Morgunblaðið - 15.02.1992, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. FEBRUAR 1992
31
Kveðjuorð:
Jóhann Jónasson
Mannauður er misjafn og því
mikil mildi að fá tækifæri til þess
að kynnast þeim sem ríkulega hefur
skipast í þeim efnum. Þannig var
tengdafaðir minn, Jóhann Jónasson
útgerðarmaður á Þórshöfn á Langa-
nesi. Nú er-hann sigldur í sinn síð-
asta róður, blessaður, og verður til
moldar borinn í dag á heimaslóð.
Jóhann Jónasson fæddist á Skál-
um á Langanesi 24. september
1925. Hann lést 2. febrúar sl. eftir
13 ára baráttu við óviðráðanlegan
sjúkdóm. Jói Jónasar eins og hann
var kallaður í daglegu tali var af
fátæku fólki kominn og uppvaxtar-
árin voru hörð og meitluðu manninn
á sinn hátt þótt hann ætti því innra
láni að fagna alla tíð að eiga sýn
yfir hæðirnar í lífinu og tilverunni.
Foreldrar hans voru Sælaug Sigur-
geirsdóttir og Jónas Albertsson.
Þau eignuðust sex börn, komust
fjögur til manns, en Jói var í
bemsku þegar foreldrar hans flutt-
ust til Þórshafnar þar sem brauð-
stritið hélt áfram. 19 ára gamall
eignaðist Jói sinn fyrsta bát, trillu-
hom, og þar með hófst útgerðar-
saga hans á trillunni Magna. Tvo
aðra báta átti hann með Magna-
nafninu og síðan átti hann þrjá
báta með Geirs-nafninu og sá síð-
asti 70 tonna bátur sem hann átti
með syni sínum sem gerir út frá
Þórshöfn. Árið 1945 fór Jói til Vest-
mannaeyja á vertíð og þar hitti
hann Gullu, Guðlaugu Pétursdóttur
frá Kirkjubæ, konuna sem hefur
verið honum festan í fallaskiptum
lífsgátunnar, konan sem var anker-
ið sem aldrei brást á hveiju sem
gekk. Það var góð vertíð hjá Jóa
Jónasar að hitta yndið sitt úti í
Eyjum þar sem lundinn er ljúfastur
fugla, Ellireyjarstelpu, ja þvílíkt og
annað eins, þau gengu í hjónaband
1947. Þau Gulla eignuðust fjögur
börn, Gunnu, Jónas, Pétur og Jó-
hann, og einnig ólu þau upp Krist-
ínu, systurdóttur Jóa, frá 10 ára
aldri.
Ég kynntist Jóa Jónasar eftir að
hún Guðrún dóttir hans hafði hitt
mig í auga- og hjartastað í sama
skoti og alla tíð voru kynnin við
þennan gópa dreng gjöful og eftir-
minnileg. Ég réri með honum fjórar
vorvertíðir á grásleppu við Langa-
nes. Margt var framandi. Heima í
Eyjum þekktust nýjustu og bestu
siglingatæki í öllum bátum. Jói Jón-
asar hafði ekkert nema kompás,
klukku og dýptarmæli, en ratvísi
hans var ótrúleg. Hann virtist
þekkja vinnusvæði sitt, hafið, betur
en stofugólfið heima hjá sér og
skipti engu um veður, hvorki blind-
þoku né bálveður. Hann vissi alltaf
nákvæmlega hvar hann var, sigldi
þangað sem hann ætlaði sér með
sínum áttavita, klukku- og dýptar-
mæli. Og hann sótti svo stíft að
stundum hélt ég að það ryn'ni frem-
ur sjór en blóð í æðum hans.
Þótt Jói Jónasar væri stundum
óheflaður harðjaxl með slatta af
þvermóðsku í skjattanum þá var
ótrúlega stutt í húmorinn. Þar
klikkaði hann aldrei, en það var
sérkennilegt hvað margt í honum
mildaðist í veikindum hans þótt
hann héldi sínu striki eins og báran
kyssir kinn, lunkinn og ísmeygileg-
ur eins og forðum þegar við vorum
á grásleppunni. Þá stóðum við aftur
á strákarnir, klárir með netin, en
Jói bograði inni í stýrishúsi og rýndi
í dýptarmælinn, kíkti loks út með
úfnum svip á rétta augnablikinu,
fitlaði með fíngi-i við nös og sagði
með ísmeygilegri rödd: „Ætli það
sé ekki best að láta hana fara hér,
piltar.“ Jói muldi aldrei moðið, gekk
til verks með afli. Einu sinni ofbauð
honum þegar Gaui heitinn á Gull-
berginu VE var eitthvað að dóla
nálægt landi í Þistilfirði. Gaui var
að klára að fiska í fyrir siglingu
og vissi af vænum kola upp undir
kartöflugörðum í Þistilfirðinum.
