Morgunblaðið - 10.03.1992, Síða 14

Morgunblaðið - 10.03.1992, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MARZ 1992 Þj óð vinafélagsrit Bókmenntir Erlendur Jónsson ANDVARI. Nýr flokkur XXXIII. 166 bls. 116. ár. Hið ís- lenska þjóðvinafélag. 1991. ALMANAK Hins íslenska þjóð- vinafélags 1992. 1991. Andvari er gróið rit og virðulegt. Að þessu sinni hefst hann á hug- vekju ritstjórans, Gunnars Stefáns- sonar. Gunnar ræðir um hlutverk ritsins; gerir úttekt á stöðu bók- menntanna almennt; horfir vítt og breitt og lætur álit sitt í ljós tæpi- tungulaust. Sumt þykir honum horfa til bóta, annað telur hann miður. Vafalaust eru ábendingar hans á giidum rökum reistar. Auð- vitað markast viðhorf hans af því að hann horfir af háum sjónarhóli, stýrir riti sem gerir, ber að gera og getur gert háar kröfur. Hins mun enginn krefjast af Andvara — eins og t.d. af dagblöðunum — að efni það, sem hann flytur, sé nýtt. Gunnar Stefánsson á líka loka- orðin í ritinu, hugleiðingar vegna þriggja bóka er séð hafa dagsins ljós í seinni tíð og fjalla um ný- rómantísku skáldin íslensku. Fyrir- sögnin er: Að árroðans strönd og aftur heim. Nýrómantísku skáldin — hversu mörg voru þau? Og hver voru þau? Um það má vafalaust deila. Séu einungis talin fáein skáld sem sendu frá sérSjóð sem næst aldamótunum síðustu skipar stefn- an takmarkað rúm í bókmenntasög- unni. Sé hún hins vegar látin ná til Stefáns og Davíðs eykst vægi hennar að því skapi. Gunnar segir kost og löst á ritunum, deilir lítt um smekk og afstöðu en bendir á efnislegar veilur. Eru ábendingar hans harla athyglisverðar enda sjaldgæft að sjá nýleg verk krufín með þeim hætti; til þess þarf ærna þekking. Sú hefur annars verið venjan að Andvari hæfist á minningarorðum. Að þessu sinni ritar Halldór Þormar um Björn Sigurðsson sem féll frá langt um aldur fram en hafði þá skilað stórmerku ævistarfi á sviði veirufræði og búfjársjúkdóma. Að öðru leyti er Andvari sögu- og bókmenntarit og heldur í heiðri þá gömlu hefð að birta efni sem er í senn fræðilegt og alþýðlegt. Svo er um þátt sem Vésteinn Ólason ritar og nefnir Jórvíkurför í Egils sögu: Búandkarl gegn konungi. Hnyttileg er fyrirsögnin. Vafalaust ber í og með að skilja hana sem þversögn. Svo vildi nefnilega til að kóngurinn var orðinn landlaus og bar því nafnbót sína með völtum sóma. Egill var að vísu bóndi en jafnframt eins konar aðalsmaður, bæði að ætt og auðæfum. Því að- eins hafði hann efni á að verja tíma sínum til ferðalaga, skáldskapariðk- ana, hernaðar og drykkju. Athyglis- vert er að Vésteinn hallast fremur að sagnfestukenningunni sem al- þýða manna hefur löngum haldið tryggð við gagnstætt bókfestu- kenningu lærðra; telur sem sé að Egils saga hafi að nokkru byggst á munnmælum þó ritunartíminn hafi að sjáifsögðu sett á hana mark sitt. Síðan veltir hann fyrir sér hinni sígildu spumingu: Hvað kom kapp- anum til að ana í flasið á konungi sem viðbúið var að dræpi hann á samri stund er fundum þeirra bæri saman? Fullnægjandi svars er víst seint að vænta. Og það er ekki heldur að finna í hugleiðingum Vésteins. Helst hallast