Morgunblaðið - 27.02.1992, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. FEBRUAR 1992
29
Kyolic-hvítlaukur - Olöglegt holl-
efni vegna áfengisinnihalds?
eftir Ólaf Sigurðsson
Erlingur Sigurðsson, umboðs-
maður fyrir Kyolic-hvítlaukinn, rit-
ar í Velvakanda (Mbl. 28 jan.) svar
við gagnrýni undirritaðs á villandi
auglýsingar um hollustu Kyolics
(Mbl. 24. jan). Við lesturinn varð
ljóst að Erlingi var mikið niðri fyrir
þar sem hann gerði harða hríð að
mannorði mínu og naut þar aðstoð-
ar Davíðs Schevings Thorsteinsson-
ar. En fáu einu var svarað af gagn-
rýni minni á Kyolic öðru en því að
endurtaka þær fullyrðingar, sem
hafa þegar verið gagnrýndar (1).
Hefur umboðsmaðurinn því ekki
enn lagt fram viðurkennd gögn,
sem sýna fram á hollustu Kyolics.
Sjálfsagt er tilgangurinn m.a. að
veija fjárhagslega hagsmuni og
draga athyglina frá umræðunni í
grein minni um að Kyolic innihaldi
lítið af virkum efnum (2), nær 12%
alkóhól (3), sé í ólöglegum umbúð-
um (4) og að leit að viðurkenndum
rannsóknum um hollustu Kyolics
hafí ekki borið árangur (5).
Óstaðfestar fullyrðingar
gagnrýndar
í grein minni var stuðst við tölvu-
leit í alþjóðlegum gagnabanka
lækna og lyfjafræðinga (5). Einnig
leitaði ég álits prófessors og dós-
ents í lyfjafræði og sérfræðings í
áfengislækningum, sem taldi skorta
rannsóknir á áhrifum þess að neyta
daglega vöru með 11,8% alkóhóli.
Læknirinn undraðist að slíks skuli
ekki vera getið á umbúðum, svo
fólk hefði þó val. Þar sem þetta er
ólögleg vara má búast við vöruupp-
töku. I grein minni var ég einfald-
lega að benda á að margt í auglýs-
ingum um Kyolic stæðist ekki og
gerði grín að vitleysunni. En alvar-
an er sú, ef fólk er að leggja af
lýsisneyslu fyrir Kyolic þar sem
svipuð hollustuverkan er auglýst,
fyrir utan þá blekkingu, sem felst
í óstaðfestum fullyrðingum í aug-
lýsingum.
Leitað eftir gögnum um
hollustu Kyolics
í svargrein Erlings í Velvakanda
er þess hvergi getið að hann sé
umboðs- og sölumaður fyrir Kyolic.
Að vissu leyti hefur hann því villt
á sér heimildir og hefði ritstjóm átt
að gæta að þessu atriði.
Erlingur hefur svargrein sína á
því að draga í efa að ég sé matvæla-
fræðingur. Vissulega hefur orðið
„gengislækkun" á háskólafólki, en
vart verða prófgráðurnar aftur
teknar. Og varla snýst umræðan
um það hvort ég sé „marmelaði-
tæknir“ eða matvælafræðingur í
sultugerð, hvort ég hafi kynnt mig
eða ekki í símtali til Erlings, sagt
ósatt til um starf mitt, sé óheiðar-
legur eða hvað annað sem Erlingur
vænir mig um í svargrein sinni.
En Erlingur taldi grein mína
ekki fagmannlega unna, að ég færi
engin rök fyrir máli mínu, hafi ekki
leitað heimilda o.s.frv. En líklega
eru það einmitt vinnubrögðin sem
Erlingi gremjast þar sem ég leitaði
til hans um ný gögn frá „heimsráð-
stefnu um Kyolic" (sem haldin var
af bandarísku fyrirtæki (Nutrition
Int.) er hefur stundað rannsóknir
fyrir japanska lyfjafyrirtækið, sem
framleiðir og markaðssetur Kyolic).
Vegna anna yrði ég að hringja
seina, en Erlingur spurði svo hvort
ég notaði ekki Kyolic. Ég neitaði
því en sagðist stundum nota hvít-
lauk í mat og líkað vel. Sagði Erl-
ingur að „Kyolic væri betri en hrár“
og svo mætti taka hann í „mjög
stórum skömmtum án þes að verða
neitt meint af“. Væri hann líka
„mjög góður fyrir börnin". Þessu
var ekki greint frá í svargrein Erl-
ings.