Aldrei var hann smásmugulegur
maðurinn sá og vildi gjarnan hafa
nokkra uppbót á aflann fyrir sigl-
inguna en Jói var ábyggilega
hræddur um kartöflurnar og fékk
einfaldlega götulögguna með sér
út til þess að hirða Gauja. Gaui
hafði ekkert gaman af þessu fyrr
en eftir á, þótti fyndið að götulögga
skyldi hafa tekið sig í Iandhelgi, en
oft hafði Gaui á orði að Jói hefði
aldrei látið taka sig ef þeir hefðu
verið orðnir eins miklir vinir og
raunin varð á síðar. 0g líklega er
það rétt hjá Gauja, Jói varði vini
sína út yfir öll mörk eilífðarinnar.
Þótt tengdapabbi hafi alltaf stað-
ið sig vel í útgerð og verið stöndug-
ur maður frá því hann komst til
bjargálna þá voru það ekki verald-
legu gæðin og auðurinn sem hann
mat inest. Hans mestu og dýrmæt-
ustu auðævi voru konan hans, börii-
in og barnabörnin, á það lagði hann
mikla áherslu. Nú hefur hann lagt
sín síðustu net og stefnir á æðri
mið. Hafi hann þökk fyrir allt og
allt, mikill var hans mannauður.
Þórarinn Sigurðsson.
S TOR U TSALAN
enn í fullum gangi.
Enn lægra verð á ýmsum titlum
Allt að 96% afsláttur.
Opið virka daga frá
kl. 9-18 og laugardag
frá kl. 10-16.
ai Bókaúlgófa
^-SJ/VIENNING4RSJC)DSv
SKÁLHOLTSSHG 7 • REYKJAVlK
SÍMI 6218 22
/
BATAR — SKIP
Báturtilsölu
Til sölu 63 tonna frambyggður eikarbátur
með 503 hestafla Caterpillar aðalvél árgerð
1985. Endurbyggður 1985.
Aflahlutdeildir fylgja.
Upplýsingar gefur Friðrik J. Arngrímsson, hdl.,
Ingólfsstræti 3, Reykjavík, sími 91-625654.
Kvóti - Tilboð
Tangi hf., Vopnafirði, óskar eftir tilboði íveiði
á allt að 300 tonnum af þorski og ýsu. Nauð-
synlegt er að viðkomandi útgerð geti landað
samsvarandi magni af eigin kvóta. Löndun
getur farið fram í gáma í Reykjavík, Vest-
mannaeyjum eða annars staðar þar sem við-
komustaður Samskipa hf. er.
Tilboð og fyrirspurnir sendist auglýsingadeild
Mbl. merktar: „T - 7477“ fyrir 20. febrúar.
LÖGTÖK
Lögtök
Eftir kröfu Tollstjórans í Reykjavík og að
undangengnum úrskurði verða lögtök látin
fram fara án frekari fyrirvara á kostnað gjald-
enda, en á ábyrgð ríkissjóðs, að átta dögum
liðnum frá birtingu auglýsingar þessarar, fyr-
ir eftirtöldum gjöldum:
Virðisaukaskatti fyrir september og október
1991, svo og virðisaukaskattshækkunum
álögðum frá 6. janúar til 12. febrúar 1992;
svo og ógreiddum og gjaldföllnum virðis-
aukaskatti í tolli; ógreiddu og gjaldföllnu
tryggingargjaldi, vörugjaldi af innlendri fram-
leiðslu, vitagjaldi, skilagjaldi umbúða, lestar-
gjaldi; ógreiddum aðflutningsgjöldum, lög-
skráningargjöldum og iðgjöldum til atvinnu-
leysistryggingasjóðs; ásamt dráttarvöxtum
og öllum kostnaði sem af innheimtu skuldar-
innar kann að leiða.
Reykjavík, 13. febrúar 1992.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
FÉLAGSSTARF
Sjálfstæðisfélögin
í Kef lavík
boða til fundar um fjárhagsáætlun Keflavíkurbæjar fyrir árið 1992
sunnudaginn 16. febrúar kl. 15.30 i Flughóteli.
Félagar eru hvattir til að fjölmenna.
Stjórnir sjálfstæðisfélagana í Keflavik.
Sjálfstæðisfélag Bessastaðahrepps
Aðalfundur
Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Bessastaðahrepps verður haldinn í
samkomusal iþróttahússins þriðjudaginn 25. febrúar 1992 kl. 20.30.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Umræður: Skólamál, skipulagsmál.
Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna. Nýirfélagsmenn velkomnir.
Viðtalstími borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins
Borgar- og vara-
borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins
verða í vetur með
fasta viðtalstima i
Valhöll á laugardög-
um milli kl. 10.00 og
12.00. í dag, laugar-
daginn 14. febrúar,
verða þessir til við-
tals:
Borgarfulltrúinn: Anna K. Jónsdóttir, formaður Dagvistar barna, i
hafnarstjórn, skipulagsnefnd, stjórn heilsugæslu vesturbæjarum-
dæmis, heilbrigöisnefnd, Innkaupastofnun Reykjavikurborgar.
Varaborgarfulltrúinn: Margrét Theodórsdóttir, í fræðslu- og skóla-
málaráði, ferðamálanefnd.
