Morgunblaðið - 20.02.1992, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 20.02.1992, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1992 100 fm risíbúð til sölu eða leigu. Skipti á hús- næði á Stór-Reykjavíkursvæðinu kemur til greina. Upplýsingar í síma 93-13083. Gúmmíklædd WIPAC ímmaiLíHPt Varahlutaverslun Btldshðfða 18 - Reykjavik - Simi 91-672900 J HITAKÚTAR ELFA-OSO 30—BO—120—200—300 lítra. Ryðlrítt stál - Blöndunarloki. Áratuga góð reynsla. Elnar Farestvelt & Co.hf BORGARTÚNI28, SÍMI622901 4 stoppar við dymar Salmson Miðstöðvardœlur Þróuð. framleiðsla. Hagstœtt verð. r LANDSSMIÐJAN HF. Verslun: Sölvhólsgötu 13 SlMI (91) 20680 • FAX (91)19199 Hvenær, hvort og hvemig? eftir Óla Björn Kárason Blaðamenn og þá ekki síst þeir sem starfa hjá áhrifamiklum fjölmiðl- um, sem allur almenningur tekur trúanlega, standa oft frammi fyrir erfiðum ákvörðunum: Hvenær, hvort og þá hvernig á að birta frétt. Yfir- menn fréttastofu Ríkisútvarpsins stóðu frammi fyrir þessari erfiðu og vandasömu ákvörðun síðstliðinn þriðjudag, þegar fréttamaður henn- ar, sem nú er staddur í Israel, sendi heim frétt um að Simon Wiesenthal- stofnunin í ísrael saki íslenskan rík- isborgara um stríðsglæpi í síðari heimsstyijöldinni. Þegar yfirmenn fréttastofunnar tóku ákvörðun um hvenær viðkom- andi frétt skyldi birt, var tekin röng ákvörðun. Þegar yfirmenn fréttastof- unnar tóku ákvörðun um að birta fréttina var tekin rétt ákvörðun. Það er skylda hvers blaðamanns að greina frá því að virt stofnun á borð við Wiesenthal-stofnunina (þó hún hafi ekki reynst óskeikul eða sé dómstóll), skuii saka íslenskan ríkis- borgara um þátttöku í einhvetjum hryllilegustu glæpum sögunnar. Spurningin er aðeins hvernig og hve- nær flytja skuli fréttina. Misskilinn metnaður Var það metnaður fréttastofu út- varpsins að verða fyrst með fréttirn- eftirRagnar Tómasson Það var bæði lífshættulegt og afar óþægilegt af pólitískum ástæðum fyrir Davíð Oddsson for- sætisráðherra að fara í opinbera heimsókn til ísraels eins og á stóð. ísraelsmönnum kom heimsóknin að sama skapi mjög vel því ísland nýtur sem eitt Norðurlandanna, virðingar fyrir málefnalega þátt- töku í alþjóðlegu samstarfí. Það hefði verið maklegt að ísra- elsmenn sýndu forsætisráðherra okkar sérstaka virðingu og þakk- læti fyrir staðfestu sína, fyrir að hafa ekki hætt við heimsóknina. Víst þekkja þeir ofurmátt alþjóð- legrar umræðu og staðfestuna telja þeir eina af undirrótum ríkis síns. Þegar ísraelsmenn standa höll- um fæti í alþjóðlegri umræðu sjá þeir sér það helst til bjargar að „Þetta er ekki í fyrsta skipti sem fréttastofa útvarpsins hleypur á sig og sakar Islending um verstu glæpi — landráð. Þá var byggt á erlendum heimildum sem reyndust rangar." ar, sem réð því að ákveðið var að birta umrædda frétt án þess að vinna hana að nokkru leyti áður? Var það metnaður fréttastofunnar að nafn- greina Eðvald Hinriksson, fyrst allra, án tillits til þess hvaða afleiðingar það kynni að hafa fyrir saklaus barnabörn hans? Hér skal haft í huga að það er ekki verið að bera mann sökum um hvem annan glæp, heldur glæp gagnvart mannkyninu. Það eitt hefði átt að hægja á fréttamanninum og fréttastofunni, þar sem um enga venjulega frétt var að ræða, heldur frétt sem krafðist, allra vegna, að yrði unnin eins vel og kostur væri, án þess að misskilinn metnaður hefði þar áhrif. