Morgunblaðið - 10.01.1992, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1992
Grímur Magnússon
læknir - Minning
Fædd 1. mars 1907
Dáin 31. desember 1991
Grímur Magnússon læknir and-
aðist á heimili sínu á gamlársdag
og skorti þá aðeins tvo mánuði til
þess að verða 85 ára. Hann var
fæddur í Álfhólahjáleigu í Vestur-
Landeyjum 1. mars 1907. Foreldrar
hans voru hjónin Magnús Bjarnason
og kona hans Þóra Þorsteinsdóttir.
Áttu þau margt bama og bjuggu
; við heldur erfiðan búhag eins og
margir á þeim árum. Þegar Grímur
var fjórtán ára missti hann föður
sinn, en þá æxlaðist svo til fyrir
undarlega hendingu, að alókunnur
maður, Þorsteinn Scheving Thor-
steinsson lyfsali, tók drenginn að
sér og kostaði hann til náms. Grím-
ur lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík vorið 1928
með góðri einkunn. En í stað þess
að setjast í háskólann hér og nema
þar læknisfræði eins og virtist
liggja beinast við, þá hélt hann til
Austurríkis og innritaðist í lækna-
deild háskólans í Vínarborg, en af
henni fór mikið orð um þær mund-
s, ir og Grím Iangaði til að skoða sig
' um í heiminum og kanna háttu
framandi manna. Naut hann þess
hér, að fóstri hans, en svo nefndi
Grímur Þorstein gjaman, lét laust
við hann fé til sæmilegs námskostn-
aðar. Á háskólaámnum í Vínarborg
gafst Grími færi á að leggja leiðir
sínar víðar en stúdentar áttu al-
mennt kost á á þeim árum, og lágu
leiðir hans víða, einkum um suð-
austanverða Evrópu og Austurlönd
nær, stundum með stúdentaleið-
angrum en annars á eigin spýtur í
.* hópi kunningja og vina. Slíkur
munaður var næsta fátíður í hópi
íslenskra námsmanna um þær
mundir, í miðri heimskreppunni
miklu. Það fylgdi Grími síðan ævi-
langt, að ferðir til framandi þjóða
vom honum mikið eftirlæti, svo að
jafnvel eftir að honum varð þungt
fyrir fæti, þá lagði hann enn upp í
erfiðar utanlandsferðir.
Grímur lauk læknaprófi frá Vín-
arháskólanum árið 1936 og kqm
þá heim til íslands, og almennt
lækningaleyfí fékk hann 1938. Síð-
ar sótti hann námsdvalir í Vínar-
borgt, London og Kaupmannahöfn
og var viðurkenndur sérfræðingur
í tauga- og geðlækningum 1948,
en áður hafði hann verið aðstoðar-
læknir við Kleppsspítala frá 1938-
1947. Næstu árin var hann starf-
andi læknir í sérgrein sinni, uns
hann réðsttil Borgarspítalans 1971,
sem þá var nýbyggður. Þar vann
Grímur næstu átta árin, eða til
þess að starfsferli opinberra starfs-
manna var lokið. Eftir það starfaði
hann að lækningum í sérgrein sinni
um nokkurra ára skeið eða á meðan
heilsa og kraftar entust. Síðustu
árin mátti svo heita, að hann væri
farlama maður.
Grímur var tvíkvæntur. Fyrri
kona hans var Nanna Jónsdóttir
forstöðukona saumastofu Þjóðleik-
hússins og áttu þau engin börn.
Síðari kona hans er Hrönn Jónsdótt-
ir hjúkrunarforstjóri heilsuhælisins
í Hveragerði og áttu þau tvö börn:
Jónu Pálínu (f. 1967) hjúkmnar-
fræðinemi, og Magnús Svein (f.
1971), starfsmaður hjá ísfísk hf.,
og dvelja þau bæði enn í foreldra-
húsum.
Um læknisstörf Gríms ætla ég,
fávís leikmaður, ekki að fjalla. Mér
er þó kunnugt, að þegar hann kom
frá námi bryddi hann upp á ýmsum
nýjungum er þóttu gefa góða raun,
og ævilangt fýlgdist hann með
helstu viðleitni í grein sinni, sótti
fundi og las sér til. Hitt var mér
gjörkunnugt, hve annt honum var
um sjúklinga sína, sem hann annað-
ist af óeigingjarnri hjálpsemi.
