Morgunblaðið - 20.02.1992, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 20.02.1992, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRUAR 1992 35 lagt mikla vinnu í að byggja upp menntun iðnaðarmanna. I seinni tíð hefur áherslan verið lögð á að efla meistaraskólann og væru margar ástæður fyrir nauðsyn á bættu meistaranámi. Meistaranám fyrir múrara og trésmiði var komið á um 1960 og pípulagningameist- arar 1979, rafvirkjar hafa verið mjög framarlega í menntun sinnar stéttar. Reglugerð um meistara- nám hefur nú tekið gildi í öllum iðngreinum sem þýðir að þeir sem lokið hafa sveinsprófi eftir 1. jan- úar 1989 þurfa að stunda slíkt nám til að fájneistarbréf. Meistaranámið „ Meistarnámið er þó enn of lít- ið og það er nánast óskipulagt fyr- ir allar aðrar greinar en byggingar- greinar,“ sagði Haraldur. „Að und- anförnu hefur aðal áherslan verið lögð í að koma meistaranáminu í eðlilegt form. Það gengur ekki nógu vel. Menntamálaráðuneytið þarí að samþykkja breytingar og það gengur fátt hratt fyrir sig sem þarf að fara í gegnum mennta- málaráðuneytið, og virðist sama hver situr þar í ráðherrastóli. Þess- ar breytingar kalla þó ekki nauð- syniega á aukið ijármagn, heldur er fyrst og fremst um skipulags- mál að ræða. Við viljum skilgreina kröfur um það hvaða þekkingu menn eiga að hafa að loknu námi, en ekki nákvæmlega hvernig eigi að kenna þeim. Ein helsta ástæðan fyrir því að við leggjum áherslu á að efla meistarnámið er sú að í fagskóla okkar vantar kennslu í rekstrarfræðum. Við erum að út- skrifa fólk sem ætlar sér að reka fyrirtæki, en með núverandi menntun hafa þeir ekki nærri nóga þekkingu til þess að gera það.“ Iðnnám með þrennum hætti „Núverandi staða iðnmenntunar er óviðunandi,“ sagði Haraldur. „Menn ljúka iðnnámi með þrennum hætti: í fyrsta lagi með 4 ára námi tilkomu óþvegins sjávarsands. Hönnun húsa hefur mikið að segja, veggir húsa sem eru með þak- skeggi eru nokkuð vel varðir. Aftur á móti mæðir bæði regn og frost á opnum veggjum, og ef steypa í þeim er rakadræg molna þeir niður af veðrunarálagi. Sama gildir um svalahandrið. Um tíma ríkti sá byggingarstíll að steypan í veggj- um var ekki varin. Þessi stíll krefst þess að réttar kröfur verður að gera til samsetningar steypunnar. Steypukröfur í útboðslýsingum - Hákon var spurður hvort slíkar kröfur væru gerðar. „Jú, svaraði hann, „Þar sem verulega á að vanda til verks eru gerðar sérstakar útboðslýsingar, eins og t.d. fyrir virkjanir, brýr og önnur mannvirki. í þeim eru ákvæði sem tryggja eiga langvarandi end- ingu jafnvel við hið mesta álag. Þessi ákvæði varða loftblendi, se- mentsmagn og vatnsmagn. Varðandi venjulegar húsbygg- ingar, þar sem ekki eru gerð sér- stök útboðsgöng, virðast menn oft ekki gera sér grein fyrir gæðamun á byggingum, eða hvaða kröfur þarf að gera til steypunnar. Hönnuðir nýta sér ekki leiðbeiningar Við gáfum út, fyrir löngu síðan, leiðbeiningarblöð um kröfur sem gera þarf tll steypu sem verður fyrir miklu álagi. Hönnuðir notuðu sér ekki þessar leiðbeiningar í nógu miklum mæli. Það eru hönnuðurnir eða verkfræðingarnir sem eiga að segja til um það hvaða kröfur þarf að gera til steypunnar og það á að standa á teikningunum. Það eru þeir sem reikna út burðarþolið mið- að við einhvern ákveðinn styrkieika og það hafa þeir oft látið duga, en styrkur tryggir ekki veðrunarþolið. Auk þess þarf að gera kröfur um ákveðnar prósentur af lofti og há- hjá meistara og eru í skóla þijá mánuði á ári, - í öðru lagi með svokallaðri grunndeild í einn vetur og eru síðan þijú ár hjá meistara, - í þriðja lagi