Morgunblaðið - 11.02.1992, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 11.02.1992, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 1992 t Eiginmaður minn, ÁSMUNDUR SIGURÐSSON fyrrverandi alþingismaður, Barónsstig 65, lést 8. febrúar. Guðrún Árnadóttir. t Systir okkar, SESSELJA TÓMASDÓTTIR frá Auðsholti, lést á elliheimilinu Grund 3. febrúar. o Útförin fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 12. febrúar kl. 1.30 e.h. Systkinin. t Fósturmóðir okkar, ÞRÚÐUR BJARNADÓTTIR, lést á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund laugardaginn 8. febrúar. Fyrir hönd vandamanna, Þrúður Karlsdóttir, Karl Karlsson. t Systir okkar og mágkona, ELÍN KRISTJÁNSDÓTTIR JOHNSON, áðurtil heimilis á Sólvallagötu 16, andaðist á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund að kvöldi 8. febrúar. Pétur Kristjánsson, Haraldur Kristjánsson, Gerða Herbertsdóttir. t Faðir okkar, HJÖRLEIFUR GÚSTAFSSON, lést í Sjúkrahúsi Akraness sunnudaginn 9. febrúar. Fyrir hönd systkina og annarra vandamanna, Jónína Hjörleifsdóttir, Dagbjört Hjörleifsdóttir, Gústa Hjörleifsdóttir, Magnhtldur Hjörleifsdóttir. t Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, LÁRUS JÓN GUÐMUNDSSON fyrrum póstmaður í Hafnarfirði, lést á Sólvangi laugardaginn 8. febrúar. Ásta G. Lárusdóttir, Eyjólfur Einarsson, Guðmundur Lárusson, Unnur Einarsdóttir, Guðrún Lárusdóttir, Jóhannes Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SESSELJA EINARSDÓTTIR, Hrafnistu, áður til heimilis á Brekkustíg 4A, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 12. febrúar kl. 10.30. Jónína Halldórsdóttir, Hannes Ingibergsson, Guðrún Halldórsdóttir, Magnea Halldórsdóttir, Grímur H. Lárusson, Hafsteinn B. Halldórsson, Helga Kristín Friðriksdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Elskulegur fósturfaðir, tengdafaðir, faðir, bróðir og afi, PÁLL MELSTEÐ ÓLAFSSON múrarameistari, áðurtil heimilis Lækjarási 3, Reykjavfk, andaðist á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 5. febrúar. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 12. febrúar kl. 15.00. Hulda Guðmundsdóttir, Örn Guðmundsson, Svavar Guðni Svavarsson, Helga Pálsdóttir, systkini og barnabörn. Minning: Sigríður Pálsdótt- ir,saumakona Fædd 14. febrúar 1908 Dáin 4. febrúar 1992 Þeim fækkar nú óðum, sem slitu barnsskónum á fyrsta tug þessarar aldar. Eina slíka konu kveðjum við í dag frá Siglufjarðarkirkju. Hún lést 4. febrúar sl. í Sjúkrahúsi Siglu- fjarðar. Sigga Páls, eins og hún var gjarn- an nefnd meðai kunnugra, fæddist á Skeiði í Austur-Fljótum 14. febrú- ar 1908 og var þvi nær 84 ára er hún lést. Foreldrar hennar voru Anha Her- mannsdóttir frá Reykjarhóli og Páll Bjömsson, búandi hjón á Skeiði. Systkini hennar voru' tvö, Björn bóndi að Miðsetju í Blönduhlíð, en hann lést 1979, og Herborg Páiína, sem lést á bamsaldri. Foreldrar hennar bjuggu skamman tíma á Skeiði. Fjölskyldan flosnaði upp, sem kallað var, foreldrarnir fóru í vinnu- mennsku, hvort í sínu lagi, með sitt barnið hvort á framfæri. Það elsta og yngsta. Það varð því hlutskipti Siggu að hverfa úr foreldrahúsum á viðkvæmum aldri, enda mun þessi bitra reynsla hafa mótað líf hennar síðar meir. Hún dvaldi nokkur ár á ýmsum stöðum í Skagafirði, mest þó í skjóli móður sinnar og með henni flyst hún til Siglufjarðar að lokinni fermingu, þar sem hún bjó ætíð síðan. Á unglingsárunum vann hún fyrir sér ýmist í vist eða síldarvinnu á sum- rum. Ung hóf hún sambúð með Gunn- ari