Stundum bar svo til, að hann jafn-
vel tók sjúklinga á heimili sitt til
lengri dvalar, uns þeir fengu góðan
bata.
Við líkbömr Gríms Magnússonar
á ég margs að minnast frá þeim
árum þegar við vomm enn ungir.
Fyrir atbeina Sverris Kristjánsson-
ar bekkjarbróður hans tókust góð
kynni milli okkar. Síðar áttum við
um nokkur ár heima í sama húsi,
og saman byggðum við hús inni á
Langholtsvegi. Þetta var á þeim
árum þegar hvað óhægast var um
allar framkvæmdir og ekkert fékkst
til neins. En úti í heimi geysaði
heimsstyijöld. Grími voru allar leið-
ir lokaðar til utanferða og ekki um
annað að ræða en innanlandsferðir.
Var þá einkum haldið til fjalla, og
einhvern veginn fór það svo, að ég
tók að slást í för með honum, og
lögðum við þá gjarnan leið okkar
um miðlandsöræfín. Á næstu ámm
fórum við þar allvíða um, og var
Grímur oftast fararstjóri. Reyndist
hann bæði ötull og ósérhlífinn, en
jafnframt gætinn og ráðagóður ef
vanda bar að höndum og útsjónar-
samur um undirbúning, og ekki
spillti það að hafa lækni með í för-
inni ef eitthvað bjátaði á, eins og
stundum gat komið fyrir eins og
þegar einn okkar sýktist af lungna-
bólgu inn í Nýjadal.
Flestar af leiðum þeim sem við
völdum voru sjaldfarnar nema þá
helst.af fjárleitarmonnum. Oft var
okkur harla óljóst, hvar heppilegast
mundi að fara eða hvar helst skyldi
leita vaðs á fljótum þeim og ám,
sem urðu á leið okkar. En allt
slampaðist af og aldrei lentum við
í neinum mannraunum. Á fyrstu
árunum var ekki um-annað að ræða
en fara fótgangandi og traust
landabréf komu ekki til sögunnar
fyrr en að stríði loknu og jeppinn
og fjallabílarnir um svipað leyti.
Oftast urðum við að bera þungar
byrðar. Síðan hefur greiðst mjög
um fjallaferðir, en leiðir um leið
takmarkast og bundist föstum far-
vegum.
Margar þessara ferða standa mér
enn fast í huga, í sólfáðu skini um
sanda og vötn við víðsýni, sem
hvergi á sér ef til vill samsvörun,
við miðhálendi íslands. Oft minn-
umst við Grímur með trega kvöld-
stundar á Bárðarbungum, þegar
blátært kvöldhúm júlínæturinnar
Iagðist yfir Sprengisand og Ódáða-
hraun alla leið til strandfjalla Norð-
ur- og Austurlands. Sú sýn hlýtur
að fylgja hveijum sem hennar nýtur
ævilangt.
_Nú þegar leiðir skilja fínn ég það
best, hve mikið ég á að þakka Grími
Magnússyni sem ferðafélaga,
lækni, manni og traustum vini í
meira en hálfa öld. Og mér verður
tregt tungu að hræra eins og Agli
forðum. Heilsan bilaði, og Grímur
gerðist fótaveikur um aldur fram.
Fættaðist þá um ferðir og að nokkru
um fundi, því að lokum mátti svo
heita, að hann yrði örbjarga til
hreyfinga, svo þungt lagðist fóta-
lömunin að honum og við henni
fundust engin ráð. En andlegri reisn
og kröftum hélt hann framundir það
síðasta, gleði sinni, hjálpfýsi og
bjartsýni á framtíðina.
Um leið og ég kveð fornan vin
og félaga, vil ég þakka Hrönn vin-
konu minni, hve traust hún stóð við
hlið hans, þegar halla tók undan
fæti og hve notalega aðstöðu hún
bjó honum síðustu árin á Otrateigi
16. Henni og börnum þeirra sendum
við Sigrún innilegustu samúðar-
kveðjur.
Haraldur Sigurðsson.
Ég verð að fara, feijan þokast nær
og framorðið á stundaglasi mínu.