FÉLAGSLÍF
□ GIMU 599217027 - Frl.
□ MÍMIR 599202177 = 1.
ÚTIVIST
Hallveigarstíg 1, sími 14606
Dagsferð sunnudaginn
16. febrúar
Kl. 13.00: Maríuhöfn-
Hvammsvík.
Gangan hefst í Maríuhöfn við
Hvalfjörð og gengið þaðan að
Hvammsvík. Létt og skemmtileg
ganga fyrir alla fjölskylduna.
Verð kr. 1.200/1.100,-. Frftt fyrir
börn 15 ára og yngri í fylgd með
fullorðnum. Brottför frá BSl
bensinsölu, stansað við Árbæj-
arsafn og Kaupf. í Mosfellsbæ.
Sjáumst! Útivist.
Opiðhús
I dag kl. 14.00-17.00 er opiö
hús í Þríbúðum, Hverfisgötu 42,
tileinkað 10 ára afmæli Dorkas.
Heitt kaffi verður á könnunni
ásamt meölæti. Kl. 15.30 taka
Dorkaskonur lagið og við syngj-
um kóra. Litið inn og takið með
ykkur gesti. Allir velkomnir.
Samhjálp.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3 & 11798 19533
Dagsferðir sunnudaginn
16. febrúar:
Nú er tilvalið að mæta í Ferða-
félagsgöngu.
1) Kl. 10.00 Fljótshlíð
Ekið sem leið liggur i austurátt
og um Fljótshlíð að Fljótsdal.
Þetta er ökuferð og verður rifjuð
upp saga merkra staða á leiðinni
um leið og landið er skoðað.
Verð kr. 2.000.
2) Kl. 13.00 Þingvellir að vetri
Ekið til Þingvalla og gengiö um
Skógarkotsveg, gamla og
skemmtilega leið. M.a. komið í
Ölkofradal. Tilvalin fjölskyldu-
ganga. Fararstjóri: Sigurður
Kristinsson. Verð kr. 1.100.
3) Kl. 13.00 Skálafell (771 m)
Ágæt fjallganga. Gott útsýnis-
fjall. Fararstjórn: Ásgeir Páls-
son. Verð kr. 1.100.
Vetrarkvöldganga á fullu tungli
á þriðjudagskvöldið kl. 20.00.
Nánar auglýst í sunnudagsblað-
inu.
Ferðafélagsferðir eru fyrir alla,
en það borgar sig samt að ger-
ast-félagsmaður.
Brottför frá Umferðarmiðstöð-
inni, austanmegin, einnig frá
Mörkinni 6. Farmiðar við bíl.
Verið með!
Ferðafélag Islands.
famiKFUK
T KFUM
Stórsamkoma í Áskirkju á morg-
un, sunnudag, kl. 16.30 á vegum
KFUM og KFUK, SÍK og KSH.
„Vakna þú“. Upphafsorð: Svein-
björg Arnmundsdóttir. Söngur:
Vænar. Ræöumaður: Skúli
Svavarsson. Barnastund verður
í kirkjunni á sama tíma.
Allir velkomnir.
Bænastund á mánudag
kl. 17.00.
ÉSAMBANO ISLENZKFiA
' KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Fullorðinstræðslan
Laugavegur 163, sími 11170
Námskeið
Fullorðinsnámskeiðin „Byrjun
frá byrjun" hefjast nú á mánud.
og þriðjud. kl. 18 og 20, stig 1,
2, 3 og talhópar í ensku,
spænsku, ítölsku, sænsku,
íslensku fyrir útlendinga,
íslenskri stafsetningu I, ísl. staf-
setn. og málfr. II og hagnýtum
grunnreikningi.
„Grunnur" - upprifjun grunn-
skólaefna - í morguntimum kl.
10-12.15; mánud./ísl.,
þriðjud./danska, miðvd./enska,
fimmtud./stærðfr.
Nýtt: Ritaranám, bókhald, rekstr-
arhagfr. og viðskiptaenska.
Skráning stendur einnig yfir i
námsaðstoð og stuðningsnám-
skeið í helstu efnum grunn- og
framhaldsskóla og á háskólastigi
í lífefnafræöi hjúkrunarnema og
efnafræöi læknanema.
Ath.: Sérstakur kynningardagur
og sérstakur 10% kynningar-
afsláttur verður nú á sunnud.
16. feb. fyrir komandi námskeið
og nýjungar. Boðið verður upp
á kaffi og vöflur með rjóma allan
daginn frá kl. 10-22.
Allir velkomnirl.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Bænasamkoma í kvöld kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
Dagskrá vikunnar
framundan:
Sunnudagur: Sunudagaskóli kl.
11.00. Almenn samkoma kl.
16.30. Ræðumaður: Hafliði
Kristinsson.
Miðvikudagur: Bibliulestur
kl. 20.30.
Föstudagur: Unglingasamkoma
kl. 20.30.
Laugardagur: Bænasamkoma
kl. 20.30.