Morgunblaðið - 10.01.1992, Page 38
38
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1992
Katrín sýnir í Perlunni
Um helgina 11. til 12. jan-
úar verður opnuð sýning á
oliumálverkum eftir Katr-
ínu H. Agústsdóttur í for-
sal Perlunnar í Öskjuhlíð.
Það hefur verið stefna
hússins að gefa listamönn-
um kost á að sýna verk sín
á þessum stað og er þetta
fyrsta einkasýning ís-
lensks málara í húsinu.
Katrín hefur á síðari árum
aðallega lagt stund á vatns-
litatækni og olíumálun og
valið sér landslag sem yrkis-
efni. Hún hélt sína fyrstu
einkasýningu á slíkum
myndum árið 1983 í Gerðu-
bergi í Reykjavík. Síðan hef-
ur Katrín haldið þrjár sýn-
ingar á Kjarvalsstöðum, árið
1989 sýndi hún í Jónshúsi í
Kaupmannahöfn og árið
1990 í húsakynnum SPRON
í Mjódd. Þá sýndi Katrín olíu-
málverk í Hafnarborg í
Hafnarfirði síðasta haust.
Katrín hefur fengið viður-
kennkingar fyrir listhönnun.
Ýmis söfn hafa keypt mynd-
verk hennar s.s. söfn í eigu
Reykjavíkurborgar, Kópa-
vogskaupstaðar, Húsavíkur-
kaupstaðar, Sauðárkróks-
kaupstaðar og Selfosskaup-
staðar.
Sýningin í Perlunni stend-
ur frá 11. janúar og út febrú-
armánuð á opnunartíma
hússins og er hún sölusýning
og Veitir veitingastjóri allar
upplýsingar.
■ ROKKHLJÓMS VEIT-
IN Eldfuglinn leikur á mið-
næturtónleikum í skemmti-
staðnum Höfðanum í Vest-
mannaeyjum laugardaginn
11. janúar. Þetta er fyrsta
sinni, sem hljómsveitin kem-
ur fram á þessu ári og fyrsta
sinni, sem hún kemur fram
í Eyjum.
Tvö íslensk pör keppa
á Sunday Times mótinu
____________Brids______________
GuðmundurSv. Hermannsson
Fjórir af heimsmeisturum íslend-
inga, Aðalsteinn Jörgensen, Jón
Baldursson, Guðmundur Páll Arnar-
son og Þorlákur Jónsson, búa sig
nú undir keppni á einhveiju sterk-
asta tvímenningsmóti sem haldið
hefur verið, Sunday Times tvímenn-
ingnum, sem haldinn verður 22-24.
janúar á Hyde Park hótelinu í Lon-
don. Og Aðalsteinn og Jón keppa
16-19. janúar á öðru geysisterku
tvímenningsmóti sem kennt er við
Cap Gemini Pandata og er haldið í
Haag í Hollandi.
Sunday Times mótið var fyrst hald-
ið snemma á sjöunda áratugnum og
varð smám saman að eins konar óop-
inberu heimsmeistaramóti í tvímenn-
ingi. íslenskir spilarar tóku þátt í
mótinu 1973-5, fyrst Ásmundur Páls-
son og Hjalti Elíasson tvö ár í röð og
síðan Símon Símonarson og Stefán
Guðjohnsen, og náðu allir góðum ár-
angri. í upphafi síðasta áratugar lenti
mótið í talsverðum þrengingum. Blað-
ið Sunday Times lenti í fjárhagsörðug-
leikum og hætti að koma út á tíma-
bili. Nýtt tímárit, Now!, tók þá mótið
yfir og hélt það einu sinni, en fór svo
á hausinn og mótið lagðist af í nokk-
ur ár. Sunday Times tók síðan upp
þráðinn fyrir þremur árum og mótið
náði strax aftur fyrri stöðu og ef litið
er á þátttakendalistann nú er mér til
efs að þar hafi áður verið jafnsterkir
spilarar samankomnir.
Pörin sem keppa á Sunday Times
eru, auk íslendinganna, Perron og
Chemla frá Frakklandi sem unnu
mótið á síðasta ári, Hamman og
Wolff, Meckstroth og Rodwell, Kantar
og Sontag, Soloway og Goldman, Eis-
enberg og Garozzo, Kaplan og Glu-
bok, Zia Mahmood og Rosenberg, all-
ir frá Bandaríkjunum, Chagas og
Branco frá Brasilíu, Leufkens og
Westra frá Hollandi, Armstrong og
Kirby, Forrester og Robson, Sowter
og Smolski frá Bretland. Loks spila
saman Sally Horton frá Bretlandi og
Karen McCallum frá Bandaríkjunum.