Sumarið, með geislagliti sínu
hjá garði farið, svalur fjallablær
af heiðum ofan, hrynja lauf af greinum,
og horfinn dagur gefur byr frá landi.
Ég á ekki lenpr leið með neinum,
lífsþrá mín dofnar, vinir hverfa sýn,
og líka þú, minn pð, minn góði andi,
gef mér kraft til þess að leita þín.
Ég verð að fara, feijan bíður mín.
(Davíð Stefánsson, frá Fagraskógi.)
Hann mágur minn kvaddi þetta
líf á gamlársdag um hádegi, næst-
um án nokkurs annars fyrirvara,
en þess að ellikerling hafði ásótt
hann um nokkra hríð, nokkrum
dögum áður hafði hann að orði, ég
held að dauðinn hafi gleymt mér.
Grími fannst dauðinn vera Iíkn frá
þraut, næstum hvenær sem hann
leitaði dyra.
Grímur Magnússon fæddist 1.
mars 1907 í Álfhólahjáleigu,
V-Landeyjum. Sonur hjónanna
Þóru Þorsteinsdóttur og Magnúsar
Bjarnasonar, bónda. Annar í röðinni
af sjö systkinum. Þau eru: Sigríð-
ur, fædd 1905, Grímur, fæddur
1907, Þorsteinn, 1910, Sigurður,
fæddur 1912, dáinn 11 ára, Bjarni,
fæddur 1914, Magnús, fæddur
1917, dáinn 1989, Magnþóra, fædd
1921 (á dánardegi föður síns).
Grímur ólst upp á ÁlfhólahjáleigU
hjá foreldrum sínum við þröngan
efnahag en mikið ástríki. Faðirinn
deyr þegar hann er 14 ára.
.Um það leyti sem Grímur tekur
barnaskólapróf forfallast prestur-
inn sem vera átti prófdómari, í stað
hans var því fenginn Þorvaldur
Stephensen, endurskoðandi Kaup-
félags Hergilseyjar, sem leið átti
um sveitina og leist honum vel á
piltinn vegna góðra námshæfíleika
hans, en vissi um leið að efnahagur
foreldranna biði ekki upp á frekara
nám, enda lá faðirinn banaleguna
á þessum tíma. Þegar Þorvaldur
kom aftur til Reykjavíkur talaði
hann við frænda sinn Þorstein Sch.
Thorsteinsson apótekara í Reykja-
víkurapóteki, og kvaðst hafa heyrt
hann segja að hann langaði til að
gera góðverk og mæltist til að hann
tæki piltinn (óvandabundna) upp á
arma sína og styddi hann til náms.
Þorsteinn brást fljótt við og skrifaði
Magnúsi föður Gríms sitt tilboð.
Bréfið barst föður hans tveimur
dögur áður en hann dó og var þá
strax -ákveðið _að þiggja þetta
óvenjulega boð. Úr varð að Grímur
fór suður, þeint frá jarðarför föður
síns ásamt Bjarna bróður sínum 7
ára sem fór í fóstur til Ingileifar
föðursystur sinnar, yngsta systirin
Magnþóra, sem skírð var yfír kistu
föðurins, fór í fóstur að Árnarhóli,
móðirin hélt áfram búskap ásamt
hinum systkinunum, móður sinni
og bróður en giftist svo seinni
manni sínum (Þorgeiri Tómassyni)
og settist þá að á Arnarhóli í Land-
eyjum. Grímur átti alla tíð fallegt
samband við sín systkini og börn
þeirra og naut hann þess alla tíð.
Þegar Grímur kom til Þorsteins
Sch. (sem hann kallaði ávallt fóstra
sinn) var Þorsteinn ókvæntur og
bjó í heimili hjá foreldrum sínum,
Þórunni og Davíð lækni og tveimur
ógiftum systrum sínum. Það sem
uppá vantaði í menntun Gríms til
þess að hann gæti tekið inntöku-
próf í Menntaskóla Reykjavíkur um
haustið, sáu systurnar um að kenna
honum um sumarið. Hann talaði
alltaf af mikilli virðingu og hlýju
um þetta góða fólk og menningar-
lega heimili.
Ekki tel ég mig þess umkomna
að rekja náms- og starfsferil Gríms.
