Morgunblaðið - 11.02.1992, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRUAR 1992
Neyðarástandi lýst yfir í Alsír;
Valdhafar búast
til að banna FIS
Fjörutíu manns fallnir og 300 særð-
ir í átökum frá því á föstudag
Algeirsborg. Iieuter.
VALDHAFARNIR í Alsír lýstu yfir neyðarástandi í eitt ár á sunnu-
dagskvöld og bjuggu sig undir að banna Islömsku hjálpræðisfylk-
inguna (FIS), flokk heittrúaðra múslima, eftir að 40 manns hið
minnsta höfðu beðið bana í átökum öryggissveita og múslima frá
því á föstudagskvöld.
Um 300 manns særðust í átök-
unum og hundruð manna voru hand-
tekin. „Alsír er núna á barmi borga-
rastyrjaldar. Alsírskt blóð streymdi
á götunum," sagði fréttamaður als-
írska sjónvarpsins. Götur Algeirs-
borgar tæmdust því sem næst algjör-
lega eftir að tilkynnt hafði verið í
útvarpi og sjónvarpi að lýst hefði
verið yfir neyðarástandi.
Valdhafarnir veittu innanríkisráð-
herra landsins, Larbi Belkheir, aukin
völd til að binda enda á óeirðirnar.
Ráðherrann getur látið handtaka
menn sem hvetja til andófs, fyrir-
skipað húsleit á nóttu sem degi,
bannað verkföll og útifundi og lokað
samkomustöðum. Hann getur einnig
sent andófsmenn fyrir herrétt, bann-
að fólki að fara á ákveðna staði eða
ferðast á ákveðnum tímum og leyst
upp sveitarstjórnir.
I yfirlýsingu frá innanríkisráðu-
neytinu sagði að það væri að und-
irbúa bann við íslömsku hjálpræð-
isfylkingunni, sem berst fyrir stofn-
un íslamsks ríkis, „vegna ítrekaðra
lögbrota". Talið er að slíkt bann
geti haft alvarlegar afleiðingar.
„Þetta fólk verður enn róttækara.
Það neyðist til hefja leynilega starf-
semi, gerast hryðjuverkamenn,"
sagði vestrænn stjórnarerindreki í
Algeirsborg.
Sænskir jafnaðarmenn:
Gjaldþrot blaðaút-
gáfu veldur hneyksli
Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgunblaðsins.
BLAÐAFYRIRTÆKI sænskra jafnaðarmanna, A-pressen, var úr-
skurðað gjaldþrota í gær og er þetta orðið eitt mesta hneykslismál
í sögu sænskrar blaðaútgáfu.
Tveir menn í stjóm Jafnaðar-
mannaflokksins hafa boðist til að
segja af sér vegna málsins, þeir
Bo Toresson ritari og Björn Wall
gjaldkeri. Framkvæmdastjóra A-
pressen, Torbjörn Báth, var vikið
frá á föstudag.
Ingvar Carlsson, leiðtogi flokks-
ins, segir að skuldir fyrirtækisins
nemi rúmum 100 milljónum sæn-
skra króna, rúmum milljarði ÍSK.
A-pressen keypti dagblaðið Arbet-
et, sem er gefið út í Malmö og
Gautaborg, árið 1985 og fyrrver-
andi ritstjóri þess, Lars Engqvist,
segir að stjóm fyrirtækisins eigi
ein sökina á gjaldþrotinu. Hún
hafí fært 60 milljónir sænskra
króna, um 600 milljónir ÍSK, frá
Arbetet til annarra blaða fyrirtæk-
isins, Dagbladet og Nya Norrland.
Arbetet hyggst krefja Jafnaðar-
mannaflokkinn skaðabóta vegna
þessa máls. Blaðið verður að öllunr
líkindum gefið út þessa viku en
óvíst er um framhaldið. Ingvar
Carlsson telur að svo kunni að
fara að leggja verði Arbetet niður
og hann skellir skuldinni á stjóm
A-pressen, sem hann segir hafa
látið hjá líða að skýra flokksforyst-
unni frá alvarlegri stöðu fyrirtæk-
isins. Stjórnendur og starfsmenn
blaða fyrirtækisins hafa hins veg-
ar sakað flokksforystuna um
ósannsögli, því hún hafí fengið
upplýsingar um fjárhagsvanda
fyrirtækisins en virt þær að vett-
ugi- *
Polfoto
Eins og sjá má eru skemmdir á efri hæðum Próvíantgarðsins miklar. Ennfremur varð mikið vatns-
tjón á neðri hæðunum.
Bruni í Kaupmannahöfn:
Sögufrægt hús stórskemmdist
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jergen Bru-
un, fréttaritara Morgunblaðsins.
EITT af sögufrægari húsum
Kaupmannahafnar, Próvíant-
garðurinn, stórskemmdist í
bruna á sunnudag. Um tíma leit
út fyrir að eldurinn læsti sig í
nálægar byggingar eins og
Kristjánsborgarhöll og Konung-
legu bókhlöðuna en slökkviliði
borgarinnar tókst að slökkva
eldinn áður en það varð. Arna-
safn var til húsa í Próvíantgarð-
inum frá 1957 þangað til það var
flutt út á Amager á áttunda ára-
tugnum.
Tjónið á Próvíantgarðinum er
metið á 500 milljónir danskar
(tæpa fímm milljarða ÍSK). Ekki
varð tjón á mönnum. Verið var að
gera húsið upp og var því verki
næstum lokið. Húsið er tengt
Kri§tjánsborg, þinghúsi Dana, og
átti.að nota það undir skrifstofur
þingflokka og umhverfismála-
ráðuneytið. Talið er að brunann
Ljósm/Kristján Pétur Guðnason
Próvíantgarðurinn (t.h.) eins og hann leit út fyrir brunann.
megi rekja til gáléysis byggingar-
verkamanna.
