Morgunblaðið - 08.02.1992, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR 1992
27
„Með krafti“
í Kring'lunni
DAGANA 7. til 15. febrúar verð-
ur í Kringlunni kynning-in „Með
krafti“ þar sem áhersla er lögð
á vetrarferðir, útivist, farartæki
til vetrarferða, vetraríþróttir,
fatnað og búnað.
Á meðan á kynningu þessari
stendur verða sýndir á göngugötum
Kringlunnar vélsleðar og torfæru-
tröll, bæði sérútbúnir bílar og jepp-
ar frá helstu bílaumboðunum. Al-
menningi gefst m.a. kostur á að
að skoða „fjallahótel" Benedikts
Eyjólfssonar og jeppann sem var
ekið upp á Hvannadalshnjúk. Þá
munu félagar úr ferðaklúbbnum
4x4 koma í nokkur skipti og sýna
torfærutröll sín á Kringlutorginu
sunnan við húsið. Einnig verður
kynntur ýmiss búnaður fýrir jeppa
og vélsleða.
Æskulýðs- og tómstundaráð
Reykjavíkur og Bláíjallanefnd
kynna aðstöðu til vetraríþrótta í
Reykjavík og nágrenni. Ferðafélag
íslands og Útivist kynna gönguferð-
ir, Ferðaþjónusta bænda veitir upp-
lýsingar um bændagistingu og
Flugleiðir kynna helgarferðir til
Akureyrar, ísafjarðar og skíðaferð-
ir til Austurríkis. Einnig munu
Landmælingar íslands sýna kort
og kortagerð. Þá munu verslanir í
Kringlunni og nokkrir íslenskir
framleiðendur kynna fatnað og
búnað til útiveru.
(Fréttatilkynning)
Leikarar og aðstandendur sýningarinnar Tívólí.
Tívólí - 60. nemendamót
Verslunarskóla Islands
AUKASÝNING á Tívólí, sýningu sem Verslunarskólanemar settu
upp á 60. nemendamóti skólans, verður sunnudaginn 9. febrúar
á Hótel íslandi og hefst kl. 15.00.
Sýningin er byggð á tónlist
og öðru skemmtiefni Stuðmanna.
Um 100 manns taka þátt í sýn-
ingunni. Leikstjóri er Ástrós
Gunnarsdóttir. Úndirleik annast
hljómsveitin Ný Dönsk. Nokkur
lög úr sýningunni eru þegar far-
in að hljóma á útvarpsstöðvun-
um, þ.á m. „Fljúgðu" og „Búk-
alú“.
Fyrirlestraröð um kenn-
ingar sálgreiningarinnar
ÞERAPÍA hf. gengst fyrir fyrirlestraröð, sem standa mun út allt
þetta ár og hefst næstkomandi mánudag, 10. febrúar með fyrir-
lestri um „Uppruna og þróun sálgreiningar". Fyrirlestrarnir verða
fluttir í stofi 201 í Odda, húsi Háskóla íslands og hefjast klukkan 20.
Fyrirlestraröðin er í fjórum lotum
og fjallar hin fyrsta, sem stendur
yfir í febrúar og mars um undir-
stöðuhugtök sálgreiningar. Næsta
lota fjallar um sama efni og verður
flutt í 5 fyrirlestrum og verður sá
fyrsti haldinn í lok aprfl, en aðrir í
maímánuði. Þriðja lota, sem ber
yfírskriftina „Samtalsmeðferð"
verður í 6 fyrirlestrum og stendur
yfír í september og október og
fjórða og síðasta lota verður flutt í
6 fyrirlestrum í nóvember og byijun
desember. Hún ber hina hina fræði-
legu yfirskrift „Psychopathology".
Þátttökugjald er fyrir hveija lotu.
Fyrirlesarar eru: Halldóra Ólafs-
dóttir, Hulda Guðmundsdóttir,
Leiðrétting
í FRÉTT af vígslu Stóðhestastöðvar
ríkisins á Gunnarsholti, þar sem
getið var þeirra, sem staðið hefðu
að smíði og frágangi hússins, mis-
ritaðist heiti vélsmiðjunnar, sem
nefnd var. Hún heitir Vélsmiðja
Guðjóns Ólafssonar, Reykjavík.
