Morgunblaðið - 22.12.1991, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. DESEMBER 1991
31
upp á þá valkosti að draga einhver
atriði til baka gegn því að annað
fengi greiðari framgang í gegnum
þingið. Efstur á óskalistanum var
„lögregluskatturinn“ svonefndi sem
ætlað er að færa 700 milljónir króna
í ríkissjóð, einnig var orðað að draga
frestun á greiðslum til bænda til
baka, ennfremur að milda skerðing-
una á barnabótum. Til að koma til
móts við tekjutap sem af þessu
leiddi, bentu stjórnarandstæðingar
á að væri gildistími gildistíma jöfn-
unargjaldsins framlengdur allt
næsta ár, myndi það færa ríkissjóði
360 milljónir kr. í tekjur. Hækkun
neysluvarnings ÁTVR um 6%
myndi færa ríkissjóði svipuð bú-
drýgindi. Stjórnarandstæðingar
töldu einnig að með hertri inn-
heimtu skatta mætti ná inn um 500
milljónum kr.
Lögregluskattur eða
jöfnunargjald
Stuðningsmenn ríkisstjórnarinn-
ar buðu á móti að lækka þá upphæð
sem sveitarfélögunum er ætlað að
greiða fyrir löggæslu niður í 600
milljónir, þar að auki skyldu 75
milljónir af þessum 600 milljónum
renna í Jöfnunarsjóð sveitarfélag-
anna. Til að afla tekna í mót þessum
afslætti skyldi jöfnunargjaldið vera
framlengt fram í september. Stjórn-
arandstæðingar töldu þetta tilboð
fjarri öllu lagi. Buðu þeir þá þau
skipti að „lögregluskatturinn færi
út“ en í mót kæmi að fjárlagafrum-
varpið og frumvörp því tengt, fengu
þess mun greiðari framgang. Að
þessu gátu stuðningsmenn ríkis-
stjórnarinnar ekki gengið og slitn-
aði upp úr viðræðunum á öðrum
tímanum í fyrrinótt. Að sögn Geirs
H. Haarde, formanns þingflokks
Sjálfstæðismanna, var afstaða
stjórnarliða sú að þeir voru reiðu-
búnir til að ræða ýmis atriði en það
kæmi ekki til greina að auka halla
ríkissjóðs og tekjuöflunarleiðir
stjórnarandstæðinga væru annað-
hvort óaðgengilegar eða ófram-
kvæmanlegar. Á sjötta tímanum í
gærmorgun gerðu stjórnarliðar það
tilboð að sveitarfélögin greiddu 500
milljónir í ríkisjóð en ekki var nán-
ari útfærsla á því gjaldi tilgreind.
Jöfnunargjaldið skyldi áfram lagt
fram í september. Ráðgert var að
hittast í hádeginu og ræða málin
nánar þar eð málsaðilar voru annað-
hvort vansvefta ellegar gengnir til
sængur.
Þingfundi lauk laust fyrir kl. 6
í gærmorgun.
Skákstigabólgan
*
nær ekki til Islands
Skák
Margeir Pétursson
IBM í Þýskalandi liefur nú tekið
við stigaútreikningi fyrir Alþjóða-
skáksambandið af júgóslavnesku
fyrirtæki. Þjóðverjarnir hafa byij-
að mjög rösklega og er þegar vitað
hvernig listinn sem tekur gildi 1.
janúar 1992 lítur út í meginatrið-
um. Honum er ætlað að ná til allra
skákmóta sem fullnægja skilyrð-
um til stigaútreiknings fram til 30.
nóvember í ár.
Þess má geta að á þingi FIDE
í Berlín í byrjun mánaðarins var
ákveðið að sameina stigalista karla
og kvenna og þarf nú að ná 2.005
stiga árangri til að komast inn á
hann, en áður var lágmarkið 2.205
hjá körlum en 1.805 hjá konum.