hann að því að þama hafí skáldskapartilhneig- ingin yfirskyggt veruleikamatið. Lengsta og mesta ritgerðin í þessum Andvara er svo Á aldarár- tíð Konráðs Gíslasonar eftir Aðal- geir Kristjánsson. En Aðalgeir mun Aðalgeir Kristjánsson vera allra núlifandi manna fróðast- ur um sögu Fjölnis og Fjölnis- manna. Fyrir margt löngu sá hann um útgáfu á bréfum þeirra Brynj- ólfs og Konráðs. Hér gerir hann grein fyrir ævistarfi Konráðs, rekur lífshlaup hans í stórum dráttum og bregður ljósi á skapgerð hans og persónu. Allir urðu Fjölnismenn skammlífir nema Konráð; hann einn náði háum aldri. Nokkuð mun Kon- ráð hafa þótt stríðlundaður og sér- sinna. Og lítið fyrir margmenni. Hins vegar unni hann konu sinni sem var dönsk og ekki í miklu áliti meðal landa í Höfn. Sem unglingur var Konráð smali á búi föður síns eins og þá var títt. »Hann kunni vel hinu fijálsa og einmanalega lífi og hugði að hann hefði sárkviðið fyrir ef hann hefði vitað að hann ætti eftir að eyða ævi sinni í fjöl- menni.« Og í skóla eijaði hann við Jónas. Síst var þá að vænta að saman ættu þeir eftir að koma fram sem vorboðar í sjálfstæðisbarátt- unni og verða nánast helgir menn í vitund þjóðarinnar. Konráð skrif- aði í Fjölni eins og hinir. En Aðal- geir telur að efni það, sem hann lagði ritinu til, hafi átt þar fæsta lesendurna. Konráð var ekki fertug- ur þegar ritið hætti endanlega að koma út og átti þá eftir meirihluta starfsævinnar. Mestum tíma mun hann hafa varið til orðabókarstarfa. En orðabók hans kom aldrei út. Hann varð einn af þessum dæmi- gerðu Hafnarstúdentum sem luku ekki námi en urðu innlyksa í borg- inni og eyddu svo ævinni án þess að samlagast að ráði lífi því sem þar var lifað. Margir þessara manna létu minna eftir sig en efni stóðu til. Sennilega væri Konráðs að fáu getið nú ef hann hefði ekki leikið sitt stóra hlutverk í útgáfu Fjölnis. Og þannig sér þjóðin hann fyrir sér: sem þátttakanda í einhuga og samstilltum hópi sem boðaði alda- hvörf og endurreisn og skóp íslandi nýja ímynd sem jók kjark og áræði með næstu kynslóðum. En Konráð var síst af öllu hópsál. Hann var þvert á móti einrænn og alls ekki fyrir að blanda geði við hvern sem var. Mannlýsing sú, sem Aðalgeir dregur þarna upp, er bæði skýr og vafalaust einnig sönn — að því leyti sem hægt er að lýsa manni sem löngu er horfinn af sjónarsviðinu. Þá koma Vangaveltur um full- veldi íslands 1918 eítir Helga Skúla Kjartansson. Fyrirsögnin gefur til kynna það sem á eftir fer. Helgi SÍÐASTA HRAÐLESTRARNÁMSKEIDIÐ... Síðasta námskeið vetrarins hefst miðvikudaginn 18. mars nk. Viljir þú margfalda lestrarhraðann, hvort heldur er til þess að bjarga næstu prófum með glæsibrag eða til að njóta þess að lesa meira af góðum bókum, ættir þú að skrá þig strax á næsta námskeið. Lestrarhraði nemenda fjórfaldast að jafnaði. Við ábyrgjumst að þú nærð árangri eða þú færð endurgreitt! Skráning alla daga í síma 641091. Sjávarútvegsstefna EB HRAÐLESTRARSKOUNN BARNAKJOLL M/HATTI 2.450,- 5^86» tuhARSIíA) vörun* oi öóö HtRRW01® kV. V.730.