Morgunblaðið - 20.02.1992, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1992
Kennaraháskóli íslands:
FRÁ Kennaraháskóla ísland brautskráðust s.l. föstudag níu skóla-
stjórar og yfirkennarar úr námi fyrir stjórnendur skóla. Að sögn
dr. Barkar Hansen, umsjónarmanns námsins, er þetta í annað
skipti sem brautskráð er úr þessu námi.
Skólastjóranámið er 15 eininga
nám sem dreifist á eitt og hálft ár
samhliða starfí sem skólastjómandi,
að sögn Barkar. Hann segir að til
þess að geta hafíð þetta nám þurfí
fólk að vera með kennarapróf auk
tveggja ára starfsreynslu annað
hvort sem skólastjóri eða yfírkennari.
„Þetta eru þrjú námskeið og er
hvert þeirra fímm einingar. Hluti
hvers námskeiðis fer svo fram í eins
konar bréfaskóla og er það fyrir-
komulag haft til að mæta þörfum
skólastjómenda er starfa utan höfuð-
borgarsvæðisins," segir Börkur.
A föstudaginn útskrifaði Kennara-
háskólinn nemendur af öllum náms-
brautum en alls útskrifar skólinn
þrisvar sinnum á ári. „Þessi braut-
skráning er með formlegu sniði þar
sem þetta er fámennur hópur og
þetta nám fylgir ekki hefðbundnum
tímasetningum skólaársins," segir
Börkur.
Kristinn Breiðfjörð, skólastjóri í
Bamaskóla Staðarhrepps í Hrúta-
fírði, er einn af þeim sem útskrifað-
ist. Hann segir þetta nám vera tölu-
vert viðamik'ið og tímafrekt. „Þess
vegna hentar þetta fyrirkomulag vel
fyrir fólk eins og mig sem vinn úti
á landi. Við höfum einnig fengið
góðan stuðning frá þeim sem standa
að þessu námi,“ segir hann.
Afhenti
trúnaðarbréf
Ingvi S. Ingvarsson afhenti hinn
17. febrúar Chaim Herzog, forseta
ísrael, trúnaðarbréf sitt sem sendi-
herra íslands í Israel með aðsetur
í Kaupmannahöfn.
Kristinn segist hafa trú á því að
í framtíðinni verði aðrar kröfur gerð-
ar til skólastjóra. „Ég held að skóla-
stjórar þurfí að hafa verið í ein-
hveiju stjómunamámi og ég tel einn-
ig að þar sem þetta er mjög kre-
fjandi starf sé það gott að hafa ein-
hveija slíka undirstöðu," segir Krist-
Útskriftarathöfnin í Kennaraháskólanum.
Formennska Leifs Magnússonar í Flugráði:
Get ekki fallist á að um sé að ræða brot
á grundvallarreglum sFj órnsýsluréttar
- segir Halldór Blöndal samgönguráðherra
„ÉG get ekki fallist á þá niðurstöðu Davíðs Þórs Björgvinssonar að
formennska Leifs Magnússonar í Flugráði sé skýrt og ótvírætt brot
á grundvallarreglum íslensks stjórnsýsluréttar. Þessi grein hans er
ónákvæm í þeim efnum, og eldd dregnar hliðstæður né horft til
þess hverjir hafi setið í Flugráði frá upphafi," segir Halldór Blönd-
al, samgönguráðherra, um það mat Davíðs Þórs Björgvinssonar,
dósents við lagadeild Háskóla íslands, að Leifur Magnússon, formað-
ur Flugráðs, sé almennt vanhæfur til að gegna formennsku í ráðinu
og jafnvel til setu í því vegna starfa hans hjá Flugleiðum. í grein í
Morgunblaðinu síðastliðinn sunnudag kemst Davíð Þór að þeirri
niðurstöðu að formennska Leifs í Flugráði sé eftir því sem best
verði séð skýrt og ótvírætt brot á grundvallarreglum íslensks sljórn-
sýsluréttar.
Halldór Blöndal sagði að gagn-
stætt því sem Davíð Þór fullyrti í
grein sinni væru sett almenn hæfís-
skilyrði þeim mönnum sem ráðherra
skipar í Flugráð þar sem sérstak-
lega væri tekið fram að þeir skuli
hafa sérþekkingu á flugmálum. Þá
sagðist hann einnig draga mjög í
Húsavík:
Elsta kaupfélag
landsins llOára
efa að sú fullyrðing stæðist að
meirihluti þeirra úrlausnarefna sem
koma fyrir Flugráð snertu Flugleið-
ir sérstaklega, og sér þætti fróðlegt
að sjá það yfirlit sem Davíð Þór
leggði til grundvallar þeirri fullyrð-
ingu sinni.