geta þeir lært iðnina í skóla eingöngu en með starfs- þjálfun á eftir sem oftast tekur 18 mánuði, en er þó mislöng eftir iðn- greinum. Síðan eiga menn að vinna í iðngreininni í tvö ár. Hér áður fyrr gátu menn fengið meistara- bréf eftir þessi tvö ár. Nú eiga þeir að fara í meistaraskólann. Skólinn er einn og hálfan vetur og fer kennslan fram eftir klukkan fjögur á daginn. Okkur finnst þeir vera of stutt á veg komnir eftir námið í meistaraskólanum miðað við þær kröfur sem til þeirra eru gerðar. Til dæmis verða menn að sitja í tvö ár í undirbúningsdeild í Tækniskólanum til að komast inn í tækninám. Við teljum að það þurfi að vera það mikið nám að baki meistaragráðu að það opni mönnum leið ekki aðeins að Tækni- skólanum heldur einnig að hvaða háskóla sem er, ef menn vilja halda námi áfram. Breyttar áherslur í iðnnámi „Fyrir nokkrum árum voru sett- ar fram kröfur um meira bóklegt nám og var það bætt dálítið, síðan komu kröfur um meira verklegt nám og var það aukið á kostnað bóknámsins. Verkleg kennsla er nú betri en áður, en bóklega nám- ið er minna en það áður var. Náms- tíminn var ekki lengdur. Við höfum vilja auka kröfurnar í Iðnskólanum og í fjölbrautaskólum sem bjóða upp á iðnnám. Þetta þýðir miklar breytingar á þessu námi. Skóla- menn segja að nemendurnir komi ekki nægjanlega vel undirbúnir úr grunnskólanum og mun ver en fyr- ir nokkrum árum síðan. Kennarar meistaraskóla segja að nemendur komi ekki nógu vel undibúnir úr iðnnámi. Við höfum velt fyrir okk- ur möguleika á að lengja iðnnámið til að mæta þessum kröfum eða marks vatni í steypunni til að tryggja veðrunarþolið. Ef þær vantar er hæpið að steypan verði vel veðrunarþolin. Hönnuðir slepptu oft þessum þáttum í hönnun íbúðarhúsa, af þeim ástæðum voru árið 1987 sett- ar kröfur í byggingarreglugerð um að útisteypa uppfyllti ákveðin skil- yrði. Að steypa í frosti - Við sjáum oft að hús eru steypt í frosti. Er það óhætt? „Það er hægt að steypa í hvaða frosti sem er, ef tryggt er að steyp- an fijósi ekki. Til þess að tryggja það verða þeir sem ætla að steypa í frosti að hafa góðan útbúnað. Þeir verða að vera með heita steypu, þeir verða að hita mótin alveg sérstaklega áður en steyp- unni er hellt í þau. Síðan verða þeir að vera með einangrunarmott- ur tilbúnar til að rúlla yfir steypuna um leið og hún hefur verið lögð. Sérhæfð fyrirtæki á þessu sviði geta gert þetta. En fyrir þá sem eru með lítinn útbúnað býður upp- steypa í frosti upp á mikil vanda- mál. Eftirlit á byggingarstað - Hvernig er eftirliti háttað á byggingarstað? „Eftirlitið á byggingarstað er mismunandi. Byggingafuiltrúinn eða fulltrúi hans tekur út ákveðna þætti, svq sem járnalögn í öllum húsum. Varðandi steypugæði eða meðferð steypunnar á byggingar- stað er eftirlit mun minna. Eftirlit okkar takmarkast við steypuframleiðenduma. Við förum á byggingarstað og gerum mæling- ar sé þess óskað. Ef steypu- kaupandinn vill tryggja sig, þá er slíkt eftirlit sett í verksamning eða útboðsgögn og þá förum við á byggingarstað og tökum sýni. taka upp aðfaranám að iðnnámi. Auknar kröfur umdeildar „Meðal iðnaðarmanna eru mjög skiptar skoðanir á þessum málum. Menn eru hræddir við að lengja námið, þeir telja að með auknum kröfum sé verið að hrekja nemend- ur frá iðnnámi. Ég tel það ekki vera rétt. Menn vilja fá góða undir- stöðumenntun ekki síður í iðnnámi en öðrum greinum. íslendingar munu fara inn í mikla samkeppni ef og þegar Evr- ópska efnahagssvæðið opnast. Með því verður búið að opna hér fyrir ennþá harðari samkeppni en við höfum áður þekkt og við verðum að undirbúa okkar iðnað undir hana. Þessvegna er það höfuðatriði að menn hafi þekkingu á því sem er að gerast nýjast og best. Sumar iðngreinar fylgjast vel með og leggja í það fjármuni, má þar nefna málmiðnaðinn. Aðrir eru skemmra á veg komnir eins og byggingariðn- aðurinn. Hins vegar hafa þeir aðil- ar sem koma hér að byggingariðn- aðinum, komið á fót gæðaráði byggingariðnaðarins sem á að sjá um gæðaeftirlit í byggingariðnaði eins og þekkt er víða erlendis. Þarna er verið að reyna að byggja upp skipulegt byggingareftirlit með nýjum hætti.