Morgunblaðið - 20.02.1992, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1992
Reuter
Stríðshörmungunum mótmælt
Rúmlega 20 manns féllu í héraðinu Nagorno-Kara-
bak í gær er bardagar brutust út á milli Armena
og Azera. Myndin var tekin af azerskum konum í
þorpi einu í héraðinu er þær efndu til mótmæla eft-
ir að hafa orðið að flýja heimili sín vegna árása
Armena. Rúmlega 1.000 manns hafa fallið frá 1988
í héraðinu, sem er aðallega byggt Armenum þótt
það heyri undir Azerbajdzhan.
Honecker sagður
velkominn til Chile
Santiago, Bonn. Reuter.
SETTUR utanríkisráðherra Chile
sagði í gær að Erich Honecker,
fyrrverandi leiðtogi Austur-
Þýskalands sem var, gæti komið
til landsins ef stjórnin í Moskvu
veitti honum leyfi til að fara frá
Rússlandi.
Honecker, sem er 79 ára að aldri,
hefur háldið til í sendiráði Chile í
Moskvu frá því í desember. Hann
er að reyna að komast hjá því að
verða framseldur til Þýskalands þar
sem hann hefur verið ákærður fyrir
að fyriskipa landamæravörðum að
skjóta á fólk sem reyndi að flýja til
Vestur-Þýskalands fyrir sameiningu
þýsku ríkjanna.
Edmundo Vargas, settur utanrík-
isráðherra Chile, sagði í sjónvarps-
viðtali að ekkert væri því til fyrir-
stöðu að Honecker kæmi til landsins
ef hann fengi leyfi rússneskra stjórn-
valda til þess. Hann sagði þó ekki
koma til greina að Honecker fengi
hæli í Chile sem pólitískur flóttamað-
ur. Stjórn Chile væri aðeins umhug-
að um að Honecker fengi nauðsyn-
lega læknisaðhlynningu, en hann er
sagður þjást af krabbameini.
Dieter Vogel, talsmaður þýsku
stjórnarinnar, sagði aðspurður um
ummæli Vargas að Þjóðverjar
myndu áfram beita sér fyrir því að
Honecker yrði framseldur til Þýska-
lands.
Klofningur í
írsku stjórninni
Dublin. Reuter.
ALBERT Reynolds, forsætisráð-
herra írlands, stóð frammi fyrir
klofningi innan samsteypustjórnar
sinnar vegna hæstaréttarúrskurðar
um að 14 ára gömu! stúlka, sem
varð þunguð eftir nauðgun, fengi
ekki að fara til Bretlands í fóstureyð-
ingu. Þingmenn Framfarasinnaðra
demókrata, sem mynda stjórnina
með flokki Reynolds, Fianna Fail,
hafa krafist þess að forsætisráðherr-
ann efni til þjóðaratkvæðagreiðslu
um hvort breyta eigi ákvæði stjórn-
arskrárinnar um algjört bann við
fóstureyðingum. Reynolds mun treg-
ur til að leggja málið undir þjóðarat-
kvæði.
Forkosningarnar í New Hampshire:
Minnsta fylgi sitjandi
forseta frá árinu 1976
Paul Tsongas hlutskarpastur frambjóðenda demókrata
Boston. Frá Karli Blöndal, fréttaritara Morgunblaðsins.
ÍBÚAR í New Hampshire létu í ljós óánægju sína með frammmistöðu
George Bush Bandaríkjaforseta í embætti í forkosningunum sem haldn-
ar voru á þriðjudag. Patrick Buchanan, sem sækist eftir því á móti
Bush að verða kjörinn forsetaefni Repúblíkanaflokksins fékk 40 pró-
sent atkvæða en Bush 58 prósent. Paul Tsongas var hlutskarpastur
frambjóðenda demókrata, Bill Clinton, ríkissljóri í Arkansas annar
og Bob Kerrey, þingmaður frá Nebraska, þriðji.
Sitjandi forseti hefur ekki farið
jafn illa út úr prófkjöri í New Hamps-
hire frá því að Gerald Ford sigraði
Ronald Reagan með aðeins eins þró-
sents mun árið 1976. Buchanan
skoraði á kjósendur í New Hamps-
hire, sem greiddu götu Bush í Hvíta
húsið í prófkjöri árið 1988 eftir að
hann hafði orðið þriðji í Iowa, að
láta óánægju sína með forsetann í
ljósi með atkvæði sínu. Þegar úrslit
voru ljós sagði Buchanan að her-
deildir sínar hefðu tekist á við sveit-
ir „Georgs konungs sem eru á und-
anhaldi." Framboð sitt hefði í upp-
hafi verið „lítil upreisn" én væri nú
orðið að „allsheijar byltingu".
Skoðanakannanir, sem gerðar
voru við kjörstaði, bentu þó til þess
að fylgi Buchanans væri fremur
sprottið af óánægju með efnahags-
ástandið en stuðning við hugmynda-
fræði þá sem Buchanan sagði að
unnið hefði sigur í „byltingunni" á
þriðjudag.
Bush kom ekki sjálfur fram á
þriðjudagskvöld en í yfirlýsingu sem
gefin var út í Hvíta húsinu kvaðst
hann himinlifandi yfir því að hafa
borið sigur úr býtum um leið og
hann viðurkenndi að úrslitin hefðu
ekki verið eins og hann hefði kosið.
„Það var sýnu mjórra á munum í
þessum kosningum en margir höfðu
spáð ,“ sagði í yfirlýsingunni. „Ég
hygg að andstæðingar mínir í báðum
fylkingum hafi nótið góðs af þeirri
óánægju sem ríkir vegna stöðu efna-
hagslífsins í New Hampshire. Ég
geri mér grein fyrir að þessi yfirlýs-
ing [kjósenda] er sprottin af
óánægju."
