Morgunblaðið - 20.02.1992, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 20.02.1992, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRUAR 1992 23 Alexander Goldfeder Tónleikar Alexanders Goldfeders ALEXANDER Goldfeder heldur einleikstónleika í íslensku óper- unni laugardaginn 22. febrúar kl. 14.30. Á efnisskrá eru verk eftir Mozart, Chopin, Debussy, Schubert, Rakmanínov, Liszt, Prokofjev og Gershwin. Alexander Goldfeder er fæddur 1946 í Moskvu. Hann lauk einleik- araprófi frá Tónlistarskólanum í Moskvu 1970 undir handleiðslu Yakov Flehar. Hann starfaði síðan í Moskvu sem einleikari og kennari auk þess sem hann hélt tónleika víða um lönd. Árið 1976 óskaði Alexander Goldfeder eftir að fá að flytja frá Rússlandi til ísrael en beiðni hans var synjað. í kjölfar þessa var honum hins vegar meinað að fara í tónleikaferðir utan Rúss- lands. Það var svo ekki fyrr en árið 1989 að beiðni hans um að flytja úr landi hlaut náð fyrir augum ráða- manna í Moskvu og það sama ár fluttist hann til ísrael ásamt fjöl- skyldu sinni. Síðastliðið ár dvaldi Goldfeder í Þýskalandi og Hollandi þar sem hann hefur haldið fjölda tónleika. Nú í mars hyggst hann m.a. halda tónleika í Amsterdam sem haldnir eru í minningu hins þekkta píanóleikara Glen Gould. Alexander Goldfeder dvelur nú á Islandi ásamt fjölskyldu sinni en kona hans Ivgenia er listdansari og kennir hjá íslenska dansflokknum og Listdansskólanum. (Fréttatilkynning) ♦ ♦ ♦--- Dreifing á fatnaði í Kúrdist- an hafin HAFIN er í Kúrdistan dreifing á fatnaðinum sem safnaðist á Is- landi í síðasta mánuði en fyrstu bílarnir komu þangað frá Dan- mörku fyrir síðustu helgi. Starfs- menn Iflálparstofnunar dönsku þjóðkirkjunnar annast dreifing- una og mun þeim á næstu vikum berast hver farmurinn af öðruin. Ennþá ríkir kuldi og snjókoma á þessum slóðum. Síðustu gámarnir sem Samskip og Eimskip fluttu til Kaupmanna- hafnar komu þangað nú í vikunni og eru sendingarnar nú á leið suður um Evrópu og til Kúrdistan. Kostn- aður við fatasöfnunina nemur ekki undir 2,5 milljónum króna og hefur ríkissjóður lagt fram 500 þúsund krónur til styrktar verkefninu. Þeir sem styðja vilja söfnunina fjárhags- lega geta greitt framlag sitt með gíróseðli í bönkum og sparisjóðum. Fríðrik Þór frétti af útnefningimni þegar hann horfði á CNN í Berlín „Leið eins og ég hefði fengið fisk í fyrsta kasti“ Frá Árna Þórarinssyni í Berlín ÞEGAR . forseti bandarísku kvikmyndaakademíunnar, leikarinn Karl Malden tilkynnti um val þeirra fimm mynda sem hljóta útnefningu sem besta erlenda myndin við Óskars- verðlaunaúthlutunina í ár, lá leikstjóri íslensku myndarinn- ar Börn náttrúrunnar, Friðrik Þór Friðriksson, upp í rúmi á hótelherbergi sínu í Berlín þar sem myndin er sýnd á úrvals- dagskrá kvikmyndahátíðarinn- ar í borginni. „Ég var að horfa á beina útsendingu frá útnefn- ingunni á CNN og þegar Börn náttúrunnar var nefnd fyrst allra mynda leið mér eins og ég hefði kastað út í á og feng- ið fisk í fyrsta kasti. Svo stökk ég á fætur og dansaði stríðs- dans því það er óhætt að viður- kenna að ég var orðinn tölu- vert stressaður þessa síðustu daga,“ sagði Friðrik Þór Frið- riksson í samtali við Morgun- blaðið í Berlín í gær. Þegar Friðrik Þór kom í aðal- stöðvar kvikmyndahátíðarinnar tók hann ekki aðeins við stöðug- um straumi heillaóska, heldur helltust tilboðin um dreifingu á Börn náttúrunnar yfir hann og þýska samstarfsaðila hans. Þýski kvikmyndaframleiðandinn, Wolf- gang Pfeiffer hjá MAX film sem var einn af fjármögnurum Barna náttúrunnar sagði í samtali við Morgunblaðið að þetta væri ein stærsta stund lífs síns. Hann hefði ekki mætt miklum skilningi þýskra kvikmyndasjóða þegar hann falaðist eftir fjármagni í Börn náttúrunnar og því lagt eig- ið fé undir. „En ég hafði séð Skytturnar og kynnst Friðriki Þór og nú hef ég fengið staðfestingu á því sem ég vissi fyrir að ég veðjaði á rétt- an mann. Auðvitað yrði enn sterkara að vinna sjálf verðlaunin en sú viðurkenning að við erum með eina af fimm besti myndum í heiminum nægir mér á þessari gleðistund.