Morgunblaðið - 20.02.1992, Síða 51

Morgunblaðið - 20.02.1992, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR FIMMTUDAGUR 20. FEBRUAR 1992 51 Ómar Jóhanrtsson skrifar HANDKNATTLEIKUR / ISLANDSMOTIÐ AuðveH hjáKA KA vann auðveldan sigur, 20:28, á HK í 1. deild íslands- mótsins í Kópavogi í gærkvöld. Yfirburðir KA voru miklir og leikurinn því hvorki skemmti- legur né spennandi. I^A sló HK út af laginu strax á fyrstu mínútu leiksins og hafði um miðjan hálfleikinn náð sjö marka forskoti, 5:12. Norðan- menn bættu um bet- ur og höfðu 10 marka forystu í leikhléi, 8:18. í fyrri hálfleik spiluðu KA- menn mjög öfluga vörn og áttu HK-menn í hinum mestu vandræð- um með að finna glufur á henni. Þau fáu skot sem sluppu í gegn varði Axel Stefánsson markvörður KA. Sami munur á liðunum hélst síð- an í síðari hálfleik og sigri KA var aldrei ógnað. „Við náðum að bijóta þá niður í upphafi með sterkum vamarleik og fengum mörg hraðaupphlaup eftir að hafa unnið af þeim bolt- ann,“ sagði Alfreð Gíslason, þjálf- ari og leikmaður KA, eftir sigur- inn. „í síðari hálfleik var þetta aðeins spuming um að halda haus, það tókst og ég er ánægður með það. Ég átti von á HK-mönnum frískari í vetur, sérstaklega eftir góða byijun í mótinu, en þeir virð- ast hafa misst trúna á sjálfa sig og þá vantar sigurvilja." Sigurpáll Árni, Erlingur og Stef- án Kristjánsson voru bestu menn KA, en Óskar Elvar og Bjarni Frostason bám af hjá HK. Stefán Stefánsson skrifar Breiðablik fallið FRAM sendi Breiðablik niður í 2. deild með tilþrifum í gær- kvöldi með 24:13 sigri í Laugar- dalshöllinni þar sem aðalatrið- ið var ekki að sigra heldur gera helmingi fleiri mörk en Blikar. Cramarar voru mun ákveðnari * alveg frá byijun, léku hraðan sóknarleik og ef Blikar nálguðust vörnina var tekið á þeim. Aftur á móti gekk hvorki né rak hjá , Kópavog- spiltunum þótt þeir reyndu margar útgáfur af sóknar- leik. Fram náði samt aldrei að stinga almennilega af og Blikar náðu sér aðeins á strik eftir tutt- ugu mínútur þegar þeir minnkuðu muninn niður í þijú mörk. Fram gerði samt þijú síðustu mörkin fyrir hlé, þar af tvö eftir hraðaupp- hlaup. Breiðablik rétti aðeins úr kútn- um eftir hlé en það dugði ekki til því Fram klippti á sóknarleik þeirra með „indíána“ fyrir framan vörnina. Fram hélt svo áfram að raða inn mörkum, náði mest í tólf marka mun, og keppti að því að ná helmingi fleiri og náði því næst- um, því mótstaðan var ákaflega lítil. Frammarar voru snöggir, sterk- ir og góðir í þessum leik en mega ekki ofmetnast því mótstaðan var mjög lítil. Markverðirnir Þór Björnsson og Sigurður Þoivalds- son vörðu vel, Páll Þórólfsson fór á kostum og Ragnar Kristjánsson var góður í vörninni. Gunnar Andr- ésson var góður framanaf en fékk högg á lærið og fór þá útaf. Þórir Sigurgeirsson stóð uppúr í Breiðabliksliðinu og Björgvin Björgvinsson og Ingi Þór Guð- mundsson áttu góða kafla. Vörnin var oft ágæt en sóknarleikinn þarf að brýna rækilega. Þjálfarar kljást! Stefán Arnarson lék sóknarieikinn vel fyrir Gróttu f gærkvöldi, en hér sér Kristján Arason við honum. Morgunblaðið/KGA FH slapp fyrir hom IHF sæti í höfn, en gott lið Gróttu þarf að leika