Morgunblaðið - 08.02.1992, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
LAUGARDAGUR 8. FEBRUAR 1992
HANDKNATTLEIKUR / BIKARKEPPNI KVENNA
IMýir meistarar krýndir?
- eða fagna FH-stúlkur bikarmeistaratitlinum í dag eftir 11 ára hlé?
VÍKiNGUR og FH, sem leika til
úrslita íbikarkeppni kvenna í
handknattleik í dag hafa, einu
sinni mæst í úrslitaleik. Það var
árið 1981 og þá sigruðu FH-
stúlkur. Þetta vareini úrslita-
leikur Víkings til þessa, en FH
hefur nokkrum sinnum leikið
til úrslita síðan án sigurs þó.
Það ræðst því í dag hvort nýir
bikarmeistarar verða krýndir í
kvennahandboltanum eða
hvort FH fagnar sigri öðru
sinni. FH og Víkingur hafa leik-
ið einn leik í íslandsmótinu í
vetur og þá sigraði Víkingur
nokkuð örugglega. Víkingsliðið
er reyndar sigurstranglegra ef
litið er á stöðuna í ísiandsmót-
SKOTFIMI
inu þar sem liðið hefur ekki enn
tapað leik og er í efsta sæti.
FHerífjórða sæti.
Það er viss spenna í liðinu, enda
er þetta í fyrsta skipti sem
þessi hópur leikur alvöru úrslita-
leik,“ sagði Inga
Lára Þórisdóttir,
fyrirliði Víkings.
„Við höfum því lagt
áherslu á að reyna
að vinna á þessari spennu sem von-
andi nær hámarki fyrri hluta dags
og fjarar svo út. Það er mikilvægt
að ná að leika af eðlilegri getu strax
fyrstu mínútur leiksins."
„Víkingur og FH eru mjög ólík
lið. FH-steipurnar eru stórar og
Hanna Katrin
Friöriksen
skrifar
sterkar, en við erum með fljótari
leikmenn og byggjum spil okkar
því meira á hraða. Við eigum því
von á að þær muni reyna að halda
hraðanum niðri í leiknum. Ég held
að það megi gera ráð fyrir spenn-
andi úrslitaleik. Árangurinn í deild-
inni til þessa segir ekki alla söguna
því í bikarúrslitaleikjum getur allt
gerst. Við mætum ákveðnar til leiks
og stefnum að því að halda sigur-
göngunni áfram. Ég spái því að við
vinnum 21:19,“ sagði Inga Lára.
FH leikur án Bjargar
„Úrslitaleikurinn leggst vel í okk-
ur FH-inga,“ sagði Hildur Harðar-
dóttir, fyrirliði FH. „Við lékum
síðast tii úrslita árið 1989, en höfum
ekki unnið bikartitilinn frá því 1981
þannig að það er tími til kominn.
Miðað við stöðuna á íslandsmótinu
í dag er Víkingsliðið sigurstrang-
legra, en það getur allt gerst í bikar-
leikjum og við stefnum að sjálf-
sögðu á sigur. Við leikum án Bjarg-
ar Gilsdóttur á línunni, en hún hef-
ur verið frá keppni frá áramótum
vegna meiðsla í öxl.“ „FH hefur
reynsluna fram yfir Víkingsliðið og
það nýtist okkur vonandi. Það er
langt síðan að FH hefur unnið titil
í kvennahandbolta. Við höfum of
oft lent í öðru sæti og það er kom-
inn tími til að breyta ,því,“ sagði
Hildur. „Ég spái því að við vinnum
með tveggja marka mun, 19:17.“
Lygin sigrar — sannleikurinn vítlur!
eftirCarlJ. Eiríksson
29. janúar sl. var haldinn aðal-
fundur Skotfélags Reykjavíkur. Það
gerðist á þessum fundi að þar voru,
að tillögu stjórnar félagsins, sam-
þykktar vítur á þijá menn, þar með
undirritaðan, fyrir að virða ekki
samþykkt aðalfundar félagsins 15.
mars 1991 um að leggja skyldi nið-
ur allar deilur.
Stjómin benti á blaðagreinar sem
ástæðu fyrir vítunum, en stjórnin
benti ekki á nokkurt vítavert atriði
í þessum greinum né rökstuddi
hvers vegna þessar greinar væru
vítaverðar. Voru þó gerðar ítrekað-
ar fyrirspurnir í þá átt á aðalfundin-
um.
Ásökunum stjórnarinnar er alfar-
ið vísað á bug, því það eru einmitt
stjórn Skotfélags Reykjavíkur og
stjórn Skotsambands íslands sem
hafa brotið gegn samþykktinni frá
15. mars 1991 og hafa haldið deil-
um áfram og gera það enn.
