Morgunblaðið - 08.04.1992, Side 21

Morgunblaðið - 08.04.1992, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. APRIL 1992 21 Tvísköttunarsamningar við Eystrasaltslönd: Islendingar í samfloti með Norðurlöndum SAMÞYKKT var að íslendingar yrðu aðilar að sameiginlegum undirbún- ingsviðræðum Norðurlandanna fyrir tvísköttunarsamninga við Eystra- saltslöndin á ríkisstjórnarfundi á föstudagsmorguninn. Snorri Olsen, deildarstjóri í fjár- málaráðuneytinu, sagði að á embætt- ismannafundi Norðurlandanna 11.-12. febrúar hefði verið ákveðið að leggja fyrir ríkisstjómir 5 Norður- landa hvort ríkin væru tilbúin til að fara sameiginlega í viðræður við Eystrasaltsríkin þrjú. „Hugmyndin er þá sú að menn vinni drög að samn- ingi sem allir gætu gengið inn í sem vildu. Þ.e.a.s. ef íslendingar vildu nota þennan samning, með kannski einhveijum breytingum, þá gætum við gert samning við hvert af þessum þremur löndum, öll eða eitt eftir at- vikum. Þannig að upphaflega yrði þetta samflot. A seinni stigum færi hvert land í tvíhliða viðræður." Ef ríkisstjórnir landanna fimm samþykkja samflot er reiknað með að drögin verði samin í vor og fyrsti fundur um samninginn verði næsta haust. Norrænar sjónvarpsstöðvar: Kvikmyndin Hvíti vík- ingnrinn hlýtur lof FORSVARSMENN norrænna sjónvarpsstöðva luku lofsorði á Hvíta víkinginn eftir Hrafn Sýknaður af nauðgiin- arákæru HÆSTIRÉTTUR hefur sýknað mann um fimmtugt af nauðgun- arákæru sem sakadómur Kópa- vopgs hafði sakfellt fyrir og dæmt til tveggja ára fangelsisvistar. Maðurinn var sakaður um að hafa í maí 1990 nauðgað konu í húsi í Reykjavík þar sem bæði voru gest- komandi síðla nætur. Fólkið hafði kynnst á veitingahúsi og farið í sam- kvæmi ásamt fleirum. Konan sakaði manninn um að hafa nauðgað sér eftir að húsráðendur þar sem sam- kvæmið fór fram voru gengnir til náða. Maðurinn sagðist hafa átt samfarir við konuna með samþykki hennar eftir að hún hefði andmælt í fyrstu. Vitni sem komu að fólkinu báru að þau hefðu ekki orðið vör við átök eða nauðung. Sakadómi þóttu nægilegar sann- anir komnar fram fyrir að um nauðg- un hefði verið að ræða en í Hæsta- rétti segir að aðstæður á vettvangi, ásigkomulag og fatnaður konunnar hafi verið með þeim hætti að ekki veiti sérstaka vísbendingu um nauð- ung hafi verið beitt. Því sé varhuga- vert að telja að maðurinn hafí gerst sekur um verknaðinn. Gunnlaugsson að lokinni frum- sýningu á sjónvarpsgerð mynd- arinnar í Finnlandi fyrir skemmstu. Sveinn Einarsson, dagskrárstjóri innlendrar dag- skrár hjá Sjónvarpinu, sagði að myndin nyti sín til fullnustu í sjónvarpsgerðinni enda upp- haflega gerð fyrir þann miðil. Sveinn sagði að Hrafni hefði borist heillaóskaskeyti frá leiklist- arstjóra fínnska ríkissjónvarpsins sem lýst hefði yfír hrifningu sinni á Hvíta víkingnum. Hann sagði að verkið yrði sýnt í fjórum þátt- um samtímis á öllum Norðurlönd- um í byrjun október. Hvíti víkingurinn er viðamesta kvikmyndaverk sem íslendingar hafa staðið að, en verkið var gert í samvinnu norrænu sjónvarps- stöðvanna og fjármagnað að miklu leyti úr norræna sjónvarps- sjóðnum. Kostnaður við gerð þess var um 450 milljónir fsl. kr. Kvikmyndin Hvíti víkingurinn fékk misjafna dóma er hún var frumsýnd. Sveinn sagði að mikill munur væri á kvikmyndaverkinu og sjónvarpsútgáfunni. „Verkið nýtur sín hreinlega mikið betur í sjónvarpsgerðinni. Sú umræða hefur komið upp hvort rétt sé að gera stutta bíógerð