Morgunblaðið - 08.07.1992, Síða 2

Morgunblaðið - 08.07.1992, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1992 Morgunblaðið/Þorkell Kaldidalur kemur vel undan vetri Vegurinn yfir Kaldadal kemur vel undan vetri, að sögn vegagerðarmanna í Borgamesi. Kaldidalur var opnaður fyrir skömmu, heldur fyrr en venjulega, og var myndin tekin þegar vegurinn yfír ræsið á Lambá var heflaður en þar var aðalfarartálminn. Einnig þurftu vegagerðarmenn að renna í gegnum skafla á Langa- hrygg. Stéttarfélag lögfræðinga í ríkisþjónustu: Löglærðir fulltrú- ar eru hvattir til að mæta til vinnu Fjarvistir eru taldar ólögmætar STJÓRN Stéttarfélags Iögfræðinga í ríkisþjónustu hvetur félags- menn sína til þess að mæta aftur til vinnu í dag, miðvikudaginn 8. júlí. Þetta eru viðbrögð stjórnarinnar í kjölfar yfirlýsingar dóms- og kirkjumálaráðuneytis um að það telji fjarvistir lög- lærðra fulltrúa hjá sýslumannsembættum og héraðsdómstólum ólögmætar og ef þeir komi ekki til starfa sem fyrst sé litið svo á að þeir hafi látið af störfum. Stjórn Stéttarfélags lögfræð- inga í ríkisþjónustu sendi frá sér stuttort bréf eftir að hafa fundað um málið í gær, þriðjudaginn 7. júlí, þar sem hún hvetur félags- menn til þess að mæta til vinnu í dag. En sumir félagsmenn í Stétt- arfélagi lögfræðinga í ríkisþjón- ustu er starfa hjá sýslumannsemb- ættum og héraðsdómstólum hafa ekki komið til vinnu vegna ágrein- Veiðieftirlitsmenn á frystitogurum: Útgerðin ber allan kostnað vegna eftírKtsmanna um borð Ekki skattlagning heldur endurgreiðsla á kostnaði ÚTGERÐIR frystitogara munu greiða allan kostnað sem hlýst af veru veiðieftirlitsmanna um borð, þar á meðal laun þeirra, að sögn Árna Kolbeinssonar, ráðuneytisstjóra sjávarútvegsráðuneytisins, en sjávarútvegsráðherra mun síðar í þessum mánuði setja reglu- gerð um eflingu veiðieftirlits þar sem gert verður ráð fyrir veiði- eftirlitsmönnum um borð í öllum frystitogurum. Árni segir að þarna verði ekki um skattlagningu að ræða, heldur endurgreiðslu á kostn- aði við veiðieftirlitið. Þorsteinn Már Baldvinsson, framkvæmda- sljóri Samheija á Akureyri, segist ekki telja meiri ástæðu til að hafa veiðieftirlitsmenn um borð í frystitogurum en öðrum skipum flotans. Undir það tekur Sturlaugur Sturlaugsson hjá Haraldi Böð- varssyni á Akranesi, sem jafnframt segist ekki gera ráð fyrir að eftirlitið verði með þessum hætti til frambúðar. framkvæmdastjóri Samheija, segir að auðvitað þurfí eftirlit með veið- unum að vera fyrir hendi. Hann telji hins vegar ekki að það sé meiri ástæða til að setja eftirlits- menn um borð í frystitogarana en til dæmis í allar trillurnar, enda séu frystitogaramenn alveg jafn- löghlýðnir og aðrir í atvinnugrein- inni. Hann sagðist að öðru leyti ekki vilja tjá sig um málið fyrr en reglugerð sjávarútvegsráðuneytis- ins liti dagsins ljós. óþarft að búa til þennan viðbótar- kostnað fyrir útgerðirnar en hann hafí hins vegar ekki trú á að það ástand vari lengi. ings um starfssamning eftir gildis- töku laga um aðgreiningu dóms- og framkvæmdavalds 1. júlí sl. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið sendi í fyrradag, mánudaginn 6. júlí, bréf til héraðsdómstóla og sýslumannsembætta þar sem lög- lærðir fulltrúar hafa ekki mætt til starfa frá 1. júlí sl., þar sem fram kemur að ráðuneytið telji þessar fjarvistir ólögmætar nema að full- trúar hafi verið veikir eða í orlofí. I fréttatilkynningu frá ráðuneyt- inu kemur fram að í bréfínu er yfirmönnum löglærðra fulltrúa hjá þessum embættum falið að boða þá á fund og krefjast þess að þeir mæti þegar til vinnu. Ef þeir verða ekki við því ber yfírmönnum að tilkynna að svo sé litið á að við- komandi hafi látið af störfum. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins er búist við að samninga- viðræður stéttarfélagsins og samninganefndar ríkisins haldi nú áfram. Forsvarsmenn Stéttarfélags lögfræðinga í ríkisþjónustu vilja ekki tjá sig um málið við fjölmiðla á þessu stigi. Ríkið veitir 40 millj. til imdirbúningsrann- sókna á Keilisnesi Viðræður við álfyrirtækin verða í haust RÍKISSTJÓRNIN hefur ákveðið að veita 40 milljónum kr. á þessu ári til undirbúningsrannsóknavegnahafnargerðaríFIekkuvíkáKeiIisnesi.Jafn- framt ákvað hún að gera tillögu um lántöku á 55 milljónum kr. í frumvarpi til lánsfjárlaga fyrir 1993 til að standa straum af kostnaði við rannsóknirn- ar. Undirbúningsrannsóknirnar hefjast á næstu dögum og á að vera lokið á fyrri hluta árs 1993, að sögn Jóns Sigurðssonar iðnaðarráðherra. Ámi Kolbeinsson sagði að lögum samkvæmt beri útgerðin kostnað af hinu almenna veiðieftirliti og ljóst sé að útgerðir fullvinnsluskipa muni einnig þurfa að taka á sig kostnað vegna veru veiðieftirlits- manna um borð. Þannig beri út- gerðunum að sjá þeim fyrir fæði og útbúnaði og auk þess að greiða þeim laun fyrir þann tíma, sem >eir séu um borð, bæði föst laun Sigurður B. Hauksson Flugmaður- inn sem fórst Flugmaðurinn sem lést er flugvél hans fórst við Heklu- rætur síðastliðið föstudags- kvöld hét Sigurður B. Hauks- son. Hann var tvítugur að aldri, fæddur 23. mars 1972, var búsettur á Hjarðarhaga 56 í Reykjavík og lætur eftir sig unnustu. og yfirvinnukaup. Hins vegar sé grundvallaratriði að launakjör þeirra verði ekki tengd verðmæti aflans á neinn hátt. Ámi sagði enn óljóst hve mikinn kostnað þetta aukna eftirlit hafí í för með sér, en hins vegar sé ljóst að fjölga verði veiðieftirlitsmönn- um verulega, enda sé um 54 full- vinnsluskip að ræða. Þorsteinn Már Baldvinsson, „Mér fínnst eðlilegt að þessi mál séu í endurskoðun og reynt að finna leiðir til að reka þetta betur,“ sagði Magnús Jónasson, framkvæmda- stjóri Heijólfs hf. í Vestmannaeyj- um, sem ekki hafði heyrt af ákvörð- un ráðherra þegar Morgunblaðið bar hana undir hann í gær. „Vegagerðinni hefur verið falið að setja fram tillögur um fyrirkomu- lag á eignarhaldi og rekstri þessara Sturlaugur Sturlaugsson, að- stoðarframkvæmdastjóri Haraldar Böðvarssonar, segir að þetta mál snúist fyrst og fremst um það, hvort sjávarútvegsráðuneytið treysti útgerðarmönnum til að sinna skyldum sínum. Ef veiðieftir- litsmenn verði um borð í frystitog- urunum allt árið vantreysti ráðu- neytið þeim augljóslega. Sturlaugur segist telja alveg skipa,“ sagði Þórhallur Jósepsson, en eins og fram kom í Morgunblað- inu fimmtudaginn 11. júni er styrk- þörf