Morgunblaðið - 10.01.1992, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1992
Bandaríkin:
Bush sannfærður um sig-
ur í forsetakosningnnum
Wilder dregur sig út úr forvalsslag Demókrataflokksins
Tókýó, Washington. Reuter.
„ÉG ER sannfærður um að ég muni sigra,“ sagði George Bush Banda-
ríkjaforseti er blaðamenn spurðu hann um bandarísku forsetakosn-
ingarnar næstkomandi nóvember. Efasemdir höfðu komið upp um
stöðu forsetans eftir að hann veiktist skyndilega í kvöldverðarboði
japanska forsætisráðherrans en Bush sagðist ekki haida að veikind-
in yrðu honum fjötur um fót í kosningabaráttunni. Hann sagði að
það myndi koma Demókrataflokknum í koll ef reynt yrði að gera
heilsu hans að kosningamáli.
Bush var mikið spurður um veik-
indi sín af blaðamönnum í gær en
hann kastaði upp og hneig síðan
niður í kvöldverðarboði sem jap-
anski forsætisráðherrann hélt hon-
um til heiðurs á miðvikudag. Veltu
margir fréttaskýrendur vöngum
yfir því hvort þetta tengdist eitt-
hvað heilsubresti sem hijáði forset-
ann í maí á síðsta ári en þá var
hann lagður inn á sjúkrahús vegna
óreglulegs hjartslátts. Forsetinn
sagði enga tengingu vera þarna á
milli. Hann hefði einungis fengið
sólarhrings flensukast. „A ekki for-
setinn rétt á sólarhringi," spurði
hann og sagðist ekki ætla að draga
úr vinnu. „Haldið þið að bara gam-
alt fólk fái flensu,“ spurði Bush sem
er 67 ára gamall. „Mér skilst að
jafnvel demókratar geti fengið
flensu.“
Barbara Bush, eiginkona forset-
ans, sat boðið áfram þó að bóndi
hennar þyrfti að hverfa frá og sagð-
ist hún ekki hafa haft neinar
áhyggjur af honum. Hún hefði vitað
fyrir boðið að hann væri slappur
og meðan á því stóð hefði hann
kvartað yfir magapínu. Er hún
stumraði yfir honum þar sem han
lá á gólfinu hefði hann líka sagt
við japanska forsætisráðherrann:
„Af hveiju veltið þið mér ekki bara
undir borðið og leyfið mér að hvíla
mig aðeins á meðan þið klárið mat-
inn?“ Marlin Fitzwater sagði forset-
ann einnig hafa hent gaman að því
að hann hefði kastað upp í boðinu
og látið í ljós áhyggjur yfir því að
hann kynni að fá sendann háan
reikning vegna fatahreinsunar.
Það er ekki síst sú tilhugsun að
Dan Quayle varaforseti muni húgs-
anlega þurfa að taka við embætti
sem fær marga kjósendur til að
velta heilsu forsetans alvarlega fyr-
ir sér. Quayle hefur átt erfitt með
öðlast tiltrú kjósenda og fjölmiðlar
hafa fram til þessa keppst við að
gera lítið úr honum.
Varaforsetinn er nú á ferð um
ríkið New Hampshire en þar verða
fyrstu forkosningarnar vegna for-
setakosninganna haldnar þann 18
nóvember. Kosningar í New
Hampshire eru gífurlega mikilvæg-
ar, þó fylkið sé lítið, og ráða miklu
um frekara gengi frambjóðenda.
Quayle sagðist aðspurður ekki
hafa velt því fyrir sér að hann hefði
getað þurft að taka við embættis-
störfum forseta vegna veikinda
Bush í Japan. En þegar blaðamenn
gengu harðar að honum og spurðu
hvort að hann teldi sig vera starfinu
vaxinn brosti varaforsetinn og
sagði: „Ég er reiðubúinn“.
George Bush hefur ekki enn lýst
yfir framboði sínu og Dans Quayles
vegna forsetakosninganna og er
gert ráð fyrir því að yfirlýsing þess
efnis verði gefin út á næstu dögum.
Skoðanakannanir hafa ekki verið
forsetanum vilhollar á síðustu vik-
um, ekki síst vegna hins slæma
efnahagsástands í landinu. Þá hefur
framboð íhaldsmannsins Pats Buc-
hanans gert forsetanum erfiðara
fyrir í New Hampshire. Quale sagð-
ist hins vegar ékki vera áhyggjufull-
ur. „Ég held ekki að neinn trúi því
í alvöru að Buchanan verði fram-
bjóðandi Repúlíkanaflokksins. Ég
er viss um að hann trúir því ekki
einu sinni sjálfur."
Douglas Wilder, ríkisstjóri Virgi-
níu, tilkynnti í ræðu á miðvikudags-
kvöld að hann sæktist ekki Iengur
eftir útnefningu sem forsetafram-
bjóðandi Demókrataflokksins. Þessi
ákvörðun Wilders kom mjög á óvart
en hann var eini blökkumaðurinn
sem sóttist eftist tilnefningu flokks-
ins._
Ástæðu þess að hann drægi sig
í hlé sagði hann vera efnahags-
kreppuna í Bandaríkjanna sem
stjórn George Bush Bandaríkjafor-
seta bæri ábyrgð á. Hún hefði bitn-
að hart á Virginíu-ríki og væru
aðkallandi verkefni þar mikilvægari
en þátttaka hans í forvali Demó-
krataflokksins.