“ Orð til umhugsunar - Áttu góð ráð að lokum? „Ég held að hér þurfi að koma til breyttur hugsunargangur hvað alla gagnrýni snertir," sagði Har- aldur. „Ég tel ekki sanngjarnt að nútíminn sé skammaður fyrir fortíðina. Við iðnaðarmenn erum þannig settir að við eigum mjög mikið undir þeim menntamönnum komið sem eiga að leiða Jiróunina. Ég vil líka benda á að við Islending- ar eru alltof gjarnir á að líta á húsbyggingar sem einhvers konar heimilisiðnað sem allir geti stund- að. Það hefur orðið mörgum dýrt.“ M. Þorv. Framfarir í steypugerð Undanfarin ár hefur orðið mikil framþróun í steypugerð. Komist var fyrir alkaliskemmdir 1979 m.a. með íblöndun kísilryks í sementið. Árið 1987 voru hertar reglur í byggingareglugerð og steypunni deilt í veðrunarflokka. Eftirlit með framleiðslunni var hert verulega, bæði með sementi, fylliefni og steypunni hjá steypustöðvum. Eft- irlit með steypuframleiðslu hefur verið í góðu lagi síðastliðin þijú ár. Eftirlitið byggist á sérstöku innra eftirliti hvers steypuframleiðanda. Hann ræður mann til þess að fylgj- ast með öllum þáttum steypugerð- arinnar og mælir hann daglega marga þætti í steypunni. Gerður er samningur á milli Rannsókna- stofnunar byggingariðnaðarins og steypuframleiðandans um eftirlit með innra eftirliti framleiðandans, og er eftirlitið hér fólgið í því að kanna hvort gæði steypunnar séu í lagi. Gerðar eru samanburðar- mælingar og þær bornar saman við niðurstöður frá framleiðanda. Skýrsla er gerð ársfjórðungslega um framleiðslu viðkomandi steypu- stöðvar og send byggingafulltrúa. Bygging mannvirkis er flókið ferli Sá þáttur sem e.t.v. minnst hef- ur verið tekið á, er eftirlit með framkvæmdinni á byggingarstað, en hann er mjög mikilvægur. Ástandið hefur án efa batnað veru- lega undanfarin ár í kjölfar um- ræðu um gæði, með hertu eftirliti byggingafulltrúa og auknu fram- boði á námsskeiðum fyrir þá aðila sem vinna við steypugerð og niður- lögn steypu. Þróunin hefur verið mjög jákvæð. En það er ljóst, að það verða óhjákvæmilega ætíð fyr- ir hendi einhveijir gallar í bygging- ariðnaði, hjá því verður ekki kom- ist. Þetta er flókið framleiðsluferli og margir aðilar sem koma við sögu. M. Þorv. __________Brids_____________ Umsjón Arnór Ragnarsson Bridsfélag Hvolsvallar og nágrennis Starfsemi hófst með aðalfundi og léttri spilamennsku 30. september. Þriggja kvölda tvímenningur hófst 2. október með þátttöku 12 para og lauk honum 22. október og varð röð efstu para þessi: Vilhjámur Pálsson - Gunnar Ásmundsson 369 Óskar Pálsson - Kjartan Aðalbjömsson 368 Magnús Bjamason - Guðmundur Jónsson 362 Haukur Baldvinsson - Brynjólfur Jónsson 352 Magnús Halldórsson - Gunnar Eyjólfsson 351 29. október hófst sveitakeppni, 12 spila leikir, með þátttöku 6 sveita. Henni lauk 12. nóvember og urðu úrslit þessi: Sveit: Ólafs Ólafssonar 101 Óskars Pálssonar 91 Guðmundar Magnússonar 73 Auk Ólafs eru í sveitinni Magnús Bjarnason, Guðjón Þórarinsson og Guðmundur Jónsson. 