Morgunblaðið - 11.02.1992, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRUAR 1992
33
Hilmari Steinólfssyni og reyndust
þau Siggu mjög vel alla tíð. Þegar
barnabörnin fæddust kom í ljós
hversu annt henni var um smábörn-
in. Ég man sérstaklega þegar fyrsta
ömmubarnið fæddist hér á Suður-
götunni, það ber nafn þeirra hjóna,
Sigurður Gunnar. Þegar hún sýndi
mér hann nýfæddan var hún svo
stolt og ég sá ekki betur en það
blikuðu tár á hvarmi. Öll börn Huldu
og Hilmars urðu ömmu sinni mjög
kær og eignaðist Sigga stóra og
góða íjölskyldu og var það mikil
hamingja í hennar lífi. Gunnar,
mann sinn, missti hún fyrir nokkrum
árum, en lífið hélt áfram og sauma-
vélin gekk, flíkunum fjölgaði á Sig!-
firðinga. Hún vann verk sín hljóð,
bað ekki um kauphækkun, fór ekki
í verkfall. Veikindadagar voru ekki
teknir margir um ævina.
Við Hulda fengum báðar lömun-
arveikina og lömuðumst og vorum í
þeim hópi sem stofnaði fyrsta Sjálfs-
bjargarfélagið hér á Siglufirði. Hún
Sigga gerðist styrktarfélagi og
styrkti starfsemina á margan hátt
með sinni alkunnu hógværð og ein-
.lægni. Síðustu árin dvaldi hún á elli-
heimilinu hér og sjúkrahúsinu. I
fyrstu var það henni erfitt þar sem
vinnusemin hafði ætíð setið í fyrir-
rúmi, en hún var sátt við lífið og
tilveruna er tímarnir liðu.
Nú er Sigga farin úr stofunni,
jafn hljóðlega og hún gekk um hana
og hennar bíður starf á æðri stöðum
þar sem verk hennar eru hafin _til
þeirrar virðingar sem þeim ber. Ég
sendi Huldu, Hilmari, börnum og
barnabörnum'hennar mínar innileg-
ustu samúðarkveðjur. Minningin lif-
ir.
Valey Jónasdóttir.
Okkur systkinin langar að minn-
ast hennar Siggu ömmu með örfáum
orðum nú þegar hún er farin frá
okkur þann veg sem við öll munum
einhvern tímann ganga.
Við kölluðum Siggu ömmu okkar
alla tíð þótt hún væri ekki tengd
okkur af nánum skyldleika, en nafn-
giftina fékk hún af uppfóstri móður
okkar frá unga aldri.
Við munum hana best þar sem
hún sat við saumavélina og bjó þar
til margar fallegar flíkur. Þó var
annríkið aldrei svo mikið að hún
gæfi sér ekki tíma til að hlúa að
ungum ömmubörnum. Hún fylgdist
vel með þroska okkar, námi og heim-
ilishaldi, eftir að það kom til, og þá
urðu litlu barnabörnin augasteinar,
hennar.
Sigga amma var ákaflega geðgóð
og samviskusöm, hún mátti ekkert
aumt sjá svo hún reyndi ekki að
bæta úr því.
Við viljum líka minnast hér á
Gunnar afa, en hann lést 6. mars
1978. Þau voru að mörgu leyti mjög
ólík, en bæði stuðluðu þau að góðri
sambúð. Gunnar afi var snyrtilegt
prúðmenni í hvívetna.
Blessuð sé minning elskulegrar
ömmu okkar.
Sigurður_ Gunnar, Jóna,
Ella osr Asa.
_
1 Minningarkort *
Bandalags fslenskra skáta
Slmi: 91-23190
B3G0
Kristbjörg Ö. Bjöms-
dóttir — Minning
Fædd 13. september 1929
Dáin 30. janúar 1992
Mig langar til að minnast í örfáum
orðum Kristbjargar frænku minnar,
Kiddu eins og hún var kölluð af
ættingum og vinum.