Hlutaðeigendur eru beðnir velvirð-
ingar á þessu.
Högni Óskarsson, Ingvar Kristjáns-
son, Mágnús Skúlason, Oddur
Bjarnason og Siguijón Bjömsson.
Sænsk teikni-
mynd um
Einar Askel
sýnd í Nor-
ræna húsinu
Kvikmyndasýning fyrir
börn verður sunnudaginn 9.
febrúar kl. 14.00 í fundarsal
Norræna hússins. Sýndar
verða fjórar teiknimyndir um
Alfons Áberg eða Einar
Áskel eins og hann heitir á
íslensku.
Gunilla Bergström er höf-
undur bókanna um Einar Áskel
og hafa þær komið út á íslensku
og eru mjög vinsælar meðal
yngri barna. Sýningin tekur um
klukkustund og er aðgangur
ókeypis.
Athugasemd frá Starfs-
mannaráði Borgarspítala
VEGNA FRÉTTA að undanf-
örnu og ummæla í bréfi frá
stjórn Sjúkrastofnana Reykja-
víkur um að starfsfólk spítal-
Vitni vantar
að árekstri
EKIÐ var á hvítan Mitsubishi
Lancer, JV-148, þar sem hann
stóð kyrrstæður á bílstæði ís-
landsbanka hf. við Smiðjuveg
1 í Kópavogi milli kl. 15,10
og 16.40 miðvikudaginn 5.
febrúar. Hægri hlið bifreiðar-
innar var stórskemmd.
Þeir, sem geta gefið vís-
bendingu um hver hafi valdið
skemmdunum á bílnum eru
beðnir að snúa sér til lögregl-
unnar í Kópavogi.
ans hafi boðist til að taka á sig
skerðingu launa, vill Starfs-
mannaráð Borgarspítalans
vekja athygli á því að hér er
einungis átt við sérfræðinga
spítalans í læknastétt. Þetta
tilboð lækna um að taka á sig
kjaraskerðingu var gert til að
koma í veg fyrir uppsagnir.
Kjaraskerðing þeirra nemur að
jafnaði u.þ.b. 4% af grunnlaunum
þeirra. Hins vegar er ljóst að kjara-
skerðing mun bitna á flestöllu
starfsfólki spítalans þar sem draga
á úr yfirvinnu annarra en lækna
á spítalanum sem nemur 5% eða
sem svarar 25 milljónum króna.
Starfsfólk spítalans hefur sýnt já-
kvætt viðhorf gagnvart þeim að-
haldsaðgerðum sem eru innan
skynsamlegra marka, skila raun-
verulegum sparnaði og sem skerða
sem minnst þjónustu við sjúklinga
spítalans.
Skólamálafundir í
♦
skólum Reykjavíkm*
FORELDRA- og kennarafélög í
grunnskólum borgarinnar boða
til funda um skólamál mánudag-
inn 10. febrúar. Þar verða flutt
Tónleikar á
veg’um Tón-
listarskóla
Kópavogs
TÓNLISTARSKÓLI Kópavogs
heldur tónleika á sal skólans í
Hamraborg 11,3. hæð þriðjudag-
inn 11. febrúar klukkan 20,30.
Fram koma nemendur á ýmsum
stigum náms í píanóleik, en einnig
verður fluttur 1. þáttur úr kvartett
fyrir klarinettu, fíðlu, selló og píanó
eftir Paul Hindemith.
stutt ávörp og síðan eru fyrir-
spurnir og almennar umræður.
Margar spurningar brenna á
foreldrum í Ijósi sparnaðarað-
gerðar ríkissljórnarinnar og
hvernig þær munu koma til
framkvæmda í grunnskólunum
næsta skólaár.
Fundir verða í eftirfarandi skól-
um: í Laugarnesskóla kl. 20.00.
Að fundinum standa foreldra- og
kennarafélögin í Langholts-,
Laugarnes-, Laugalækjar- og
Vogaskóla. í Austurbæjarskóla kl.
20.30 og í Safamýrarskóla kl.
20.00. Sameiginlegur fundur for-
eldra og kennara nemenda Árbæj-
arskóla, Ártúnsskóla og Selás-
skóla verður í Árbæjarskóla kl.
20.30.