- Gengi mars ’92 __________Bækur______________ Björn Bjarnason Hin sameiginlega sjávarútvegs- stefna Evrópubandalagsins. Höf- undur: Ketill Sigurjónsson. Útgef- andi: Alþjóðamálastofnun Háskóla íslands, Háskólaútgáfan, 1991. 88 bls. Þegar rætt er um ísland og Evr- ópubandalagið (EB) er því gjarnan slegið fram, að umræður um aðild að EB muni óhjákvæmilega stranda á sjávarútvegsstefnu Evrópubanda- lagsins. Hún sé þess eðlis, að við íslendingar getum aldrei sætt okkur við hana. Má segja, að þetta sé orð- ið að viðtekinni skoðun hér og með því að halda henni á loft sé talið auðvelt að slá vopnin úr höndum þeirra; sem mæla með umræðum um aðild Islands að bandalaginu, svo að ekki sé minnst á þá, sem gerðust svo djarfir að hvetja tíl slíkrar aðildar. Til að staðfesta réttmæti þessara fullyrðinga nægir að vitna til Reykja- víkurbréfs Morgunblaðsins, sem birt- ist 8. mars sl., en þar segir meðal annars: „Þeir íslendingar, sem kunna að telja tímabært að taka upp við- ræður um beina aðild að EB vegna afstöðu annarra Norðurlandaþjóða verða að svara því, hvernig þeir ætla að komast í kringum sjávarútvegs- stefnu Evrópubandalagsins, sem er eins andstæð hagsmunum okkar ís- lendinga og hugsast getur.“ Ef marka má niðurstöður rann- sókna innan Háskóla íslands er sjáv- arútvegsstefna EB ekki eins andstæð íslenskum hagsmunum og margir hafa ætlað. Á árinu 1990 gaf Örygg- ismálanefnd út ritið Evrópustefnan. Aðlögun íslands að þróun Evrópu- bandalagsins eftir Gunnar Helga Kristinsson, lektor í félagsvísinda- deild Háskólans. Þar segir meðal annars: „Að því gefnu að hvorki tví- hliða viðræður né EFTA leiðin leiddu til fullnægjandi niðurstöðu fyrir sjáv- arútvegshagsmuni íslendinga má leiða að því líkur að umsókn um aðild að EB gæti leitt til betri líf- skjara en hinar leiðimar, vegna bættrar samkeppnisaðstöðu á Evr- ópumörkuðum og aukinnar hag- kvæmnisþróunar innanlands. Hún myndi hins vegar jafnframt krefjast erfiðra samninga og mikils undirbún- ings af hálfu Islendinga til að fullt tillit yrði tekið til sérhagsmuna þeirra í því kerfi sem hin aðildarlöndin sem fyrir eru hafa mótað.“ Nú er komið út annað ritið í ritröð Alþjóðamálastofnunar Háskóla Is- lands og fjallar það um hina sameig- inlegu sjávarútvegsstefnu Evrópu- bandalagsins. Er hér um að ræða lítið breytta lokaritgerð til embættis- prófs í lögfræði, sem Ketill Sigur- jónsson vann vorið 1991 undir hand- leiðslu Gunnars G. Schrams prófess- ors. Þeir, sem vilja kynnast þessari stefnu EB og átta sig á því, hvernig framkvæmd hennar hefur verið hátt- að, geta auðveldlega glöggvað sig á því í þessu riti, sem eðli málsins sam- kvæmt er ritað frá lögfræðilegum sjónarhóli. Sjávarútvegsstefna EB byggist að sjálfsögðu á Rómarsáttmálanum, stjómarskrá bandalagsins, eins og aðrir sameiginlegir réttargjörningar bandalagsþjóðanna. Sjávarútvegs- stefnan er hins vegar ekki njörvuð niður með sama hætti og aðrar mikil- vægar og stefnumarkandi ákvarðan- ir um_ atvinnuvegi bandalagsþjóð- anna. Á það ekki síst rætur að rekja til þess, að upphaflega voru það meginlandsþjóðir Evrópu, sem stofn- uðu EB, og þær voru ekkert sérstak- lega með hugann við