„Þessar raddir hafa stundum
komið upp, að óeðlilegt sé að starfs-
menn einstakra flugfélaga eigi sæti
í Flugráði. En þá er á hitt að líta að
í lögunum er kveðið á um það að
ráðherra skuli skipa tvo menn með
sérþekkingu á flugmálum í ráðið,
annan til átta ára og hinn til fjög-
urra ára. Ef rifjað er upp hveijir
hafa verið skipaðir samkvæmt
þessu ákvæði frá 1947 kemur í ljós
að þar áttu sæti forstjórar flugfé-
laganna beggja, Flugfélags íslands
og Loftleiða, yfírflugstjóri Flugfé-
lags íslands og síðar Flugleiða, og
fleiri flugstjórar. Mér er ekki kunn-
ugt um að þetta hafi komið að sök,“
sagði Halldór.
Hann sagði að ef rætt væri um
Leif Magnússon sérstaklega, þá
nyti hann almenns trausts fyrir al-
hliða þekkingu sína á flugmálum
hér og erlendis.
„Ég nefni sem dæmi að 1978 var
hann kjörinm forseti 275 manna
ráðstefnu Alþjóða flugmálastofnun-
arinnar, sem falið var að ákveða
val á framtíðar blindaðflugskerfi,
og hefur hann auk þess verið skip-
aður í tvær alþjóðlegar sérfræði-
nefndir stofnunarinnar, sem falið
var endurskoðun á tæknilegum og
fjárhagslegum þáttum þjónustu við
N-Atlantshafsflugið. Auk þess hef-
ur hann gegnt fjölmörgum öðrum
trúnaðarstörfum, og var hann með-
al annars stjómarformaður Amar-
flugs hf. þar til að hann sagði þeirri
stöðu sinni lausri eftir að hann var
skipaður formaður Flugráðs í jan-
úar 1980. Ég tel það mikið happ
að maður með reynslu og þekkingu
y
Leifs Magnússonar skuli gefa kost
á sér sem formaður Flugráðs. Ég
minni á í því sambandi að Flugráð
starfar sem nokkurs konar stjómar-
nefnd Flugmálastjórnar. Ákvörðun-
arvaldið er þó ætíð í höndum ráð-
herra, og em fjölmörg dæmi um
að hann fylgi ekki ráðleggingum
eða samþykktum Flugráðs,“ sagði
Halldór.
Aðspurður hvort hann teldi rétt
að fá umsögn Lagastofnunar Há-
skólans um hæfi Leifs í stöðu form-
anns Flugráðs sagði Halldór að
Lagastofnun væri ekki dómstóll, og
álitsgerðir frá henni væm ekki
skoðun lagadeildar HÍ, heldur ein-
ungis þeirra lögfræðinga sem skrifa
undir álitsgerðina.
„Hún hefur þess vegna ekki
meira gildi en það traust sem við-
komandi einstaklingar hafa. Ég get
nefnt fjölda lögmanna, sem með
alhliða reynslu og störfum sínum
njóta ekki síður trausts en þeir
menn sem vinna við kennslu við
lagadeild Háskólans, þótt þeir geti
ekki státað af háskólastimplinum.
Það er auðvitað hæpið að nafn
Háskólans sér notað með þeim
hætti sem gert er með Lagastofnun
Háskólans," sagði Halldór Blöndal.
Ferðaskrifstofurekstur Flugleiða hf.:
Níu skólastjór-
ar brautskráðir
Húsavík. ^
KAUPFÉLAG Þingeyinga, elsta kaupfélag landsins, er 110 ára í
dag, 20. febrúar. Það var stofnað að Þverá í Laxárdal að frum-
kvæðí framsýnna bænda og héraðshöfðingja, þeirra Benedikts
Kristjánssonar, prests í Múla, Benedikts Jónssonar, bónda á Auðn-
um, Jakobs Hálfdánarsonar, bónda á Grímsstöðum, Jóns Sigurðss-
onar, bónda í Gautlöndum og Péturs Jónssonar, bónda og síðar
alþingismanns og ráðherra.
