Morgunblaðið - 08.04.1992, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 08.04.1992, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. APRIL 1992 23 Fyrrum fangi þing- forseti ÞINGIÐ í Albaníu hefur kosið Pjeter Arbnori forseta sinn en hann var næstum því í 30 ár í fangelsum kommúnista. Var hann dæmdur til lífstíðarfang- elsis árið 1960 fyrir að reyna að stofna stjórnarandstöðu- flokk og í meira en 20 ár sat hann í Burrell, alræmdasta fangelsinu í Albaníu, og lengst af í einangrun. Hann var loks látinn laus 1989 og gekk þá strax til liðs við lýðræðissinna. Isaac Asimov látinn BANDARÍSKI rithöfundurinn Isaac Asimov er látinn, 72 ára að aldri. Var banameinið hjarta- og nýrnabilun. Asimov, sem var fæddur í Rússlandi, var víðkunnur fyrir vísinda- skáldsögur, meira 500 talsins á rúmum 50 árum. Hann var lífefnafræðingur að mennt en stundaði aðallega ritstörfin eins og líklegt er af bókafjöldanum. Hann lét einu sinni svo um, að hann hefði aldrei fengið bæri- lega hugmynd án þess að skrifa um hana bók. Levy segir ekki af sér DAVID Levy, utanríkisráð- herra ísraels, tilkynnti á sunnu- dag að hann hefði fallist á að láta ekki af embætti eins og hann hafði hótað helgina áður. Levy hafði hótað áð segja af sér vegna óánægju með að Shamir skyldi ekki treysta hon- um fyrir utanríkismálunum, auk þess sem stuðningsmönn- um hans innan Likud-flokksins þótti sem þeir hefðu verið snið- gengnir við val á frambjóðend- um flokksins í þingkosningun- um í júní. í samkomulaginu felst meðal annars að Shamir lofar að Levy verði utanríkis- ráðherra myndi Likud-flokkur- inn nýja stjórn eftir kosning- arnar. Danir herða að skuldurum MEÐ nýjum lögum í Danmörku er heimilt að svipta sjálfstæða atvinnurekendur atvinnurétt- indum standi þeir ekki skil á skattgreiðslum til hins opin- bera. Eru horfur á, að tveir Iögfræðingar verði þeir fyrstu, sem dæmdir eru samkvæmt lögunum. Lögin voru samþykkt í desember sl. og tilefnið var það, að ríki og sveitarfélög eiga miklar fjárhæðir útistandandi ' hjá sjálfstæðum atvinnurek- endum. Ná þau til dæmis til lögfræðinga, endurskoðenda, veitingamanna, fasteignasala og leigubílstjóra. Um þá síðast- nefndu voru raunar sett sams konar lög nokkuð fyrr og með góðum árangri. Er nefnt sem dæmi, að þegar 216 leigubíl- stjórum, sem skulduðu hundruð milljóna ÍSK. í átta sveitarfé- lögum, var hótað réttindasvipt- ingu kusu langflestir að semja um skuldirnar. 13% skiluðu inn leyfinu en aðeins 4% voru svipt því með dómi. Sveitarstjórnar- menn og fógetar segja, að laga- setningin og yfirvofandi hótun um atvinnuréttinda- og átvinn- umissi hafí haft ótrúlega mikil áhrif. Menn, sem áður voru bara ekki til viðtals um skuld- irnar, komi nú sjálfir til að semja um greiðslur. Bandaríkín og EB viðurkenna Bosníu Sar^jevo, Washington. Reuter. BANDARÍKJASTJÓRN viðurkenndi í gær sjálfstæði þriggja fyrrver- andi lýðvelda Júgóslavíu, Slóveníu, Króatíu og Bosníu-Herzegovínu. Júgóslavneskar herþotur gerðu í gær árásir í Bosníu og leiðtogar Serba í landinu lýstu yfir