Það var Kristján IV sem lét reisa
Próvíantgarðinn árið 1602. Þar
voru vistageymslur flotans. í þá
daga stóð húsið við sjó en síðan
hefur verið fyllt upp í Orlogshöfn
og þar er nú Rósagarðurinn við
Konunglegu bókhlöðuna.
Evrópska efnahagssvæðið:
Evrópiibandalagið kynnir
tillögur til málamiðlunar
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
SAMNINGAMENN Evrópubandalagsins (EB) gerðu fyrir síðustu helgi
fulltrúum Fríverslunarbandalags Evrópu (EFTA) grein fyrir hugmynd-
um sínum um lausn á ágreiningnum um fyrirkomulag dómstóla í samn-
ingnum um Evrópskt efnahagssvæði (EES). Samkvæmt heimildum í
Brussel koma tillögur EB að mörgu leytj til móts við hugmyndir sem
EFTA kynnti í lok janúar um sama efni. I gær var haldinn óformlegur
samningafundur EFTA og EB til að fjaila um mögulega málamiðlun.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er framkvæmdastjórn EB
tilbúin til að falla frá kröfum sínum
um að dómar Evrópudómstólsins
hafi í framtíðinni fordæmisgildi inn-
an EES. í samningsdrögunum er
gert ráð fyrir að dómar sem felldir
hafa verið fyrir gildistöku samnings-
ins hafi fordæmisgildi innan Evr-
ópska efnahagssvæðisins en hug-
myndir EB gera nú ráð fyrir að það
verði í verkahring sameiginlegrar
stjórnarnefndar EES að ákveða
hvaða dómsúrskurðir Evrópudóm-
stólsins, sem felldir verða eftir gildi-
stöku samningsins, hafi fordæmis-
gildi. Náist ekki samkomulag geti
EB gripið til gagnaðgerða s.s. frestað
viðeigandi köflum samningsins. EB
mun samkvæmt hugmyndunum til-
búið til að falla frá kröfunni um fullt
réttarsamræmi innan EES.
Þá gera tillögur EB ráð fyrir að
ekki verði fjallað sérstaklega um
samkeppnismál í EES-samningnum,
hvað þau varðar yrði óbreytt ástand
frá því sem nú er í samskiptum band-
alaganna. Ágreiningi vegna EB-
reglna yrði samkvæmt hugmyndum
EB skotið til sameiginlegrar stjórnar-
nefndar EES. Hún getur síðan vísað
málinu til umsagnar Evrópudóm-
Yfirmaður Stasi ákærður fyrir morð:
Ákærði borimi í réttarsal
Berlín. Reuter.
RÉTTARHÖLD hófust í gær yfir Erick Mielke, fyrrum yfirmanni a-
þýsku öryggislögreglunnar Stasi. Mielke, sem er 84 ára gamall, er svo
hrumur að bera varð hann inn í réttarsalinn I Berlín.
Mielke er ákærður fyrir að hafa
árið 1931 myrt tvo lögreglumenn
fyrir framan höfuðstöðvar þýska
kommúnistaflokksins. Ennfremur er
honum gefið að sök að hafa framið
mannréttindabrot og kosningafals á
meðan hann var yfirmaður Stasi.
Veijendur Mielkes segja að morð-
ákæran byggist á afbroti sem sé
fyrnt og sönnunargögnin megi rekja
til framburðar manna sem Gestapo,
leynilögregla Hitlers, pyntaði. Saka-
dómur í Berlín úrskurðaði á síðasta
ári að ákvæði um fyrningu sakar
ættu ekki við því Mielke hefði falið
málsskjöl um morðin eftir að Austur-
Þýskaland var stofnað.
Mielke var borinn inn í réttarsalinn
í skotheldu búri. Þegar hann var
spurður um fæðingardag sagðist
hann ekki muna hver hann væri.
Neitaði hann að svara öðrum spurn-
ingum. Sagðist hann vera veikur og
að hann vildi fara heim.
Erich Mielke í réttarsalnum í gær.
Reuter
stólsins en slíkt yrði að vera sam-
hljóða. Úrskurðir Evrópudómstólsins
væru ekki bindandi fyrir EFTA þann-
ig að gert er ráð fyrir að stjórnar-
nefndin geti samið um einhver frávik
frá úrskurðum Evrópudómstólsins.
í hugmyndum EB er lagt til að
stjórnarnefnd EES geti samhljóða
skotið málum til sérstaks gerðar-
dóms ef EFTA grípur til öryggis-
ákvæða í samningnum. Kröfum
EFTA um gerðardóm vegna gagnað-
gerða EB komi til frestunar á ein-
stökum þáttum saraningsins er hafn-
að. Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins eru uppi raddir innan fram-
kvæmdastjórnar EB um að banda-
lagið geti gripið til gagnaðgerða s.s.
refsitolla sé talið að styrkir spilli
samkeppnisstöðu EB-fyrirtækja.
Gert er ráð fyrir að samningavið-
ræðum verði haldið áfram í dag,
þriðjudag, en auk viðræðna um fyrir-
komulag dómstóla er þess freistað
að leysa önnur útistandandi ágrein-
ingsmál. Á miðvikudag kemur sú
deild innan ráðherrarráðsins sem
fjallar um samskipti við EFTA saman
til að undirbúa fund fastafulltrúa
aðildarríkjanna sem verður í Brussel
á fimmtudag. Sameiginlegur fundur
yfirsamninganefnda bandalaganna
verður á föstudag og óstaðfestar
heimildir hér í Brussel herma að
stefnt sé að því að samningamennirn-
ir setji upphafsstafi sína undir sam-
komulagið um EES síðdegis þann
dag.