Kidda var fædd hinn 13. september
1929 í Brekku og var hún elst barna
þeirra hjóna Sigríðar Ólafsdóttur og
Björns Hallgrímssonar. Systkini
eignaðist hún fimm. Þau voru Stef-
án, Hreinn sem lést á besta aldri,
Árný, Sigurbjörn og Elsa. Kidda ólst
upp við mikinn kærleik og mikla
hlýju sem ávallt var ríkjandi á heim-
ili foreldra hennar í Brekku.
26. desember árið 1954 giftist hún
Aðalsteini Hjaltasyni frá Rútsstöð-
um í Eyjafirði. Þau hófu búskað í
Brekku og byggðu sér síðar hús í
Stafholti 12. Þeim varð fjögurra
barna auðið. Þau eru Anna, búsett
í Ástralíu, Björn, sem býr á Akur-
eyri, Freyr, í Noregi og Lilja, sem
býr í föðurhúsum. Kidda hafði mikið
dálæti á börnum og barnabörnin sem
eru fimm voru öll sólargeislar ömmu
sinnar.
Kiddu var margt til lista lagt. Hún
hóf snemma að sauma, enda hafði
hún mikla hæfileika á því sviði. Hún
var mikil húsmóðir og minnist ég
þess hve kökurnar hennar voru allt-
af góðar. Heimili þeirra hjóna stóð
ætíð opið fyrir vinum og ættingjum,
enda voru þau mjög gestrisin og góð
heim að sækja. Kidda var mikill
dýravinur og hafði sérstakt dálæti á
köttum og þeir einnig á henni.
Kidda var mjög glaðlynd og
skemmtileg kona og þrátt fyrir hin
miklu veikindi og þjáningar sem hún
gekk í gegnum var ávallt stutt í
brosið. Hún háði hetjulega baráttu
við erfiðan sjúkdóm, en hélt þó allt-
af í vonina um betri heilsu. í gegnum
öll þessi veikindi var hún dyggilega
studd af eiginmanni sínum og var
það henni ómetanlegur styrkur. En
að lokum vár hún kölluð á fund yfir-
boðara okkar, sem um síðir vitjar
allra.
Elsku Alli, Lilja, Bjössi, Freyr og
Anna. Sárastur er missirinn fyrir
ykkur og vona ég að góður Guð
styrki ykkur, og alla þá sem eiga
um sárt að binda í hinni miklu sorg.
Megi elsku Kidda hafa þökk fyrir
samfylgdina. Minningin um glað-
lyndi hennar og hjartahlýju mun búa
í huga mínum um ókomna framtíð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V.Br.)
Ellen Óskarsdóttir.
t
Hjartkær móöir okkar,
ÞÓRUNN PÁLÍNA BORGEY GUÐJÓNSDÓTTIR,
lést á Hrafnistu, Reykjavík, mánudaginn 10. febrúar.
Börn hinnar látnu.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
SIGRÍÐUR JÓNSDÓTTIR
frá Vorsabæ, A-Landeyjum,
Víkurbraut 14,
Grindavik,
sem lést í Landspítalanum 4. febrúar, verður jarðsungin frá
Grindavíkurkirkju miðvikudaginn 12. febrúar kl. 11 f.h.
Jarðsett verður í Voðmúlastaðarkirkjugarði kl. 15.30 sama dag.
Bjarni Sævar Sigurðsson, Sigríður Guðjónsdóttir,
Guðmundur Sigurðsson, Kristólína Þorláksdóttir,
Reynir Sigurðsson,
Þórunn J. Sigurðardóttir, Þorvaldur Óskarsson,
Guðbjörg J. Sigurðardóttir, Jón G. Björnsson,
Gunnar O. Sigurðsson, Stefania Bragadóttir,
Hermann M. Sigurðsson, Hrönn Kristinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Blömastofa
Friðfinns
Suðuriandsbraut 10
108 Reykjavfk. Sími 31099
Opið ötl kvöld
tii kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytíngar við öll tilefni.
Gjafavörur.
+
Astkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐMUNDA GUÐRÚN
SIGURÐARDÓTTIR
frá Litlalandi,
Vestmannaeyjum,
Njálsgötu 17,
verður jarðsungin frá Fíladelfíukirkjunni,
Hátúni 2, Reykjavík, miðvikudaginn 12.
febrúar kl. 13.30.
Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim, sem vildu minnast henn-
ar, er þent á innanlands kristniþoð, Fíladelfíukirkjunni, Hátúni 2,
Reykjavík, eða Safnaðarheimili Krossins, Auðbrekku 2, Kópavogi.
Ólafur B. Þorsteinsson,
Svanlaug M. Ólafsdóttir, Sigurður Ásgeirsson,
Sigurður Ólafsson,
Ingibjörg Ólafsdóttir,
Kristín D. Ólafsdóttir,
Ester Ólafsdóttir,
Anna Ólafsdóttir,
Unnur Ólafsdóttir,
Hanna Ólafsdóttir,
Kristín M. Þorvaldsdóttir,
Vilhjálmur Hendriksson,
Sigurður Guðjónsson,
Karl J. Steingrímsson,
Arnar H. Gestsson,
Sigurmundur Einarsson,
Matthias Ægisson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
HALLDÓR H. JÓNSSON,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni, fimmtudaginn 13. febrúar
kl. 15.00. Þeim sem vildu minnast hins látna, er vinsamlegast
bent á liknarfélög.
Margrét Garðarsdóttir,
Garðar Halldórsson Birna Geirsdóttir,
Jón Halldórsson, Ingigerður Jónsdóttir,
Halldór Þór Halldórsson, Margrét Pálsdóttir
og barnabörn.
+
Séra ÁRELÍUS NÍELSSON
andaðist í Borgarspítalanum föstudaginn 7. febrúar.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 14. febrú-
ar kl. 13.30.
Jarðsett verður í Eyrarbakkakirkjugarði laugardaginn 15. febrúar
kl. 14.00. Farið verður frá Fossvogskapellu kl. 13.00.
Þeim, sem vildu minnast hans, er vinsamlegast bent á Minningar-
sjóð Ingibjargar Þórðardóttur í Langholtskirkju.
Börnin.
+
Ástkær eiginkona mín,
HÓLMFRÍÐUR SIGÞÓRA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Strandgötu 6,
Ólafsfirði,
lést sunnudaginn 9. febrúar i Fjórðungssjúkrahúsi Akureyrar.
Jarðarförin auglýst síðar.
Fyrir hönd móður, barna,_tengdabarna og barnabarna,
Björn Þorvaldsson.
+
Hjartkær eiginkona mín,
HALLDÓRA
PÁLMARSDÓTTIR,
Lálandi 11,
Reykjavík,
lést laugardaginn 8. febrúar sl.
Ögmundur Guðmundsson.
+
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför eigin-
manns mins, föður, tengdaföður, afa og langafa,
JÓNS SIGURÐSSONAR
Kópavogsbraut 72.
Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks deildar A5 á Borgar-
spítalanum.
Helga Helgadóttir,
börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabarn.
+
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför fóstur-
móður minnar, ömmu og langömmu,
STEINUNNAR SIGURÐARDÓTTUR,
Bólstaðarhlíð 64,
og föður okkar, fósturbróður og afa,
JÓNS MÁS GESTSSONAR,
Hringbraut 119.
Guðlaug Gunnarsdóttir, Kolbrún Jónsdóttir,
Áslaug Jónsdóttir, Jón Már Jónsson
og barnabörn.
Okkar innilegustu þakkir fyrir þá
samúð, vináttu og hlýhug, sem okkur
var sýnd við andlát og útför eiginmanns
míns, föður, tengdaföður, afa og
bróður,
FRIÐRIKS LUNDDALS
BALDVINSSONAR,
Álftamýri 38,
Reykjavík.
Sérstaklega viljum við þakka starfsfólki hjarta- og gjörgæsludeild-
ar Landspítalans fyrir góða umönnun.
Margrét Sölvadóttir,
Marta Lunddal Friðriksdóttir, Gestur Halldórsson,
Ásta Lunddal Friðriksdóttir, Eðvarð Björgvinsson,
Gunnar Lunddal Friðriksson,
barnabörn,
Louise Waage Landry.