Miðvikudaginn 12. febrúar
verður fundur í Æfínga- og til-
raunaskóla Kennaraháskóla ís-
lands kl. 20.30.
Richard Korn, Reynir Sigurðsson og Sveinn Eyþórsson.
Jazz með sunnudags-
kaffinu í Kirkjuhvoli
JASSTÓNLEIKAR verða haldnir sunnudaginn 9. febrúar 1992 kl.
15.00 í Kirkjuhvoli, Garðabæ. Þetta eru stuttir tónleikar (30-40
mín) þar sem kennarar Tónlistarskóla Garðabæjar flytja jass sem
kynntur verður jafnóðum. Á eftir verður boðið upp á kaffi og kökur.
Flytjendur á sunnudaginn eru:
Sveinn Eyþórsson gítarleikari,
Reynir Sigurðsson víbrafónsleikari
og Richard Korn kontrabassaleik-
ari. Tilgangurinn er að gefa
Garðbæingum og öðrum gestum
kost á að heyra góða tónlist flutta
af kennurum Tónlistarskólans í tón-
leikasal bæjarins í Kirkjuhvoli.
Aðgangseyri verður stillt í hóf,
kaffi og meðlæti innifalið. Ágóði
ef einhver verður rennur í Listasjóð
TG.
Sjálfstæðisfélag Keflavíkur:
írskur kennimaður kveður:
Leiðrétting
í Morgunblaðinu 5. febrúar var
frá því sagt að írskur prestur sem '
hér hefur starfað undanfarin ár
verði kvaddur í Safnaðarheimili
kaþólska safnaðarins laugardags-
kvöldið 11. febrúar. Þetta eru að
sjálfsögðu mistök þar sem 11. febr-
úar er á þriðjudegi enda er það
þriðjudaginn 11. febrúar kl. 20.30
sem séra Róbert Bradshaw verður
kvaddur í safnaðarheimilinu.
----» ♦ «---
Umskipti á
blaðamarkaði
FÉLAG áhugamanna um fjölm-
iðlarannsóknir gengst fyrir opn-
um fundi um þau umskipti sem
nú eru að eiga sér stað í íslensk-
um blaðaheimi, segir f fréttatil-
kynningu frá áhugamönnunum.
Fundurinn verður í stofu 101 í
Odda þriðjudaginn 11. febrúar
klukkan 20,30.
Á fundinum verður leitast við
að.svara spðurningum eins og „Er
það til góðs eða ills að gömlu flokks-
blöðin leggjast af? Eru umskiptin
til marks um breytt hlutverk dag-
blaða? o. s. frv. Til þess að ræða
■ málin mæta alþingismennimir
Björn Bjarnason og Ólafur Ragnar
Grímsson og Einar Sigurðsson blað-
afulltrúi Flugleiða. Hver þeirra flyt-
ur stutta framsöguræðu, en síðan
verða umræður og fyrirspumir.
Landhelgisgæslan flytji alla
starfsemi sína til Keflavíkur
AÐALFUNDUR Sjálfstæðisfé-
lags Keflavíkur hefur ályktað og
skorar á ríkisstjórn íslands að
nú þegar verði hafinn undirbún-
ingur að því að öll starfsemi
Landhelgisgæslunnar verði flutt
til Keflavíkur, þ.e. öll flugstarf-
semi ásamt útgerð varðskipa og
höfuðstöðvar.
Fundurinn beindi. einnig ein-
dregnum tillögum til ríkisstjómar-
innar og þá sérstaklega til dóms-
málaráðherra, að nú þegar verði
tekið upp nánara samstarf á milli
Landhelgisgæslunnar og björgun-
arsveita varnarliðsins.
Þessum tillögum Sjálfstæðisfé-
lags Keflavíkur fylgir greinargerð,
þar sem rökstuðningur er færður
fyrir áðurnefndum tillögum. Þar
segir m.a. að Keflavíkurflugvöllur
sé fullkomnasti flugvöllur landsins.
Þar em staðsettar fullkomnar
björgunarþyrlur sem eð’lilegt er að
þyrlusveit Landhelgisgæslunnar
vinni sem mest með. Til þess að
samstarf þessara aðila verði sem
best er eðlilegt að öll flugstarfsemi
Landhelgisgæslunnar flyttist til
Keflavíkurflugvallar.