Á Sunday Times er haldið fast í
gamlar og góðar venjur. Keppendur
spila í í smókingfötum og síðkjólum,
og verða að mestu að nota eðlilegar
sagnir.
Cap Gemini Pandata var áður kennt
við Staten Bank, og er með líku sniði
og Sunday Times mótið. í þetta skipti
koma keppendur þó frá fleiri löndum.
Meckstroth-Rodwell, Chagas-Branco,
Forrester-Robson, Chemla-Perron,
Garozzo-Eisenberg, Glubok-Kaplan,
Zia-Rosenberg og Leufkens-Westra
spila þar eins og í London, og til við-
bótar eru Fallenius-Nilsland frá Sví-
þjóð, Martens-Zsymanowski frá Pól-
landi, Fischer-Weigkricht frá Austur-
ríki, Kokish-Mittelman frá Kanada,
Huang-Tai frá Taiwan, Bocchi-Dubo-
in frá Ítalíu og Jansen-Westerhof frá
Holiandi. Þetta mót var áður kennt
við Staten Bank og hefur verið haldið
síðustu fimm ár eða svo.
Þriðji rétturinn í bridsveislu janúar-
mánaðar er einvígi sem fer fram
27-28. janúar í London milli tveggja
sveita þar sem undir eru lagðar 5
milljónir króna. Forsaga þessa er sú,
að á síðasta ári lýstu Forrester, Rob-
son, Chagas og Branco því yfír, þeir
væru tilbúnir að spila 128 spila einvíg-
isleik gegn hvaða sveit sem væri og
leggja 50 þúsund pund undir. Þeir
ætluðu aðeins að nota eðlilegar sagn-
ir á meðan andstæðingamir máttu
nota hvaða sagnvenjur og gervisagnir
sem væri. Bandaríkjamennimir Ham-
man, Wolff, Mecstroth og Rodwell
tóku áskomninni þegar í stað og nú
stendur þetta einvígi fyrir dyrum.
Þar verður örugglega hart barist,
ef marka má þetta spil frá heims-
meistaramótinu í Yokohama:
Vestur Norður Austur Suður
Robson Rodwell Forrester Meckstr.
pass pass
1 grand pass pass 2 lauf
3 tíglar 4 tíglar pass 4 hjörtu
a.pass
Norður ♦ 108752 VÁ932 ♦ K9 *Á10
Vestur Austur
♦ Á3 ♦ D94
V 75 ▼ KG4
♦ ADG1082 ♦ 7653
+ D85 Suður ♦ 743
♦ KG6 TD1086 ♦ 4 ♦ KG962
Robson fór nokkuð óvenjulega leið
í sögnum, opnaði fyrst á veiku grandi
og reyndi svo hindmnarsögn í tígli.
En Meckstroth og Rodwell telja að
freistingar í sögnum séu til að falla
fyrir þeim og óðu í 4 hjörtu.
Robson spilaði út tígulás og meiri
tígli, og suður henti spaða í tígul-
kóng. Hann spilaði naést spaða á gosa
og ás, og Robson spilaði sig út á
spaða. Meckstroth spilaði næst þrisv-
ar laufi og trompaði í borði, tók hjarta-
ás og meira hjarta og þegar allt lá
eins og um var beðið átti hann 10
slagi.
Það er fyrirsjáanlegt annaár hjá
íslensku heimsmeisturunum. Fyrir
utan þessi tvö mót sem hér hefur
verið sagt frá, er ákveðið að Guðlaug-
ur R. Jóhannsson, Örn Arnþórsson,
Aðalsteinn og Jón fari á mót í Cannes
í Frakklandi síðari hluta febrúarmán-
aðar. Þá mun vera í undirbúningi að
bjóða öllu liðinu til Hollands í keppn-
is- og sýningarferð. í júní verður
Norðurlandamótið haldið í Svíþjóð og
Ólympíumót á Ítalíu í ágúst og má
búast við að lagt verði fast að heims-
meisturunum að spila í íslensku
landsliðunum þar. Og þeim hefur þeg-
ar verið boðið á sterkt sveitamót í
Bretlandi næsta vetur og sjálfsagt eru
fleiri boð í farvatninu.
iS
ingolfs
opiö i kvold kl. 11-3
850 kr.
OG BJARNI ARA
skemmta í kvÖld
MATUR + MIÐIKR. 1480.-
DANSBARINNKR. 700.-
DANSÐARINN
Grensásvegi 7, símar 33311-688311
matsölu-
og skemmtistaður
Kringlunni 4, sími 689686
Opiðfrá kl. 18-3.
Nýr tónlistarstjóri
Michael Georg Walley
Borðapantanir í síma 689686
Rúnar t>ór og félagar
skemmta gestum Rauða ljónsins í kvöld
Snyrtilegur klæðnaður