Ásgrímssyni, sem entist langa ævi, eða allt þar til Gunnar lést 6. mars 1978. Ég, sem þessi minningarbrot rita, var svo lánsöm að finna heimili þeirra Siggu og Gunnars barn að aldri og ólst upp með þeim alla tíð. Gunnar var sjómaður og sjaldan heima, þannig að við tvær sýsiuðum mest saman. Á þessari stundu hvarflar hugur- inn til liðinna ára með söknuði og trega. Mér var tekið sem þeirra eig- in barni frá upphafi og naut ég ástúðar og umhyggju þeirra alla tíð. Með þeirra tilstuðlán komst ég í framhaldsskóla sem var alls ekki sjálfgefið á þeim árum. Hún sagði mér oft frá æsku sinni þegar hún var hjá vandalausum við misjafnt atlæti, en aldrei minnist ég þess að hún hallmælti nokkrum manni enda var gerð hennar siík að 'það samræmdist ekki hugarfarinu. Snemma kom í Ijós að Sigga átti þann meðfædda eiginleika að vera hög í höndum svo af bar. Henni tókst að nýta þessa hæfileika og komast til náms í kvenfatasaumi hjá Þóru Jónsdóttur frá Kirkjubæ sem þá kenndi slíka kúnst á Siglufirði. Saumaskapur alls konar varð síð- an hennar lífsstarf, því hún hafði saumastofu á heimili sínu í full 50 ár eða allt þar til hún fór á ellideild sjúkrahússins 82ja ára gömul. Áður en hún hóf saumanámið var hún einn vetur í Húsmæðraskóla ísa- fjarðar. Hún minntist skólasystra og kennara þar ætíð með hlýhug. Sigga var éðlisgreind, en efni og aðsíæður þess tíma leyfðu ekki munað eins og það var gjarnan nefnt, hjá þeim sem áttu þess kost að læra meira, en það sem lögbund- in barnafræðsla bauð. í huga Siggu var enginn staður fegurri en Siglufjörður. Þar hafði hún dvalið frá unga aldri og þar kaus hún sér hinstu hvíld. Það var hrífandi að heyra hana lýsa því þegar morgunsólin skaut kollinum uppfyrir Staðar-Hólshyrn- una, svo gullnum roða sló á bæinn sem enn var í fasta svefni. Henni þótti nú ekki björgulegt að sofa af sér þessa listrænu fegurð. Sigga fóstra mín sinnti ekki mikið félagsmálum, gaf sér ekki tíma í slíkt. Heimilið og saumaskapurinn voru henni nægileg verkefni, þó studdi hún slysavamafélagið sem sönn sjómannskona ásamt. fleirum frjálsum félagasamtökum. Margir urðu til að heimsækja hana vegna saumanna og þar mynd- aðist oft góð vinátta sem hélst ævi- langt. Að leiðarlokum vil ég þakka allar okkar samverustundir og ómetan- lega umhyggju fyrir mér og fjöl- skyldu minni. Þótt leiðir skilji að sinni munum við hittast í fyllingu tímans á strönd eilífðarinnar. Guð blessi minningu Sigríðar fóstru minnar. Farðu á vegum friðarboðans, fljúgðu á vængjum morgunroðans meira að starfa Guðs um geim. Hulda. Þeir syngja við rúmið þitt og sólseturljóð, því öllum varst ástrík og einlæg og góð. Og, við tökum undir þá óma með þeim, og kvöldbæn okkar föpr skal fylgja þér heim. Þú sagðir að guð skyldi vera okkar vöm, ef alltaf væmm auðsveip og elskuleg börn. Og við við skulum reyna að muna þitt mál, og minning þína geyma í óspilltri sál. (Guðm. Guðmundsson) Hún amma, Sigríður Pálsdóttir, saumakona frá Siglufirði, er dáin. Það er erfitt og sárt að þurfa að sætta sig við þá staðreynd að hún sé nú horfin yfir móðuna miklu. Það var alltaf svo gott að koma til ömmu, þar ríkti svo mikil frið- sæld. Okkar fyrstu minningar tengj- ast allar ömmu Siggu á einn eða annan hátt. Amma var róleg og hæglát kona, anaði ekki að neinu og vann sín verk vel og örugglega. Og þó hún væri ekki í því að siða okkur til þá lærðum við af henni að heiðarleiki. Vinnú- og hjálpsemi eru gulls ígildi en sá sem liggur í leti og ómennsku kemst ekkert áfram í lífinu. Amma