafa leitað hælis hjá ættingjum í Þýzkalandi og það hefur kynt undir óánægju í garð erlendra gistiverkamanna. Óttazt er að fleiri fylgi á eftir ef stríðið brejðist út. Á flokksþingi kristilegra demó- krata (CFU) í Dresden um síðustu helgi var því haldið fram að Austur-Evrópubúar væntu þess að fá efnahagslega aðstoð og pólitísk- ar ráðleggingar frá Þjóðveijum til að koma á fót lýðræði og tryggja velsæld eftir margra áratuga al- ræði. „Okkur ber skylda til að styðja lýðræði í Austur-Evrópu, ef- við eigum að vera traustsins verðir," sagði einn ræðumanna. Ýmsum þótti Þjóðveijar hafa látið of lítið að sér kveða í Persa- flóastríðinu og vildu að þeir stæðu betur vörð um hagsmuni sína. Fylgja þyrfti virkari stefnu og það væri meðal annars hægt með virk- ari stuðningi við vini Þjóðveija í Austur-Evrópu. Þýzka hefur lengi verið út- breiddasta erlenda tungumálið í Tékkóslóvakíu, Ungveijalandi, Norður-Júgóslavíu og víðar í Austur-Evrópu. Þýzk áhrif í stjórnmálum, menntamálum og viðskiptum héldust eftir sundur- limun Habsborgarríkis Austurrík- ismanna og Ungveija, sem bæði Króatía og Slóvenía tilheyrðu auk Bosníu-Herzegóvínu, í lok heims- styijaldarinnar 1914-1918. Eftir innlimun Austurríkis og stórs hluta Tékkóslóvakíu urðu áhrif Þjóðveija yfirgnæfandi og afleið- ingarnar hörmulegar. Þjóðveijar, ítalir og Ungveijar studdu króatískt leppríki, sem stóð fyrir morðum á hundruðum þús- unda Serba og gyðinga í stríðinu, en Serbar stóðu einnig fyrir fjölda- morðum á Króötum. Síðan hafa * Ottast ao átökin v breiðist út til annarra lýðvelda margar elfur runnið til sjávar, en Serbar og Króatar hafa aldrei getað gleymt borgarastyijöldinni á heimsstyijaldarárunm og upphaf núverandi átaka er rakið til þessa tímabils. Algert stríð? Nú táknar væntanleg viður- kenning Evrópubandalagsríkj anna á sjálfstæði Króata og Slóvena endalok þeirrar Júgóslavíu, sem var komið á laggirnar 1918, en framtíð hinna lýðveldanna fjög- urra er óráðin. í Serbíu og hinum lýðveldunum er óttazt að viðurkenningin geti leitt til bardaga í öðrum landshlut- um, spillt fyrir friðarumleitunum og valdið óstöðugleika á Balkan- skaga. Serbar segja að Króötum sé fijálst að segja skilið við Júgó- slavíu, en þeir verði að viðurkenna sjálfsákvörðunarrétt serbneskra íbúa og sambándsherinn verði að halda kyrru fyrir í Króátíu til að veija þá. „Ástandið mun versna,“ sagði ráðgjafi Slobodans Milosevics Serbíuforseta í vikunni. „Friðar- umleitanir munu stöðvast. Þetta táknar endalok Haag-ráðstefnu EB um Júgóslavíu, því að viður- kenning á Slóveníu og Króatíu leggur Júgóslavíu í rúst.“ Enn er óráðið hvort fallizt verð- ur á aðskilnað alls yfirráðasvæðis Króatíu, eða hvort svæði byggð minnihluta 600.000 Serba verða undanskilin. Serbnesk héruð í Kró- atíu liggja yfirleitt ekki að Serbíu heldur að Bosníu- Herzegóvínu, þar sem 44% íbúanna eru múham- eðstrúar, 31% Serbar og 17% Kró- atar. Eitt þessara héraða, Krajina, lýsti yfir sjálfstæði á fimmtudag- inn, en eigi yfirlýsingin að þjóna einhveijum tilgangi verður ekki óskað eftir sameiningu við Serbíu heldur Bosníu vegna legu héraðs- ins. Hugsanleg áhrif viðurkenning- ar á Króötum og Slóvenum í Bos- níu valda mestum áhyggjum. Fyrri heimsstyijöldin hófst eftir morðið á austurríska ríkisarfanum í höfuðborg Bosníu, Sarajevo, og nú óttast margir að auknar viðsjár í Bosníu leiði til algers stríðs í Júgóslavíu. Bosníumenn óttast að íbúar kró- atískra byggðarlaga í lýðveldi þeirra muni lýsa yfir sameiningu við Króatíu og fara þannig að dæmi serbneskra íbúa Króatíu, sem hafa reynt að sameinast Serb- íu. Tugþúsundir Serba í Króatíu hafa flúið til Bosníu og Bosníu- menn óttast að Serbar muni færa út átökin til lýðveldis þeirra til að sölsa undir sig svæði í Bosníu byggð Serbum. Síðan kunni að verða reynt að tengja við Serbíu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.