Morgunblaðið - 10.01.1992, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1992
23
Öryggisráð SÞ:
Jeltsín tekur þátt í
leiðtogafundinum
Sameinuðu þjóðunum. Reuter.
BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands, áformar að taka þátt í leiðtoga-
fundi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna sem haldinn verður 30. jan-
úar næstkomandi. Við það tækifæri mun hann eiga fund með Ge-
orge Bush Bandaríkjaforseta um aðstoð við aðildarríki Samveldis
sjálfstæðra ríkja.
Júlí Vorontsov, sendiherra Rúss-
lands hjá Sameinuðu þjóðunum,
greindi fréttamönnum frá því á
miðvikudagskvöld að Jeltsín hefði
þekkst boð Breta um að taka þátt
í leiðtogafundinum.
Bretar sem nú fara með forystu
■ MAE SOT - YFIR 100
búrmískir borgarar, sem voru
að flytja skotfæri fyrir stjórnvöld
í Burma, létu lífið í austurhluta
landsins á þriðjudag, þegar flug-
vélar hersins gerðu árás á þá í
misgáningi. Stjórnvöld eiga í höggi
við skæruliða á þessum slóðum og
voru burðarmennimir að flytja
skotfæri til stjómarhermanna sem
verið hafa í herkví skæruliða í vik-
utíma. Margir mannanna höfðu
verið neyddir til að taka þátt í
þessum flutningum. Stjórnvöld í
Burma bönnuðu í gær stafsemi sex
stjórnarandstöðuflokka.
■ LONDON - John Major,
forsætisráðherra Breta, og Helm-
ut Kohl, kanslari Þýskalands,
ræddu saman í gær um hina erfiðu
stöðu í GATT-viðræðunum og
voru sammála um að nauðsynlegt
væri að ná samkomulagi sem allra
fyrst. Major og Kohl töluðu saman
í síma í um hálfa klukkustund.
Leiðtogarnir ræddu einnig vænt-
anlegan fund öryggisráðs Samein-
uðu þjóðanna sem haldinn verður
30. janúar næstkomandi. GATT-
viðræðumar, sem 108 þjóðir eiga
aðild að og hófust í Uruguay í
september 1986, miða að því að
ryðja úr vegi viðskiptahindrunum
og auka hagvöxt og atvinnusköp-
un.
■ PARÍS - Franska vikuritið
Paris Match sagði í gær að ísra-
elskir og breskir meinafræðingar
sem rannsökuðu öðru sinni lík
fjolmiðlajöfursins Roberts Maxw-
ells hefðu fundið fjölmörg um-
merki um að hann hefði þolað
barsmíðar fyrir dauða sinn. Tíma-
ritið birti einnig nokkrar myndir
sem teknar yoru meðan líkskoðun-
in í Tel Aviv fór fram. Samkvæmt
áliti spænskra lækna, sem fram-
kvæmdu fyrri líkskoðunina, lést
Maxwell úr hjartaslagi. Þar var
talið útilokað að um morð hefði
verið að ræða, en ekki skorið úr
um hvort útgefandinn hefði
drukknað.
■ BERN - Svissnesk kona
hefur lýst yfir að skorpnað lík sem
fannst í ítölsku Ölpunum og vís-
indamenn telja að sé frá bronsöld
sé í raun lík föður hennar. Þýskir
fjallgöngumenn fundu líkið á
skriðjökli í Ölpunum í september-
mánuði síðastliðnum og hefur það
verið geymt í frysti hjá austurrísk-
um háskóla. Konan skrifaði sviss-
neska utanríkisráðuneytinu og
sagðist hafa séð blaðamyndir af
líkinu. Hún hefði strax áttað sig
á að það væri af föður hennar, sem
farist hefði á þessum sama skrið-
jökli árið 1970. Svissneska utan-
ríkisráðuneytið hefur sent bréf
konunnar til austurríska sendi-
ráðsins í Bem.
■ BÚDAPEST - Tuttugu og
einn slasaðist, þar af sex slökkvi-
liðsmenn, þegar þijár sprengingar
urðu í efnaverksmiðju í Búdapest
í gær. Borgin nötraði í spreng-
ingunum og þurfti yfir 60
slökkviliðsmenn til að slökkva eld-
ana sem kviknuðu. Orsakir
sprenginganna eru í rannsókn.
í öryggisráðinu eiga frumkvæði að
honum en slíkur fundur á sér ekki
fordæmi. Búist er við að auk Johns
Majors, forsætisráðherra Bretlands,
og Jeltsíns taki Bush og Francois
Mitterrand Frakklandsforseti þátt í
fundinum.
í bréfí Johns Majors þar sem
gerð er grein fyrir markmiðum
fundarins segir m.a.:
„Slíkur fundur væri tækifæri til
að staðfesta og fjalla um mikilvæg-
an þátt Sameinuðu þjóðanna í að
styrkja alþjóðlegt skipulag og þau
Hugmynd Manfreds Wörners:
Friðargæsla NATO
utan vamarsvæðisins
Brussel. Reuter.