Því má skjóta hér inn að furðu
gegnir að fyrrverandi gjaldkeri, sem
maður skyldi ætla að bæri mesta
ábyrgð á fjármálum féiagsins 1990,
sem núverandi stjórn hefur gagn-
rýnt hvað harðast, skyldi ekki einn-
ig verða víttur.
Stjórn félagsins hefur alið á deil-
um með því að hóta undirrituðum
keppnisbanni í júlí 1991 fyrir að
skrifa ferðaskýrslu, sem ritari
stjórnar viðurkenndi þó í ræðu á
aðalfundi að væri öll sannleikanum
samkvæm. Er sannleikurinn svona
hættulegur? í ferðaskýrslunni er
reyndar hvergi hin minnsta gagn-
rýni né óvinsamleg orð gegn Skotfé-
lagi Reykjavíkur eða stjórn þess.
Stjórnin hindraði lausn deilna
með því að draga kæru fyrrverandi
stjórnar til baka og koma þannig í
veg fyrir að íþróttadómstóll gæti
lokið störfum sínum, sem dómstóll-
inn var byrjaður á við að leysa deil-
ur vorið 1991. Stjórnin skapaði
deilur með því að neita viðtöku
bréfa; með því að vilja ekki biðja
um hefðbundna tímasetningu Is-
landsmóta og með því að hefja svo
fyrst æfingar að þeim loknum!
Stjórn Skotsambands íslands
hefur ötullega haldið deilum gang-
- BIKARURSLIT -
í meistaraflokki kvenna í handbolta:
FH - VÍKINGUR
í Laugardalshöll laugardaginn 8. febrúar kl. 16.30.
Heiðursgestur: Sigríóur Siguróardóttir, íþróttamaður órsins 1 964.
Handboltaóhugamenn fjölmennum og hvetjum stelpurnar.
Sætaferóir fram og til baka
frá Kaplakrika
í Hafnarfirði kl. 1 5.30 strax eftir
leik FH og Fram í mfl. karla
í íslandsmótinu, sem hefst
kl. 14.00 í Kaplakrika.
VCCEL
Sjálfvirkt
Smurkerfi
SP4U
SPARISJOÐUR
HAFNARFJARÐAR
andi með fjölmörgum ósönnum
fréttum og greinum til fjölmiðla um
skotfimi. Einnig með því að viður-
kenna ekki Íslandsmet undirritaðs
þótt þau séu sett á íslandsmeistara-
mótum Skotsambandsins; með því
að viðurkenna ekki flokkaárangur
undirritaðs; með því að fejla niður
vopnaskoðun á íslandsmeistaramóti
1991 sem á að vera skv. alþjóða-
reglum til að hindra svindi og með
því að skrökva að stjórn ÍSÍ um
íslandsmetaskrá 1987. (Nýjasta
frétt: Formaður Skotsambándsins
hefur nú játað tilvist metaskrárinn-
ar frá 1987 sem hvarf.)
Ekki er vitað til að stjórn Skot-
sambandsins hafi nokkurn tíma
leiðrétt ósannar greinar sínar.
Framangreind atvik kallar nú-
verandi stjórn Skotfélags Reykja-
víkur víst að leggja niður deilur,
eða hvað?
Svo þykjast sumir ekki skilja um
hvað deilurnar snúast!
Deilur leysast ekki með vítum á
aðeins annan deiluaðilann, síst af
öllu með órökstuddum vítum, og
þær leysast ekki með einhliða sam-
þykktum um að leggja niður deilur,
þegar samþykkjandinn heldur deil-
unum áfram.
Höfundur er skotmnður.
