Morgunblaðið - 11.02.1992, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 11.02.1992, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRUAR 1992 23 Formenn læknaráða Borgarspítala og Landakots um sameiningu: Einföldun á dýrum þátt- um í rekstri sjúkrahúsanna Bráðaþjónusta á Borgarspítalann en öldrunar- og hjúkrunarþjónusta á Landakot IÞEIM hug'myndum sem eru til umræðu um hugsanlega verkefna- skiptingu milli Borgarspítalans og Landakots ef af sameiningu þeirra verður er gert ráð fyrir að bráðaþjónustan sé á Borgar- spítalanum en öldrunar-og hjúkrunarþjónustan á Landakoti. For- ráðamenn beggja þessara stofnana sjá margvíslegt hagi'æði og hagkvænmi af sameiningu og munu á næstunni eiga viðræður við heilbrigðisráðherra og fjármálaráðherra um mál þetta. Fyrsti formlegi fundurinn gæti jafnvel orðið í dag, þriðjudag. Einnig er beðið ákvarðana heilbrigðisráðuneytisins um skiptingu á 500 milljón króna varasjóðnum sem nota á til að mæta niðurskurði á fjárveitingum til sjúkrastofnana. Sigurður Björnsson fulltrúi fatlaðra. ar,“ sagði hún. „Handahófskenndar aðgerðir eru einkennandi. Niður- skurður á sjúkrahúsum, aðför að Landakoti er dæmi um þau vinnu- brögð sem eru viðhöfð. Skerðing grunnlífeyris, hækkun lyfjakostn- aðar, lækkun barnabóta. Aukin kostnaðarhlutdeild sjúkra, fatlaðra og aldraðra í heilbrigðiskerfínu er staðreynd, þjónustugjöld. Aukinn þungi og aukakostnaður hjá fjöl- skyldum fatlaðra barna er stað- reynd,“ sagði Selma Dóra Þorsteins- dóttir meðal annars. Tryggvi Friðjónsson las upp álykt- un fundarms. í henni segir meðal annars: „Útifundur Almannaheilla krefst þess að stjórnvöld láti af árás- um á velferðarkerfið og lífskjör þeirra fjölmörgu sem eiga allt sitt undir því. Útifundur skorar því á ríkisstjórn og Alþingi að snúa nú þegar við blaðinu og draga til baka allar ráðstafanir sem leiða til skertr- ar heilbrigðisþjónustu, gloppóttara skóla- og menntakerfis, og lakari afkomu þeirra sem höllustum fæti standa.“ m. i við ferðaskrifstofur: laskrif- irlanda ganga frá því en Flugleiðir ráðast á leiguflugið sem þær ætla sjálfar að fljúga, og bjóða hagstæðari kjör hjá erlendri ferðaskrifstofu," sagði Helgi Jóhannsson, formaður Félags ferða- skrifstofa. „Flugleiðir segjast vera að æfa sig fyrir Evrópubandalagið. Eigum við þá að draga þá ályktun að við þurfum að æfa okkur líka og fara með skipu- lagt leiguflug inn á áætlunarstaði þeirra? Eg hef hvatt til þess að aðilar í ferðaþjónustu hér mæti samkeppni frá EB með því að vinna saman og Flugleiðir hafa tekið undir þessa stefnu. En nú er greinilega komið annað hljóð í strokkinn þar,“ sagði Helgi. Hann sagði að ferðaskrifstofurnar hefðu flestar boðað stjórnarfundi í þessari viku þar sem væntanlega yrði rætt hvernig bregðast skuli við. Ólafur Örn Arnarsson yfirlækn- ir á Landakotsspítala segir að það sé engin spurning að faglega muni þessar tvær sjúkrastofnanir bæta hvor aðra upp. „Faglegu rökin fyrir sameiningu eru nokkuð ljós og úr dæminu kæmi sterk og öflug sjúkrastofnun," segir Ólaf- ur. „Rekstrarhagkvæmnin byggist á því að skipta á starfsemi milli þessara stofnana þannig að ýmis starfsemi á Landakoti yrði flutt í B-álmu Borgarsjúkrahússins en starfsemi þaðan flutt hingað á Landakot. Þá er ég að tala um flytja hjúkrunar-og öldrunarþjón- ustuna á Landakot en bráðaþjón- ustuna á Borgarspítalann." Jóhannes M. Gunnarsson for- maður Læknaráðs Borgarspítál- ans segir að þegar rætt sé um að spítalarnir bæti hvom annan upp megi taka sem dæmi að engin barnadeild er til staðar á Borgar- spítalanum eins og á Landakoti. „Það hefur ekki verið vansalaust að Borgarspítalinn hefur ekki barnadeild því alltaf er eitthvað um að börn séu lögð inn af slysa- deild og öðrum