Kynni mín af Grími hófust er syst-
ir mín og hann hófu búskap. Það
streymdi frá honum hlýja til mín
frá fyrstu tíð og fordóma- og æðru-
lausari mann hef ég ekki þekkt,
hann hafði einstakt umburðarlyndi
fyrir mannlegum breyskleika, sem
kom sér vel í ævistarfi hans. Grím-
ur naut þess að fræða og segja frá,
ferðalög voru honum einstakt yndi,
hann naut þeirra með margra mán-
aða fyrirvara, með lestri um land
og þjóð, og var hann eins og stórt
barn af tilhlökkun, og geislaði frá
honum þannig að maður smitaðist.
Fyrir réttum 19 árum ferðaðist ég
með þeim Hrönn, Grími og börnun-
um til Austurríkis, Þýskalands og
síðan til Tyrklands. Þessi ferð er
mér í minningunni ógleymanleg.
Grímur var vakinn og sofínn í því
að sýna mágkonu sinni og ljöl-
skyldu heiminn, með sögu landanna
og sérstaklega sögu Istanbúl, og
sagði þá alltaf, Ingibjörg, sjáðu,
hlustaðu, en ég var í fyrsta sinn
að ferðast um þessar slóðir.
Grímur var mjög örlátur maður
sem kom fram í því að hann vildi
að aðrii' nytu þess sem hann hafði
notið, á sviði ferðalaga, bókmennta
t
Eiginmaður minn,
SIGURPÁLL JÓNSSON
fyrrum aðalbókari,
Rauðalæk 8,
Reykjavik,
lést í Landakotsspítala hinn 8. janúar sl.
Fyrir hönd aðstandenda,
Steinunn M. Steindórsdóttir.
t
Ástkær sonur minn,
SIGURBJÖRN LÁRUSSON,
lést þann 3. þ.m. af slysförum.
Jarðarförin fer fram f kyrrþey.
Ingibjörg Björnsdóttir,
Birgir Lárusson,
Björn Lárusson,
Hrafnhildur Lárusdóttir,
Heimir Lárusson,
Eggert Lárusson.
t
Okkar innilegustu þakkir og kveðjur til ykkar allra, sem sýnduð
okkur samúð og hlýhug vegna fráfalls ástkærs eiginmanns, föð-
ur, tengdaföður og bróður,
BALDVINS ÞORSTEINSSONAR
skipstjóra,
Kotárgerði 20,
Akureyri.
Megi heill og hamingja fylgja ykkur.
Björg Finnbogadóttir,
Þorsteinn Már Baldvinsson, Helga Steinunn Guðmundsdóttir,
Margrét Baldvinsdóttir, Ingi Björnsson,
Finnbogi Alfreð Baldvinsson, Anna Jóna Guðmundsdóttir,
Vilhelm Þorsteinsson.
+
Móðir okkar.
KRISTÍN KRISTJÁNSDÓTTIR,
áðurtil heimilis
á Sóivallagötu 52,
lést i Hafnarbúðum 28. desember sl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Innilega þökkum við starfsfólki Landakotsspítala og Hafnarbúða.
Fyrir hönd fjarstaddra barna og annarra vandamanna,
Áslaug Bjarney Matthíasdóttir,
Kristinn Rafn Ragnarsson.
+
Móðir mín,
MARGRÉT STEFÁNSDÓTTIR,
Stóru-Hildisey,
A-Landeyjum,
verður jarðsungin frá Voðmúlastaðakapellu laugardaginn
11. janúar kl. 14.00.
Fyrir hönd vandamanna,
Pétur Guðmundsson.
+
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐNÝ ÞÓRARINSDÓTTIR,
Krossdal,
Kelduhverfi,
sem lést 2. janúar í Sjúkrahúsinu á Húsávík, verður jarðsungin
frá Garðskirkju laugardaginn 11. janúar kl. 14.00.
Jóhannes Þórarinsson,
Sigríður Þórarinsdóttir,
Vilborg Þórarinsdóttir,
Sveinn Þórarinsson,
Þórdís Þórarinsdóttir,
Eva María Þórarinsson,
Gunnar Valdimarsson,
Sigurþór Jósefsson,
Helga Ólafsdóttir,
Örn Rafnsson,
Rósa Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.