Morgunblaðið - 11.02.1992, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 1992
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þér gengur ákaflega vel að
koma skoðunum þínum á fram-
færi í dag og átt líflegar við-
ræður við margt fólk. Blandaðu
þér ekki í Qármál vina þinna
núna.
Naut
(20. apríl - 20. maí) (fjft
I dag er tilvalið fyrir þig að
ræða vandamálin á vinnustað
þínum. Þú verður undrandi á
afbrýðisemi einhvers. Leitaðu
allra leiða til að komast áfram.
Tvíburar
(21. maf - 20. júní)
Þú tekur þátt í starfi sjálfs-
hjálparhóps þar sem markmiðið
hvers og eins er að bæta sig.
Þú kannt einnig að láta innrita
þig á námskeið á háskólastigi.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú ert sammála maka þínum
um ráðstöfun sparifjár ykkar.
Taktu þátt í umræðum sem
tengjast starfi þínu og farðu
varlega með peninga í kvöld.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú átt einlægar viðræður við
einhvern í fjolskyldunni. Þér
er óhætt að skrifa undir samn-
inga í dag. Þú verður fyrir von-
brigðum með ættinga sem
þrástagast á einhveiju frá lið-
1 inni tíð.
Mayja
(23. ágúst - 22. sentember)
Þú afkastar heilmiklu í vinn-
unni í dag. Gættu þess að taka
sanngjarnt tillit til tilfinninga
annarra, ekki síst þeirra sem
viðkvæmir eru.
Vog
(23. sept. - 22: október)
Barnið Jritt er móttækilcgt fyr-
ir því sem þú hefur að segja í
dag. Hugðarefni sem örvar þig
andlega höfðar til þín í dag.
Forðastu óskynsamlega pen-
ingaeyðslu í kvöld.
Sporddreki
(23. okt. - 21. nóvembor)
Þú sinnir andlegum viðfangs-
efnum í dag og fagnar árangri
af viðræðum við einhvem úr
fjölskyldunni.
Bogmaóur
(22. nóv. - 21. desembeij
Þú átt auðvelt með að tjá skoð-
anir þínar í dag. Gefðu hlust-
endum þínum nægilegt ráðrúm
til að skilja það scm þú hefur
að segja, en gerðu ekki ráð
fyrir að fá viðbrögð þegar í
stað.
Steingeit
j ■ (22. des. - 19. janúar) &
Nú er tiivalið fyrir þig að kaupa
og selja því að )>ú hefur |x>n-
ingavitið í lagi í dag. Gustmik-
ill vinur þinn er svolítið Jireyt-
andi^
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúaij
Þú ert með réttu hugmyndirn-
ar, ert hyggðu að því hvoit
þetta sé rétti tíminn til að koma
fram með þær. Gakktu fyrst
úr skugga um hvort fólk er í
skapi til að veita þeim viðtöku.
Fiskar
(19. febrúar - 20. inars) “LaL
Hvers kyns andleg iðja ætti að
vera ofarlega á lista hjá þér
núna. Byijaðu fyrst á undir-
búningnum og svaraðu penna-
vinum þínum.
Stj'órnuspána ú a<) lesa sem
dœgradvöl. Spár af pessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindalegra staóreynda.
DÝRAGLENS
GRETTIR
nrAMi/in/ii ietiviivii
1 UIVIIVI1 Uu JtNNI
LJÓSKA
SMÁFÓLK
''ALL Rl6t4T,"5AlPTHECAT,
ANPTHI5 TIME IT VANISWEP
QUITE SLOUJLY BE6INNIN6 WITH
.THE ENP OFTHETAIL...
„Allt í Iagi,“ sagði költurinn, og í
þetta skipti hvarf hann mjög hægt
... fyrst endinn á skottinu . ..
..AND ENPIN6 WITH THE 6RIN
' IT5THE M05T CURIOUS
THIN6 I EVEK 5AW,"
TH0U6HT- ALICE..
„Þetta er það undarlegasta sem ég
hef nokkurn tímann séð,“ liugs aði
Lísa.
BRIDS
Umsjón: Guðmundur Sv.
Hermannsson
Bridsíþróttin nýtur stöðugt
meiri vinsælda í löndunum sem
áður mynduðu Sovétríkin en ein-
hverra hluta vegna var bannað
að spila brids í Sovétríkjunum
þar til fyrir fáum árum. I vetur
var haldið meistaramót Sovét-
ríkjanna í tvímenningi og þeir
sem enduðu í öðru sæti, Ladyz-
henskíj og Bekesevítjs frá Úkra-
ínu, fundu góða vörn í þessu
spili:
A/NS
Norður
♦ -
♦ 1062
♦ ÁD873
♦ ÁKD93
Vestur
♦ 98
♦ ÁD987
♦ 92
♦ G872
Austur
♦ ÁKDG1073
VKG
♦ G
♦ 1064
Suður
♦ 6542
V 543
♦ K10654
♦ 5
Bekesevítsj opnaði á 1 spaða
í austur Ladyzhenskíj svaraði á
1 grandi. Norður stökk þá í 3
lauf sem sýndi láglitina, austur
sagði 4 spaða og suður 5 tígla
sem voru passaðir út.
Margir hefðu sjálfagt spilað
út lit félaga síns, spaða, en þá
er spilið auðunnið. En Ladyz-
henskíj fann besta útspilið,
hjartaas. Björninn var samt ekki
unniiin því ef austur fylgir með
gosanum er liturinn stíflaður og
vörnin fær aðeins tvo hjarta-
slagi. Bekesevítjs sá þetta og
henti því hjartakónginum undir
ásinn og vestur gat þá tekið
drottninguna og spilað þriðja
hjartanu sem austur trompaði.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á Skákþingi Reykjvíkur 1992,
sem lauk í síðustu viku, kom þessi
staða upp í viðureign þeirra Gunn-
ars Arnar Haraldssonar (1.7Ó0),
sem hafði hvítt og átti leik, og
Sigurðar Ingasonar (1.730).
37. Hxb5! - axb5 38. axb5 (hvítu
frípeðin verða nú ekki stöðvuð.
giskupinn á d4 stendur frábær-
lega vel) 38. - a4 49: b6 - a3
40. b7 og. svartur gafst upp.
Unglingameistari Reykjavíkur
1992 varð Helgi Áss Grétarsson
sem vann allar sínar skákir sjö
að tölu. Helgi gat ekki verið með
á Skákþinginu sjálfur því hann
sat að tafli í Noregi þegar það
hófst.
Hraðskákmeistari Reykjavíkur
varð Haukur Angantýsson með
15 v. af 18 mögulegum.
Keppni i B-flokki í skákkeppni
stofnana- og fyrirtækja hefst í
félagsheimili T.R. miðvikudags-
kvöldið 12. febrúar kl. 20. Nýjar
sveitir byija í B-flokki. Teflt er í
fjögurra manna sveitum, þijár
umferðir á kvöldi, þijú miðviku-
dagskvöld í röð.