Bæði Buchanan sem er fulltrúi
hægri vængs repúblíkana og demó-
kratar hafa í kosningabaráttunni
gagnrýnt Bush harðlega fyrir
ástandið í bandarískum efnahags-
málum. Buchanan hamraði á því á
kosningafundum og í auglýsingum
að Bush hefði gengið á bak orða
sinna um að leggja ekki á nýja skatta
og kjósendur ættu að refsa hinum
fyrir það.
Það er almennt álit manna að
kosningabarátta Buchanans hafi
verið vel skipulögð en liðsmenn Bush
hafa viðurkennt að kosningabarátta
forsetans hafi verið dauf og litlaus.
Nánustu ráðgjafar Bush bjuggust
við því að hann fengi meira fylgi
og eiga líklega eftir að iðrast yfirlýs-
inga um að það yrði ósigur fyrir
forsetann fengi Buchanan meira en
35% atkvæða. Sitjandi forseti hefur
aldrei verið endurkjörinn þegar
áskorandi hans hefur fengið meira
en 35% atkvæða.
Stuðningsmenn Bush höfðu vonað
að Buchanan famaðist illa í New
Hampshire og að framboð hans
myndi smám saman fjara út þannig
að hann drægi sig til baka. En nú
er ljóst að áskorandinn frá hægri á
eftir að verða Bush óþægur Ijár í
þúfu. Um helmingur þeirra sem
greiddu atkvæði með Buchanan
kvaðst hafa farið í kjörklefann til
að lýsa yfir óánægju sinni með Bush.
En eftir þessi úrslit má vænta þess
að óánægjufylgi Buchanans breytist
í annað og meira.
Buchanan skoraði í gærmorgun á
Bush í kappræður og sagði að skor-
aðist forsetinn undan myndi það
jafngilda viðurkepningu um að
stefna hans hefði beðið skipbrot.
„Don Kíkóti“ hlutskarpastur
Paul Tsongas var líkt við Don
Kíkóta þegar hann hóf kosningabar-
áttu sína fyrstur demókrata þegar
allt lék f lyndi hjá Bush og enginn
annar áræddi að gefa kost á sér.
Tsongas fékk 34% atkvæða og var
sigri hrósandi þegar hann lýsti yfir
því í að í Hvíta húsinu mættu ráða-
menn fara að vara sig eftir að úr-
slit voru ljós á þriðjudagskvöld.
Tsongas er frá Massachusetts sem
er nágrannaríki New Hampshire og
hafa andstæðingar hans úr röðum
demókrata sagt að hann hafi notið
góðs af því að vera „þekkt andlit"
á heimaslóðum. Þeir spá því að
Tsongas eigi ekki eftir að vegna
jafn vel þegar hann þarf að heyja
kosningabaráttu í ríkjum þar sem
kjósendur eru honum lítt kunnir.
Tsongas kvaðst þess hins vegar full-
viss að sigurinn í New Hampshire
myndi gefa sér byr undir báða vængi
annars staðar. Tsongas sagði einnig
að hann ætlaði ekki að laða til sín
kjósendur með fagurgala. Banda-
ríkjamenn hefðu ekki efni á því að
lækka skatta á meðan fjárlagahall-
inn væri að ríða efnahagrfum á slig.
„Ég er boðberi sannleikans, ekki
jólasveinninn," sagði Tsongas.
Patrick Buchanan fagnar eftir forkosningarnar í gær.
Paul Tsongas hrósar sigri.
George Bush
Clinton fékk 26% atkvæða og sax-
aði samkvæmt skoðanakönnum, sem
teknar voru fyrir kosningamar, tals-
vert á forskot Tsongas. Fréttaský-
rendur eru þeirrar hyggju að þessi
úrslit sýni að Clinton hafi tekist að
standa af sér ásakanir um framhjá-
hald og tilraunir til að víkja sér
undan herþjónustu í Víetnam. Viku
fyrir kosningarnar höfðu ýmsir lýst
því yfir að Clinton væri búinn að
vera vegna þessara ásakana. Aðeins
sex prósent kjósenda sögðu að þess-
ar ásakanir hefðu haft áhrif á at-
kvæði þeirra. Clinton, sem var talinn
sigurstranglegastur demókratanna
áður en ásakanirnar komu fram
túlkaði frammistöðu sína sem sigur.
Hann sagði eðlilegt að Tsongas ynni
á heimaslóðum en dæmið myndi
snúast við þegar kosningabaráttan
færðist suður á bóginn.
Samkvæmt kosningareglum í
New Hampshire leyfist kjósendum
að skrifa nafn manna á kjörseðilinn
þótt þeir hafi ekki gefið kost á sér.
Hart var lagt að Mario Cuomo, ríkis-
stjóra New York, að gefa kost á sér
en hann skoraðist undan á síðustu
stundu. Stuðningsmenn Cuomos í
New Hampshire skoruðu á kjósend-
ur að skrifa nafn hans á kjörseðilinn
engu að síður og spáðu ýmsir því
að þetta frumkvæði gæti skipt máli
í forkosningunum. Sjálfur vildi
Cuomo ekki letja stuðningsmenn
sína. Þegar upp var staðið fékk
Cuomo aðeins þijú prósent atkvæða
og þykir sýnt að þar með verði bund-
inn endi á allt tal um hann fari fram.
New Hampshire er fámennt ríki
og skiptir ekki sköpum í bandarísku
þjóðlífi nema á fjögurra ára fresti.
Allar götur frá 1952 hefur enginn
frambjóðandi orðið forseti án þess
að sigra í forkosningum í New
Hampshire. Gangi það eftir stendur
slagurinn nú á milli tveggja manna;
George Bush og Paul Tsongas.