Margur heimskur
háskólamaðurinn“
í seinna skiptið, er ég hringdi í
Erling, spurði hann hvort ég væri
sá sami sem skrifaði stundum í
blöðin. Játti ég því og að ég reyndi
jafnan að fá álit sérfræðinga áður
en greinarnar birtust en Erlingur
svaraði þá „... það er nú margur
heimskur háskólamaðurinn
Breyttist og viðmót Erlings eftir
þetta og neitaði hann mér um gögn-
in. Ég taldi að ef hann hefði gögn
um rannsóknir á fólki, sem stað-
festu hollustu Kyolics, ætti hann
einmitt að sýna þau, til þess væru
þau! Hann taldi að ég gæti verið
að skrifa fyrir samkeppnisaðila og
hafði heyrt að ég gerði slíkt. Ég
sagði að Davíð Scheving Thor-
steinsson hefði komið slíkum orð-
rómi af stað í Pressunni (18. júlí
’91), þar sem honum hefði mislíkað
gagnrýni mín á villandi auglýsingu
um seltzer-gosdrykkinn. I svargrein
Erlings var einhliða greint frá sam-
tölum okkar, því ef Erlingur hefði
t.d. spurt hvort ég væri sá, „... sem
hefði oft skrifað einkennilegar og
ofstækisfullar greinar í dagblöðin“
hefði ég líklega skellt á dónann.
Erlingur virðist fylgja sölustefnu
japanska lyfjafyrirtækisins sem
framleiðir m.a. Kyolic. Hún byggist
m.a. á því að bjóða eitthvað, sem
er bráðhollt, án allra óþæginda.
Danskir lyfjafræðingar við há-
skólann í Kaupmannahöfn færðu
þetta í stílinn og sögðu eftir að
hafa rannsakað 55 unnar hvítlauks-
vörur: „Ef þú ert vampíra, skaltu
halda þig við lyktarlausan hvítlauk,
en ef þú hefur áhyggjur af menn-
ingarsjúkdómum er rétt að neyta
þeirra, sem innihalda rokgjörn virk
efni.“ (2,6).
Það ætti því ekki að koma á
óvart að 35 ára kælitæknivinnsla
Kyolics sé ekki lengur tækninýjung.
Skyggt á sólkonunginn
Það var kannski ekki tilviljun að
Erlingur leitaði einmitt til Davíðs
um nánari upplýsingar um mig og
fann þar samheija. Erum við nú
komin að einum athyglisverðasta
þætti síðari ára í markaðssetningu
gosdrykkja hérlendis.
Sól hf. dreifði nefnilega bæklingi
þar sem gefið var í skyn að sykrað-
ur seltzer væri hollur fyrir íþrótta-
fólk! Seltzer innihéldi ekki hvítan
sykur heldur ávaxta- og þrúgusyk-
ur, góður „beint í æð“ o.s.frv. Seltz-
er er sjálfsagt ágætis gosdrykkur,
en sykur er og verður sykur og á
ekki að neyta á æfíngum. Tilgang-
urinn er að brenna fítu en ekki
sykri. Hvatti ég lesendur þess í stað
að drekka vatn. Grein mín um seltz-
er (DV 24. júní ’91) hafði ég borið
undir næringarfræðing og íþrótta-
kennara, en virðist hafa farið mjög
fyrir bijóstið á Davíð, sem svaraði
með rógburði í Pressunni.
Svarað með rógi
Þann 18. júlí ’91 birtist svo grein
í Pressunni um seltzer og að ég
hafi boðið þjónustu mína „.../þágu
Sólar á ritvellinum“. Þegar því var
hafnað átti ég að hafa farið annað
og skrifað á móti Sól hf.! Þar sem
ég einfaldlega trúði þessu ekki uppá
Davíð gerði ég strax athugasemd
um að þetta yrði leiðrétt og skrif-
aði: „... mundum við báðir vilja að
það yrði leiðrétt hið fyrsta". (Press-
an 25. júlí ’91.)