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem fréttastofa útvarpsins hleypur á sig og sakar íslending um verstu glæpi — landráð. Þá var byggt á erlendum heimildum sem reyndust rangar. í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins síðastliðinn þriðjudag, var ekki greint Ragnar Tómasson nota þá athygli sem opinber heim- sókn íslenska forsætisráðherrans vekur til þess að bera fram ákæru Öli Björn Kárason frá því að Eðvald hefur áður verið borinn svipuðum sökum. (Blaðamenn falla oft í þá undarlegu gryfju að setja málin ekki í sögulegt sam- hengi, sem gæti auðveldað almenn- ingi að átta sig betur á viðkomandi frétt.) Það var heldur ekki greint frá réttarhöldunum yfir honum í Svíþjóð í lok stríðsins, réttarhöldum sem hreinsuðu hann af öllum ákærum, að því er fram kemur í ævisögu Eðvalds. Það hefði verið tiltölulega á aldraðan og þjóðkunnan íslend- ing. Mann sem hefur í áratugi þurft að bera hönd fyrir höfuð sér fyrir erlendum dómstólum og í opinberri umræðu hér heima. Ein- hver harðsnúnasta leyniþjónusta heims uppgötvaði það ekki fyrr en við opinbera heimsókri forsætis- ráðherra okkar að maðurinn væri til. Það er óvíst að nokkru sinni hafi þjóðarleiðtoga verið sýnd önn- ur eins svívirðing í opinberri heim- sókn og ísraelsmenn hafa nú sýnt Davíð Oddssyni, forsætisráðherra íslands. í hugum þeirra virðist orðið drengskapur hafa litla eða enga merkingu. Það er nóg komið af höfðings- skap ísraelsmanna þó forsætisráð- herra taki ekki þennan sérstæða virðingarvott með sér heim. Höfundur er lögmaður í Reykjavtk. auðvelt fyrir fréttastofu útvarpsins að afla sér heimilda um sögu Eð- valds, bæði frá honum sjálfum og úr ævisögu hans sem hefur birst á íslensku, áður en fréttin var birt. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Eðvald er borinn þungum sökum af íslenskum fjölmiðli. Þjóðviljinn réðist á hann fyrir liðlega 30 árum og sak- aði hann um fjöldamorð. Frétt blaðs- ins var byggð á frásögn Árna Berg- manns, sem þá var í Moskvu, og þýðingu úr bókinni Grímulausir morðingjar, sem hafði komið út sama ár í Tallinn fyrir tilstilli KGB. Vonandi er samkeppni íslenskra blaðamanna um hver sé fyrstur með fréttirnar ekki farin að koma niður á mannlega þættinum sem blaða- menn verða alltaf að taka tillit til, eða þeim metnaði sem hver blaða- maður hlýtur að hafa til að vanda sem best til fréttaflutnings. Því mið- ur er frétt Ríkisútvarpsins í hádegis- fréttunum sl. þriðudag ekki eina merkið um að svona sé. Það er mik- ill misskilningur að samkeppni fjölm- iðla snúist um það hver sé fyrstur með fréttirnar, heldur hver vinnur fréttina best og byggir á bestu heim- ildum. Móðgun Og það er fleira sem hefði átt að kalla á að fréttamenn hægðu á ferð- inni. Það hvernig þetta mál bar að er undarlegt. Tímasetningin er und- arleg. Og hvemig Wiesenthal-stofn- unin kaus að gera málið opinbert hefði átt að vekja upp spumingar — spurningar sem enginn blaðamaður hefði átt að leiða hjá sér áður en frétt teldist fullunnin. Þegar þetta er ritað liggja engar upplýsingar um það hvaða heimildir og/eða sannanir Wiesenthal-stofn- unin hefur fyrir jafn alvarlegum ásökunum. Raunar segir Efraim Zuroff, forstöðumaður stofnunarinn- ar, í viðtali við Morgunblaðið að hann sé ekki tilbúinn til að „ræða þær upplýsingar við fjölmiðla að svo stöddu". Engu að síður þykir honum rétt að bera jafn alvarlegar sakir fram opinberlega. Framkoma ísraela gagnvart okkur íslendingum er þeim lítt til sóma. Framkoma