Morgunblaðið - 10.01.1992, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1992
Ég útiloka ekki álagningu
veiðileyfagjalds síðar meir
- segir Brynjólfur Bjamason forstjóri
Granda í samtali við Sjávarfréttir
BRYNJÓLFUR Bjarnason, for-
stjóri fiskvinnslu- og útgerðar-
fyrirtækisins Granda segist í
samtali við nýtt hefti Sjávar-
frétta ekki útiloka álagningu
veiðileyfagjalds síðar meir. Hér
fer á eftir hluti viðtalsins:
Talsmenn auðlindaskatts
benda á að úr því að útgerðarfyrir-
tæki geti keypt kvóta dýrum dóm-
um hljóti þau einnig að hafa bol-
magn til þess að borga gjald fyrir
afnotin af auðlindinni. Hvetju svar-
ar þú því?
„Deilan um veiðileyfagjald er
ekkert óeðlileg. Þetta er hagfræði-
legt atriði sem snýr að samkeppn-
isstöðu milli atvinnugreina. Ég tel
hins vegar ekki eðlilegt að setja
slíkt gjald á sjávarútveginn eins og
er. Ef einhver ofsagróði myndast í
þessari atvinnugrein mun hann
Heimsklúbbur Ingóifs:
Aukin starfsemi
í TILEFNI frétta um fjárhags-
vanda og starfsslit hjá Ferð-
amiðstöðinni Veröld og vegna
fyrrverandi tengsla Heims-
ldúbbs Ingólfs við það fyrir-
tæki, óskast eftirfarandi til-
kynning birt:
Ingólfur Guðbrandsson hefur
frá upphafi borið ábyrgð á starf-
semi og rekstri Heimsklúbbsins,
sem byggir á persónulegum kynn-
um hans og samböndum í öllum
álfum heimsins. Samkvæmt sér-
stöku samkomulagi á síðasta ári
var ákveðið að klúbburinn hefði
afgreiðslu hjá Veröld fyrir við-
skiptavini sína. Annarra hagsmuna
hefur Heimsklúbburinn né Ingólfur
Guðbrandsson ekki haft að gæta
hjá Veröld, enda var hann þar
ekki hluthafi. Þegar í ljós kom í
október síðastliðnum að Veröld
stóð ekki við gert samkomulag um
greiðslur fyrir klúbbsíns hönd, var
samstarfinu sjálfkrafa slitið.
Heimsklúbburinn er löglega
skráð stoftiun og mun starfa áfram
á félagslegum grundvelli undir for-
ystu Ingólfs Guðbrandssonar, óháð
afdrifum Veraldar. Á síðastliðnu
ári óx þátttakan í ferðum klúbbsins
um nærri 100%. Áform eru um að
auka starfsemi hans enn, enda
njóta ferðir hans fádæma traust
og vinsælda. Meðal þess, sem klúb-
burinn hefur nú á pijónunum er
menningar- og hvíldarferð til Lon-
don og Thaildans í febrúar. Fimm
hundruð ára aftnæli Suður-Amer-
íku um næstu páska, lista- og
menningarferðir um Spán, Mið-
Evrópu og Ítalíu í vor og sumar,
Perlur Austurlanda, Filippseyjar,
Japan og Taiwan í september og
endurtekin ferð til Suður-Afríku í
október. Allar ferðirnar verða
kynntar sérstaklega með erinda-
flutningi og myndasýningum til að
undirbúa þátttakendur sem best.
• •
Okumað-
ur bifhjóls
slasaðist
ÖKUMAÐUR bifhjóls fót-
brotnaði og hlaut aðra
áverka í árekstri við fólksbíl
á Artnúla laust fyrir klukkan
átta í gærmorgun.
Fólksbíl, sem ekið var vestur
Ánnúia, var beygt þvert á göt-
una og inn á bílastæði við Ár-
múlaskóla í veg fyrir bifhjólið
sem ekið var austur Ármúia.
Við áreksturinn kastaðist öku-
maður hjólsins upp á vélarhlíf
bifreiðarinnar og í götuna.
Hann fótbrotnaði meðal annars
og var lagður inn á Borgarspít-
alann.
Dimmviðri var, rigning og
hálka þegar slysið varð.
Fræðsla og heilbrigð lífsnautn, þar
sem hins besta er notið á bestu
kjörum, er kjörorð Heimsklúbbs-
ins.