Flugleiðir sitji ekki við lakara
borð en erlendir keppinautar
- segir Halldór Blöndal samgönguráðherra
„ÞAÐ er fundið að því að Flugleiðir hafi almennan ferðaskrifstofu-
rekstur með höndum til að tryggja rekstraröryggi sitt, en við
höfum líka dæmi þess hér á landi að ferðaskrifstofur hafi verið
aðilar að rekstri flugfélags í sama skyni. Við verðum undir í sam-
keppninni við erlenda keppinauta ef við leyfum ekki íslenskum
fyrirtækjum að hafa sama fijálsræði og tíðkast í vestrænum lönd-
um,“ segir Halldór Blöndal samgönguráðherra um þá gagnrýni
sem undanfarið hefur komið fram á ferðaskrifstofurekstur Flug-
Saga kaupfélagsins er bæði
löng og viðburðarík og hefur hún
verið rakin í tveimur bókum, sú
fyrri var gefin út í tilefni 60 ára
afmælis félagsins og hin síðari í
tilefni af 100 ára afmælinu.
Afmælisins verður ekki minnst
með neinni stórhátíð, þó félags-
menn munu í dag gera sér daga-
mun. Kaupfélagsstjórinn, Hreiðar
Karlsson, taldi 110 árin ekki vera
nein stórkostleg tímamót og
tímamir nú gæfu ekki tilefni til
að efnt yrði til stórhátíðar.
í dag eru og liðin 90 ár frá því
að Samband íslenskra samvinnu-
félaga var stofnað en sú stofnun
fór einnig fram á þingeyskri grund
í Ysta-Felli í Ljósavatnshreppi að
frumkvæði þá framámanna KÞ.
- Fréttaritari.
leiða.
Halldór sagði í samtali við
Morgunblaðið að þegar staða
Flugleiða í dag væri metin, þá
hlyti athyglin fyrst og fremst að
beinast að því hvort fyrirtækið
hefði burði til að standast sam-
keppni við SAS og önnur flugfélög
sem hingað væru að teygja arma
sína, og hins vegar væri það mik-
ilsvert að fargjöld færu lækkandi,
en það væri ótvíræð kjarabót fyrir
þorra fólks.
„Við getum verið stoltir af því
íslendingar að nú á þessu vori
verða allar flugvélar Flugleiða inn-
an tveggja ára aldurs, og mér er
sagt að ekkert annað flugfélag
geti státað af Slíku. Það er auðskil-
ið að Flugleiðir verða að ná góðri
nýtni fyrir þessa dýru farkosti, og
eina leiðin til að tryggja það er
að skipuleggja sólarferðir og aðrar
sambærilegar ferðir á þeim tíma
sem flugvélarnar eru ekki í notkun
í almennu áætlunarflugi. Við höf-
um verið að fylgjast með því
hvemig þessi viðleitni hefur leitt
til sílækkandi fargjalda, og hljót-
um að vona að þessi nýja stefna
Flugleiða gangi upp,“ sagði Hall-
dór.
Hann sagði að til samanburðar
vildi hann minna á að keppinautar
Flugleiða erlendis hefðu rekstur
ferðaskrifstofa með höndum, og
ekki væri hægt að fallast á að
Flugleiðir ættu að sitja þar við
annað og lakara borð.
„Samtímis þessu hefur það ver-
ið að gerast að ferðaskrifstofumar
hafa verið að stækka vegna nauð-
synlegra tölvuvæðingar, samtímis
því sem lækkandi fargjöld breyta
öllum forsendum fyrir rekstri ferð-
askrifstofa. Ýmsar litlar ferða-
skrifstofur hafa af þessum sökum
verið að tína tölunni, og í öðrum
tilvikum hafa Flugleiðir orðið að
hlaupa undir bagga án þess að
hafa sóst eftir því. Þetta er óhjá-
kvæmileg þróun, og ég er sam-
mála Neytendasamtökunum um
að höfuðatriðið sé að þau fyrir-
tæki, sem annast ferðaþjónustu
og hafa mikla fjármuni almenn-
ings undir höndum, séu traust,
þannig að dæmið af Veröld endur-
taki sig ekki,“ sagði Halldór
Blöndal.
Morgunblaðið/Silli
Pakkhúsið reist 1886, Jaðar (á miðri mynd) og Söludeild 1902.