úr löngum þáttaröðum, hvort það sé yfírleitt hægt að skila efninu þannig að það sé sannfærandi og fullnægj- andi,“ sagði Sveinn. Morgunblaðið/Sverrir Verktakar afhenda Ráðhúsið Skjalasafn borgarinnar var að hluta til flutt í nýjar skjalageymslur Ráðhússins í gær. Næstu daga verður unnið við þrif og lokafrágang og á laugardag flytja skrifstofur Reykjavíkurborgar úr Austurstræti og Pósthússtræti í Ráðhúsið. Á gaflglugga á austur- og vesturgafli við gönguleið á fyrstu hæð eru rituð tvö ljóð í glerið eftir Tómas Guðmundsson. Reyndar kom í ljós prentvilla í öðru ljóðinu þegar búið var að gleija, en villan verður leiðrétt. Ákveðið hefur verið að opna Ráðhúsið almenningi til sýnis frá klukkan 12 til 18 á skírdag, laugardag fyrir páska og á annan í páskum. Verður þá meðal annars sett upp byggingarsaga hússins í Tjarnarsal. Garður: Vel heppnað kennaranámskeið Garði. NÝLEGA lauk námskeiði 25 móðurmálskennara á grunnskóla- stigi en námskeiðið stóð í tvo daga. Þótti námskeiðið takast vel en hugmyndin að því er komin frá félagi skólastjóra á Suðurnesjum (Skósuð). Leiðbeinandi á nám- skeiðinu var Sallie Harkness lekt- or sem er þekktur námsbókahöf- undur frá kennaraháskóla í Skot- landi. • Að sögn Guðmundar Kristmundss- onar lektore við Kennaraháskólann var aðsókn á námskeiðið ótrúlega góð. Hann nefndi sem dæmi að kenn- arar hefðu komið á frídegi og verið í 7 klst. samfleytt á sunnudeginum auk þess að koma langt að sumir hverjir. Hann sagði að kennsluað- ferðin sem kynnt var sé ekki ný af nálinni. Sterk hreyfíng í nokkrum löndum bæði austan hafs og vestan hefur unnið að og þróað þessa kennsluaðferð í nokkur ár. Kennsluaðferðin byggist á því að reynt er að fínna stöðu hvers barns í gegnum verk þess en á námskeið- inu var m.a. tekið fyrir viðfangsefnið skip þar sem sýnt var fram á hvern- Sallie Harkness leiðbeinir kennurunum. ig hægt væri að kenna bömum ís- lenzkt mál með því að ræða um skip- ið, hvað gert væri á skipum, hvetjir væru í áhöfn þess, hvert það færi, um ráðningu skipveija, hvað væri veitt, hvað gert væri við peninga sem fengjust fyrir fiskinn o.s.frv. Guðmundur sagði að börn réðu yfír málkerfi sem þyrfti að þróa og þessi aðferð auðveldaði kennurum það verk. Nemendur áttunda bekkjar Gerða- skóla og foreldrar sáu um matargerð fyrir ráðstefnugesti. Umsjónarmaður námskeiðsins var Eiríkur Hermanns- son skólastjóri Gerðaskóla. Arnór. Á ráðstefnunni var, að undanskildum hráhvítlauk, aðeins ein unnin hvítlauksafurð til umfjöllunar, nefni- lega KYOLIC hvítlaukurinn. Mikil athygli beindist að KYOLIC, SUPfftjPöMK ji i iði MSMwcatSAcriwitt KYOLIC 200CAPSULES enda var vísindalega staðfest að KYOLIC hefði meiri virkni en hráhvítlaukur. 2ja ára kælitæknivinnsla KYOLIC fjarlægir alla lykt en eykur og viðheldur öllum hinum frábæru eiginleikum. Ræktun og fram- leiðsla sem á engan sinn líka í veröldinni. Hylki, hylki með lesitíni eða töflur. Fljótandi, bæði með og ón hylkja. Lífræn ræktun. Sóning og uppskera er handunnin til að vorðveita öll næringarefni. KYOLIC er lótinn gangast undir ströngustu framleiðslukröfur sem þekkjast. Kælitæknivinnsla KYOLIC fer að hluta fram í vísindalega hönnuðum, ryðfríum stólkerjum. Framleiðendur KYOLIC hata yfir að ráða,a hátækni rannsákna- og tilrounastofum. Heimsráðstefna vísindamanna um hollustu hvítlauks var lialdin í Washington D.C., Bandaríkjunum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.