Morgunblaðið - 10.01.1992, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1992
17
og var farin að vinna hjá mjög
þekktu fyrirtæki á sviði fatahönnun-
ar að loknu námi í þessari grein.
Anna hafði lengi stefnt að þessu
markmiði sínu. Strax í menntaskóla
lagði hún mikla áherslu á frönskun-
ámið. Það var eins og hún væri sú
eina af okkur sem raunverulega
vissi hvert hún stefndi og vann af
kappi við að ná settu markmiði.
Mér finnst eins og ég hafi átt
eftir að segja henni svo margt. Hún
hafði aldrei séð dóttur mína og ég
hafði aldrei hitt eiginmann hennar.
En núna gefst ekki annað tæki-
færi. Að minnsta kosti ekki í þessu
lífi.
Ég er mjög þakklát fyrir að hafa
kynnst Önnu svona vel. Við töluðum
mikið saman seint á kvöldin í ML
þegar kominn var háttatími. Þetta
eru góðar minningar um góða og
trausta vinkonu.
Ég sendi eiginmanni hennar mín-
ar innilegustu samúðarkveðjur.
Elsku Sigrún, Óli, Sigurjón og
Elín. Mikill er missir ykkar. Megi
góður Guð veita ykkur styrk í þess-
ari miklu sorg. Minningin um Önnu
mun lifa í hjörtum okkar allra.
Kristín Elfa Ingólfsdóttir
Hinn slyngi sláttumaður lætur
ekki að sér hæða. Á þessu hausti
hafa óvenju margar vænar rósir leg-
ið óvænt í ljáfari hans. Ein af þeim
var Anna Berglind Jóhannesdóttir
Bouvier, sem bráðkvödd varð á
heimili sínu í París á aðfangadags-
morgun.
Anna Berglind fæddist 13. febrú-
ar 1965 á Patreksfirði. Foreldrar
hennar voru hjónin Jóhannes Árna-
son sýslumaður, f. 20. apríl 1935,
d. 30. apríl 1989 og Sigrún Sigur-
jónsdóttir bankastarfsmaður, f. 12.
maí 1938. Á Patreksfirði ólst hún
upp við traust og gott fjölskyldulíf
í glöðum systkinahópi, en systkini
Önnu eru Ólafur Þór, f. 1961, upp-
eldisfræðingur, Siguijón, f. 1966,
rafmagnsverkfræðingur og Elín, f.
1971, stúdent. Þegar Anna var 17
ára varð faðir hennar sýslumaður í
Snæfellsness- og Hnappadalssýslu
og fluttist hún þá með fjölskyldu
sinni til Stykkishólms.
Að loknu grunnskólaprófi settist
Anna í Menntaskólann á Laugar-
vatni og lauk þaðan stúdentsprófi
vorið 1985 með hárri 1. einkunn.
Varð hún næst hæst yfir skólann
og hlaut verðlaun fyrir góðan náms-
árangur.
Snemma fór að sjást hvert áhugi
Önnu beindist. Strax sem lítil stúlka
fór hún að sníða til og sauma alls
kyns föt á dúkkumar sínar. Er hún
varð eldri urðu föt á sjálfa sig og
fjölskyldu aðalviðfangsefnið.
Löngu fyrir stúdentspróf hafði
Anna ákveðið hvert framhaldsnám
sitt yrði. Haustið 1985 fór hún til
Parísar í nám í hönnun á tískufatn-
aði í „Studio Bercot — Marie Rucki“.
Lauk hún námi þaðan vorið 1989.
Hóf hún þá strax störf í tískufyrir-
tækinu „Montana" í París sem fata-
hönnuður. Stafaði hún þar síðan til
dauðadags. Anna var farsæll og fær
fatahönnuður og átti hún frama vís-
an í starfsgrein sinni.
Á námsárum sínum í París kynnt-
ist Anna eftirlifandi eiginmanni sín-
um, Jeröme Bouvier tölvutækni-
manni, frá Le Havre í Frakklandi.
Þau gengu i hjónaband 10. febrúar
1990. Þeim varð ekki barna auðið.
Það varð Önnu mjög þungt áfall,
er faðir hennar varð bráðkvaddur í
apríl 1989. Samband þeirra var
mjög náið og hann var kletturinn,
sem hún alla tíð hafði lagt allt sitt
traust á. Sem dæmi um náið sam-
band þeirra má nefna, að á námsár-
unum hringdi faðir hennar í hana á
hveijum sunnudagsmorgni til þess
að heyra í stúlkunni- sinni og ráðs-
laga um lausnir á hveijum þeim
vanda, sem að steðjaði. Þegar hann
lést, var Anna í miðjum lokaprófs-
önnum, en með þeirri þrautseigju
og einbeitni, sem henni var ásköp-
uð, lauk hún prófunum með ágætum
vitnisburði þetta sama vor.
Fyrstu kynni mín af Önnu urðu
þegar hún var fímm ára gömul, er
ég gekk að eiga föðursystur henn-
ar. Minningin geymir síbrosandi en
feimna, litla telpu, sem var hvers
manns hugljúfí, síðar glæsilega,
greinda skólastúlku, fagnandi ný-
stúdent, stoltan nýbakaðan fata-
hönnuð og loks hamingjusama eig-
inkonu.