Sigga var okkur mjög góð og vildi allt fyrir okkur gera. Hún var saumakona og öll áttum við okkar fasta sess í saumaherberginu, t Minningarathöfn um eiginmann minn, föður okkar, tengdaföður, afa og bróður, JÓHANN JÓNASSON, Langanesvegi 33, Þórshöfn, er lést 2. febrúar sl., fer fram frá Foss- vogskirkju fimmtudaginn 13. febrúar kl. 10.30. ( Jarðsett verður frá Sauðaneskirkju laug- ardaginn 15. febrúar kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Krabbameinsfélag (slands. Guðlaug Pétursdóttir, Guðrún R. Jóhannsdóttir, Jónas S. Jóhannsson, Pétur S. Jóhannsson, Jóhann Þ. Jóhannsson, Kristín Antonsdóttir, barnabörn og systkini. Þórarinn Sigurðsson, Þorbjörg Þorfinnsdóttir, Vilborg Stefánsdóttir, Hafdís Hannesdóttir, Ólafur Gunnarsson, við endann á sníðaborðinu og þar gátum við setið heilu og hálfu dag- ana og spjallað við ömmu um lífið og tilveruna og aldrei var hún of upptekin til að svara. Og öll lærðum við að sauma í höndunum með fingurbjörg og öllu tilheyrandi og það var toppurinn á tilverunni að fá að prófa saumavélina. En ekki þótti okkur gaman að taka til eftir okk- ur, en amma stóð fast á því að mikil- vægt væri að að læra að hirða um sína hluti sjálfur því það gerði það enginn fyrir mann. Orðin eru eitthvað svo fátækleg þegar lýsa á jafn yndislegri mann- eskju og. ömmu Siggu, minningarnar streyma fram en okkur reynist erfitt að koma hugsunum okkar á blað. Amma Sigga var áreiðanlega hvíldinni fegin, því hún hafði átt við erfið veikindi að stríða undanfarin tvö ár. Nú er hún hjá Guði og englur- unum segir sá yngsti okkar og við sem eldri erum trúum að þar sé hún, ásamt Gunnari afa og muni þaðan áfram fylgjast með okkur. Okkur langar til að kveðja ömmu okkar með fögrum ljóðlínum Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi. Blessuð sé minning elsku ömmu Siggu. Velkomin nótt, sem allir þreyttir þrá, sem þjáða getur svæft með friðarkossi. Hver tekur sér það vald að vekja þá, sem vakna undir dagsins þyngsta krossi? Þið munduð ekki gimast glaum og dans, ef gistuð þið í verkamannsins kofa. Ó, hafið lágt við litla gluggann hans og lofið dagsins þreytta barni að sofa. Hulda Hrönn, Þórður Már, Grétar Ingi, Gunnar Rafn og Hilmar Smári Sigurðarbörn. Ég flnn það gegnum svefninn að einhver læðist inn með eldhúslampann sinn, og veit, að það er konan, sem kyndir ofninn minn, sem út með ösku fer og eld að spónum ber og yljar upp hjá mér, læðist út úr stofunni og iokar á eftir sér. Þetta ljóð Davíðs Stefánssonar kom í huga mér er ég frétti að hún Sigga Páls væri látin 4. febrúar síð- astliðinn. Ég ætla ekki að rekja ætt eða uppruna hennar enda er ég ekki nógu kunnug því. En ég man xeftir henni Siggu Páls saumakonu fyrir 55 árum þegar hún saumaði á mig matrosakjól sem þá var í tísku. Sigga og mamma mín voru vinkonur og ekki var alltaf borgað fyrir sauma- skapinn í beinhörðum peningum heldur voru kannski höfð verka- skipti. Hún Sigga var hljóðlát og vann verk sitt vel eins og segir í kvæðinu og ekki var sett upp tímakaup fyrir verkið heldur sátu samviskusemin og vandvirknin ætíð í fyrirrúmi. Sigga eignaðist ekki börn sjálf, en fyrir 50 árum kom móðir mín frænku sinni í dvöþ til hennar Siggu og Gunnars Ásgrímssonar, manns hennar. Þessi frænka mín og vin- kona er Hulda Steinsdóttir. Kom hún hingað úr Fljótunum til náms. Koma hennar varð mikill gleðigjafi fyrir þau hjón og varð hún eins og dóttir þeirra er tímar liðu. Hulda giftist

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.