MANFRED Wörner, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins
(NATO), hefur lýst þeirri persónulegu skoðun sinni að til greina
komi að hersveitir bandalagsins taki þátt í friðargæslu eða eftirlits-
verkefnum víða um heim. Hingað til hafa aðgerðir og stefnumótun
bandalagsins verið bundnar við varnir aðildarríkjanna.
Borís Jeltsín
brýnu verkefni sem framundan eru
eftir kalda stríðið og láta á æðstu
stöðum í ljósi stuðning við ábyrgð
Sameinuðu þjóðanna og öryggis-
ráðsins hvað varðar friðarumleitan-
ir, friðargæslu og varnir gegn því
að deilur blossi upp og fari úr bönd-
Líta má á hugmynd Wörners sem
tilraun til að skilgreina hlutverk
NATO á breyttum tímum þegar
Varsjárbandalagið, helsti óvinurinn
í áratugi hefur verið lagt niður og
mörg ríki þess sækjast eftir aðild
að NATO. „Það getur vel verið að
svigrúm sé fyrir bandalagið að nota
búnað sinn, upplýsingar og jafnvel
hraðliðssveitir til að taka þátt í frið-
argæslu og eftirlitsverkefnum,“
segir Wörner í grein í tímariti.
NATO. Framkvæmdastjórinn segist
gera sér fulla grein fyrir að hug-
mynd sem þessi sé umdeild en hann
sé engu að síður sannfærður um
að bandalagið verði að þróast í
þessa átt.
Helst þykir koma til greina að
aðgerðir af þessu tagi sem Wörner
minnist á verði á vegum Sameinuðu
þjóðanna eða Ráðstefnunnar um
öryggi og samvinnu í Evrópu.
Skuldagreiðslum sam-
veldislýðvelda frestað
SAUTJÁN vestræn ríki, lánardrottnar sovétlýðveldanna fyrrver-
andi, hafa heimilað átta lýðveldanna að fresta greiðslum út þetta
ár. Greiðslum af höfuðstól verður þó aðeins frestað af langtímalán-
um, sem tekin voru fyrir 1. janúar 1991 og hafa fyrsta gjalddaga á
timabilinu 5. desember 1991 til ársloka 1992.
Haft er eftir heimildum, að með Sovétríkjanna fyrrverandi, og Tom-
samkomulaginu sé frestað greiðsl-
um á 3,2 milljörðum dollara en
helstu samningamenn samveldis-
lýðveldanna eins og þau heita nú
voru þeir Peter Aven, sem situr í
samveldisnefnd um erlendar skuldir
as Alíbegov, einn af forsvarsmönn-
um Vnesheconombank eða rúss-
neska utanríkisviðskiptabankans.
í nóvember sl. samþykktu iðnrík-
in sjö að endurskipuleggja skulda-
QTP.Íðslnr snvptlvrWplHflnna pn hpssi
fundur, sem haldinn var í París, var
sá fyrsti með fulltrúum hinna ný-
fijálsu lýðvelda. Eru þau Rússland,
Hvíta Rússland, Kazakhstan, Arm-
enía, Kírgízía, Moldava, Tadzhíkíst-
an og Túrmkmenía.. Lánardrottn-
arnir 17 eru Ástralía, Austurríki,
Belgía, Bretland, Kanada, Dan-
mörk, Finnland, Frakkland, Þýska-
land, Ítalía, Japan, Holland, Noreg-
ur, Spánn, Svíþjóð, Sviss og Banda-
ríkin.
Túnis:
Herinn við
öllu búinn
Túnis, Algeirsborg. Reuter.
RÍKISSTJÓRN Túnis hefur
skipað her landsins í við-
bragðsstöðu meðfram landa-
mærum Alsír af ótta við sig-
ur alsirskra strangtrúar-
manna í þingkosningum þar
í landi í næstu viku.
í tilkynningu Túnisstjórnar
var hermönnum sagt að vera
viðbúnir því að þurfa að færa
fórnir og blöð í Alsír sögðu í
gær að framtíð landsins væri í
meiri óvissu en nokkru sinni.
Eitt stærsta blaðið spurði í for-
síðufrétt hvort af seinni umferð
þingkosninganna yrði og svar-
aði sér sjálft og sagði, að svo
yrði ekki.
Stórútsala!
-afsláttur af öllum vörum-
Sértilboð Metró . Sértilboð Málarans
25% afsláttur af stökum teppum og dreglum. 30% afsláttur af lituðum blöndunartækjum. 25% afsláttur af sturtuhengjum og baðmottusettum. Ódýr húsgögn í barnaherbergið eða sumarbústaðinn. 20% afsláttur af öllum Rowney listmálaravörum. Teppabútar í úrvali.
Gerið góð kaup hjá okkur !
"’UfóSBIfan M
akranesi
!ar
'arma
M
METRO
MJÓDD
G.A. Böðvarsson hf.
SELFOSSI
E63Klililik4