Morgunblaðið - 02.06.1992, Qupperneq 37
J
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1992 37
Skjótari en skugginn
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson.
Landsbankahlaupið:
350 hlupu á Selfossi
Selfossi.
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
LUKKU-LÁKI (,,Lucky-Luke“).
Sýnd í Háskólabíói. Leikstjóri
og framleiðandi: Terence Hill.
Aðalhlutverk: Terence Hill.
Líklega þekkja flestir krakkar,
og fullorðnir líklega ekki síður,
myndasögurnar um vestrahetjuna
Lukku-Láka, sem Fjölvaútgáfan
hefur gefið út í frábærlega
skemmtilegum þýðingum Þor-
steins Thorarensens. Nú hefur ít-
alski leikarinn Terence Hill gert
bíómynd um Láka og farist það
misvel úr hendi.
Hill er að vissu leyti rétti mað-
urinn til að gera Lákamynd því
hann var hálfgerður Lukku-Láki
þegar hann lék í Trinitymyndun-
um vinsælu, „They Call Me Trin-
ity“ og „Trinity is Still My Name“,
sem barmafylltu Tónabíó fyrir
hartnær tuttugu árum: Var troðn-
ingurinn svo mikill við frumsýn-
ingu framhaldsmyndarinnar að
stór rúða brotnaði í miðasölunni
og kalla varð lögreglu á staðinn.
Höfundar Lukku-Láka, þeir
Morris og Goscinny, báru nógu
gott skynbragð á Hollywoodvestr-
ann til að hæðast að honum oft
á óborganlegan hátt og margar
sögupersónur þeirra voru teknar
beint úr vestragerðinni í Holly-
wood; Jack Palance var t.d. að
finna í einni sögunni.
Hill tekur margt beint úr
Lukku-Láka bókunum og festir á
filmu eins og áhrif áfengis á hina
illræmdu en misheppnuðu Dalton-
bræður, sífelldar en óvinsælar
friðarpípureykingar indíánahöfð-
ingjans, skotfimi Láka að sjálf-
sögðu og málgefni reiðhestsins
Grána (hann er reyndar sögumað-
ur myndarinnar). Annað er prjón-
að við og má segja að vanti í
myndina þann ágæta húmor sem
einkenna bækurnar. Nóg er um
að menn séu kýldir í gegnum
gluggarúður og langar og miklar
senur eru af Hill á harðaspretti
um slétturnar gjarnan baðaður í
kvöldsólinni en erfitt er að sjá
hvaða tilgangi það þjónar í gam-
anmynd sem þessari. Atriði, t.d.
lokaeinvígið, dragast mjög á lang-
inn og söguþráðurinn er í raun
hvorki fugl né fiskur; Daltonbræð-
ur espa indíánana til ófriðar en
það rennur út í sandinn.
Það er vissulega ýmislegt hnell-
ið í myndinni sem minnir á sög-
urnar en bara of lítið. Hill hefði
mátt nýta sér þær betur.
UM 350 KRAKKAR tóku þátt í
Landsbankahlaupinu á Selfossi á
laugardagsmorguninn. Hlaupið nýt-
ur æ meiri vinsælda með hverjun
árinu en í fyrra hlupu 284. Á mynd-
inni eru hlaupararnir áður en hlaupið
hófst. Eftir hlaupið var hlaupurum
og öllum viðstöddum boðið til grill-
veislu í garði Landsbankans. Aður
en hlauparamir fóru til síns heima
fengu þeir afhentan áletraðan bol til
minningar um hlaupið. Sig. Jóns.
R AÐ AUGL YSINGAR
Trjáplöntur
Seljum fallegt birki í mörgum stærðum, ýmsar
tegundir trjáa og runna, einnig sumarblóm.
Gróðrarstöðin Skuld,
Lynghvammi 4, Hafnarfirði,
sími 651242.
Opið til kl. 21.00 virka daga,
sunnudaga til kl. 18.00.
Laxveiðileyfi
Til sölu veiðileyfi í Hvítá í Árnessýslu, fyrir
landi Langholts. Einnig í Reykjadalsá í Borg-
arfirði.
Upplýsingar í síma 77840 alla virka daga frá
kl. 8.00-18.00.
Félagasamtökin Vernd
Aðalfundur Verndar var haldinn 27. maí
1992. Og á fundi var samþykkt að boða til
framhaldsaðalfundar fimmtudaginn 11. júní
1992 í Ingólfsstræti 5, 6. hæð kl. 18.00.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
FERÐAFÉLAC
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 ■ SÍMI 682533
Kvöldferðir Ferðafélagsins
Þriðjud. 2. júní kl. 20.00.
Viðey, austureyjan. Gengið að
gamla athafnasvaeðinu gegnt
Gufunesi. Verð kr. 500. Brottför
með Viðeyjarferjunni frá Sunda-
höfn.
Miðvikud. 3. júní kl. 20.00.
Heiðmörk - skógræktarferð
(frítt). Hugað að gróðri ( reit
Ferðafélagsins.
Ferðafélag Islands.