Það er einnig talið hafa stuðlað
að ákvörðun Wilders að honum hef-
ur ekki gengið mjög vel að afla fjár
til að kosta kosningabaráttu sína
og blökkumenn hafa heldur ekki
sýnt framboði hans sama áhuga og
framboði Jesse Jacksons fyrir síð-
ustu kosningar.
Fimm frambjóðendur beijast nú
áfram um tilnefningu Demókrata-
flokksins: Bob Kerrey, öldungar-
deildarþingmaður frá Nebraska,
Paul Tsongas, fyrrum ríkisstjóri í
Massachusetts, Jerry Brown, fyrr-
um ríkisstjóri í Kaliforníu, Tom
Harkin, öldungardeildarþingmaður
frá Iowa og Bill Clinton, ríkisstjóri
Arkansas.
Úkraínskir hermenn að búa kjarnaodda til flutnings til Rússlands
þar sem þeim verður eytt.
Samveldi sjálfstæðra ríkja:
Deilan um Svartahafs-
flotann stigmagnast
Moskvu. Reuter.
BORIS Jeltsín, forseti Rússlands, ítrekaði í gær að ekki kæmi til
greina að verða við kröfu Úkraínumanna um yfirráð þeirra yfir
Svartahafsflotanum. „Enginn tekur Svartahafsflotann frá Rúss-
landi og það á líka við um [Leóníd| Kravtsjúk [Úkraínuforseta],“
hafði 7’ass-fréttastofan eftir Jeltsín þegar hann ávarpaði starfs-
menn vopnaverksmiðju í Úljanovsk. „Svartahafsflotinn var, er og
verður rússneskur."
Deilan um Svartahafsflotann
hefur undanfarna daga vaxið stig
af stigi. Kravtsjúk greindi frá því
í gær að Rússar hefðu hætt að
senda hergögn til Úkraínu síðan
hann krafðist þess að allir hermenn
í Úkraínu þ. á m. áhafnir Svart-
hafsflotans sverðu Úkraínu holl-
ustueið. „Þeir eru að láta reyna á
þolrif okkar,“ sagði Kravtsjúk. Á
miðvikudag lýsti hann því yfir að
Úkraínumenn myndu slá eign sinni
VETRARUTSALAIITAVERS
15-50% AFSLÁmiR
GÓLFTEPP115-50% verð frá kr. 532,-
GÓLFDÚKUR15-30% verð frá kr. 686,-
CERAMICFLÍSAR15-50% verð frá kr. 1.440,-
DREGLAR - MOTTUR - MÁLNING - VERKFÆRI
STIGAHUSATEPPI MEÐ 5 ARA ABYRGÐ
VERÐ FRÁ KR. 1.518,-
ERTU AÐ BYGGJA? - VILTU BÆTA? - ÞARFTU AÐ BREYTA?
OPIÐ LAUGARDAG FRÁ KL. 10-14
VISA - EURO - SAMKORT
Raðgreiðslur til allt að 18 mánaða
Grensásvegi 18, sími 812444.
á flotann í júlímánuði næstkom-
andi. Um 300 skip tilheyra flotan-
um en flaggskipinu, flugmóður-
skipinu Kúznetsov hefur verið siglt
til Múrmansk.
Samkvæmt samkomulagi sem
leiðtogar aðildarríkja Samveldis
sjálfstæðra ríkja undirrituðu í síð-
asta mánuði hefur hvert aðildarríki
rétt til að stofna eigin her. Sex
ríki hyggjast gera siíkt þ. á m.
Úkraína. Samkvæmt samkomulag-
inu heyrir „strategískur" herafli
undir sameiginlega yfírstjórn sam-
veldisins. Rússa og Úkraínumenn
greinir á um merkingu þessa hug-
taks. Úkraínumenn telja að „stra-
tegískur“ herafli þýði herafli sem
beiti langdrægum kjamavopnum.
Telja þeir að skipin í Svartahafs-
flotanum falli ekki þar undir. Rúss-
ar segja að Svartahafsflotinn hafi
„strategísku" hlutverki að gegna
á Miðjarðarhafi fyrir hönd sam-
veldisins alls.
Vladímír Tsjemavín aðmíráll,
yfirmaður flota samveldisins, hefur
boðið Úkraínumönnum hluta
Svartahafsflotans til staðbundinna
verkefna. Erfitt gæti þó reynst að
standa við það tilboð því ígor Kasa-
tonov, yfirmaður Svartahafsflot-
ans, hefur fyrir hönd undirmanna
sinna neitað með öllu að sveija
Úkraínumönnum hollustueið._ 19%
yfirmanna á flotanum eru Úkra-
ínumenn og 30% undirmanna.
-♦ ♦
■ PARIS - Laurent Fabius,
forseti franska þingsins og skjól-
stæðingrir Francois Mitterrand
forseta, var einróma kjörinn leið-
togi Sósíalistaflokks Frakklands í
gær. Hann tekur við af Pierre
Mauroy, sem sagði af sér leiðtoga-
embættinu á mánudag. Leiðtoga-
skiptin eru liður í því að hressa
upp á orðspor sósíalistaflokksins
sem hefur átt undir högg að sækja
að undanförnu. Enginn greiddi
atkvæði á móti Fabiusi, en 11
vinstrisinnaðir flokksráðsmenn
sátu hjá.