sjávarútveg. Þetta breyttist þegar áhugi vaknaði í Danmörku og Bretlandi á aðild að EB og til undirbúnings henni var hafist handa við að móta hina sam- eiginlegu sjávarútvegsstefnu á árinu 1970. Varð stefnan ekki til í þeirri mynd, sem við þekkjum hana, fyrr en 1983, þegar von var á því að Spánveijar og Portúgalir gerðust aðilar að bandalaginu. Samkomulag- ið frá 1983 gildir til ársloka í ár, 1992. Náist ekki samkomulag um breytingu á þessari stefnu nú í ár I.aunaforritið ERASTUS heldur sanfan ölluni tölwn vfir ty úriö, þess vegnuþarf'énginn að sitju við að flettu i gegnwn gÍHB* launaseðlam í janúar úr hvert og reikna og reiknu. Þegarað launamiðaprentun kemur hjú nóiendum ERASTUS hrosu þeir, ýta ú tvo tukku og launamiðarnir prentast út. ðij Launufórritið ERASTUS ‘Einfaldttfia fjágiíegra _______ M.Flóvent Simi: 91-68X933 »g 985-30347 gildir hún óbreytt til ársins 2002. Rannsóknir Ketils Siguijónssonar sýna, að við lagadeild Háskólans telja menn nauðsynlegt að ijalla um og bijóta til mergjar réttarþróun innan Evrópubandalagsins, þótt hún snerti ekki beint íslenska hagsmuni. Er fagnaðarefni, að þannig skuli staðið að menntun lögfræðinga. Hvort sem samningurinn um evrópska efna- hagssvæðið nær fram að ganga eða ekki og hvemig sem samskiptum okkar við EB verður háttað er brýnt að hér sé fyrir hendi staðgóð þekking á lögum EB og dómum dómstóls bandalagsins. Undir lok bókar sinnar lítur Ketill Siguijónsson á sjávarútvegsstefnu EB frá sjónarhóli íslendings. Hann veltir því fyrir sér, hvernig staðan væri, ef ísland ætti aðild að EB. Niðurstaðan er í stuttu máli þessi: í fyrsta lagi kynnu íslendingar að hafa neitunarvald varðandi sjávarút- vegsstefnu EB vegna mikilvægra þjóðarhagsmuna af sjávarútvegi . í öðru lagi virðist lítil ástæða að ótt- ast að EB-aðild leiddi til þess að erlend fiskiskip myndu þyrpast á ís- landsmið. / þriðja lagi má fara ýms- ar leiðir til að hindra að erlendir aðilar eignist kvóta innan lögsögu aðildarþjóðanna, svo framarlega sem ekki er um mismunun á grundvelli þjóðernis að ræða. / fjórða lagi er talið að fiskveiðistjórnun hafi tekist betur á íslandsmiðum en innan EB- lögsögunnar, en innan EB er nú for- gangsverkefni að bæta eftirlit með fiskveiðum og auka hagkvæmni í útgerð. / fimmta Iagi fengi ísland verulega fjárstyrki til eftirlits á ís- landsmiðum og væntanlega einnig til að byggja upp atvinnuvegi sam- kvæmt byggðastefnu EB. Ástæða er til að minna á þá stað- reynd, _að við útfærslu landhelginnar hafa íslendingar ætíð byggt á vísindalegum rökum og skírskotun til alþjóðaréttar. Að baki stefnu- mörkunar á þeim vettvangi lá fræði- legt álit til styrktar hinum pólitísku ákvörðunum. Sé ætlunin að helja frekari viðræður við EB-ríki um ís- lenska sjávarútvegshagsmuni verður málstaður íslands að byggjast á fræðilegum grunni og víðtækri þekk- ingu á EB-rétti og framkvæmd hans. í ritgerð Ketils Sigurjónssonar er að finna svör við því, hvernig íslending- ar kynnu að geta gætt mikilvægustu hagsmuna sinna í aðildarviðræðum við Evrópubandalagið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.