Heimilisfang klúbbsins verður
fyrst um sinn Austurstræti 17, 4.
hæð.
koma fram í greiðslu tekjuskatts
eins og gerist í öðrum starfsgrein-
um. Ég tel jafnvel koma til greina,
að þessi fyrirtæki greiði hærri tekj-
uskatta en almennt tíðkast, ef það
er mat manna að óþolandi ágóði
verði af starfseminni, eftir að tekið
hefur verið tillit til réttlátra arðsem-
isgreiðslna til hluthafa. Ég er al-
gjörlega ósammála þeim mönnum
sem teija að hagkvæmni náist fram
með því að setja á veiðigjald í dag.
Hagkvæmnin mun þvert á móti
nást fram með fijálsu framsali á
kvótum. Sjávarútvegsfyrirtæki
hafa fjárfest í fískiskipum og fyrir-
tækjum í þeirri góðu trú að þau
yrðu ekki skattlögð sérstaklega.
Þessir aðilar þurfa að fá arð af fjár-
festingum sínum á næstu árum,
áður en til greina kæmi að leggja
á sérstakt veiðileyfagjald, ef það
yrði talin rétta aðferðin til þess að
ná fram jöfnum starfsskilyrðum
milli atvinnugreina."
— En þú útilokar sem sagt ekki
álagningu veiðileyfagjalds sem að-
ferð í framtíðinni til þess að jafna
samkeppnisstöðu milli atvinnu-
greina?
„Nei, það geri ég ekki“.“
mest seldu fólks-
bílategundirnar
jan.-des. 1991
Fjöldi %
1 MITSUBISH! 1.720 19,0
2. TOYOTA 1.666 18,3
3. NISSAN 961 10,6
4. SUBARU 867 9,6
5 AE-LADA 606 6,7
6 DAIHATSU 517 5.7
7-8. SUZUKI 284 3,1
7-8. MAZDA 284 3,1
9. VOLKSWAGEN 281 3,1
10. RENAULT 269 3,0
Aðrir 1.616 17,8
6.910
1990
BILAINNFLUTNINGUR jókst á síðasta ári um tæp 35% frá árinu áður. Alls
voru fluttir til landsins 11.900 bílar og þar af voru nýir bílar 11.086. Árið 1990 var
heildarbílainnflutningur 8.819 og ári áður 7.476. Á árunum 1986-1988 var hins
vegar mikil gróska í bílainnflutningi og árið 1987 var fjöldi innfluttra bíla tæplega
helmingi meiri en á siðasta ári. Innflutningur nýrra bíla á síðasta ári svarar svo til
nákvæmlega til meðalinnflutnings nýrra bíla söustu sjö ár, en hann var 11.082.
Innfiutningur notaðra bíla á síðasta ári var hins vegar 814 miðað við meðaltal
síðustu sjö ára sem var 1.708. í síðasta mánuði ársins voru fluttir inn 521 nýr bíll og
52 notaðir eða alls 573. Talsvert dró úr bílainnflutningi síðustu mánuði ársins. í
nóvember voru þannig fluttir inn 632 bílar og var samdráttur milli mánuða um 12%.
Milli október og nóvember var samdrátturinn 30%. Heildarbilaeign landsmanna í
árslok 1990 var rúmlega 134.000 og að sögn Jónasar Steinarssonar,
framkvæmdastjóra Bílgreinasambandsins, má líta á innflutning söasta árs sem
eðlilega endurnýjun miðað við þann flölda. Hins vegar eiga menn von á að
samdráttur síðustu mánuða haldi áfram á næstunni og að bílainnflutningur þessa
árs verði talsvert minni en í fyrra.
VIS varar viðskiptavini sína við tilboði Skandía Island hf:
Frekari iðgjaldalækkanir
velta á viðtökum bíleigenda
- segir Gísli Lárusson, forstjóri Skandía Island hf.
AÐ MEÐALTALI 200 manns hafa samband við Skandía ísland hf.
á degi hveijum og óska eftir tilboði í bifreiðatryggingu hjá félag-
inu, að sögn Gísla Lárussonar forstjóra. Skandía Island hf hefur
skrifað hópi bifreiðaeigenda bréf og boðið tryggingar með skilmál-
um, sem eru frábrugðnir því sem önnur tryggingafélög bjóða. Vá-
tryggingafélag Islands hefur skrifað viðskiptavinum sínum bréf og
varað við „hættulegri gildru“ í bréfi Skandía ísland.
