Morgunblaðið - 11.02.1992, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.02.1992, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 1992 Lækkun dagpeninga: 17% skerðing' hjá ráðherrum en 20% hjá öðrum RÁÐHERRAR taka á sig hlutfallslega minni skerðingu dagpen- inga en æðstu embættismenn og þingmenn skv. þeim nýju reglum um lækkun ferðakostnaðar sem samþykktar hafa verið. Sérstakt 20% álag sem ráðherrar hafa fengið ofan á fulla dagpeninga er fellt niður sem þýðir að greiðslur til þeirra lækka um 17% en dagpeningar annarra eru skornir niður um 20%. „Strangt til tekið er þetta rétt ef reiknað er í prósentum. Þarna stóð vaiið á milli þess að ráðherrar fengju 97% af fullum greiðslum eða láta hina fá 83% af fullum dagpeningum ef þetta hefði verið hnífjafnt," sagði Bolli Þór Bolla- son, skrifstofustjóri í fjármála- ráðuneytinu. Þess í stað var ákveð- ið að lækka dagpeninga embættis- manna og 'þingmanna í 80% af fullum greiðslum en taka 20% álagið af ráðherrum sem fá 100% dagpeninga eftir breytinguna, skv. upplýsingum Bolla. Jón Sigurðsson viðskiptaráð- herra hefur sent bankastjórnum ríkisbankanna bréf með tilmælum um að ferðakostnaður bankastjóra verði lækkaður í samræmi við breytingar sem ákveðnar hafa ver- ið á lækkun dagpeninga ráðherra og æðstu embættismanna eða um 20% en ákvörðun um það er í valdi bankaráðanna. Tilnefningar til Oskarsverðlauna erlendra mynda: Börn náttúrunnar til umræðu vestra — Gestir í Hallgrímskirkju við upphaf tón- leikanna í gærkvöldi. Á innfelldu inynd- inni sjást tæknimenn undirbúa útvarpsút- sendinguna. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Islensk tónlist til 20 Evrópulanda TÓNLEIKÚM í Haligrímskirkju í gærkvöldi var útvarpað beint T.il 20 landa um útvarpsstöðvar, sem aðild eiga að Evrópusam- bandi útvarpsstöðva. Tónleikarnir voru liður í Tónmenntadögum Ríkisútvarpsins, sem standa fram á næstu helgi. Til að útvarpa tónleikunum varð Ríkisútvarpið að leigja jarð- stöð frá BBC í Bretlandi og settu tæknimenn hana upp við Hall- grímskirkju í gær. Á fimmta hundrað listamanna tók þátt í tónleikunum, Sinfóníuhljómsveit- in, Mótettukór Hallgrímskirkju, Hamrahlíðarkórinn, Kór Lang- holtskirkju, Kór Öldutúnsskóla, Karlakór Reykjavíkur og karla- kórinn Fóstbræður, auk einsöngv- aranna Bergþórs Pálssonar, Sigurðar Bragasonar og Mörtu Halldórsdóttur. Á efnisskránni voru gömul og ný íslensk verk og var 1100 ára saga íslenskrar tón- listar rakin í tali og tónum. Stórkaupmenn afturkalla umboð Jóhanns J. Ólafssonar til setu í sljórn Lífeyrissjóðs verslunarmanna: Akvörðunin styðst ekki við heimildir -segir Jóhann J. Ólafsson o g ætlar að sækja fundi áfram STJÓRN Félags íslenskra stórkaupmanna hefur samþykkt að aftur- kalla umboð Jóhanns J. Ólafssonar til setu í stjórn Lífeyrissjóðs verslunarmanna þegar þrjár vikur eru eftir af kjörtímabili stjómar- innar. Einar Birnir, varamaður Jóhanns, mun taka sæti í stjórn sjóðs- ins fyrir hönd FÍS það sem eftir er af yfirstandandi kjörtímabili. Jóhann J. Ólafsson segir að ákvörðun FÍS styðjist hvorki við heimild- ir í reglugerð né almennar reglur félagaréttar og ætlar hann að sækja fundi sjóðsins áfram. Birgir R. Rafnsson, formaður FÍS, segir að mál sem verði til umræðu í sjóðnum geri það að verkum að Jó- hann sé vanhæfur til þess að sitja fundi hans. „NOKKRIR í hópnum, sem vel- ur tilnefndu myndirnar, hafa Svartfugl- inn sestur upp í Eyjum Vestmaiinaeyjum. SVARTFUGLINN er sestur upp í Eyjum. Óskar Sigurðs- son, vitavörður á Stórhöfða, sagðist hafa séð fyrstu fugl- ana sitja uppi síðastliðinn laugardag. Svartfuglinn sest venjulega upp fyrri hluta febrúarmánaðar. Fuglinn fer frá berginu í byijun ágúst og sest ekki upp aftur fyrr en í febrúar. Eyjamenn Ííta á uppsetu svartfuglsins sem óbrigðult merki þess að vetri sé farið að halla og styttast fari í að náttúran taki á sig svip vorverkanna. Grímur. Verkfræðistofur: Alltað „Þetta þýðir að á styttra tíma- bilinu er fækkunin 25 manns og 40 á lengra tímabilinu, að öllu óbreyttu," sagði Guðrún Zoega, framkvæmdastjóri Félags ráð- gjafaverkfræðinga. Könnunin náði til 350 verkfræðinga. Hún kvaðst hringt í mig og sagt að Börn náttúrunnar komi sterklega til álita,“ sagði Siguijón Sighvats- son, kvikmyndaframleiðandi hjá Propaganda-film í Los Ang- eles, þegar hann var inntur álits á því hvort líklegt væri að myndin yrði meðal 5 erlendra mynda er kepptu um Óskarinn í flokki erlendra mynda. Til- nefningarnar verða kunngerð- ar seinna í mántrðinum en Ósk- arsverðlaunaafhendingin fer fram 30. mars. Siguijón sagði að það væri myndinni í hag að nefndin væri þekktari fyrir að velja íhaldssamar myndir en umdeildar. Mætti í því sambandi nefna „Babettes Gæstebud" sem væri á rólegri nótunum. Þá sagði hann að marg- ir nefndarmenn væru komnir á efri ár og því væri ekki ólíklegt að myndin höfðaði fremur til þeirra en ella. Almennt sagði Sigurjón að myndin mæltist mjög vel fyrir. 