þeirra við forsætisráð- herra íslands í opinberri vináttuheim- sókn er móðgun við íslensku þjóðina. Framkoma ísraela sýnir hroka þeirra gagnvart smáþjóð. Mér segir svo hugur að þeir hefðu ekki komið fram með þessum hætti gagnvart fulltrúa annars ríkis. Samskipti íslands og ísraels hafa verið góð allt frá stofnun þess 1948. Nú hvílir skuggi yfir þeim samskiptum. Höfundur er framkvæmdastjóri. Svívirðing við íslenska þjóð Hver vill halda þairnig áfram? eftir Tómas Inga Olrich Ég gat þess í fyrstu grein minni um íjárlögin, að fjárlög undanfar- inna ára hefðu reynst marklausar viljayfirlýsingar. Þessa fullyrðingu er nauðsynlegt að styðja með upp- lýsingum. Með aðstoð fjárlaganefndar Al- þingis hef ég fengið yfirlit um áætl- aðar tekjur og útgjöld ríkissjóðs fyrir árin 1984—1991 og eru þessar áætlanir bornar saman við greiðslu- afkomu í reynd. Líta má á fjárlaga- frumvarp sem vilja- og stefnuyfir- lýsingu ríkisstjómar á hveijum tíma. Á meðförum Alþingis breytist frumvarpið og við endanlega af- greiðslu lýsa fjárlögin vilja löggjaf- ans. Fjáraukalög eru tilraun til að leiðrétta fjárlögin, en greiðsluaf- koman er raunveruleikinn. Uppsafnaður halli ríkissjóðs 1984-1991: í milljörðum kr. Frum- Fjár- Fjár- Verðlag 1991 varp lög aukal. Afkoma Tekjur 644 678 6 709 Gjöld Gjöld umfr. tekjur 653 693 20 760 9 15 U „Þegar þessar stað- reyndir eru skoðaðar í ljósi þess að íslendingar hafa búið við langvar- andi halla á viðskiptum við útlönd, blasir við raunveruleiki, sem eng- inn íslendingur getur horft fram hjá: Við lif- um mjög verulega um efni fram og höfum gert það lengi.“ Rétt er aó benda á að allar upphæðir eru í millj- örðum króna á verðlagi ársins 1991. Rétt er einn- ig að hafa til samanburðar að tekjur ríkisins á árinu 1990 voru 108 milljarðar króna á núvirði. 51 þúsund milljónir Þegar þetta yfirlit er skoðað kemur í ljós að samkvæmt ákvörðun löggjafans, Alþingis, átti halli ríkis- sjóðs á þessu tímabili að nema 15 milljörðum, en reyndist 51 milljarð- ur. Uppsafnaður halli þessara átta ára nemur tæpum hálfum fjárlögum ársins 1991. Hann er meiri en öll Tómas Ingi Olrich útgjöld til heilbrigðismála á því ári. Sú þróun, sem hér er verið að lýsa, hófst ekki 1984. Til eru sam- bærilegar upplýsingar fyrir tímabil- ið 1975-1989. Á því tímabili gerðu ljárlög ráð fyrir tæpum einum millj- arði í halla, sem reyndist vera 43 milljarðar þegar upp var staðið. Að horfast í augu við vandann Það sem vekur ugg er að hallinn hefur farið vaxandi þegar á tímabil- ið frá 1975-1991 er litið í heild. Við erum með hveiju árinu að ijar- lægjast það markmið að stunda hallalausan ríkisbúskap. Þegar þessar staðreyndir eru skoðaðar í ljósi þess að íslendingar hafa búið við langvarandi halla á viðskiptum við útlönd, blasir við raunveruleiki, sem enginn íslend- ingur getur horft fram hjá: Við lif- um mjög verulega um efni fram og höfum gert það lengi. Bjartsýni byggð á raunsæi Það að horfast í augu við veru- leikann er skylda hvers manns og ber ekki vott um svartsýni. Að tak- ast á við veruleikann er affarasæl- ast til lengdar. Að horfa fram hjá honum er sjálfsblekking. Bjartsýni, sem byggir á sjálfsblekkingu, er eins og hvert annað mýraljós, einsk- is virði sem vegvísir. Við þurfum ekki slíka bjartsýni. Við þurfum bjartsýni byggða á raunsæi og yfir- vegun. Höfundur er 5. þingnmður Norðurliwds eyslra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.