Morgunblaðið - 25.06.1992, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 1992
11
Átta dansréttir
__________Ballett_____________
Ólafur Ólafsson
Dans-List ’92
Danshöfundar: Margrét Gísla-
dóttir, Silvia von Kospoth, Ást-
rós Gunnarsdóttir, Lára
Stefánsdóttir, Ásgeir Bragason,
Sveinbjörg Þórhallsdóttir, Elín
H. Sveinbjörnsdóttir, Hany
Hadaya, Paco Morales.
Tónlist: Ymsir höfundar.
Lýsing: Jón S. Þórðarson.
Hljóð: Ólafur Thoroddsen.
Aðstoð: Sóley Jóhannsdóttir,
Birgitte Heide.
Framkvæmdasljórn: Ingólfur
Stefánsson.
Borgarleikhúsið, 20. júní 1992.
Til hliðar við Listahátíð í Reykja-
vík hefur verið önnur hátíð, sem
gengið hefur undir heitinu Loft-
árás á Seyðisfjörð. í einhvetjum
tengslum við hana hafa níu dans-
höfundar tekið sig saman undir
heitinu Dans-List ’92 og bjóða upp
á átta dansverk af ólíkum toga á
litla sviði Borgarleikhússins.
Þessi sýning er sýning danshöf-
unda og er fyrst og fremst vottur
um sterkan vilja til að vinna að
list sinni og ekki láta barlóm og
svartsýni draga kraft, þrek og
frumkvæði úr sér. Atriðin eru mjög
misjöfn í uppbyggingu og hafa
mismikið til síns ágætis, en þama
gefst gott tækifæri til að sjá hvað
ungir danshöfundar eru að fást
við. Þeir hafa upp á eigin spýtur
kvatt sér hljóðs. Öllum sem fást
við listir er nauðsyn að leggja verk
sín í dóm einhvers viðtakanda. Án
viðtakanda er allt marklaust. Þess
vegna er það danshöfundum nauð-
syn að koma verkum sínum á fram-
færi og ef tækifærin gefast ekki,
þá er að skapa þau. Það hafa þessi
danshöfundar gert og eiga hrós
skilið fyrir það.
Á verkefnaskránni kennir
margra grasa. Það er hreinræktað-
ur jassdans, eins og Jass fyrir sex
og 9:30 pm (sem var ágætlega
dansaður) og nútímadans Fædd,
ekki spurð. Eins kynnti Ásgeir
Bragason verk sitt, Vakna, þar
sem páfagaukur og hundur komu
fram með dönsurunum. Verkið fer
hægt af stað með frumskógar-
hljómum og apa- hunda- og fugla-
tilburðum. Mitt í frumskóginum
er síðan skipt yfir í diskótek, með
ámóta tilburðum. Verkið er kímið
og minnir á að það er aðeins fetið
að fara úr frumskóginum í dýra-
garðinn. Sylvia von Kospoth kynnti
verk, sem hún nefnir (Nei) ekki
ég, sem hún segir vera tilraun til
að „tengja dans- og leiklist". Hún
teflir fram dansara og leikara.
Leikarinn (Björn Ingi Hilmarsson)
talar svo til útí eitt og segir sögu
af konunni (Östu Henriksdóttur).
Samband þeirra var eins og ljónat-
emjara og ljóns — meira að segja
hinn hefðbundni stóll var eina
sviðsmyndin. Hann stjómaði, en
hún var þungamiðjan og hlýddi.
Verkið var mjög áhugavert, en of
Pavol Kovác
Píanótónleikar
Síðastliðin sumur hefur Listasafn
Siguijóns Ólafssonar gengist fyrir
tónleikum sem haldnir hafa verið á
þriðjudögum og staðið yfir frá því
síðast í júni og fram í spetember.
Þrátt fyrir miklar sveiflur í búsetu
íslendinga á þessum árstíma, hafa
þriðjudagstónleikarnir notið mikilla
vinsælda og aðsókn verið ótrúlega
góð.
I ár hófust þessi þriðjudagstón-
leikar með því að píanisti frá Tékkó-
slóvakíu, Pavol Kovác að nafni, lék
verk eftir Beethoven, Smetana,
Suchon, Chopin og Liszt. Kovác lék
í upphafí tónleikanna sónötu í e-
moll, op 90 eftir Beethoven og gerði
það af öryggi en nokkuð var gamli
meistarinn kaldhamraður í túlkun
Kóvac og vantaði þá rómantík sem
einkennir þetta verk. Beethoven
hafði ekki samið píanósónötu í fjög-
ur ár, tímabil sem hafði á ýmsan
hátt verið honum erfítt en með
gerð op. 90 má segja að þriðja tíma-
bilið hefjist oog þá með rómantískri
lagabundinni tónlist. Sónatan
markar því skil klassískra og róm-
antískra vinnubragða, bæði hvað
snertir notkun á beinum laglínum
eins t.d. í seinni kaflanum og endan-
legt uppbrot á hinu klassíska só-
nötuformi.