deildum spítalans,“ segir Jóhannes. Ólafur Örn segir að með sam- einingu sé hægt að sameina dýrar deildir, svo sem skurðstofur, röntgendeildir, rannsóknarstofur og gjörgæslu og hafa á einum stað og ná með því töluverðri hag- kvæmni í rekstri. „Hvað varðar B-álmu Borgarspítalans má nefna að þar eru nú þrjár hæðir óinnrétt- aðar og þar yrði hægt að koma fyrir hluta af þessari dýru _ eða viðamiklu starfsemi," segir Ólaf- ur. „B-álman er að verulegu leyti byggð fyrir fé úr Framkvæmda- sjóði aldraðra og það áskilið að þar væri öldrunarþjónusta. Þetta hefur að mörgu leyti stöðvað þró- un Borgarspítalans en með sam- einingu myndi það vandamál leys- ast með fyrrgreindri verkaskipt- ingu.“ Jóhannes M. Gunnarsson tekur undir orð Ólafs um einföldun á dýrum þáttum í rekstri þessara spítala og að sennilegasta niður- staðan í verkaskiptingu væri að flytja þá starfsemi sem hvað mest viðbúnaðar krefst á Borgarspítal- ann. „Síðasta haust var búið að gera grófa áætlun um verkaskipt- ingu og hún var mjög á þessum nótum, það er að bráðaþjónustan Sem kunnugt er af fréttum strönduðu viðræður um sameiningu þessara tveggja spítala í lok síðasta árs á andstöðu St. Jósefssystra sem hafa samning við ríkið til ársloka flytti á Borgarspítalann en hjúkr- unarþjónustan á Landakot," segir Jóhannes. „En það yrði svo nýrrar stjórnar að taka endanlegar ákvarðanir í málinu og það er ljóst að samruninn tekur nokkur ár í framkvæmd.“ Formenn starfsmannaráða Borgarspítala og Landakots hafa Árni Sigfússon, stjórnar- formaður Sjúkrastofnana Reykja- víkur, sagði við Morgunblaðið, að á fjárlögum væru tæpar 500 millj- ónir króna á sérlið, ætlaðar til að mýkja flatan niðurskurð á rekstr- arfé í heilbrigðisþjónustunni. Þá væru 195 milljónir króna á sérlið fyrir stofnkostnað sjúkrahúsa í Reykjavík. Sagði Árni að heil- brigðisráðherra hefði sent borgar- stjóra bréf þar sem fram komi að meginhluti þessarar upphæðar sé ætlaður til sameinaðs sjúkrahúss ef af sameiningunni yrði. Á móti hafi borgarstjóri lýst því yfir að borgin væri tilbúin að greiða sinn hlut í stofnkostnaði, 35 milljónir, þegar af sameiningu verði. Loks væru tæpar 100 milljónir króna á sérstökum lið sem tengdist verka- skiptingu og sameiningu í Reykja- vík. Þarna hefði ráðherra því rúm- ar 800 milljónir til ráðstöfunar. Árni sagði síðan að Borgar- spítalinn hefði sett fram tillögur sem ættu að spara 200 milljónir króna í rekstri spítalans. Landa- koti væri ætlað að skera niður 480 milljónir króna en þar af væru 60 milljónir hluti spítalans í flötum niðurskurði á rekstrarfé ríkis- 1996 um rekstur spítalans í núver- andi mynd. Fram hefur komið að þær telja áformaðan niðurskurð á rekstrarfé Landakots nú brot á þeim samningi. átt óformlegar viðræður sín á milli um hugsanlega sameiningu og mál henni tengdri. Jón Högna- son formaður starfsmannaráðs Landakots segir að það sé sjálf- sagt að kanna sameiningu en hins- vegar sé erfitt að taka ákveðna afstöðu til málsins þar sem svo margir þættir þess eru enn óljósir. Sigrún Knútsdóttir, formaður starfsmannaráðs Borgarspítalans, segir hið sama og að margar spurningar séu á lofti hjá starfs- mönnum um útfærsluna á samein- ingunni. „Ef hin sameinaða stofn- un verður hlutafélag eins og rætt hefur verið um verðum við þá áfrarn opinberir starfsmenn eða ekki,“ segir Sigrún.