Morgunblaðið - 11.02.1992, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 1992
29
Jóhannes Magnússon útgerðarmaður í Grímsey bíður eftir að veðrið Morgunblaðið/Hólmfríður
Krókaleyfisbátarnir hafa ekkert getað róið;
Útgerðarfélag Akureyringa:
Um 880 tonn til
vinnslu í janúar
TREG veiði var allan síðasta mánuð, en ísfisktogarar ÚA komu
þó með heidur meiri afla að landi í janúar miðað við sama mánuA
á síðasta ári.
ísfisktogararnir fímm komu
með 774 tonn af afla að landi til
vinnslunnar í janúar síðastliðnum,
en í janúar I fyrra veiddu þeir 732
tonn. Togararnir fóru fyrr af stað
til veiða eftir áramótin og lönduðu
þeir níu sinnum í síðasta mánuði,
en í janúar áuið 1991 lönduðu þeir
sjö sinnum. Að viðbættum þessum
774 tonnum sem togararnir fengu
í síðasta mánuði fékk frystihúsið
einnig til vinnslu um 105 tonn úr
togaranum Þór frá Dalvík, sem
landaði tvisvar hjá Útgerðarfélagi
Akureyrinjga.
Einar Oskarsson hjá ÚA sagði
að aflabrögð virtust lítið vera að
glæðast, en þó hefði Kaldbakur
EA landað um 120 tonnum í gær-
morgun, sem þætti bara þokkalegt
um þessar mundir. í síðustu viku
lönduðu tveir togarar afla hjá ÚA,
samtals 208 tonnum.
Meira en 10 ákeyrslv
ur á tveimur tímum
Menn bíða eftir veðri
en kvíða ekki fiskleysi
- segir Jóhannes Magnússon
Grímsey.
ENN HAFA krókaleyfisbátarn-
ir hér í Grímsey ekkert getað
róið, en tíð hefur verið fremur
Markaðsstjóri
Foldu:
Valtýr
Valtýsson
ráðinn
VALTÝR Valtýsson hefur verið
ráðinn markaðsstjóri hjá Foldu
hf. og tekur hann við starfinu
1. mars næstkomandi.
Valtýr er 31 árs gamall Reykvík-
ingur. Hann lauk prófi í íslensku
og uppeldisfræði frá Háskóla ís-
lands og stundað síðan framhalds-
nám í Danmörku. Hann er sér-
menntaður í útflutningsverslun og
hefur lokið prófi frá The Danish
School of International Marketing
and Export. Valtýr hefur
undanfarin ár búið í Danmörku þar
sem hann hefur starfað hjá stóru
markaðsfyrirtæki.
Krossanesverksmiðjan hefur
fengið 3.150 tonn af loðnu það
sem af er þessu ári.
Fjögur skip hafa landað loðnu
hjá Krossanesi á árinu. í síðustu
viku kom Sigurður RE með full-
fermi og þá kom Súlan til lands á
fimmtudag, en í lok janúar lönduðu
Þórður Jónasson EA og Guðmund-
leiðinleg það sem af er þessum
mánuði. Krókaleyfisbátarnir,
sem eru trillur undir sex tonn-
um að stærð, hafa ekki mátt
vera að veiðum síðustu tvo
mánuði, en svo þegar fara mátti
af stað 1. febrúar hefur ekki
viðrað til veiðanna.
Jóhannes Magnússon útgerðar-
maður á tvo báta, Guðrúnu EA,
sem er tæp fjögur tonn og hefur
70 tonna kvóta, og Sigfús Baldvin
EA, sem er þriggja tonna trilla
með krókaleyfi. Jóhannes keypti
Sigfús Baldvin síðasta haust til að
fylla upp í dauða tíma, en hann
er ekki nema um það bil tvo mánuði
að fiska þann kvóta sem hann
hefur á Guðrúnu. „Þetta er alltof
lítill kvóti, þetta gerir ekki nema
rétt að halda í horfinu með útgerð-
ina,“ sagði Jóhannes.
„Það er ekkert veður, mér líst
ekkert á þessa veðráttu, menn bíða
bara eftir að komast á sjóinn. En
ég er viss um að það mun fiskast
vel þegar við komumst á sjó, ég
kvíði ekki fiskleysi," sagði Jóhann-
es.
Hann hefur í hyggju að róa á
krókaleyfisbátnum í febrúar og
mars og ætlar að vera á færum.
Jóhannes verður einn á trillunni.
Um mánaðamótin mars/apríl ætlar
ur Ólafur ÓF loðnu hjá Krossanesi.
