Morgunblaðið - 20.02.1992, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1992
11
Stgórnsýsluorð
Bækur
Björn Bjarnason
Hér á landi er engin sérstök
stjórnsýslulöggjöf í gildi, en það
hefur um nokkurt árabil verið á
dagskrá að setja hana. Norður-
landaráð gaf á síðasta ári út bók,
sem ef til vill kemur að gagni við
smíði slíkrar löggjafar, það er
Norræna stjórnsýsluorðabókin.
í formála bókarinnar segir Ank-
er Jörgensen, forseti Norðurlanda-
ráðs, að sögu verksins megi rekja
allt aftur til áttunda áratugarins,
þegar Norrænu félögin höfðu
frumkvæði að því að tekin var
saman fyrsta útgáfa norrænnar
stjórnsýsluorðabókar, sem út kom
1983 í samvinnu við Norðurlandar-
áð. Frá upphafi var ljóst, að þar
var um bráðabirgðaútgáfu að ræða
og 1987 var hafist handa við að
semja þá bók, sem sá dagsins ljós
á síðasta ári og er 423 blaðsíður.
Segir Anker Jörgensen í formála
sínum að tilgangurinn með bókinni
sé að stuðla að auknum skilningi
milli stjórnmálamanna og emb-
ættismanna á Norðurlöndunum og
milli hins almenna borgara og
embættismanna.
Hefðir á sviði stjórnsýsluréttar
eru miklu ríkari annars staðar á
Norðurlöndunum en hér. Þess
vegna hefur ekki alltaf verið auð-
velt að íslenska þau orð, sem hafa
áunnið sér fastan sess annars stað-
ar. í aðfararorðum bókarinnar seg-
ir, að Jóhanna Jóhannsdóttir hafí
verið ritstjóri íslenska hlutans.
Sænska er lögð til grundvallar
í bókinni. Meginmál hennar bygg-
ist á því að sænsk orð eru þýdd á
dönsku, finnsku, íslensku og
norsku. Auk þess er þar einnig að
finna þýðingu á ensku, sem veitir
bókinni aukið notagildi. Fyrir aftan
meginmálið eru síðan danskir,
finnskir, íslenskir og norskir orða-
listar, þar sem orð af þessum mál-
um eru þýdd yfir á sænsku. Er
efni bókarinnar þannig sett fram
á skipulegan og aðgengilegan hátt.
Handbók af þessu tagi sannar
fyrst gildi sitt, þegar hún er not-
uð, þannig að umsögn af þessu
tagi gárar aðeins í yfirborðið. Eins
og áður sagði skortir orð og hug-
tök í íslensku um margt, sem hef-
ur áunnið sér sess með einu orði
annars staðar á Norðurlöndunum.
Nefna má sem dæmi orðið skatte-
planering, sem er íslenskað á þenn-
an veg: fjárhagsráðstafanir til að
greiða minni skatt — orðrétt þýð-
ing væri „skattaáætlun"; hvaða
merkingu hefur það orð á íslensku?
Þá má nefna orðið fiyktingpolitik,
sem er íslenskað á þennan veg:
stefna í málefnum flóttamanna',
hefði ekki mátt nota orðið „flótta-
málastefna“?
Vegna breytinga úreldast þýð-
ingar. Þannig er orðið talman ís-
lenskað sem forseti sameinaðs
þings. Eftir að Alþingi sameinaðist
í eina málstofu, er íslenska heitið:
forseti Alþingis. Þá er orðið arbets-
domstol íslenskað með orðinu
kjaradómur. Kjaradómur er sér-
stakur íslenskur dómstóll, sem
ákveður kjör alþingismanna og
embættismanna, sem ekki hafa
samningsrétt. Hér hefði átt að
nota orðið „félagsdómur“. Prófark-
alestur hefði mátt vera betri eða
frágangur á lokastigi, því að sums
staðar hafa orð fallið niður í listum
eða listarnir brenglast.
Þótt hér hafi verið tíunduð nokk-
ur aðfinnsluatriði, er það alls ekki
gert til að kasta rýrð á gildi þessar-
ar bókar. Hún ætti að vera innan
seilingar hjá öllum, sem sýsla við
erlend samskipti á opinberu sviði.
Tveir hlutu námsstyrk
Verslunarráðs Islands
NÁMSSTYRKI Verslunarráðs íslands hlutu að þessu sinni Tómas
Hansson og Karl Þráinsson og voru þeir valdir úr hópi 63 umsækj-
enda. Styrkirnir eru að upphæð 185.000 krónur hvor og verða
afhentir á aðalfundi Verslunarráðsins 20. febrúar nk.
Tómas Hansson er hagfræðing-
ur. Hann stundar doktorsnám í
hagfræði við New York University.
Hann stefnir á sérhæfingu á sviði
peningamála, fjármagnsmarkaðar,
hagstjórnar og annarra þátta er
snerta forsendur stöðugs hagkerf-
is. Vinkona Tómasar, Vigdís Olafs-
dóttir, tekur við styrknum fyrir
hans hönd.
Karl Þráinsson er bygingarverk-
fræðingur. Hann mun í apríl hefja
nám við Tækniháskólann í Karls-
ruhe í framkvæmdafræði. Fram-
Prufu-hitamælar
+ 50 til + 1000 C
í einu tæki með elektrón-
ísku verki og Digital sýn-
ingu.
SSanirO®(ui®tui!r & ©@ M=
Vesturgötu 16 - Slmar 14680-13280
kvæmdafræði er sérsvið innan
byggingaverkfræðinnar og byggist
n,ámið á áætlanagerð, vali á fram-
kvæmdaaðferðum, athugun á vinn-
umarkaði, samningagerð og gerð
kostnaðaráætlana. Karl mun sjálf-
ur veita styrknum viðtöku.
(Fréttatilkynning)
Tilboð
BlLDSHÖFÐA I6SIMI672444 TELEFAX672560
1600 cc, 16 vent/a
BRIAABORG
Innifalib
Þriggja ára ábyrgö
Verksmi&juryövörn
Nýskráning
Númeraplötur
Fullur bensíntankur
Tregöulæsing á afturdrifi
Vökvastýri
Stálhlíf undir gírkassa
Stálhlíf undir berísíntank
Hiti f afturrúöu
Dagljósabúnaöur
Tveir veltibogar
Þurrka og rúöusprauta
á afturrúöu
Brettakantar
Fullklædd sportsæti (Bucket)
Krómfelgur
FAXAFENI8 • SIMI91-685870
APPLJXUSE 4x4
fOS hö
1600 cc, 16 vent/a
með beinni innspýtingu
Innifalib
Vökvastýri
Klukka
Skipt aftursætisbak
Nýskráning
Höfuöpúöar aö aftan
Plussklædd sæti
Samlæsing
Þriggja ára ábyrgö
Ve rks m i ö j u ry ö vö r n
Númeraplötur
Heilir hjólkoppar
Skottlok/bensínlok
opnast innanfrá