Heimslistinn:
1.1.92 1.7.91
Kasparov, Rússl. 2.780 2.770
Karpov, Rússl. 2.725 2.730
Ivantsjúk, Úkraínu 2.720 2.735
Short, Englandi 2.685 2.660
Anand, Indlandi 2.670 2.650
Gelfand, Sovétr. 2.665 2.665
Shirov, Lettlandi 2.655 2.610
Kamsky, Bandaríkj. 2.655 2.595
Jusupov, Rússlandi 2.655 2.625
Salov, Rússlandi 2.655 2.665
Bareev, Rússlandi 2.635 2.680
Nikolic, Júgósl. 2.635 2.625
Gúrevitsj, Belgiu 2.635 2.630
I. Sokolov, Júgsl. 2.630 2.570
Speelman, Englandi 2.630 2.630
Polugajevskí, Rúss 2.630 2.630
Kalifman, Þýskal. 2.625 2.630
Epishin, Rússlandi 2.620 2.615
Timman, Hollandi 2.620 2.630
Beljavskí, Úkraínu 2.620 2.655
Chernin, Rússlandi 2.620 2.605
Hansen, Danmörku 2.620 2.600
Þess ber að geta að tilraun til að
sveitfæra þá skákmenn sem koma
frá því svæði sem nefnt verður Sov-
étríkin fram á næsta gamlárskvöld
er undirritaðs. I viðbót við það má
geta þess að Júsupov er fluttur til
Þýskalands, Salov til Spánar og
Chernin til Ungveijalands. Þá er
heimsmeistarinn ekki borirm og
barnfæddur Rússi, heldur frá Az-
erbadjan.
Alls hafa nú hvorki meira né
minna en 43 skákmenn 2.600 stig
eða meira, en þeir voru 38 á síðasta
lista.
íslenski listinn
Reiknaðar skákir frá síðasta lista
eru í sviga fyrir aftan nýju stigin:
Jóhann Hjaitai'son
Mai'gcii’ Pctui'sson
Helgi Ólafsson
Jón L. Árnason
Karl Þoi-steins
Hcðinn Steingrímss.
Hannes H. Stcfánss.
Þröstui- Þórhallsson
Bjöi'gvin Jónsson
Gylfi Þói'hallsson
Helgi Áss Grötai's.
Róbeit Haiðarson
Jóhannes Ágústsson
Andri Áss Grötai's.
Sævar Bjamason
2.580 (39) 2.550
2.555 (43) 2.540
2.525 (19) 2.525
2.515(11) 2.520
2.485 (11) 2.470
2.455 (32) 2.505
2.455 (26) 2.470
2.425 (11) 2.425
2.420 ( 0) 2.420
2.375 ( 8) 2.285
2.350 (23) 2.245
2.345 (22) 2.310
2.315 ( 0) 2.315
2.315 ( 0) 2.315
2.310 ( 1) 2.315
Tveir efstu íslendingarnir eru á
listanum yfir 100 stigahæstu skák-
menn heims. Sú stigabólga sem setur
mark sitt á heimslistann virðist lítil
eða engin áhrif hafa hér á landi. Nú
eru aðeins 42 íslenskir skákmenn á
FIDE-listanum, sem er talsvert mikil
fækkun frá því 1. júlí, en þá voru 55
á honum. 13 skákmenn hafa dottið
út fyrir að tefla ekki, þ. á m. Stór-
meistararnir Friðrik Ólafsson og Guð-
mundur Siguijónsson. Aðeins fimm
skákmenn íslenskir eru með alþjóðleg
mót reiknuð inn í þennan lista. Ljóst
er að ástæðan fyrir þessum doða er
að ekkert alþjóðlegt skákmót var
haldið hérlendis 1991, nema Heims-
bikarmót Flugleiða, þar sem aðeins
einn íslendingur var með.
í raun og veru er ekkert samhengi
í því að þjóð sem er reiknuð með
áttunda öflugasta fjögurra manna
landslið heims skuli ekki eiga nema
42 skákmenn með yfir 2.200 stig.
Hátt í tíuþúsund manns eru á lista
FIDE. Líklega hafa a.m.k. helmingi
fleiri íslendingar styrkleika til að
vera á listanum. Ljóst er að ástandið
stendur til bóta með alþjóðlegum
mótum í Reykjavík og Hafnarfírði í
marz, en þar fá aðeins fáir tækifæri
og betur má ef duga skal ef við ætl-
um að halda okkar stöðu.