Jóhann Pétur Anderssen fram-
kvæmdastjóri sagði að brætt hefði
verið í síðustu viku og um helgina,
en hráefnið væri að verða búið.
Ekki var í gærdag vitað með vissu
um næstu landanir, en þess vænst
að fleiri skip kæmu innan skamms
með loðnu.
hann svo að skipta yfir og róa á
Guðrúnu EA og vera þá á netum.
Sonur hans hefur yfirleitt róið með
honum, en ekki er víst að svo verði
nú, en Jóhannes verður ekki í vand-
ræðum með að fá mann í hans
stað, því þegar hafa margir spurst
fyrir um plássið, enda er Jóhannes
einkar fiskinn.
Sjómenn byrjuðu að róa um
miðjan janúar og gekk vel, hægt
var að róa flesta daga og ágætlega
fiskaðist. Það sem af er febrúar-
mánuði hefur tíð verið leiðinleg og
hafa því krókaleyfisbátarnir ekkert
getað farið á sjó, en þeir hafa ver-
ið í stoppi frá því 1. desember síð-
astliðinn og máttu fara til veiða
1. febrúar. Margir eru því óþreyju-
fullir að veiðar geti hafist.
TRÉVER hf. í Ólafsfirði er með
tíu íbúðir í byggingu um þessar
mundir, tvær þeirra eru í par-
húsi seni skila á um næstu mánað-
amót og er unnið við þær af full-
um krafti. Hinum átta á að skila
síðar en ekki er verið að vinna
við þær sem stendur, þar sem
menn leggja ekki í að steypa upp
á miðjum vetri.
Vigfús Skíðdal Gunnlaugsson
rekur Tréver, en þetta fyrirtæki
hans er orðið 32 ára gamalt og eru
starfsmenn þess nú 16, en þegar
mest er að sumrinu eru starfsmenn-
irnir á bilinu 25 til 30 talsins. „Við
erum í öllu sem viðkemur bygginga-
iðnaði, tökum að okkur stærri verk-
efni eins og húsbyggingar, rekum
trésmíðaverkstæði og smíðum þar
innréttingar og fleira, þá eigum við
YFIR TÍU árekstrar urðu á Ak-
ureyri á um það bil tveimur tím-
um, frá hádegi og fram til kl. 14.
Varðstjóri lögreglunnar á Akur-
eyri sagði að hrinan hefði hafist
laust fyrir hádegi og allt fram til
kl. 14 hefðu menn stöðugt verið að
tilkynna um árekstra. Vegna anna
gat lögreglan ekki sinnt öllum út-
köllum vegna þessara árekstra, en
leiðbeindi fólki við að fylla sjálft
vinnuvélar þær sem til þarf og loks
má nefna að við keyptum steypu-
stöðina sem Krafttak reisti hér
vegna Múlaganganna," sagði Vig-
fús, sem reyndar er ævinlega kall-
aður Skíði á meðal heimamanna.
Undanfarin ár hefur mikið verið
um að vera í byggingaiðnaði í Ólafs-
firði, að sögn Vigfúsar, mikið liefði
út eyðublöð vegna tjóns.
Ákeyrslurnar urðu víða um bæ-
inn, hálka var ekki svo mikil, að
sögn varðstjóra, en víða hálkublett-
ir sem fólk virtist ekki átta sig á.
Þá sagði hann einnig að autt hefði
verið um langan tíma og naglar
hefðu í einhveijum tilfellum gengið
inn í hjólbarðana auk þess sem.
þeir væru loðnir af tjöru og gripío
því lítið.
verið byggt síðastliðin ár, m.a. af
íbúðarhúsnæði, þá væru einnig
töluverð verkefni í kringum viðhald
á skipum. „Við. unnum mikið fyrir
Krafttak á meðan verið var að
gera göngin, þannig að miðað við
þann tíma eru verkefnin nokkru
færri. Göngin hefðu þurft að vera
helmingi lengri.“
STÍGAMðT - AKDREYRI
(Samtök kvenna gegn kynferðislegn nfbeldi)
Símatími alla fimmtudaga milli kl. 21-23
í síma 96-27611.
Rúm 3.000 tonn af
loðnu í Krossanes
Morgunblaðið/Riínar Þór
__________________ Vigfús S. Gunnlaugsson, Skíði, á verkstæði Trévers í Ólafsfirði.
Göngin hefðu þurft að
vera helmingi lengri
- segir Vigfús S. Gunnlaugsson, verktaki í Ólafsfirði