GETRAUNIR
Um helgina
Handknattleikur
Laugardagur:
Bikarúrslitalcikur kvenna:
Höllin: Víkingur- FH...............kl. 16.30
1. deild karla:
Kaplakriki: FH-Fram................kl. 14.00
Digranes: UBK - Selfoss............kl. 16.30
Garðabær: Stjarnan-HK..............kl. 16.30
2. deild karla:
Fjölbr. Br.: Fjölnir - Völsungur.kl. 14
Seljaskóli: ÍR-UMFA..............kl. 14
Sunnudagur:
1. deild karla:
Vikin: Víkingur-Valur............17.00
Strandgata: Haukar - ÍBV.........kl. 20
2. deild karla:
Keflavík: HKN - Ármann...........kl. 20
Körfuknattleikur
Laugardagur:
Japísdeildin:
Strandgata: Haukar-KR............kl. 14
Stykkish.: Snæfe|l-Þór...........kl. 14
1. deild karla:
Hagaskóli: KFR-Höttur............kl. 14
1. deild kvenna:
Grindavík: UMFG - KR...........kl. 15.30
Sunnudagur:
Japísdeildin:
Borgarnes: UMFS - iBK............kl. 16
Njarðvik: UMFN-Valur.............kl. 16
Sauðárkr.: UMFT - UMFG...........kl. 20
1. deild karla:
Sandgerði: Reynir - Víkveiji.....kl. 17
1. deild kvenna:
Seljaskóli: ÍR-Haukar............kl. 14
Kennarahásk.: ÍS - ÍBK....:......kl. 20
Blak
Laugardagur:
1. deild karla:
KA-húsið: KA-ÞrótturR............kl. 14
Hverag.: UMFSkeið-ÞrótturN....kl. 17.00
1. deild kvenna:
Digranes: UBK-Sindri..........kl. 13.30
Bikarkeppni kvenna:
KA-húsið: KA-Víkingur.........kl. 15.15
Sund
Meistaramót Reykjavíkur fer fram í Sund-
höll Reykjavíkur á morgun, sunnudag og
hefst kl. 14. Keppt verður í ölium flokkum.
Fimleikar
Skrúfumót FSf verður haldið í fþróttahöll-
inni á Akureyri í dag, laugardag. Þetta er
mót i almennum fimleikum og er fjöldi kepp-
enda um 200 frá 11 félögum á aldrinum
10 til 16 ára. Keppt verður í nýjum fimleika-
stiga. Mótið hefst kl. 14.
Badminton
íslandsmót öðlinga- og æðsta flokks í bad-
minton fer fram í dag, laugardag, í TBR-
húsunum við Gnoðarvog og hefst kl. 13.30.
Keppt verður í öllum greinum karla og
kvenna.
Keila ,
fslandsmót unglinga í keildu hefst um helg-
ina. Keppt verður í 4 flokkum og spilað á
þremur stöðum, Keilulandi, Keilubæ og
Keiluhöllinni.
Undanúrslit í bikarkeppni karla og
kvenna fer fram í Öskjuhlíð í dag og hefst
kl. 14.
Billiard
Fimmta opna Hörpu-mótið í snóker, sem
forgjafarmót, verður í Ingólfsbilliard í dag
og á morgun. Sex mót eru haldin og eru
vegleg verðlaun í boði. Átta efst menn fá
í verðlaun tveggja vikna ferð til Englands.
Frjálsíþróttir
Meistaramót öldunga innanhúss fer fram í
Baldurshaga í dag, laugardag, og á morgun
kl. 13 til 16 báða dagana.
Golf
Púttmót verður haidið í Golfheimum í Skeif-
unni í dag. Menn geta komið á tímabilinu
8-20. Ís-Spor gengst fyrir mótinu.
Félagslíf
Pílukastkeppni Vals verður að Hlíðarenda
í dag, laugardag, og hefst kl. 11.
Stórleikur
í Víkinni!
Víldngur - Valur
sunnudaginn 9 febrúar kl. 17.00.
Handboltaunnendur, ekkert kæruleysi
- mætum öll í Víkina.
Áfram Víkingur!
Skeljungurhf.
Skeljungurhf.
E'itkmuribodlvi"
6.
leikv.
0
Coventry : Liverpool 3 2 7- 10-21
Everton : Queens Park R. 7 1 0 19-5
Luton : Norwich 4 2 3 13-8
Notts County : Arsenal 2 0 1 3-5
Oldham : Leeds 3 4 1 15-11
Sheffield Utd. : Manchester City 0 2 1 2-3
Wimbledon : Aston Villa 2 1 1 4-4
Barnsley : Cambridge 1 1 1 4-3
Bristol Rovers : Sunderland 0 1 0 2-2
Charlton : Southend 0 0 0 0-0
Grimsby : Blackburn 4 3 0 16-6
Newcastle : Bristol City 0 2 0 0-0
Treanmere : Wolves 0 0 0 0-0
Heimaleikir
frá 1979
1 X 2 Mörk
Úrslit
Mín spá
1 x 2
UNGLINGAÞJÁLFUN 1
KSÍ fieldur bjálfaranámskeið -
UNGLINGAÞJÁLFUN 1 - í íþróttamiðstöðinni, Laug-
ardal, 14.-16. febrúar nk. Inntökuskilyrði: B-stig KSÍ.
Verð kr. 8.000,-
Skráning og nánari upplýsingar eru veittar á skrif-
stofu KSÍ, sími 814444.
GÓÐ ÞJÁLFUN - BETRI KNATTSPYRNA
FRÆÐSLUNEFND.