Morgunblaðið - 10.01.1992, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1992
Friðarkall alþjóða-
samtaka fatlaðra
ALÞJÓÐASAMTÖK fatlaðra, FIMITIC, hafa sent frá sér ákall um
frið, vegna átakanna í Júgóslavíu. Sjálfsbjörg, landssamband fatl-
aðra, er aðili að alþjóðasamtökunum og í fréttatilkynningu tekur
Sjálfsbjörg heilshugar undir friðarákallið, sem samþykkt var á forset-
aráðstefnu alþjóðasamtakanna.
í ákalli samtakanna segir að víða
geysi nú vopnuð átök, sem kosti
marga líf og heilsu og margir búi
við ógn, kúgun og pyndingar.
Ákallinu er einkum beint til
þeirra, sem hafa völd og áhrif að
þeir beiti sér fyrir friði. Minnst er
á góða viðleitni Evrópubandalags-
ins og Sameinuðu þjóðanna. Nú
horfi vestrænar þjóðir upp á átök
í næsta nágrenni, nefnilega í Júgó-
slavíu, þar sem fólk verði fyrir barð-
inu á stríðinu sérhverja klukku-
stund og sjúkrahús, íbúðarhús,
skólar og kirkjur sé eyðilagt.
Alþjóðasamtökin lýsa yfir samúð
með þeim sem þjást og hvetja til
að bundinn verði endir á skelfing-
una, svo fólk alls staðar í Júgóslav-
íu geti snúið aftur til heimkynna
sinna og friðsamlegs lífs.
Kennarafélag Reykjavíkur:
Niðurskurður á fjármagni
til menntamála harmaður
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun frá Kenn-
arafélagi Reylyavíkur:
„Stjórn Kennarafélags Reykja-
víkur harmar að Alþingi hafi sam-
þykkt fjárlög sem fela í sér stór-
felldan niðurskurð á fjármagni til
skólastarfs í landinu. Undanfarin
ár hafa kröfur til grunnskólans
breyst og þjónusthlutverk hans
aukist til muna. Á sama tíma hefur
hlutfall þess Ijármagns sem rennur
til menntamála haldist óbreytt.
Þrátt fyrir að samþykkt hafí verið
lög um grunnskóla sl. vor sem
stefna að lengingu skóladagsins og
einsetins skóla er launakostnaður í
grunnskóianum skorinn niður um
180 milljónir næsta haust. Niður-
skurðurinn mun hafa víðtæk áhrif
á skólastarfið næsta skólaár og
bitna á æsku landsins með ófyrirsjá-
anlegum afleiðingum. Ráðamenn
þjóðarinnar virðast ekki gerða sér
grein fyrir því uppeldishlutverki
sem grunnskólinn sinnir og þörfmni
á að efla menntun og þar með
styrkja grunneiningu þjóðfélagsins;
fjölskylduna.
Stjórn Kennarafélags Reykjavík-
ur mótmælir harðlega öllum hug-
myndum sem leiða til fjölgunar
nemenda í bekkjardeildum og
skerðingar á skólatíma nemenda.“
Eitt atriði úr myndinni „Tímasprengjan"
Bíóhöllin sýnir mynd-
ina „Tímasprengjan“
BIOHOLLIN hefur hafið sýn-
ingar á spennumyndinni
„Tímasprengjan“. Með aðal-
hlutverk fara Michael Biehn
og Patsy Kensit. Leikstjóri er
Avi Nesher.
Hér á ferðinni sálfræðilegur
sprennutryllir sem segir frá dul-
arfullri og skuggalegri leit manns
sem misst hefur minnið að sjálf-
um sér.
Eitt atriði úr myndinni „Billy Bathgate“.
Bíóborgin sýnir mynd-
ina „Billy Bathgate“
BIOBORGIN hefur hafið sýn-
ingar á myndinni „Billy Bat-
hgate“. Með aðalhlutverk fara
Dustin Hoffman og Bruce Will-
is. Leikstjóri myndarinnar er
Robert Benton.
Myndin segir frá hinum 16 ára
Billy Bathgate sem gerist sendi-
sveinn fyrir glæpaforingjann
Dutch Schultz. Dutch er þjóð-
sagnapersóna sem nánast byggði
upp borgina Las Vegas. Segir
myndin frá stormasömum dögum
í lífi glæpaforingjans Schultz og
manna hans og baráttu um yfir-
ráð í borginni.
Málþing um
siðareglur
RANNSÓKNASTOFNUN í sið-
fræði og Félag áhugamanna um
heimspeki standa fyrir málþingi
um siðareglur laugardaginn 11.
janúar klukkan 14,30 í stofu 101
í Odda.
Þingið er haldið í tilefni útkomu
bókarinnar Siðareglur, greining á
siðareglum ásamt skráðum siðaregl-
um starfsgreina á íslandi, eftir Sig-
urð Kristinsson. Eins og nafnið gefur
til kynna hefur verið safnað saman
í bókina skráðum siðareglum starfs-
stétta hér á landi, en í ritinu er einn-
ig Ijaliað ítarlega um skyldur og
ábyrgð starfstétta og ýmis vandamá!
við skráningu siðareglna. Á þinginu
verður rætt um mikilvægi skráðra
siðareglna og hlutverk þeirra.