núverandi rekstraraðila um 300-400 milljónir króna á ári, og skuldastaða þeirra við ríkissjóð slík, að ekki er gert ráð fyrir að lánin fáist endurgreidd af rekstri þeirra. Þórhallur kvað hugmyndina vera þá að Vegagerð ríkisins verði gerð að milliliði um styrkveitingar til Um er að ræða margvíslegar mælingar og tilraunir í líkönum, sem Vita- og hafnamálastofnun annast. rekstursins og sem mögulegur út- boðsaðili, en ekki sem eignar- eða rekstraraðili. Samgönguráðuneyti og Vegagerð muni því ekki vera aðilar að stjómun fyrirtækjanna. Aðspurður kvað hann óvíst á þessu stigi hvort ríkið leysti skipin til sín. „Það er ekki komið að því að hægt sé að segja til um hvort alfar- ið verði um að ræða útboð á rekstr- inum, eða hvort einhvers staðar verði aðrar leiðir farnar," sagði Þórhallur. „Að minnsta kosti ætíurn við ekki að byija á því að bijóta upp þau félög sem starfandi eru á þessu sviði.“ Aðspurður kvað Þórhallur ekki vera um stefnubreytingu í feiju- rekstri að ræða á þessu stigi, heldur lið í samræmingu samgöngumála. Þó væru möguleikarnir á stefnu- breytingu jafn opnir og áður. Lántakandinn verður Hafnarsjóður Flekkukvíkurhafnar sem er í eigu Vatnsleysustrandarhrepps en ríkis- ábyrgð verður veitt fyrir láninu. Hafnamálastofnun hafði gert kostnaðaráætlun sem nam 52 millj- ónum kr. Eftir að málið var rætt að nýju milli rikisstjómarinnar og Vita- og hafnamálastjórnar var niðurstað- an sú að 40 milljónir kr. nægðu til þessa verkefnis. „Við erum að ljúka öllum tækni- legum atriðum í samningunum og erum í stöðugu sambandi við Atlant- sálhópinn. Forstjórar Hoogovens voru, eins og kom fram í íjölmiðlum, í heimsókn hér á landi, og ég geri sömuleiðis ráð fyrir að hafa í sumar samband við forstjóra Alumax. Síðan verða fundir í september, sem ég tel líklegast að verði hér á landi, á milli helstu nefndanna í þessu máli, en þó verða fundir samninganefnda ekki fyrr en í byijun október. Þá vonast ég til að unnt verði að skýra línurnar í málinu en ég verð mjög var við það að allir aðilarnir eru mjög staðfastir í sínum ásetningi að reisa hér álver þegar færi gefst,“ sagði viðskipta- ráðherra. Hann sagði að mun minna ál hefði borist frá fyrrum sovétlýðveldum á þessu ári en i fyrra og álverð hefði verið að hækka síðustu daga. „Lík- urnar fyrir byggingu álversins hafa ekki minnkað og horfumar eru frek- ar bjartari en þær voru fyrir hálfu ári,“ sagði viðskiptaráðherra. Akvörðun samgönguráðherra: Ferjur og* flóabátar undir sljóm Vegagerðarinnar Gæti hækkað bensíngjald og þungaskatt Samgönguráðherra hefur ákveðið að Vegagerð ríkisins skuli í fram- tíðinni hafa yfirumsjón með rekstri ferja og flóabáta við ísland. Með- al annars er gert ráð fyrir að Vegagerðin sjái um möguleg útboð á rekstri skipanna. Að sögn Þórhalls Jósepssonar, deildarstjóra í sam- gönguráðuneytinu, mun fara fram endurskoðun tekjustofna Vegagerð- arinnar samfara auknum útgjöldum hennar vegna rekstrarstyrkja ferjanna. Kann þetta að hafa í för með sér hækkanir á mörkuðum tekjustofnum Vegagerðar rikisins, að sögn Þórhalls. Meðal markaðra tekjustofna er þungaskattur og bensíngjald.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.