Þrír polkar og konsertæfing eftir
Smetana var skemmtilega flutt og
lætur Kovác einkum vel að leika
með tækni, eins og t.d. í þriðja
polkanum og konsertæfingunni en
bæði þessi verk eru hreséilegar
tæknileikstónsmíðar. Matamorfosis
IV heitir verk eftir tónskáld að nafni
Suchon (f. 1908) og var það heldur
svona lítilfjörleg eftirlíking á
franskri píanótónlist. Ekki veit und-
irritaður nein deili á þessum tónhöf-
undi en samkvæmt þessu verki
hans er ekki eftir stóru að slægjast.
H-moIl-skersóið op. 20 eftir
Chopin var ekki vel leikið. A-kafli
þess var göslulega leikinn en mið-
hluti á köflum fallega útfærður.
Besta verk tónleikanna var E-dúr
pólonesan eftir Franz Liszt og í
miðhluta hennar er „perlubands“-
tónaleikur, sem Kovác lék mjög
vel. Kovác skortir ekki tækni en
mætti aðeins staldra við og huga
að því, að það er ekki nóg að gera
skarpan muninn á sterku og veiku
eða hægu og hröðu tónferli. Tón-
verk er eins og ljóð, sem ekki tjáir
að lesa beint af augum, heldur þarf
að gæða hvert orð sérstökum
andblæ og tilfínningu, eitthvað sem
er ofar beinum skilningi á orðinu
sjálfu.
Ekki er hér meint að allir tónleik-
arnir hafi verið kaldhamraðir en
sem aukalag lék Kovác fyrsta þátt-
inn í F-dúr-sónötunni (KV 300)
eftir Mozart og þar var leikur Kovác
glitrandi fallegur.
langt. Þetta var tilraun og (Nei)
ekki ég því aðeins áfangaskýrsla
sem lofar góðu. Langt er síðan
Lára Stefánsdóttir hefur sýnt verk
eftir sig og var tími til kominn.
Verkið Stefnur gekk oft ljómandi
upp og minnisstæðar og góðar
myndir voru dregnar upp. Þó var
eins og annaðhvort þyrfti að vinna
kóreógrafíuna betur á köflum, eða
þá að tónlistin klippti verkið í sund-
ur og réði of miklu. Það verða oft
örlög danshöfunda, að þurfa að
semja dansa við áður samin tón-
verk, í stað þess að hafa tónskáld
við hlið sér. Verkið var vel dansað,
en sviðið of lítið. Æ, þið tvö er
eftir Hany Hadaya og er tvídans
sem byggir á klassískri tækni ball-
ettsins, þótt efnið sé sótti til nútím-
ans. Hany Hadaya dansaði verkið
ásamt Helenu Jónsdóttur og var
samdans þeirra með ágætum.
Þetta var svona „heima-er-best“-
rómantík og ágætlega unnin
kóreógrafía. Lokaatriðið var svo
Yerma, flamenco-atriði eftir Paco
Morales, sem áður hefur verið sýnt
í vetur. Gott dramatískt atriði og
góður lokapunktur á þessari kvöld-
stund.
í Borgarleikhúsinu voru sýnd
átta verk eftir níu danshöfunda.
Sex sýningar eru fyrirhugaðar í
Borgarleikhúsinu á næstu dögum.
Þangað ættu þeir að bregða sér
sem vilja sjá hvað er að gerast í
danslistinni í dag. Það er þess virði.
Föstudags- og laugardagskvöld
Var það ekki sumarið
sextíu og eitthvað?
Gamla Glaumbæjarstemmningin endurvakin
Tónlistamefnd: Rúnar Júliusson, Pétur Kristjánsson,
Þorgeir Ástvaldsson, Úttar Fellx.
tom jj,I,AND
Borðapantanir i sima 687111.
Globus hf. og Stahlwille GmbH
munu í samvinnu vib eftirfarandi
aðila opna söluumboö á
eftirfarandi stöbum:
Akranesi:
Vestmannaeyjum :
Höfn í Hornafirbi:
Egilsstöðum :
Dalvík:
Sauðárkróki:
Föstudaginn 26. júní 1992 kl. 13.oo -17.oo
Veiðarfæraverslun Axels
Laugardaginn 27. júní 1992 kl. 13.oo -17.oo
Ahaldaleigan
Mánudaginn 29. júní 1992 kl. 13.oo -17.oo
Vélsmiöja Hornafjarðar
Þribjudaginn 30. júní 1992 kl. 13.oo -17.oo
Bílaverkstæbi Borgþórs
Miðvikudaginn 1. júlí 1992 kl. 13.oo -17.oo
Byggingavörudeild KEA, Dalvík
Fimmtudaginn 2. júlí 1992. kl. 14.ÓO -17.oo
Verslunin Hegri
Viðskiptamenn eru hvattir til að heimsækja
umboðin á gefnum tímum og kynnast því
vöruúrvali sem Stahlwille hefur upp á að
bjóða.
Gíobusí*
heimur gæöa
IÁGMÚLA 5 - REVKIAVÍK - SIMl 91 681555
NÝR DAGUR AUGLÝSINGASTOFA