“ Það ríkti glaumur og gleði í herbúðum Ex-Picturis, deifingar- fyrirtækis Barna náttúrnnar utan Norðurlandanna, í Berlín í gær og menn skáluðu í kampavíni. Peter Rommel, forstjóri fyrirtæk- isins, var því kampakátur þegar Morgunblaðið ræddi við hann og sagði að þetta væri stórt skref fyrir lítið fyrirtæki. „Við höfum þurft að leggja hart að okkur og nú erum við að uppskera. Það er stórkostleg tilfinning. Við höfum fundið mikinn áhuga á myndinni en nú á þessum fáu mínútum síð- an að útnefningin var tilkynnt hafa tilboðin streymt til okkar. Kvikmyndaheimurinn er svo und- arlegur, menn svo óöruggir og hræddir við mistök að svona gæðastimpill er eins og himna- sending. Við verðum núna, eftir að gleðivíman er runnin af okk- ur, að fara kalt og yfirvegað yfir möguleika okkar.“ Friðrik Þór Friðriksson sagði Morgunblaðinu að hann hefði alla tíð haft bjargfasta trú á mynd- inni. „Ég sagði við Einar Kárason vin minn þegar hann var á sínum tíma að gagnrýna handritið að þetta væri rakin mynd til að vinna Oskar. En þegar svona margir þættir kvikmyndagerðar takast vel — leikur, kvikmyndataka, hljóðvinnsla og tónlist, auk mann- eskjulegrar sögu — þá getur maður átt von á svona árangri." „Ætli ég leyfi mér ekki að skála í kvöld,“ sagði leikstjórinn um næstu skerf. „En svo verður maður að fara að taka þetta al- varlega og snúa sér að næstu mynd.“ Sú mynd ber vinnuheitið „Cold fever“ og er^ stefnt að tökum í Japan og á íslandi nú í sumar. Framleiðandi þeirrar myndar, bandaríski kvikmyndaframleið- andinn Jim Stark, sagði í samtali við Morgunblaðið í Berlín: „Þetta er ótrúlegt. Alveg ótrúlegt — að lítil íslensk mynd skuli ná svona langt. En það er fullkomnlega verðskuldað." Þegar Morgunblað- ið spurði Stark að því hversvegna hann kysi að framleiða næstu mynd Friðriks Þórs Friðrikssonar svaraði hann: „Af því hann er svo skemmtilega geggjaður. Þar að auki hef ég hingað til getað treyst á þefskyn mitt fyrir hæfileika- fólki.“ Þorsteinn Jónsson fram- kvæmdastjóri Kvikmyndasjóðs sem staddur er á kvikmyndahá- tíðinni í Berlín sagði um þennan viðburð: „Þetta er stórkostlegt og ekki aðeins mikill heiður fyrir Friðrik Þór heldur óvænt og vel- komin viðurkenning á íslenskri kvikmyndagerð. Börn náttúrunn- ar er valin ein af fimm bestu myndum síðasta árs í heiminum. ísland er komið á landakortið sem kvikmyndaland. Nú bíða íslenskir kvikmyndgerðarmenn spenntir eftir því hvort stjórnvöld taka við sér.“ Við Óskarsverðlaunaafhend- inguna í næsta mánuði munu Börn náttúrunnar glíma um verð- launin við Mediterrano frá ítaliu, Barnaskólann frá Tékkóslovakiu, Uxann frá Svíþjóð og Rauða lampann frá Hong Kong. fi*s?SS5fí ÓÐRUM TIL FYRIRMYNDÁRI DAF er nú með vinsælustu flutningabílum hérlendis og meðal fyrirtækja, sem valið hafa hann eftir rækilegan samanburð við aðra bíla má nefna: Gosan, Kornax og Sölufélag garðyrkjumanna. DAF bílarnir eru sérlega vandaðir, burðarmiklir miðað viö eigin þyngd og allur aðbúnaður ökumanns einstaklega góður. Við eigum DAF 400 sendibíla til afgreiðslu STRAX og útvegum aðrar gerðir með örskömmum fyrirvara. V.Æ.S.HF Fosshálsi 1 S 67 47 67 i m

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.