En vjti menn, Pressan segist
standa við söguna og vitnar í sam-
tal og bréf frá Davíð, sem skýrir
frá því er ég heimsótti hann, ný-
kominn úr námi með grein um fitu
(og plöntuolíur). Þar sem slík skrif
gátu komið sér illa fyrir feitmetis-
framleiðanda sem Davíð, bað ég
hann að lesa geinina áður en hún
birtist (í Lesbók Mbl. 13. og 20.
júní ’87). Hingað til er rétt farið
með a.m.l., en það eru fjögur ár á
milli þess að ég talaði við Davíð og
grein mína um seltzer birtist.
Hvernig átti ég þá að geta boðist
til að skrifa um seltzer eins og
Pressan gaf í skyn? Eða á ég bara
að vera svona langrækinn og hefni-
gjarn eftir að hafa hitt manninn
aðeins einú sinni? En Davíð heldur
áfram í bréfi sínu og segir: „Bað
hann mig að lesa greinina og at-
huga hvort við gætum fundið flöt
á því að vinna saman á einhvern
hátt I framtíðinni.“ Þetta er rangt,
því eftir að Davíð hafði beðið mig
um að gera stutta grein fyrir inni-
haldi greinar minnar taldi hann öllu
óhætt og virðingarvert af mér að
koma með hana, en benti mér samt
á að tala við Georg Gunnarsson á
rannsóknarstofunni. Sagt svo að
Ólafur Sigurðsson
„Erlingur virðist fylgja
sölustefnu japanska
lyfjafyrirtækisins sem
framleiðir m.a. Kyolic.
Hún byggist m.a. á því
að bjóða eitthvað, sem
er bráðhollt, án allra
óþæginda.“
lokum á þá leið að ef til vill kæmi
eitthvað seinna, sem hægt væri að
starfa saman að, en taldi að ekki
væri um slíkt að ræða í þetta sinn.
Mér þótti hann hafa tekið mér afar
vel.
„Þetta átti sér ekki stað“
En ég var ekki í atvinnuleit.
Hvaða nýútskrifaður stúdent biður
um starf hjá stóru fyrirtæki með
gagnrýni á vöru þess upp á vasann?
Eða þá nýráðinn (1. apríl ’87) hjá
Iðntæknistofnun íslands? Hvað þá
þjónustu á ritvellinum með fyrstu
grejnina sína í höndunum?
Ég lét Pressumálið kyrrt liggja,
en Davíð hélt áfram. Erlingur fékk
nú heimild (hvað kemur það Kyolic
annars við?) til að vitna í bréf Dav-
íðs (Mbl. 28. janúar) til. Pressunn-
ar: „Afhenti ég yfirmanni rann-
sókna- og þróunarstofu okkar,
Georg Gunnarssyni efnaverkfræð-
ingi MSc., greinina til yfirlestrar...
Við Georg ræddum síðar um málið
og urðum ásáttir um að ráða hvorki
manninn né fá honum verkefni til
að vinna að fyrir okkur. “
Ég hafði því samband við Georg
Gunnarsson fyrir fáeinum dö^tirn
(2. febrúar sl.) og spurði hvort hann
mundi eftir slíku samtali um mig
við Davíð. „Þetta átti sér ekki stað,“
sagði Georg mér og mundi það rétt
að ég hafí farið með greinina til
hans eftir samtal mitt við Davíð.
Það er því ósatt sem Davíð skrifar
og hefur hann orðið uppvís að því
að reyna að rægja mig epinberlega
með ósannindum.
Slæmt uppeldi?
Óneitanlega felst viss fæling í
því að rægja sífellt þá, sem gagn-
rýna óstaðfestar fullyrðingar um
tiltékna vöru. Oft er einnig um
mikla fjárhagslega hagsmuni um-
boðs- og sölumanna að ræða.
Það eru því kannski eðlileg við-
brögð slíkra aðila að halda því fram
að gagnrýnendur hljóti að vera á
vegum keppinautanna — það fæst
jú ekkert gert nema fyrir greiðslu
í þessum heimi.
En að leyfa sér að svara ekki
málefnum og nota róg og persónu-
níð þess í stað, er flótti til að forð-
ast umræðuna. Við innrætum börn-
um okkar að þau eigi að takast á
við vandamálið, ekki að flýja þau
og skrökva. Þetta er því einfaldlega
barnaleg og skömmustuleg hegðan,
sem Erlingur og Davíð hafa gert
sig seka um.