Ein augljós mistök setja svip sinn
á listann yfir íslendinga. Farið er
eftir föðurnöfnum við útreikning og
stórmeistaraárangur Þrastar Þór-
hallssonar á móti í Gausdal í sumar
hefur greinilega verið færður á Gylfa
Þórhallsson frá Akureyri, sem er
hækkaður um 90 stig. Líklegt er að
Þröstur eigi inni 20-25 stig vegna
þessa. Vonandi verður þetta leiðrétt
fyrir áramótin. Þá vantar tvö mót sem
þeir Hannes og Þröstur tefldu á í
Austurríki og mót sem þeir tveir og
Héðinn Steingrímsson tefldu á í
Gausdal. Þá er aukakeppnin um ís-
Auglýsendur
athugið!
Auglýsingar í laugardagsblaöiö
28/12 þurfa að berast
auglýsingadeild í síðasta lagi fyrir
kl. 12.00 þriðjudaginn 24/12
(aðfangadag).
fHevgun^Ifihihi
landsmeistaratitilinn ekki inni í þess-
um tölum.
Hannes Illífar Stefánsson, al-
þjóðlegur meistari, kom fyrir stuttu
heim frá Búdapest þar sem hann
tók þátt í nokkuð öflugu alþjóðlegu
móti. Hannes byijaði vel með sigri
yfir sovéska stórmeistaranum Arsh-
ak Petrosjan, en tapaði síðan tveim-
ur skákum afar illa fyrir sigurveg-
urum mótsins, alþjóðlegu meistur-
unum Baburin, Rússlandi og Lutz,
Þýskalandi. Hann náði sér þó upp
í 50% vinninga, hlaut 5Vi v. af 11
mögulegum, sem er dágóður árangur.
Enn er það drekaafbrigði Sikil-
eyjarvarnarinnar sem er til umræðu
hér í skákþættinum:
Hvítt: Hannes Hlífar Stefánsson
Svart.: S. Farago, llngverjal.
1. e4 - c5 2. Rf3 - d6 3. d4 -
cxd4 4. Rxd4 — Rf6 5. Rc3 — g6
6. Be3 - Bg7 7. f3 - 0-0 8. Dd2
- Rc6 9. Bc4 - Bd7 10. 0-0-0 -
Hc8 11. Bb3 - Re5 12. h4 - h5
13. Bg5 - Hc5 14. Kbl - b5 15.
g4 - a5 16. Bxf6 - Bxf6 17.
gxh5 — a4 18. Bd5
í Hastings um áramótin 1985-86
lék Chandler 18. hxg6 — axb3 19.
Rxb3 gegn mér, en eftir 19. —
Hxc3! 20. gxf7+ - Kxf7 21. Dxc3
— Rc4! var svarta staðan í lagi.
Eg sá hins vegar möguleika yfir
borðinu sem mér leist mjög illa á
fyrir svarts hönd og „talaði af mér“
eftir skákina. Strax daginn eftir
vann enski stórmeistarinn Mestel
fyrstu skákina með þeirri leikaðferð
og æ síðan hafa drekabændur orðið
fyrir þungum búsitjum vegna henn-
ar. 18. — e6 19. hxg6 — exd5 20.
h5! - Bg5 21. f4 - Bh6?
Mun nákvæmara er 21. — Hxc3!?
22. bxc3 - Bh6 eða 21. - Rc4 22. ’
Dh2 — Bh6. Nú getur Hannes stað-
sett drottningu sína á betri reit en
í síðastnefnda afbrigðinu. Ung-
verskir skákmenn eru margir hveij-
ir afar vel heimá í fræðunum og
Farago sagðist eftir á hafa séð
nokkrar skákir í heimalandi sínu
þar sem svartur komst vel frá því
að leika 21. — Bh6. En Hannes
sýnir fram á að afleikirnir batna
ekki við það að fleiri herini þá eftir.
22. Rxd5 - Rc4 23. Dg2! - Hxd5
24. gxf7++! - Kh8 25. Dg6 -
Hxf7 26. Hdgl - De8 27. Df6+
- Kh7 28. Dg6+! - Dxg6 29.
hxg6+ - Kg7 30. Hxh6! - Kxh6
31. g7 - Hc8 32. g8=D - Hxg8
34. Hxg8 og hvítur vann.
/ Jola-Happoi
o
??orÆrr/ hásv
Síðasti söludagur
Milljónir dregnar út
þriðjud. 24. des. (Aðfangadag).
Vinningar birtir
á annan jóladag,
26. desember.
SPENNAMW!
- ef þú átt miða!