um sæti í deildinni FH tryggði sér deildarmeistaratitilinn í ár og þátttökurétt í Evr- ópukeppni félagsliða, IHF-keppninni, næsta haust með tveggja marka sigri, 21:19, gegn Gróttu á Seltjarnarnesi í gærkvöldi. FH-ingar voru samt við sama heygarðshornið og gegn Víkingi á sunnudaginn, en Kristján Arason gerði gæfumuninn með því að taka þátt í sóknarleiknum í seinni hálfleik. Grótta lék mjög vel og gat alveg eins sigrað, en leikmennirnir geta sjálfum sér um kennt — misstu boltann allt of oft, einkum í fyrri hálfleik — og svo verður að segjast eins og er að dómararnir, sem hafa stað- ið sig vel í vetur, dæmdu oft furðulega á kostnað heimamanna. Steinþór Guðbjartsson skrifar Grótta kom greinilega til leiks með sama hugarfari og frá áramótum — að beijast og sigra. Alexander Revine gaf tóninn með því að veija fyrsta skot- ið og hann átti eftir að reynast FH-ing- um erfiður ljár í þúfu. Vörnin var hreyfanleg og samstíga, en sóknar- leikurinn, sem var lengst af árang- ursríkur, var afleitur á sex mínútna kafla um miðjan fyrri hálfleik og það var vendipunktur leiksins. FH- ingar gerðu fimm mörk í röð eftir hraðaupphlaup og breyttu stöðunni úr 4:2 í 4:7 sér í vil. Grótta sýndi mikinn styrk með því að jafna fyrir hlé, en komst ekki lengra. FH-ingar geta munað sinn fífil fegri. Markvarslan var að vísu góð hjá Bergsveini Bergsveinssyni, en vörnin var illa á verði og í fyrri hálfleik var sóknin ómarkviss og tilviljunarkennd, átta af 10 mörkum ’komu eftir hraðaupphlaup. „Þetta leit illa út í hálfleik," sagði Kristján Arason, þjálfari og leikmaður FH, við Morgunblaðið. „Við höfum ekki leikið eins lélegan sóknarleik og í fyrri hálfleik og því var ég með eftir hlé til að róa spilið og skipu- ieggja — og þetta hafðist." Þáttur dómaranna Herslumuninn vantaði hjá Gróttu til að gera vonir FH að engu, en ótímabær skot og klaufaskapur reyndust dýrkeypt. Og sumir dóm- amir gegn Gróttu orkuðu tvímælis. I stöðunni 3:2 var boltinn í þrígang dæmdur af liðinu; í byijun seinni hálfleiks fengu FH-ingar tvö víta- köst á silfurfati og náðu tveggja marka forystu; í stöðunni 15:13 fyrir FH náði Stefán Arnarson bolt- anum löglega af FH-ingum, en gestunum var dæmdur boltinn. Það segir sína sögu að Björn Pétursson, þessi annars dagfarsprúði maður, mótmælti kröftuglega á þessari stundu — og fékk að sjá gula spjald- ið. í þar næstu sókn var Gróttu reyndar bættur skaðinn, en fyrri leikur var endurtekinn, þegar fjórar mínútur voru til leiksloka og Grótta marki undir. Grótta sýndi enn einu sinni að liðið á heima í 1. deild, en staða liðsins leiðir hugann að þeirri undar- legu reglu að þriðja neðsta lið deild- arinnar þurfí að leika um sæti, þeg- ar tvö falla. En með sama áfram- haldi þurfa Seltirningar ekki að örvænta. Mikið álag FH-ingar voru ekki sannfærandi og misstu auk þess Hálfdán Þórðar- son og Þorgils Óttar Mathiesen meidda af velli. Vörnin var götótt og Sigurður Sveinsson verður að . hugsa sinn gang — var hættuleg-a grófur á stundum. „Það var mikið álag á okkur,“ sagði Kristján. „Við höfum leitt deildina lengst af í vet- ur, en misstum sjálfstraustið í seinni hálfleik gegn Víkingi og það bætti ekki