Laus presta-
köll auglýst
BISKUP tslands hefur auglýst
eftirtalin prestaköll laus til um-
sóknar. Hólmavíkurprestakall í
Húnavatnsprófastsdæmi og Pat-
reksfjarðarprestakall í Barða-
strandarprófastsdæmi.
Þessi prestaköll hafa verið laus frá
síðastliðnu sumri. Njarðvíkurpresta-
kall í Kjalamesprófastsdæmi. Fráf-
arandi sóknarprestur, séra Þorvaldur
Karl Helgason, hefur tekið við for-
stöðu íjölskylduþjónustu kirkjunnar
í Reykjavík. Þingeyrarprestakall í
ísafjarðarprófastsdæmi. Fráfarandi
sóknarprestur, séra Gunnar Hauks-
son, tekur við þjónustu í Stykkis-
hólmsprestakalli 1. febrúar nk.
Umsóknarfrestur er til 31. janúar
næstkomandi.
Kolaportið:
Bókamarkaður
á laugardag
BÓKAMARKAÐURINN byijar í
Kolaportinu á laugardaginn sem
jafnframt verður fyrsti markaðs-
dagur ársins. Boðnir verða til
sölu um 1.200 bókatitlar frá flest-
um bókaforlögum landsins og
má sérstaklega nefna þátttöku
bókaforlaga af landsbyggðinni
sem lítið hafa verið á bókamörk-
uðum I Reykjavík seinni árin.
Bókamarkaðurinn verður opinn
á markaðsdögum Kolaportsins á
laugardögum í janúar en einnig
á sunnudögum í febrúar, segir í
frétt frá Kolaportinu.
í fyrra var mikil sala á bóka-
markaðinum og var m.a. þakkað
afnámi virðisaukaskatts af bókum,
en góð bóksala fyrir þessi jól gefur
aðstandendum bókamarkaðarins
vonir um að svo verði einnig nú,
en úrval bóka er nú einnig meira
en nokkru sinni og verðlag með
besta móti.
Markaðstorgið í Kolaportinu
verður sem áður segir eingöngu
opið á laugardögum í janúar og er
þá opið kl. 10-16.
Helstu leikarar myndarinnar „GIæpagengið“.
Laugarásbíó sýnir kvik-
myndina „Glæpagengið“
LAUGARASBIO hefur tekið til
sýninga myndina „Glæpageng-
ið“. Með aðalhlutverk fara
Christian Slater og Patrick
Dempsey. Leikstjóri er Michael
Karbelnikoff.
Myndin er byggð á sönnum at-
burðum um upphaf skipulagðrar
glæpastarfsemi á þriðja áratugnum
þegar uppgangur mafíunnar var
V/
Q$£P
K
RICOH er styrktaraöili
Olympíuleikanna 1992
Faxtækin heim
Nýtt heimilistæki
Með RICOH FAX 06 eru faxtækin orðin heimilistæki,
Tækið er kjörið fyrir þá sem eru í einkarekstri eða
vinna heima. Það er fyrirferðarlítið og þarf ekki
auka símalínu heldur tengist beint við
símann þinn.
skipholti 17.105 reykjavík — —- 91-627333 • fax: 91-628622 * Jraörtrkara en sambærilegríæki
■ mmmmmm^mmmmmmmmmmmm • hagæöa sendmg a Ijosmyndum
f—IC jÍ J . / • er þín eigin ljósritunarvél ofl.
Traust og örugg þjónusta í 15 ár /Y/ Afborgunarskilmálar við allra hæfi
rtú á einstöku verði:
39.759án/vsk
49.500 m/vsk
hvað mestur. Þá voru þeir á ungl-
ingsárum Lucky Luciano, Frank
Costeollo, Meyer Lansky og Bugsy
Siegei. Þeir komu sér upp stórveldi
sem því miður var öfugu megin við
lögin. Sagt var að þeir tækju ekki
við skipunum, heldur tækju þeir
völdin.
-------» ♦ -4--------
■ Á PÚLSINUM. Föstud. og
laugard., 10. og 11. janúar, leika
Vinir Dóra ásamt gestum. Meðal
þeirra sem fram koma er næstsíð-
asti fulltrúinn í fjölmiðlablúsnum
sem að þessu sinni er frá Press-
unni, Dóra Einarsdóttir og henni
til aðstoðar er gítarleikarinn Karl
Th. Björgvinsson. en það var Að-
alstöðin sem skoraði á hann að
taka þátt. Richard Scobie, áður
söngvari hljómsveitarinnar Riks-
haw verður sérstakur gestur Vina
Dóra bæði kvöldin. Sigurður Sig-
urðsson blússöngvari og munn-
hörpuleikari í Tregasveitinni slæst
í hóp Vina Dóra þessa helgi.
■ NÁMSKEIÐ, þar sem erlendur
hárgreiðslumeistari DAR kynnir
nýjustu hárgreiðslutísskuna frá ion-
don verða haldin á Akureyri á
laugardag og í Reykjavík á sunnu-
dag og mánudag. Með honum í för
verður förðunarmeistarinn S. Mo-
hindra og verða námskeiðin byggð
upp á samvinnu þeirra tveggja,
föðrun og klippingum.