Ég tel þetta aftur á móti hin
bestu meðmæli fyrir greinaskrif
mín, því ekki er annað að sjá en
þeir hafi ekki hreina samvisku og
eitthvað að óttast. Ætli ég gefí
ekki út bók?
Væri ekki nær að...
Það er erfítt að segja til um hvers
vegna Davíð stendur svona klaufa-
lega að róginum, kannski það fylgi
bara. En Pressan og Erlingur telj-
ast vart virtar heimildir og eru því^
kannski hentugri vettvangur fyrir
slúður af þessu tagi. En því ætti
sá að gæta að, sem persónugerir
„vörur sínar" af alkunnri snilld, að
ef hann yrði fyrir gagnrýni, gæti
neikvæð ímynd sjálfkrafa færst yfír
á „vörur hans“ og öfugt.
Væri því ekki nær fyrir Sól hf.
að bæta markaðssetninguna, setja
langtímamarkmið um ímynd (hvað
ef Davíð hættir?), gera hana ábyrg-
ari, a.m.k. þannig að einhver mat-
vælafræðingur úr Hafnarfírði fái
ekki tækifæri til að ergja forstjór-
ann að óþörfu?
Væri ekki nær fyrir Davíð að
þróa alvöru íþróttadrykk með
minna en 4% sykri, fjölvítamínum,
steinefnum og trefjum? Eða þróa
hollustudi-ykki með bætiefnaþarfir
mismunandi aldurshópa í huga?
Væri ekki nær (að minnsta kosti)
að forðast að fara yfír gráa svæðið
í markaðssetningu? Því annars er
hætt við að einhveijum detti í hug
að kynna sér málið og benda á að
„þetta er rangt“.
Heimildir:
(1) UmQöllun Lyfjaeftirlits ríkisins gegn óstaö-
festum fullyrðingum í auglýsingum um Kyolic.
(2) Hvidlegsjunglen. Farmaci (Archiv for
pharmaci og chemi,) janúar 1992. Skýrsla um út-
tekt á gögnum um rannsóknir á hvítlauksafurðum
og efnagreiningar á innihaldi 55 hvítlauksafurða
í tímariti danskra lyfafræðinga.
(3) Alkóhólgreinig á Kyolic-vökva. Framkvæmd
á rannsóknastofu við Háskóla íslands.
(4) Áfengislög 82. 1969 og reglugerð um merk-
ingu neytendaumbúða fyrir matvæli og aðrar
neysluvörur. Stj. tíð. B, nr. 408/1988. III. kafli, 6.1.
(5) Tölvyleit í MEDLINE, framkvæmd á rann-
sóknastofu Háskólans í lyfjafræði 23. desember
1991. Endurtekin og útvíkkuð 10. janúar 1992.
(6) Tilvitnun í British Medical Joumal, Mbl. 12.
janúar, bls. 4.
Höfundur er matvælafræðingur.
Morgunblaðið/Amór
Danir stóðu sig með miklum ágætum á Bridshátíð. Þeir urðu í þriðja
og fjórða sæti í tvímenningskeppninni og hirtu svo silfurverðlaunin
í sveitakeppninni eftir hörkukeppni við sveit Zia Mahmood. Talið
frá vinstri: Lars Blakset, Jens Auken, Steen Möller og Dennis Koch.
_____________Brids____________________
Umsjón Arnór Ragnarsson
Mikil þátttaka í
Michell-tvímenningi BSÍ
Ekkert met stendur lengur en viku
í vetrar-Mitchell Bridssambands ís-
Iands á föstudögum í Sigtúni 9. Síð-
asta föstudag, 21. febrúar mættu, 48
pör og efstu í N/S urðu:
Sveinn Sigurgeirsson - Þórður Sigfússon 480
Gunnlaugur Sævarsson - Sverrir Ólafsson 444
Eyjólfur Magnússon - Jón Viðar Jónmundsson 441
Leifur Jóhannesson - GarðarÞórðarson 423
Bajdur Bjartmarsson - Guðmundur Þórðarson 415
I AA urðu efstu pör:
Ámína Guðlaugsdóttir - Bragi Erlendsson 452
AntonValgarðsson-MagnúsTorfason 435
Magnús Sverrisson - Friðjón Margeirsson 433
Karl Erlingsson - Erlendur Jónsson 433
Miðlungur var 364 og 14 umferðir
spilaðar. í vetrar-Mitchell BSÍ eru
gefín bronsstig og sá sem flest brons-
stig hlýtur samanlagt yfir veturinn
verður bronsstigameistari. Staðan þar
á toppnum er þannig að í fyrsta sæti
er Sveinn Sigurgeirsson með 209
bronsstig, í öðru sæti Magnús Sverris-
son með 195 bronsstig, í þriðja sæti
Þórður Björnsson með 194 bronsstig
og í 4.-5. sæti eru Elín Jónsdóttir og
Lilja Guðnadóttir með 184 bronsstig.