Anna var listræn í sér og málaði
hún myndir, sem hún hélt sýningu
á. Hún ar glaðvær í fasi, jákvæð
og afar gestrisin. Eftir því sem árin
liðu höfðu tengsl fjölskyldu minnar
og hennar aukist, mest þó í tveimur
heimsóknum til Parísar sumrin 1988
og 1990, þegar Anna hafði útvegað
okkur hjónunum og börnum okkar
námsmannaíbúðir til íveru um 3-4
vikna skeið meðan heimsborgin og
nágrenni hennar var skoðuð. Við
kynntumst eiginmanni hennar,
Jeröme, sem er hvers manns hug-
ljúfí og drengur góður. Móttökur
þeirra í heimsóknum í litlu íbúðina
á Quai de Valmy voru engu líkar,
enda var matargerðarlist húsmóður-
innar ekki síðri en á dýrustu veiting-
astöðum.
Við kynntumst einnig tengdafor-
eldrum hennar, sem við heimsóttum
til Le Havre, þar sem okkur var
höfðinglega tekið og gott tækifæri
gafst til að kynnast hinu rómaða
franska borðhaldi og þeirri hlið
Frakka, sem maður sér ekki eða
finnur sem ferðamaður í heimsborg-
inni.
Síðastliðið sumar komu þau Anna
og Jeröme í heimsókn hingað. Fóru
þau hringinn í kringum landið. Anna
lagði metnað sinn í, að Jeröme sæi
helstu gersemar íslenskrar náttúru
og að hann kynntist landinu hennar
sem best. Undanskildu þau þá ekki
norðausturhorn landsins, sem svo
iðulega er sleppt í þessum hringferð-
um. Landið skartaði sínu fegursta
á einu besta sumri aldarinnar. Áhrif-
um landsins á Jeröme er kannski
best lýst með því orði á eigin tungu,
sem hann notaði um hrifningu sína,
„magnifique“.
Skaparinn leggur misþungar
byrðar á okkur mannanna böm. Á
móður Önnu og systkini hafa verið
lagðar óvenjuþungar byrðar, hvert
reiðarslagið á fætur öðru hefur dun-
ið yfir á stuttu tímabili, fyrst deyr
elskaður eiginmaður og faðir
skyndilega fyrir rúmum tveimur
ámm og nú elskuð dóttir og systir
jafn skyndilega. Guð gefi þeim styrk
á þessum sorgartímum. Það er
huggun harmi gegn að Önnu bíður
góð heimkoma á nýjum slóðum, þar
sem faðir hennar bíður og leiðbeinir
henni fyrstu sporin.
Magnús Ólafsson.
Fleiri greinar um Önnu B. Jóhann-
esdóttur bíða birtingar og munu
þær birtast í blaðinu næstu daga.
Félag dómtúlka og skjalaþýðenda;
Ný stjórn og heiðursfé-
lagar kjörin á aðalfundi
Á aðalfundi Félags löggiltra
dómtúlka og skjalaþýðenda, sem
haldinn var nýlega, var ný stjórn
kjörin í félaginu. Formaður
hennar er Arnór Hannibalsson,
gjaldkeri Karóiína Geirsdóttir og
ritari Lars H. Andersen. Fráfar-
andi stjórnarmenn, Hilmar Foss,
Jóhanna Jóhannsdóttir og Bald-
ur Ingólfsson voru kjörnir heið-
ursfélagar.
Nokkrar breytingar vom gerðar
á lögum félagsins. Aðalfundir verða
hér eftir haldnir árlega og félags-
gjald var hækkað úr 1.000 kr. í
1.500 kr. á ári, að því er fram kem-
ur í fréttatilkynningu stjómar. Fé-
lagið hóf útgáfu fréttabréfs á nýl-
iðnu ári og er þriðja tölublað vænt-
anlegt fljótlega. Á vegum félagsins
er nú safnað gögnum í vandað fé-
lagatal. Hafi einhveijir skjalaþýð-
endur ekki fengið eyðublað, frétta-
bréf eða önnur gögn frá félaginu
beinir er því beint til þeirra að hafa
samband við stjómarmenn.
Ótrúlegtverb
DAIHATSU 4x4
705 hö
1600 cc, 16 ventla
med beinni innspýtingu
Vökvastyri
Klukka
Skipt aftursætisbak
Skráning
Höfuöpúöar aö aftan
Plussklædd sæti
Samlæsing
3 ára ábyrgö
Verksmiöjuryövörn
Ný númer
Heilir hjólkoppar
Skottlok/bensínlok
opnast innanfrá
,
- . .-
1600 cc, 16 ventía
með beinni innspýtingu
Innifalib
Vökvastýri
Klukka
Skráning
Plussklædd sæti
3 ára ábyrgö
Verksmiöjuryövörn
Ný númer
Varadekkshlíf
Driflokur
Skottlok/bensínlok
opnast innanfrá
Foxa«eni 8 • S: 91-685870
—