Morgunblaðið - 20.02.1992, Side 40
40
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1992
félk í
fréttum
Morgunblaðið/Alfons
Bðrnin sitja að snæðingi á afmælisdegi skólans ásamt elsta starfsmanninum, Kristínu Kristinsdóttur.
TIMAMOT
á Hard Rock Café
í kvöld kl. 23-1
HARD ROCIi CAFE - S. 689888
í kvöld kl. 21
TISKUSYNING
20 ára afmæli leikskóla fagnað
Um miðjan febrúar voru liðin
20 ár frá stofnun fyrsta leik-
skóla Ólafsvíkur. Stofnendur leik-
skólans var Kvenfélag Ólafsvíkur
sem rak hann tvö fyrstu árin, en
þá tók Ólafsvíkurbær við rekstri
skólans. Sex fyrstu starfsár leik-
skólans var hann til húsa í gamla
félagsheimilinu og var Gréta Jó-
hannesdóttir fyrsta forstöðukona
hans. Alla tíð hefur Kvenfélag Ól-
afsvíkur hugsað vel til skólans og
meðal annars veitt leikskólanum
peningagjafir.
Fyrir 14 árum var byggður nýr
tveggja deilda 262 fm leikskóli. Á
leikskólanum eru 68 börn og er
biðlisti eftir inngöngu í skólann.
AIls starfa þar 10 konur. Kristín
Kristinsdóttir hefur haldið tryggð
sinni við leikskólann og hefur starf-
að þar í alls 19 ár. Núverandi for-
stöðukona leikskólans er Jónína
Þorgrímsdóttir.
I tilefni afmælisins var opið hús
og var aðsókn mjög góð og komu
um 100 manns til þess að njóta
veitinga og skoða starfsemi skól-
ans.
- Alfons
Steinunn Jónsdóttir,
fatahönnuður sýnir í
Naustkjallaranum.
Hárgreiðslustofan €Ila
Dunhaga 23
Skreytingar frá
BERGÍS hf.
sýna
NAUSTKJALLARm
KEPPNI
Ljóða- og smásagna-
samkeppni grunnskóla
Félagsmiðstöðin Tónabær stóð
fyrir ljóða- og smásagnasam-
keppni nýlega og tóku Álftamýra-
skóli, Hlíðaskóli, Tjarnarskóli,
Laugalækjarskóli, Hvassaleitisskóli
og Æfinga- og tilraunaskóli Kenn-
araháskóla íslands þátt í keppninni
en tilgangur hennar var að auka
áhuga unglinga fyrir skrifum.
Dómnefnd var skipuð Þórarni
Eldjárn, Sjón og Soffíu Ófeigsdótt-
ur. Alls bárust 97 ljóð og 17 smá-
sögur í keppnina og bókaforlögin
Iðunn, Vaka-Helgafell og Mál og
menning gáfu þeim sem urðu í 1.,
2. og 3. sæti í hverri keppnisgrein
vegleg verðlaun.
Sigurvegari ljóðakeppninnar var
Jónína Ósk Lárusdóttir úr Lauga-
lækjarskóla með Ijóðið Vestmanna-
eyjar. Í öðru sæti varð Gísli Jónsson
úr Tjarnarskóla með ljóðið Lífið og
í þriðja sæti varð Dröfn Ösp Snorra-
dóttir, einnig úr Tjamarskóla, með
ljóðið Sjónvarpsgláp. Sigurvegarar
í smásagnakeppninni voru allir úr
Æfinga- og tilraunaskóla Kennara-
háskólans. Vigdís Þormóðsdóttir
varð í fyrsta sæti með söguna Sam-
viskan mín dansar steppdans í
tungsljósinu. í öðru sæti urðu Æsa
Bjarnadóttir og Stefanía Bjarna-
dóttir með söguna Kattarlíf og í
þriðja sæti varð Jóhannes Hólm
með söguna Næst þegar mánin
skín hæst munt þú deyja.
Jónína Ósk Lárusdóttir varð í
fyrsta sæti ljóðakeppninnar.
Dröfn Ösp Snorradóttir, sem varð í þriðja sæti ljóðakeppninnar, og
Gísli Jónsson, sem varð í öðru sæti.
COSPER
Börnin eru hér öll, meira að segja einum of mörg.
Verðhrun
Allt að 70% afsláttur
Lækkum vörur okkur enn meirn
íþróffaskór - ulpur - samfestingar o.m.f I.
Dæmi um verö:
Áður kr.: Nú kr.:
Barnaúlpa 5.995,- 2.995,-
Lutha jakki 15.900,- 5.990,-
Lutha úlpa 18.290,- 5.990,-
Fullorðinsúlpa 8.990,- 4.990,-
Lutha samfestingur 22.900,- 10.990,-
Opið frá kl. 10-14
laugardag
»hummel^
SPORTBÚÐIN
Ármúla 40, sími 813555