„Og hvað verð- ur með réttindi okkar eins og æviráðningu, lífeyrissjóðsréttindi stofnunar. Ef horft væri framhjá 420 milljóna mismuninum þýddi þetta 260 milljóna króna sparnað i rekstri. Og ef spítalarnir næðu að spara sameiginlega 100 millj- ónir til viðbótar væri þar kominn 360 milljóna króna sparnaður. „Þá vantar enn rúmar 300 millj- ónir króna til að við fáum sömu upphæð og í fyrra. Því er það mjög einföld spurning hvort það fé verði útvegað og þar horfa Björn Önundarson trygginga- yfirlæknir segir að sitt álit á málinu í heild sé að ekki megi hrófla við þeim samningi sem St. Jósefssystur gerðu við ríkið árið 1976 og gilda á til loka ársins 1996. „Það er einn- ig mitt álit að þessi sameining hafi ekki í för með sér sparnað heldur aukinn kostnað,“ segir Björn. I yfirlýsingu þeirri sem Björn las upp á fundinum kom fram gagn- rýni á þær aðgerðir sem gripið hefur verið til á Landakoti, það er og fleira.“ Jón Högnason segir að þessi mál hafi ekki enn komið til um- ræðu innan starfsmannaráðsins á Landakoti enda við önnur vanda- mál að glíma þar nú sem er hinn mikli niðurskurður á rekstrarfé til spítalans. Og Sigrún bendir á að fyrir jól- in er þessi sameining var síðast á döfinni hafi starfsmenn Borgar- spítalans verið jákvæðir gagnvart hugmyndum um sameiningu en þau viðhorf gætu hafa breyst með áformum um sparnað og niður- skurð. „Menn verða að átta sig á því að sameining þessara tveggja spítala kostar fé og að hagnaður- inn af sameiningunni sér ekki dagsins ljós fyrr en á næsta ári eða þarnæsta,“ segir Sigrún. menn til þessa sameiginlega sjóðs ráðherra. Þetta verðum við að ræða, væntanlega á miðvikudag,“ sagði Árni. Hann sagði að flest benti til þess að sameining spítalanna gæti formlega orðið á miðju þessu ári en mikilvægt væri að menn byijuðu strax að vinna skipulega að henni. Til dæmis þyrfti að tryggja mál starfsmanna. Árni sagði þó, að geysimikil hreyfing væri á starfsmönnum í sjúkraþjón- ustu, allt að 25% á ári á ákveðnum deildum. Ef þetta gengi eftir á nýju sjúkrahúsi þyrfti væntanlega að auglýsa eftir starfsfólki þótt hagræðing til lengri tíma hlyti að gera ráð fyrir að stöðugildum fækki. uppsögn alls starfsfólks spítalans. Þar kemur ennfremur fram að þær viðræður sem átt hafi sér stað nú um nokkurt skeið hafi algjörlega verið án vitundar og vilja Bjöms. Af þessum sökum telji hann sig knúinn til að segja sig úr stjórninni. „Það er rétt að fram komi að ég styð allan eðlilegan sparnað sem ríkisstjórnin stendur að í heil- brigðiskerfinu,“ segir Björn. „Því ég tel að víða megi spara á þessu sviði.“ Málið allt mjög óljóst - segir systir Emmanuelle SYSTIR Emmanuelle, talsmaður St. Jósefssystra, segir að hún vilji ekkert tjá sig um liugsanlega sameiningu Landakots og Borgarspít- ala að svo stöddu. „Þetta mál er allt svo óljóst í augnablikinu að við viljum ekki ræða um það í fjölmiðlum," segir systir Emmanuelle. Árni Sigfússon, sljórnarformaður Sjúkrastofnana Reykjavíkur: Sameinaður spítali gæti sparað 360 milljónir kr. REIKNAÐ er með hægt verði að ná 360 milljóna króna sparnaði í rekstri sameinaðra Borgarspítala og Landakotsspítala á þessu ári miðað við framlög til spítalanna á síðasta ári. Er þá gert ráð fyrir að um 300 milljóna rekstrarfé bætist við þær upphæðir sem spítölunum hefur þegar verið úthlutað auk þess sem stærstur hluti rúmlega 200 milljóna króna framlags ríkis og Reykjavíkur- borgar vegna stofnkostnaðar renni til spítalans. Þrír segja sig úr stjórn Landakots: Sameining óvirðing við St. Jósefssystur - segir Björn Önundarson trygginga- yfirlæknir sem sagði sig úr stjórninni ÁGREININGUR kom upp í yfirstjórn Landakotsspítala á stjórnar- fundi sem haldinn var um helgina og fjallaði um hugsanlega samein- ingu spitalans við Borgarspítalann. Þrír af sjö stjórnarmönnum sögðu sig úr stjórninni en það voru þeir Björn Önundarson, Erlend- ur Einarsson og Haraldur Ólafsson. í yfirlýsingu sem Björn las upp á fundinum kemur m.a. fram að hann telji sameininguna óvirðingu við St. Jósefssystur og það óeigingjarna starf sem þær hafi unnið hér á landi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.