ástandið. Grótta lék vel, en sigurinn léttir álagið og fyrir vikið komum við betur undirbúnir í bikar- úrslitaleikinn." Dýrmætur sigur Vais VALSMENN náðu að leggja Haukaað velli, 29:28, íleiksem bauð upp á spennu og mistök. Leikmenn liðanna gerðu mörg mistök, en þeir sem gerðu tvenn mestu mistök leiksins voru milliríkjadómararnir, Rögnvald Erlingsson og Stefán Arnarson. Fyrst þegar þeir ráku Sigurjón Sigurðsson, Haukum, af leikvelli eftir 22 mín. og síðan þegar þeir dæmdu vítakast á Valsmenn á lokasek. leiksins. Guðmundur Hrafnkelsson gerði sér þá lítið fyrir og varði lélegt vítakast Páls Ólafssonar, besta manns vallar- ins, og tryggði Valsmönnum sigurinn. Þeir fögnuðu geysilega, enda ekki nema von - þeir hafa enn möguleika á að taka þátt í úrslitakeppninni. Sigmundur Ó. Steinarsson skrifar Það var ótrúlegt að milliríkja- dómarar hafi fallið ofan í þá gryfju að sýna Siguijóni Sigurðs- syni rauða spjaldið, eftir að Jakob Sig- urðsson gerði til- raun til að skjótast fram hjá honum. Siguijón i líkamssnúningi, með hendur út til hliðar, en Jakob bú- inn að leggja undir sig höfuðið til að freistast til að skjótast framhjá Siguijóni. Andlit Jakobs skall á hönd Siguijóns, þegar hann sner- ist til varnar. Óheppni Siguijóns kostaði hann brottrekstur - hjá dómurum sem gátu ekki metið stöðuna rétt. Stefán mat stöðuna heldur ekki rétt undir lok leiksins og það gat hæglega kostað Valsmenn sigur- inn. Hann dæmdi vítakast á Vals- menn, eftir að Baumruk hafði fengið að skjóta óáreittur að marki Valsmanna - skot sem Guðmund- ur varði. Tíminn rann út og Vals- menn fögnuðu, en öllum til undr- unar dæmdi Stefán vítakast. V alsmenn höfðu frumkvæðið allan leikinn og voru komnir með sex marka forskot, 21:15, í upp- hafi seinni hálfleiksins, en þegar staðan var 23:17 kom spennufall í hið unga Valslið. Páll Ólafsson, besti maður Hauka, gekk á lagið og Þorlákur Kjartansson fór að veija í marki þeirra. Haukar náðu að minnka munninn í tvö mörk, 23:21, og jafna, 26:26 og 27:27. Valsmenn skoruðu tvö mörk, en Baumruk náði að minnka muninn, 29:28, þegar 2.11 mín. voru til leiksloka. Eftir það varð mikil spenna og mistök, en ekkert mark skorað. „Þetta var sætur sigur og við fengum tvö dýrmæt stig, sem gef- ur okkur von um að taka þátt í úrslitakeppninni," sagði Þorbjörn Jensson, þjálfari Valsmanna. Viggó Sigurðsson, þjálfari Hauka, var ekki eins ánægður. „Það er ekki hægt að vinna leik þegar dómararnir eru á móti okkur. Óll vafaatriði leiksins voru Valsmönn- um í hag.“ Mgóslavi ímarki KAnæstsf vetur? Búgóslavneskur markvörður S leikur að öllum líkindum með 1. deildarliði KA á Akur- eyri í handknattleik næsta vet- ur. Hann heitir Iztok Race, er á þrítugsaldri og hefur leikið með 1. deildarliði í Júgóslavíu. Race kom til Akureyrar fyrir skömmu og hefur æft með liðin undanfarið. Unnusta Race o, samlandi, Jasna Pavlovich, hef- ur dvalið á Akureyri í vetur og leikið með 1. deildarliði KA í blaki. Race lék á sínum tlma ungl- ingaiandsleiki fyrir Júgóslavíu, að sögn Alfreð Gíslasonar þjálf- ara KA. „Hann er góður mark- vörður,“ sagði Alfreð við Morg- unblaðið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.