4-500 manns velja myndir til tilnefningar. telja að taka mætti síðara tímabil- inu með nokkrum varhug. Verk- fræðistofur innan Félags ráðgjafa- verkfræðinga vinna að langmestu leyti fyrir opinbera aðila og sagði Guðrún að um það leyti árs sem könnunin var gerð hefði ekki verið Jóhann J. Ólafsson; sem er for- maður Verslunarráðs Islands, hefur setið í stjórn Lífeyrissjóðs verslun- armanna í 21 ár, þar af 15 ár sem aðalmaður og 6 ár sem formaður. Það var Birgir R. Jónsson, formað- ur FÍS, sem ritaði Jóhanni bréf 6. búið að samþykkja fjárlög og fjár- hagsáætlarnir sveitarfélaga. „Ég held að staðan sé að glæðast eitt- hvað um þessar mundir.“ Hún sagðist ekki vita til þess að nokkum tíma áður hefði viðlíka samdráttur verið í verkefnum fyr- ir verkfræðistofur. Yfirvinna hefur alveg verið skorin niður á allflestum verk- fræðistofum innan Félags ráð- gjafaverkfræðinga. Algengt var að yfirvinnuhlutfall væri 20-30% ofan á dagvinnutímann. febrúar sl. þar sem hann skýrði frá ákvörðun stjórnarinnar. Birgir er jafnframt formaður íslenskrar verslunar, sem FÍS, Kaupmanna- samtökin og Bílgreinasambandið stofnuðu eftir að slitnaði upp úr samstarfí þessara aðila og Verslun- arráðsins um rekstur Skrifstofu við- skiptalífsins. Jóhann kvaðst ekki geta áttað sig á því hvað lægi að baki ákvörð- uninni. Hún kæmi alveg fyrirvara- laust. Boðað hefði verið til fundar í FÍS með einnar klukkustundar fyrirvara þar sem ákvörðunin var tekin. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins lét Jón Sigurðarson, sem á sæti í stjórn FÍS, bóka mótmæli við þessari ákvörðun. Jóhann hefur ráðfært sig við lögfræðinga og formann sjóðsins, Guðmund Garð- arson, og sagði Jóhann að þeir væru á einu máli um að hér væri lögleysa á ferð. „Þetta er fyrirvaralaust, án skýr- inga, ólöglegt og marklaust. Eg, sem stjórnarmaður í Lífeyrissjóðn- um, og Lífeyrissjóðurinn sjálfur, getum ekki þolað það að hægt sé að kippa stjórnarmönnum út fyrir- varalaust að ástæðulausu. Það er opin Ieið til að beita þá þrýstingi í afstöðu þeirra til einstakra mála.“ Hann sagði að aðeins alvarleg brot réttlættu missi kjörgengis og hann hefði setið í aðalstjórn sjóðsins í 15 ár án þess að nokkur athuga- semd hefði verið gerð við sín störf. Jóhann hefur sent FÍS bréf þar sem hann lýsir því yfír að hann ætlist til þess að verða boðaður á fundi stjórnarinnar. Vanhæfur til að fjalla um ákveðið mál í sjóðssljórn Birgir Rafn Jónsson sagði að stjórn FÍS hefði óskað eftir því að kallað yrði á varamann Jóhanns J. Olafssonar, Einar Birni, þar sem til umræðu yrði í sjóðnum mál sem gerði það að verkum að Jóhann væri vanhæfur til að sitja fundi sjóðsins. Eðlilegra væri að vara- maðurinn sæti þá. „Við viljum tryggja það að okkar sjónarmið komi fram í þessari umræðu,“ sagði Birgir. Hann vildi ekki að öðru leyti tjá sig um málið. ------» ♦ ♦----- Eins dags verkfall FÍN EINS dags verkfall Félags ís- lenskra náttúrufræðinga hófst á miðnætti í nótt. Félagið fundaði með samninganefnd ríkisins án árangurs hjá ríkissáttasemjara í gær og hefur næsti fundur aðila verið boðaður á föstudaginn kemur. Félagar í FÍN starfa meðal ann- ars í Blóðbankanum, Hafrann- sóknastofnun og hjá Veðurstofu Islands, auk ýmissa annarra opin- berra rannsóknarstofnanna. Starf- semi á Veðurstofu Islands fellur niður. Þar verða ekki unnar veður- spár, en maður verður á öiyggis- vakt sem mun gefa út stormviðvar- anir ef ástæða er til. Neyðarvaktir verða einnig á öðrum stofnunum þar sem það er nauðsynlegt. 12%fækkun starfsfólks á næstunni ALLT AÐ 12% fækkun starfsmanna á verkfræðistofum er fyrir- sjáanleg á næstu mánuðum. Félag ráðgjafaverkfræðinga stóð fyr- ir könnun meðal verkfræðistofa innan vébanda félagsins í desem- ber og var spurt um samdrátt næstu þijá mánuði og næstu sex mánuði. í ljós kom að fyrstu þijá mánuði ársins er gert ráð fyrir rúmlega 7% samdrætti og 12% fyrstu sex mánuði ársins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.