Morgunblaðið - 08.04.1992, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 08.04.1992, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. APRIL 1992 lí Raforkukerfið — breytt fyrirkomulag eftir Torfa Dan Sævarsson - Með tilkomu Evrópubandalags- ins og hins innri markaðar Evrópu, hafa orðið miklar breytingar á skip- ulagi raforkumála í Evrópu. Víðast er stefnt að því að breyta raforku- fyrirtækjum í hlutafélög og reka þær eftir lögmálum markaðarins, þar sem hagkvæmni, skiivirkni, arðsemi og þjónusta við viðskipti er í hávegum höfð. Breytingar á fyrirkomulagi í rekstri raforkufyrir- tækja hafa þegar verið gerðar m.a. í Bretlandi þar sem raforkufyr- irtæki í eigu ríkisins voru gerð að hlutafélögum og seld á hinum al- menna markaði. Svipaðar breyting- ar hafa átt sér stað á skipulagi raforkumála í Noregi og eru í upp- siglingu á fleiri Norðurlöndum. í Bandaríkjunum hafa raforkufyrir- tæki verið einkarekin í fjölda ára. Sú samhæfni og hagkvæmni sem náðst hafði með því er nú hinsveg- ar að tapast vegna mikilla afskipta hins opinbera. Samkeppni Raforka er orðin stór hluti af lífi okkar og viðskiptum, sem við getum ekki verið án. Litið er á raforku sem sjálfsagða og jafnvel eitt af því sem er náttúrulegt eins og andrúmsloft- ið. Því meira sem tæknin þróast og verður flóknari því meiri verða not- in fyrir raforku. Raforka er ekki bara mikilvæg í þágu nótenda held- ur einnig fyrir byggðarlögin og landið í heild. Þess vegna hljótum við að keppa að hagkvæmni, skil- virkni og góðri afkomu raforkufyr- irtækja. Til þess að ná fram þessum markmiðum þarf samkeppni að ríkja milli raforkufyrirtækja og hafa þarf fleiri en einn möguleika á sam- starfi til raforkukaupa, þar sem hvert raforkufyrirtæki skoðar orku- þörf sína út frá því ijármagni sem það hefur til ráðstöfunar. Auk þess þurfa raforkufyrirtækin að geta ákveðið hvort þau afla raforkunnar með kaupum eða með eigin fram- leiðslu. Þar sem lögmál markaðar- ins ríkja verður raforkunnar aflað þar sem hún er ódýrust í það og það skiptið. Hvert raforkufyrirtæki á að geta verið í samstarfi við fleiri en einn aðila um kaup og sölu á raforku en þó ekki endilega tengt við það, heldur geta flutt sína raf- orku eftir flutningskerfi annarra raforkufyrirtækja og greitt flutn- ingsgjald til þeirra (wheeling). Stór- ir notendur gætu jafnvel einnig gert þetta. Einnig má segja að ef alger samkeppni ætti að vera í raf- orkukerfinu þá ættu notendur að geta keypt raforku þar sem þeir vildu og borgað flutningskostnað fyrir að koma henni til sín. Orkuöflun Þegar raforkufyrirtæki sér fram á aukna raforkuþörf á það að vera á þess ábyrgð að útvega næga raf- orku. Til að uppfylla þá þörf, hefur fyrirtækið um þrennt að velja. 1. Kaupa raforku frá þeim aðila sem það er beintengt við. 2. Kaupa raforku frá framleið- ánda sem það hefur ekki beinteng- ingu við og borga flutningskostnað. 3- Byggja litla virkjun sem myndi tryggja nægilega aukningu á raforku til nokkurra ára. Kosti 1 og 2 hefur verið fjallað um hér að framan. Ef kostur þrjú er skoðaður, þá þarf minna fjár- magn til að byggja litla virkjun, það tekur styttri tíma og virkjunin er tiltölulega fljót að komast í rekstur og skila hagnaði. A komandi árum verður einnig nauðsynlegt að end- urnýja eldri orkuver auk ijárfest- inga í þeim nýju. Ef búið yrði að koma á einkavæðingu gætu ein- staklingar og fyrirtæki séð um þennan þátt. Um enn einn mögu- leika er að ræða, sem er að önnur fyrirtæki en raforkufyrirtæki fram- leiði raforku til sölu fyrir markaðinn (nonutility generators). Þetta eru yfirleitt fyrirtæki sem nota mikinn hita við framleiðslu sína og í stað Torfi Dan Sævarsson „Þar sem lögmál mark- aðarins ríkja verður raforkunnar aflað þar sem hún er ódýrust í það og það skiptið.“ þess að láta þann hita fara til spill- is út í umhverfið er hann notaður til að framleiða raforku (þetta eru fyrirtæki eins og t.d. Sementsverk- smiðjan, Kísiliðjan og sorpbrennsl- ur). Verðlagning Samkeppnin sem fylgir því að hægt sé að kaupa raforku frá fleir- um en einum aðila mun hafa þau áhrif að raforkuverð verður eins lágt og kostur er. Þar sem raforku- dreifing er sögð vera náttúruleg einokun er varla hægt að hafa sam- keppni milli raforkufyrirtækja um notendur. Því verður verðlagning til notenda að byggjast að mestu leyti upp á samanburði raforku- verðs milli fyrirtækja og því að fyr- irtækið standi undir kostnaði vegna reksturs. Að lokum Opinbert eftirlit með raforkumál- um á að vera í höndum ráðherra orkumála. Þetta opinbera eftirlit ætti að vera sem minnst og ein- göngu ætlað til þess að farið sé eftir