stofnun sjálfstæðs ríkis og gera tilkall til stórs hluta landsins. „Við tökum þetta skref því við höfum komist að þeirri niðurstöðu að þessi ríki uppfylla skilyrði sem við setjum fyrir viðurkenningu," sagði í yfirlýsingu frá George Bush Bandaríkjaforseta. Hann kvað Bandaríkjastjórn vilja ræða við stjórnvöld í Serbíu og Svartfjalla- landi um hvort lýðveldin yrðu áfram í ríkjasambandi. Hann lofaði einnig samstarfi við Evrópubandalagið „um að leysa sem allra fyrst deilu- mál Grikkja og lýðveldanna". Júgó- slavneska lýðveldið Makedonía hef- ur óskað eftir viðurkenningu en Grikkir hafa sakað það um að reyna að „stela“ nafninu af gríska hérað- inu Makedoníu. Áður höfðu utanríkisráðherrar aðildarríkja Evrópubandalagsins ákveðið að viðurkenna sjálfstæði Bosníu á fundi þeirra í Lúxemborg. Útvarpið í Sarajevo sagði að sex manns hefðu beðið bana þegar her- þotur júgóslavneska hersins hefði gert árás á þorpið Siroki Brijeg í suðvesturhluta Bosníu. Herinn kvaðst ekki hafa ráðist á þorpið en hins vegar hefðu verið gerðar árás- Líbýa: Mótmæla komu sendimanns Trípolí. Reuter. MÓTMÆLENDUR, sem hrópuðu vígorð gegn Bandaríkjunum og Bretlandi, reyndu að stöðva bíla- lest sendimanns Sameinuðu þjóð- anna í gær er hann kom til Trí- polí, höfuðborgar Líbýu, til að ræða kröfuna um framsal Líbýu- mannanna sein eru sakaðir uin að hafa grandað bandarískri far- þegaþotu árið 1988. Sjónarvottar sögðu að óeirðalög- reglan hefði síðar beitt táragasi þeg- ar mótmælendurnir reyndu að i-yðj- ast framhjá hermönnum og inn í hótel sendimannsins, sem ræðir við Muammar Gaddafi Líbýuleiðtoga í dag. Hyggst hann þá freista þess að fá hann til að framselja sakborn- ingana tvo til Vesturlanda. ir á tvo bæi Króata í grenndinni. Bardagar biossuðu upp að nýju á milli Serba, múslima og Króata í nokkrum bæjum í Bosníu í gær. Tugir manna hafa beðið bana í bar- dögunum undanfarna daga. „Átökin í Bosníu-Herzegovínu eru nú orðin að borgarastyijöld, með miklu mannfalli,“ sagði í yfirlýsingu frá júgóslavneskum stjórnvöldum, sem fordæmdu jafnframt þá ákvörðun Evrópubandalagsins að viðurkenna Bosníu sem sjálfstætt ríki. Leiðtogar serbneska minnihlut- ans lýstu yfir stofnun sjálfstæðs rík- is innan Bosníu og áskildu sér rétt til að sameinast lýðveldunum sem eru enn í júgóslavneska ríkjasam- bandinu. Reuter Mussolini fagnar sigri Alessandra Mussolini, sem hér sést á myndinni, fagnaði sigri í gær eftir að hafa náð kjöri á þing landsins. Hún er barnabarn einræðis- herrans fyrrverandi Benitos Mussolini, þrítug að aldri og bauð sig fram fyrir nýfasistahreyfingu. „Ég á þetta nafninu mínu að þakka. Þetta er mikill sigur fyrir Mussolini-Qölskylduna," sagði hún. Önnur umdeild kona, Ilona Staller, náði ekki kjöri í kosningunum og búist er við að hún hætti afskiptum af stjórnmálum. Fylgi flokks hennar, Ástarflokksins, var innan við eitt prósent. Bush hættir við efna- hagsaðstoð við Perú Lima, Washington. Reuter. ALBERTO Fujimori, forseti Perú, sagði í gær að sú ákvörðun sín að leysa upp þing landsins jafngilti ekki „hefðbundnu