19. nóvember hófst 4 kvölda tví- menningur með 12 pörum. Honum lauk 10. desember og varð röð efstu para þessi: 1. Óskar Pálsson - Kjartan Aðalbjömsson 493 2.-3. Kristján Hálfdánarson - Árni Þorgilsson 466 2.-3. Brynjól fur Jónss. - Haukur Baldvinss. 466 4. Elsa Isfold — Helgi Valberg _ 453 5. Magnús Bjamason - Ólafur Ólafsson 448 22. nóvember var spilaður landství- menningur ásamt félögum úr Bridsfé- lagi Eyfellinga, með þátttöku 16 para. Sigurvegarar urðu: A - V Kristján Mikkelsen - Halldór Gunnarsson 1678 Guðjón Þórarinsson - Guðmundur Jónsson 1572 Helgi Hermannsson - Kjartan Jóhannsson 1568 N — S Haukur Baldvinsson - Brynjólfur Jónsson 1470 Kristjana Einarsdóttir - Sigríður Einarsdóttir 1446 Vilhjálmur Pálsson - Guðmundur Magnússon 1427 24. nóvember var spilað við bridsfé- lag Hreyfils á 7 borðum á Hvolsvelli og fóru leikar þannig, að Hreyfíll vann með 121 stigi gegn 86. 28. desember var spilaður KR-tví- menningur, en Kaupfélag Rangæinga gefur vegleg verðlaun til þess móts, sem haldið er árlega og er það fyrir spilara innan sýslunnar. 26 pör kepptu, og urðu úrslit þessi: Ingibjörjg Þorgjlsdóttir—Jóhann Kjartansson 129 ÓlafurOlafsson-MagnúsBjamason 119 Siguijón Karlsson - Heimir Hálfdánarson 101 TorfiJónsson-JónÞorkelsson 82 Helgi Hermannsson - Kjartan Jóhannsson 72 14. janúar hófst aðalsveitakeppni félagsins með þátttöku 6 sveita. Spiluð er tvöföld umferð, 24 spila leikir. Þeg- ar keppnin er hálfnuð er staða efstu sveita þessi: Sveit: Óskars Pálssonar 92 Sigurðar Bergssonar 88 Ólafs Ólafssonar 87 Vetrar-Mitehell Bridssambandsins Góð þátttaka var í tvímenningnum sl. föstudag. Alls mættu 28 pör en þess má geta að á þessum tíma stóð Bridshátíð sem hæst. Hæsta skor í n/s: Valdimar Elíasson - Óli Bjöm Gunnarsson 394 EyþórHauksson-BjömSvavarsson 355 Bjöm Amórsson - Kristín Guðbjömsdóttir 338 Hólmsteinn Arason - Eyjólfur Magnússon 355 Hæsta skor í a/v. Guðmundur Þórðareon - Leifur Jóhannesson 367 MagnúsSven-isson-GuðjónJónsson 357 Jóhannes Ágústsson - Friðrik Friðriksson 352 Erlendur Jónsson - Guðlaugur Sveinsson 341 Bridsfélag Kópavogs Mikil spenna færðist aftur í sveita- keppnina þegar sveit Valdimars vann sveit Ármanns í 10. umferð. Staðan: yaldimar Sveinsson 178 Ármann J. Lárusson 178 Hjálmtýr Baldursson 173 Ragnar Jónsson 169 Guðmundur Pálsson 167 Magnús Aspelund 164 Stefán R. Jónsson 160 í 11. umferð spila saman m.a. Ár- mann og Hjálmtýr, Valdimar og Ragn- ar, Guðmundur og Magnús og Stefán og Jón Steinar. Ekki sést fyrr en að lokinni 11. umferð hveijir spila saman í lokaumferðinni. Bridsfélag Eskifjarðar og Reyðarfjarðar Þriðjudaginn 11. febrúar var spiluð fjórða umferð í aðalsveitakeppni fé- lagsins. Úrslit urðu eftirfarandi: 5. umferð: Eskfirðingur-JóhannÞórarinsson 21:9 Kokteill - Ámi Guðmundsson 22:8 Svala Vignisdóttir - Óttar Guðmundsson 25:4 Jónas Jónsson - Aðalsteinn Jónsson 20:10 Staðan eftir 5 umferðir: -Sv. Kokteils 117 Sv.JónasarJónssonar 93 Sv. AðalsteinsJónssonar 92 Sv. Áma Guðmundssonar 85 Sv.JóhannsÞórarinssonar 63 /''"Nf / ) JLs • • SLYS A BORNUM FORVARNIR FYRSTA HJÁLP SNÚUM VÖRN í SÓKN OG FORDUM BÖRNUM OKKAR FRÁ SLYSUM Rauði kross íslands gengst fyrir tveggja kvölda námskeiði um algengustu slys á bömum, hvemig bregðast á við slysum og hvemig koma má í veg fyrir þau. Námskeiðið fer fram að Hótel Lind, Rauðarárstíg 18, Reykjavík dagana 24. og 25. febrúar n.k. kl. 20 - 23. Skráning og nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu RKÍ í síma 91-26722 fyrir kl. 12 mánudaginn 24. febrúar. I FRÆÐSLUMIÐSTÖÐ RAUÐA KROSS ÍSLANDS Rauðarárstíg 18 - Reykjavík - sími: 91-26722

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.