settum reglum. Orkufyrirtæk- in ættu að öllu öðru leyti að lúta sömu lögum og reglum og önnur fyrirtæki í landinu. Ef gerðar yrðu breytingar á raforkukerfinu hér á landi, svipaðar þeim sem gerðar voru í Bretlandi og Noregi, myndi það þýða mjög miklar breytingar á heildarskipulagi raforkukerfisins og enn róttækari breytingar yrðu ef og þegar markaðurinn yrði opnaður fýrir erlendu ijármagni. Löggjafarvaldið og stjórnmála- menn verða því að skoða alla kosti vandlega í þessu sambandi. En ljóst er að taka þarf skipulag raforku- mála til endurskoðunar og breyta orkulögum í þá átt að hagur not- enda sé tryggður með hagkvæmni og skilvirkni í raforkukerfínu. Til að ná þessu fram þarf samkeppni í raforkuframleiðslu, rekstri og samanburði á verði. En eitt þarf að athuga vel, að ekki er ráðlegt að breyta einungis einum þætti raf- orkukerfisins og hafa hina þættina óbreytta. Höfundur er rafmagnsverkfræðingur með raforku sem sérsvið. Hann hefur starfað með SUS. Kvenfélag Sauðárkróks: Stórgjöf til Sjúkra- húss Skagfirðinga Saudárkróki. KVENFÉLAG Sauðárkróks afhenti sl. mánudag enn eina stórgjöf til Sjúkrahúss Skagfirðinga, sjúkralyftara, sem koma mun að góð- um notum við að færa rúmliggjandi og ósjálfbjarga sjúklinga úr rúmi og í stól. Það var Helga Sigurbjörnsdóttir formaður kvenfélagsins sem af- henti þessa góðu gjöf og las gjafa- bréf sem henni fylgdi, en Birgir Gunnarsson framkvæmdastjóri Sjúkrahússins veitti henni viðtöku og þakkaði. Sagði Birgir að það væri stofnuninni mikils virði að eiga svo góðan bakjarl sem Kven- félag Sauðárkróks væri en félagið hefur á undanförnum árum safnað fyrir mörgum nauðsynlegum tækj- um til handa Sjúkrahúsinu. Fram kom að hjá kvenfélaginu er starfandi sjúkrasjóður sem stofnaður var árið 1971 og notað- ur er til þess að fjármagna tækja- kaup sem þessi en kvenfélagið aflar sjóðnum tekna, meðal annars með árlegri jólapappírssölu, sem er vaxandi frá ári til árs. Eftir að hafa þegið veitingar í boði sjúkrahússins sýndi Björg Guðmundsdóttir deildarstjóri við- stöddum hvernig þetta nýja tæki væri notað og varð framkvæmda- stjóri sjúkrahússins við þeirra áskorun gefenda að vígja lyftar- ann. Viðstaddir afhendinguna auk stjórnar kvenfélagsins og fram- kvæmdastjóra sjúkrahússins voru Ólafur Sveinsson yfirlæknir, Björg Guðmundsdóttir deildarstjóri og Jónína Hallsdóttir hjúkrunarfor- stjóri. - BB. Stjórn kvenfélags Sauðárkróks ásamt starfsfólki sjúkrahússins sem veitti gjöfinni viðtöku. Fyrirlestur um enda- lok þjóðveldisins DR. BIRGIR Þor Runolfsson flytur opinberan fyrirlestur um endalok íslenska þjóðveldisins í boði stofnunar Sigurðar Nordals, fimmtudag- inn 9. apríl 1992, kl. 17.15 í stofu 101 í Odda, hugvísindahúsi Há- skóla Islands. Fyrirlesturinn nefnist: „Reddu- sókn og ríkjamyndun: Hrun þjóð- veldisins frá sjónarhorni stofnana- hagfræði". Birgir Þór stundaði nám í hag- fræði við Lewis & Clark-háskóla í Oregon og George Mason-háskóla í Virginíu í Bandaríkjunum. Fjallar doktorsrit hans um tilurð þjóðskipu- lags á íslandi og þróun þess á þjóð- veldistímanum og nefnist „Ordered Anarchy, State and Rent Seeking: The Icelandic Commonwealth, 930-1264“. Ráðstefna um viðskipta- fræðslu MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ og íslandsdeild NKH, sem er norræn nefnd um verslunar- fræðslu, boða til ráðstefnu um viðskiptamenntun á framhalds- skólastigi, fimmtudaginn 9. apríl nk. Varpað er fram þeirri spurningu hvort breytinga sé þörf og hvers virði viðskiptamenntun framhalds- skólanna sé fyrir einstaklinginn og atvinnulífið. Þekktir athafna- og skólamenn munu svara þessum spurningum og finna fleiri fleti á málinu, enda er markmiðið með ráðstefnunni m.a. að fá fram hugmyndir um heppilegar stuttar starfsmennta- brautir. í þetta sinni er litið á verslunar- og viðskiptanám, breitt svið þjón- ustu, sem sinnt hefur verið að nokkru leyti af skólum landsins, en þörf væri á að líta á öll svið fram- haldsskólans því miklar breytingar hafa orðið á undanförnum árum og eru fyrirsjáanlegar í nánustu fram- tíð. (Úr fréttatilkyimingu) SCHOLTES OFNAR - ALDREI GLÆSILEGRI! Bakstur Með fullkominni hitastjórn og nákvæmu loftstreymi nærðu þeim árangri við baksturinn sem þig hefur alltaf dreymt' um. Ofnsteiking Með innrauðum hita og margátta loftstreymi færðu steikina safaríka og fallega brúnaða. Glóðsteiking Með innrauðum hita og loftstreymi, sem líkir eftir aðstæðum undir beru iofti, nærðu útigrillsáhrifum allan ársins hring. Scholtes Elegance Nafnið segir allt sem segja þarf. Funahöfða 19, sími 685680

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.