Það skal tekið fram að bronsstigin
föstudaginn 21. febrúar eru ekki með
í þessu en skráin er að jafnaði upp-
færð vikulega svo að hægt sé að fyigj-
ast með baráttunni um bronsstiga-
meistarann.
Landslið á faraldsfæti
Fyrirliðar allra bridslandsliðanna
hafa verið ráðnir og verkefni landslið-
anna ákveðin sem hér segir:
Kvennalandsliðið tekur þátt í Norð-
urlandamóti í Svíþjóð 29. júní-3. júlí.
Fyrirliði og þjálfari verður Jón Hjaita-
son. Tvö pör verða í kvennalandsliðinu.
Unglingalandsliðið tekur þátt í Evr-
ópumóti yngri spilara í París 17.-26.
júlí. Fyrirliði og þjálfari verður Sævar
Þorbjömsson. Þijú pör 25 ára og yngri
verða í unglingalandsliðinu.
Landslið í opnum flokki tekur þátt
í Norðurlandamótinu í Svíþjóð (2 pör)
og einnig í Ólympíumótinu sem spilað
verður á Ítalíu 22. ágúst-5. septem-
ber (3 pör). Fyrirliði og þjálfari verður
Björn Eysteinsson.
Ákvörðun hvort um keppni eða val
til þátttöku í landsliðum þessa árs
verður að ræða hefur verið tekin af
landsliðseinvaldi og fyrirliðum við-
komandi landsliða. Ekki verður um
formlega landsliðskeppni að ræða í
neinum flokki. Með góða liðsheild og
góðan árangur að markmiði á kom-
andi mótum erlendis verða liðsmenn
valdir eftir frammistöðu þeirra á mót-
um vetrarins svo og fyrri reynslu.
(Fréttatilkynning frá Bridssambands-
stjórn og landsliðscinvaldi.)
Bridsfélag Sauðárkróks
Nú hafa verið spiluð tvö kvöld í
firmakeppni félagsins og vegna mikill-
ar þátttöku fyrirtækja verður spilað
að minnsta kosti eitt kvöld enn í þess-
ari keppni.
Staða efstu fyriríækja er þessi:
Sjóvá-Almennar 63,7
Hárlist 60,7
Búnaðarbanki íslands 59,5
Hitaveita Sauðárkróks 52,4
Vörufélag Magnúsar Svavarss. 52,4
Verslunin Hátún 51,2
Næstu tvo mánudaga verður lokið
við aðalsveitakeppni félagsins.
Bridsfélag kvenna
Sl. mánudag hófst hin sívinsæla
parakeppni og mætti 41 par til leiks,
spilað var í þremur 14 para riðlum
og urðu úrslit þannig:
A-riðill:
Lovísa Jóhannsdóttir - ísak ð. Sigurðsson 189
Guðrún Jörgensen -Þorsteinn Kristjánsson 181
Eria Sigvaldadóttir - Guðlaugur Karisson 179
Margrét Margeirsdóttir - Gissur Gissurarson 172
B-riðill: •
Sigríður Pálsdóttir - Eyvindur Valdemarsson 209
Gullveig Sæmundsdóttir - Sigríður Friðriksd. 195
AldaHansen-Guðmundur Aronsson 191
Erla Ellertsdóttir - Hálfdán Hermannsson 169
C-riðill:
Halia Bergþórsdóttir - Vilhjálmur Sigurðsson 198
Ester Jakobsdóttir - Aron Þorfmnsson 195
Dúa Ólafsdóttir - Guðjón Kristinsson 179
Ragnheiður Tómasdóttir - Þórður Bjömsson 177
Meðalskor 156.