valdaráni" og hvatti leiðtoga annarra ríkja til að sýna aðgerðunum meiri skilning. Samtök Ameríkuríkja (OAS) fordæmdu liins vegar aðgerðirnar og sögðu þær ógnun við lýðræðið í Rómönsku Ameríku. George Bush Bandaríkjafor- seti ákvað að hætta við 320 milljóna dala (19,2 milljarða ÍSK) efna- hags- og hernaðaraðstoð við Perúmenn. „Til að byija með hefur skort ið endurskipulagt til að flýta fyrir skilning á alþjóðavettvangi en það er aðallega vegna ónógra upplýs- inga um aðgerðir stjórnarinnar," sagði Fujimori. Hann kvaðst vona að umheimurinn myndi sýna að- gerðunum meiri stuðning „þegar mikilvægi þeirra skýrist“. „Þetta er ekki hefðbundið valdarán heldur stefnubreyting sem endurspeglar hinar sönnu væntingar almennings í Perú.“ Fujimori, sem var kjörinn í lýð- ræðislegum kosningum, tilkynnti á sunnudag að þingið yrði leyst upp um stundarsakir, stjórnarskráin felld úr gildi að hluta og dómskerf- umbótum í stjórnkerfinu. Þingið og dómskerfið hefðu hindrað tilraunir til að stemma stigu við eiturlyfja- smygli og binda enda á skæruhern- að maóistahreyfingarinnar Skín- andi stígs, sem hefur eflst mjög frá því Fujimori var kjörinn forseti árið 1990. Nýskipaður forsætisráðherra, Oscar de la Fuente Raygada, sem tók við embættinu eftir að Alfonso de los Heros sagði af sér, kynnti í gær áætlun sem miðar að því að breyta stjórnarskránni, endurskipu- leggja þingið og dómskerfið, stemma stigu við spillingu í stjórn- kerfinu og gera það léttara í vöfum. Juan Broones Davila innanríkis- ráðherra sagði að öryggissveitir hefðu fundið fjölda vopna og sprengna á heimili fyrrverandi inn- anríkisráðherra landsins, Augustins Mantilla, og í höfuðstöðvum hægri- flokks Alans Garcia, fyrrverandi forseta landsins. Mantilla og nokkrir aðrir fyrrver- andi ráðherrar hafa verið handtekn- ir og forsetar beggja deilda þingsins eru í stofufangelsi. Þá hafa her- sveitir lokað skrifstofum tveggja alþjóðlegra fréttastofa, Associated Press og Agence France Press, og helsta fréttatímarits Perú, Caretas. Talsmaður Bandaríkjaforseta sagði að aðgerðirnar í Perú væru „dapurlegt skref aftur á bak“. Stór hluti þess fjármagns, sem Bush hætti við að láta Perúmönnum í té, átti að renna til baráttunnar gegn eiturlyfjasmygli. BIBLÍAN Förunautur til framtíðar Passíusálmar ( Hallgríms Péturssonar 1 . M '■ jjgg V. ... li^A ^ - -- £■ ■HÍhhmmhhIÉHHÍ Sálmabókin margar gerðir fæst í bókaverslunum og Guöbrandsstofu, Hallgrímskirkju. Opið daglega frá kl. 15-17, föstudaga frá kl. 10-12. Hið íslenska Biblíufélag. Handa fermingarbarninu Ný og vönduð útgáfa, sem dr. Sigurbjörn Einarsson biskup bjó til prentunar. I þessari nýju útgáfu er Píslarsaga Jesú Krists í heild og henni skipt í kafla og samsvarar hver kafli passiusálmi. í þessari útgáfu eru orðaskýringar, skrá um ritning- arstaði utan Píslarsögunnar og upphaf allra versa með tilvísun í blaðsíðutöl, skrá um allar prentanir Passíusálmanna á íslensku og erlendum málum. Fæst í bókaverslunum og Hallgrímskirkju.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.