Morgunblaðið - 10.01.1992, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1992
37
Ungir og gamlir fylgdust með því sem framfór.
^e5)SS
Jólin kvödd og
nýju ári fagn-
að með blys-
för og flug-
eldasýningu
Mikill fjóldi fólks tók þátt í þrett-
ándagleði á Selfossi í mjög
góðu veðri. Hefðbundin blysför var
farin um götur bæjarins og endað
með flugeldasýningu og þvi að
kveikja í bálkesti á íþróttavelinum.
Blysförin var farin frá Tryggva-
skála og gengið eftir Austurvegi. I
göngunni voru jólasveinar með
kyndla en fyrir henni fóru Leppur,
Skreppur og Leiðindaskjóða í litlum
vagni og spiluðu jólalög af krafti.
Þegar kveikt hafði verið í bálkestin-
um á íþóttavellinum hófst mikil
flugeldasýning ásamt því að göngu-
fólk brá blysum á loft.
Þessi dagskrá á Þrettándanum
nýtur æ meiri vinsælda og dregur
að fólk úr nágrannabyggðum og
er höfuðborgarsvæðið þar meðtalið.
Það sama gerist einnig dagana fyr-
ir jól þegar sett er upp dagskrá í
kringum komu jólasveinanna þá
drífur að fólk.
Að lokinni dagskrá á íþróttavell-
inum var boðið upp á dagskrá fyrir
börn í félagsmiðstöðinni Holunni
og fyrir unglingana í Hótel Selfoss.
Allt fór þetta fram með sóma eins
og það hefur gert undanfarin ár.
Það gætir því ákveðins misskilnings
í því sem sagt var í blaðinu 6. jan-
úar að undanfarin ár hefðu verið
ólæti. Réttara hefði verið að segja
að síkt hefði gerst fyrir nokkrum
árum. Það er mat manna að slíkar
óspektir heyri nú til liðinni tíð. Það
var samstillt átak unglinga, for-
eldra, félagasamtaka og bæjaryfir-
valda sem kvað þær niður.
Sig. Jóns.
Morgunblaöið/Sigurður Jónsson.
COSPER
- Konan þín þarf á hvíld að halda, en þú að erfiða meira.
Jolasveinarnir kvöddu börnin á
þrettándanum á Selfossi.
Nú rýmum við fyrir nýjum vörum og lækkum hressilega verðið
á öllum gólfefnum í versluninni, áður en þau nýju koma. -
Teppi - Mottur - Flísar - Dúkar - Parket
15-50%
VERÐLÆKKUN
Þú getur sparað þúsundir króna á
ÚTSÖLUNNI
Taktu málin með þér og prúttaðu við okkur um verðið á
bútum og afgöngum.
Við þjónum þér fljótt og vel.
VISA®
BHBBH
Góðir greiðsluskilmálar - visa-raðgreiðslur í allt að 18 mán.
Eurokretit til 11 mánaða - staðgreiðsluafsláttur /
TEPPABÚÐIN
Gólfefnamarkaður - Suðurlandsbraut 26, S. 681950.