Gísli Lárusson segir að engin
samkeppni hafi ríkt á þessum mark-
aði fyrr en Skandía reið á vaðið og
bauð ökumönnum eldri en 30 ára
lægri tryggingariðgjöld en áður
hafa tíðkast hériendis. Örn Gústafs-
son framkvæmdastjóri markaðsde-
ildar Vátryggingarfélags íslands hf.
segir að mikið skorti á upplýsingar
frá Skandía ísland hf um tiygginga-
skilmála og bótasvið. VIS hefur
boðað breytingar á iðgjöldum bif-
reiðatrygginga 26. janúar nk.
í bréfi sem viðskiptavinum VÍS
hefur borist frá félaginu er bent á
að hópi bifreiðaeigenda berist um
þessar mundir bréf frá Skandía þar
sem „gefinn er ádráttur um lægri
iðgjöld til ákveðinna ökumanna í
nafni réttlætis," eins og segir í bréf-
inu. Eru viðskiptavinir varaðir við
hættulegri gildru því beðið sé um
upplýsingar um tryggingaviðskipti
og undirskrift sem jafnframt sé
umboð til Skandía ísland að segja
upp gildandi bifreiðatryggingu án
þess að viðskiptavinurinn hafi feng-
ið fonnlegt tilboð til samþykktar.
9-26% lægri iðgjöld
„Við erum að bjóða öllum aðilum
sem eru yfir 30 ára, í hvaða bónus-
flokki sem er, 9-26% lægri iðgjöld,
eftir búsetu. Fólk hefur samanburð
við það sem það greiðir hjá hinum
félögunum. VÍS varar fólk við að
tryggja hjá okkur og biður það um
að bíða til 26. janúar. Þá eru menn
fastir í eitt ár. Fá þeir hækkun frá
VÍS? Ég veit ekki til þess að VÍS
hafí lagt inn beiðni til tryggingaeft-
irlitsins um breytt iðgjöld," sagði
Gísli Lárusson, forstjóri Skandía
ísland hf. Hann sagði að bótasvið
og skilmálar væru nákvæmlega
þeir sömu og hjá hinum félögunum.
10% álag leggst ofan á iðgjaldið ef
ökumaður yngri en 25 ára ekur við-
komandi bifreið. Veiti trygging-
artaki rangar upplýsingar um aldur
þeirra sem aka bifreiðinni og öku-
maður yngri en 25 ára lendir í
umferðaróhappi beitir tryggingafé-
lagið ákvæðum um sjálfsábyrgð
sem er rúmlega 21 þúsund krónur.
Ragnar Ragnarsson hjá Trygg-
irigaeftirliti ríkisins sagði að beiðni
hefði ekki borist frá VIS um breyt-
ingu á iðgjöldum. 1. mars væri
endumýjunardagur samkvæmt
eldri reglum og miðuðust trygging-
ar margra bifreiðæigenda enn við
þann tíma. Hann sagði að beiðni
VtS mætti gjaman hafa borist því
yfirleitt væru beiðnir ekki sam-
þykktar án fyrirspuma og athuga-
semda tryggingæftirlitsins. Hann
sagði að ekki væri rétt að tala um
iðgjaldalækkanir í þessu sambandi
- hér væri um að ræða breytta upp-
byggingu iðgjalda sem leiddi til
lækkunar iðgjalda hjá sumum og
hækkunar hjá öðmm. Áður hefði
búseta bifreiðæigenda, gerð öku-
tækja og bónus ráðið iðgjöldum en
nú hefði Skandía ísland tekið inn
þætti eins og aldur ökumanns og
ekna vegalengd á ári.
„Munu bifreiðaeigendur leita til
tryggingafyrírtækis sem hefur lýst
því yfir að árið 1990 hafi verið
versta ár í sögu félagsins og vá-
trygginga alraennt, eins og Ingi R.
orðaði það á sínum tíma? Treysta
þeir því að félagið hafi burði til
þess að lækka iðgjöld? Boðuð ið-
gjaldabreyting VÍS væri ekki á döf-
inni nema vegna þess að við riðum
á vaðið. Við eram ekki félag með
fortíð. Öll hin félögin gerðu hið
sama og við ef þau þyrftu ekki að
glíma við þau vandamál sem til-
heyra fortíðinni. Hér á landi bjóða
félögin öll upp á sömu iðgjöld sem
eru ákveðin af öllum félögunum
sameiginlega og það þekkist hvergi
í Evrópu. Það hefur engin sam-
keppni verið í bifreiðatryggingum á
íslandi fyrr en við rjúfum þessa ein-
okun,“ sagði Gísli Lárasson.