FERÐAFÉLAG
% ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 • SÍMI 682533
Ferðir um hvítasunnu
5.-8. júní:
1. Snæfellsnes-Snæfells-
jökull. Við minnumst þess í ár
að fyrir 60 árum skipulagði
Ferðafélagið sina fyrstu ferð til
Snæfellsness og á jökuiinn. Gist
að Görðum í Staðarsveit. Tak-
markað pláss.
2. Öræfajökull-Kristínar-
tindar-Morsárdalur. Gengið
á Hvannadalshnúk (2119 m).
Svefnpokapláss á Hofi eða tjöld.
3. Skaftafell-Öræfasveit.
Svefnpokapláss á Hofi. Göngu-
ferðir um þjóögaröinn og víðar.
4. Þórsmörk. Gönguferðir um
Mörkina. Gist í Skagfjörðs-
skála/Langadal. Tveir mögu-
leikar: Hægt að koma tit baka
úr Mörkinnl á sunnudegi eða
mánudegi. Einsdagsferð á
hvítasunnudag kl. 08.
Brottför i allar ferðirnar kl.
20.00, 5. júní.
Tryggið ykkur far í tíma.
Sumarleyfisferðir í júní:
18. -21. júní:Skaga-
fjörður-Málmey-Drangey.
Gist ein nótt á Húnavöllum og
tvær nætur að bænum Lónkoti
I Sléttuhllð. Siglt í Málmey, ekið
fyrir Skaga, Kálfshamarsvík og
Ketubjörg skoðuð.
19. -22. júní (ath. breytta
dags.): Sólstöðuferð til
Grímseyjar.
Brottför kl. 17.00 á föstudag
með flugi til Akureyrar og áfram
með flugi til Grimseyjar. Að
kvöldi laugardags verður siglt
með Grímseyjarferjunni til Hrís-
eyjar og gist. I þessari ferð gefst
gott tækifæri til að skoöa tvær
af athyglisveröustu eyjum við
landið og upplifa miðnætursól-
ina. Hægt verður að koma (ferð-
ina á Akureyri.
26. -28. júní: Hlöðuvellir-
Hagavatn.
Bakpokaferð í tilefni 50 ára af-
mælis Hagavatnsskála.
27. júnf—1. júlf: Breiðafjarðar-
eyjar-Látrabjarg-Barða-
strönd-Dalir. Silgt með Eyja-
ferðum um Breiðafjörð og áfram
að Brjánslæk. Gist að Birkimel
(félagsheimili). Gist tvær nætur
í Breiðuvík. Skoðunarferðir á
Látrabjarg, Sjöundá og Skor. Til
baka verður ekið um Austur-
Barðastrandasýslu og gist i
Króksfirði. Á 5. degi verður ekið
heimleiðis fyrir Klofning með við-
komu t Dagverðarnesi og víöar.
Pantið tímanlega í sumarleyfis-
ferðirnar: Nýr sími 682S33.
Ferðafélag (slands.
tífanJYfrr*
ÚTIVIST
Hallveigarstfg 1, sími 614330.
Ferðir um hvítasunnu
5.-8. júní.
1. Öræfajökull, gengin verður
Sandfellsleið sem er ein greið-
færasta leiðin á jökulinn, en
gangan tekur um 12-14 tíma.
2. Skaftafell-öræfasveit.
Skipulagðar göngu- og skoðun-
arferðir. Gist í tjöldum í Skafta-
felli.
3. Fimmvörðuháls-Eyjafjalla-
jökull, gengið frá Básum, gist
eina nótt í Fimmvöröuskála.
4. Básar. Skipulagðar göngu-
ferðir um Goðalandið og Þórs-
mörkina. Brottför í ferðirnar kl.
20. Nánari upplýsingar og miða-
sala á skrifstofu Útivistar.
Ath. aö frá 1. júnf-1. september
er skrifstofa Útivistar opin frá
kl. 9-17. Nýtt sfmanúmer
614330.
Sjáumst.
Útivist.
Vélritunarkennsla
Vomámskeið byrja 4. júní.
Vélritunarskólinn, s. 28040.
SKÓR
GÆÐASKOR A GÆÐAVERÐI
Teg. 1910 Mlrage. Stærðir: 36-47.
Verð kr. 2.480,-
Teg. 2019 Mercury. Stærðir: 40-47.
Verð kr. 3.190,-
Teg. Skipper. Stærðir: 28-41.
Verð kr. 2.195,-
Teg. 2053 THnimic XM1. Stærðir: 37-42.
Verð kr. 5.790,-
Teg. 2037 Milage Top. Stærðir: 36-46. Teg. 2036 Milage Lady Top. Stærðir: 36-42. Teg. 2060 Trlnomlc XC plus. Stærðir: 40-46.
Verð kr. 3.695,- m/styrkingu í hæl. Verð kr. 2.580,- Verð kr. 7.740,- m/dempara í hæl.
Sendum I póstkröfu,
símar 813555 og 813655.
Oplð laugardag frá kl.10-14
»hummél^
SPORTBÚÐIN
ÁRMÚLA 40-símar 813555 og 813655.