Morgunblaðið - 22.12.1991, Page 47

Morgunblaðið - 22.12.1991, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ UTVARP/SJONVARP SUNNUDAGUR 22. DESEMBER 1991 47 Rás 2 Bubbi á Borginni ■■■■ Þetta er bein útsending frá tónleikum Bubba Morthens á OO 07 Hótel Borg. Tónleikar þessir á þessum tíma eru orðnir fastur liður í bæjarlífinu. Á dagskrá hjá Bubba verða bæði gömul lög og ný. Heims um bói mmm Þetta er fjölskyldumynd þar sem sagt er frá því hvernig nn 40 jólasáimurinn „Heims um ból“ varð til. í myndinni fara “vl saman falleg tónlist, gamansemi, töfrar og sögulegar stað- reyndir. Sögusviðið er Oberndorf í Austurríki veturinn 1818 og á áhorfendum eftir að koma á óvart stór þáttur músa í tilurð sálmsins... Metsölublad á hverjum degi! S Giafaverð Kertastjakar 3 stærðir Svartir kr. 3.200,- Gylltir kr. 4.500,- b í r ó s t e i n a r SMIÐJUVEGI 2 200 KÓPAVOGUR SÍMI 46600 Gárur eftir Elítiu Pálmadóttur Hirðamirmeð fjárhópinn Jólin koma! Og með þeim fagnaðarboðskapurinn um fæðingu frelsarans í Betle- hem. „í þeirri byggð voru fjár- hirðar úti í haga og gættu um nóttina hjarðar sinnar“ mun heyrast í kirkjum og víða í stof- um. Maður sér fyrir sér hirðana leggja af stað með kindahópinn. Og snúa aftur eftir að hafa séð Mariu og Jósep og ungbarnið liggjandi í jötu. Á hverjum jól- um í aldaraðir hefur fólk hér uppi á íslandi væntanlega séð þá fyrir sér, þar sem þeir ganga spaklega með hjörðina í kring um sig og vegsama og lofa guð fyrir allt sem þeir höfðu heyrt og séð, eins og lýst er í ritning- unni. Skyldi þessi mynd af hirðun- um með spaka hópinn aldrei hafa vafist fyrir íslendingum? Fyrr í haust heyrði ég á tal séra Gunnars Kristjánssonar í útvarpinu þar sem hann var að tala um sauðkindina. Sló því fram að hún gæti allt eins ver- ið ímynd Islendinga og lýsti henni sem hinni fijálsu kind, ef ég man og hefi skilið rétt. Þá rann það upp fyrir mér að þessi kind, sem við höfum í huga, er allt önnur rolla og annarrar náttúru en kindur hirðanna sem spaklega röltu með þeim til Betlehem, biðu og fylgdu þeim svo til baka. Sauðkindurnar okkar eru miklu líklegri til að týnast eins og kindurnar í ljóðinu hans Snorra Hjartarsonar, sem eru horfnar og þarf að fara að leita að. Þetta eru fijálsar kindur og geta allt eins tvístrast út um holt og móa meðan mennirnir eru með hugann við aðra og merkilegri hluti. Um þessi jól munu slíkar hugrenningar samt ekkert trufla þessa kyrrlátu mynd af hirðunum með hjarðstafinn. Nú veit ég betur. Skýringin kom til mín í Gólanhæðum í vor, sem ég horfði á alla fjárhirðana með kindurnar í nánd, hvort sem þeir voru á gangi eða sátu; og þær á beit i kring. Þetta voru ekki rollur sem ég þekkti frá mínum árum í sveit. Rollur sem voru horfnar upp fyrir ásinn og á fjöll áður en við var litið og þurfti hlaupa fyrir og smala saman, helst á hesti og með hund. Finnsku hermennirnir frá friðargæsluliði Sameinuðu þjóð- anna voru að segja mér að helstu slysin á friðaða svæðinu yrðu þegar hirðarnir lentu með rollur sínar á jarðsprengjum. Væru þá að elta græna gróðurbletti yfir hlutlausa bannsvæðið. Og svo kom skýringin: Þessar kindur fara nefnilega aldrei langt frá hirðinum. Þær fara ekkert sem ' hann fer ekki! Þetta, þvældist svolítið fyrir mér. Samkvæmt mínurn reynsluheimi hefðu roll- urnar vel getað flandrað einar yfir í fjallið handan bannsvæðis- ins. Þá rann upp ljós. Þessar kindur eru allt aðrar rollur og allt annarrar náttúru en þær sem smalinn eltist við á íslenskum fjöllum. Enda með stóra lafandi fituhnúða aftan á sér, þegar betur er að gáð. Þetta eru spak- ar kindur sem ekki víkja frá hirð- inum. Sömu kindumar sem vom á glansmyndunum þétt í kring um smalann með hjarðstafinn í sunnudagaskólanum og á mynd- inni sem dregin er upp í guð- spjöllunum; myndinni sem við sjáum fyrir okkur undir frásögn- inni um fjárhirðana úti í haga á jólanóttina að gæta kinda sem svo fylgja þeim fast eftir til Betlehem og til baka eftir að hafa beðið í hnapp meðan þeir segja Maríu og Jósep hjá ung- barninu í jötunni það sem Drott- inn hafði kunngert þeim: „Verið óhræddir, því sjá, ég boða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum; því yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn, í borg Davíðs." Eftir að hafa kynnst hegðun- armynstri kindanna prúðu með stóru fitukeppina suður í Mið- austurlöndum verða allar dæmi- sögurnar um hirðinn og kinda- hópinn, sem er honum svo háð- ur, miklu skýrari í huganum. Og spurning vaknar: Skyldi það aldrei hafa þvælst obbolítið fyrir alþýðumanneskju uppi á íslandi að sjá fyrir sér í huganum mynd- ina af góða hirðinum sem ekk- ert þarf að hlaupa á eftir rollun- um? Þær víkja ekki frá honum og fylgja ávallt sínum góða hirði. Ætli hún hafi ekkert truflað fijálsa íslenska fjallakindin, ímynd íslendinga, sem engu eir- ir og engum fylgir?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.