Frekari iðgjaldalækkanir
hugsanlegar
Gísli sagði að iðgjöld bifreiða-
trygginga ökumanna yngri en 30
ára yrðu hærri hjá Skandía en öðr-
um félögum. „Þessi hópur, 17-25
ára, veldur 60-70% allra tjóna. Við
teljum réttlátt að sá hópur greiði
hærri iðgjöld sem veldur tjónunum.
Við eram ekki að lokka einn né
neinn, við bjóðum mönnum að
ganga frá tryggingunni með svar-
seðli. Þeir hafa samanburðinn því
samanburðartafla fylgir með okkar
bréfi,“ sagði Gísli. Hann sagði að
bréfið hefði verið sent til um 20
þúsund heimila og á milli 600-700
manns óskað eftir tilboði í trygg-
ingu á einni viku. Hann sagði að
þetta tilboð Skandía byggðist á því
að það fengi góðan hljómgrann á
meðal bifreiðaeigenda. Búast mætti
við enn frekari lækkun iðgjalda
ökumanna 30 ára og eldri í framtíð-
inni en það ylti á viðbrögðum þeirra
sjálfra. Taldi hann að alls þyrftu
7.-10.000 bifreiðaeigendur að
tryggja hjá Skandís til að af frek-
ari iðgjaldalækkun gæti orðið en
að tíminn myndi leiða í ljós hve
mikil hún gæti orðið.
Eigendur Skandía íslands hf. era
sænska fyrirtækið Skandia, sem á
65% hlut, og íslenskir aðilar sem
eiga 35%. Skandia í Svíþjóð veltir,
að sögn Gísla, 350 milljörðum ÍKR
í vátryggingaiðgjöld á ári, en allur
íslenski vátiyggingamarkaðurinn er
um 12 milljarðar króna.
Tryggingafy rirtæki verða að
fara að lögum
Örn Gústafsson, framkvæmda-
stjóri markaðssviðs VÍS, sagði að
ný fyrirtæki sem hygðust leggja
markaðinn að fótum sér yrðu að
fara að reglum. Ákveðin lög og regl-
ur giltu um það hvemig vátrygging-
arsamningur myndist. Miklar upp-
lýsingar skorti M Skandía um hvað
í tilboði þeirra fælist. Engir skilmál-
ar væra um það í hveiju tryggingin
væri fólgin, ekki væri m.ö.o. ljóst
hvort bótasvið þessara trygginga
væri hið sama og hjá hinum félög-
unum. Skandía hefði ekki afhent
þeim neina skilmála svo unnt væri
að skoða hvort bótasviðið væri það
sama. Óljóst væri hvort Skandía
hygðist innheimta eigináhættu ef
tryggingatakar brytu skilmála, eða
jafnvel endurkrefja ábyrgðina eins
og systurféla.gið í Noregi og Dan-
mörku geri. Om sagði að það væri
svo hjá systurfélögum Skandía að
ef tryggingatakar brytu ákvæði
vátryggingaskilmála endurkrefðu
þau tryggingataka um ábyrgðina.
Hann sagði að menn ættu rétt á
því að fá svar við þessum spuming-
um áður en þeir tækju ákvörðun
um að tryggja hjá félaginu. Ekkert
af þessu kæmi fram í bréfi Skan-
día. VÍS vildi segja viðskiptavinum
sínum að fara gætilega og velta því
fyrir sér hvaða þjónusta býðst hjá
VIS og hvaða þjónustu þeir kunna
að fá annars staðar áður en ákvörð-
un er tekin.
Nægur tími til stefnu
Örn sagði að nægur tími væri til
stefnu fyrir viðskiptavini að átta sig
á því hvað fælist í boðuðum breyt-
ingum á iðgjöldum hjá VÍS 26. jan-
úar því uppsagnartími fyrir næstu
endumýjum væri ekki fyrr en 1.
febrúar. í bréfi VÍS segir að félagið
hafi haft til athugunar að fjölga
þeim þáttum er hafí áhrif á iðgjald-
ið, m.a. að það breytist með ekinni
vegalengd, aldri ökumanns og nýj-
um bónusreglum. Þetta muni leiða
til lækkunar iðgjalda þar sem tjón-
atíðni er litil og tjónareynsla góð.
Örn vildi ekki segja nánar frá því
hvað fælist í þessum breytingum.