Morgunblaðið - 08.07.1992, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1992
3
Borgarráð:
Laxveiði til
reynslu í
Reynisvatni
BORGARRÁÐ hefur heimilað að
sleppa eldislaxi í Reynisvatn á
Reynisvatnsheiði utan við Reykja-
vík til reynslu í sumar.
í erindi Gauta Elvars Gunnarsson-
ar og Guðbrands Jónatanssonar til
borgarstjóra er óskað eftir heimild
til að koma upp aðstöðu fyrir lax-
veiði í vatninu. Gert er ráð fyrir að
laxveiðileyfin verði seld gegn hóflegu
gjaldi auk þess sem greitt verður
fyrir hvem veiddan lax. Bent er á
að Reynisvatn sé eilítið nær Reykja-
vík en Hafravatn og að það sé lítið
og tiltölulega óþekkt. í það renni
ekki vatn né úr því og því virðist sem
lífríkinu stafi lítil sem engin hætta
af eldislaxinum.
Um 240 þús.
stolið úr
Múlakaffi
UM 240 þúsund krónum var stolið
í innbroti i Múlakaffi í Hallarmúla
í fyrrinótt. Stolið var tveimur pen-
ingakössum. í öðrum voru um 40
þúsund krónur og í hinum um 200
þúsund krónum úr eigu Rauða
kross íslands, sem er með spila-
kassa á staðnum.
Síðustu starfsmenn munu hafa
yfírgefið Múlakaffi um klukkan eitt
eftir miðnætti en um klukkan hálf-
þrjú uppgötvaði öryggisvörður að
rimlahlið fyrir aðaldyrum veitinga-
staðarins hafði verið spennt upp og
síðan farið inn um dyrnar.
Auk þess uppgötvaðist eftir að
eigandi og lögregla komu á staðinn
að kveikt hafði verið undir potti þar
sem í var feiti og mun talið ólíklegt
að starfsfólk hafí gleymt að slökkva
undir pottinum.
RLR vinnur að rannsókn málsins.
♦ ♦ ♦
Rottugangur í rúss-
neskum togara:
Farmurinn
spilltist ekki
JÓN Sigurðarson, framkvæmda-
stjóri Fiskafurða hf., sem var
kaupandi farms rússneska togar-
ans þar sem rottur fundust í síð-
ustu viku, segir að miðað við nið-
urstöður prófana hafi rottugang-
urinn ekki spillt vörunni á nokk-
urn hátt. Um borð voru um 180
tonn af fiskiinjöli og frystum fiski,
sem allur verður seldur til Evr-
ópu. Jón segir að hér hafi auðvit-
að verið um leiðindaatvik að ræða,
en á hitt beri að líta að rottur finn-
ist líka hér á landi.
Jón segir að farmur skipsins hafí
verið frystur fískur; karfí, síld og
þorskur, auk fiskimjöls, alls um 180
tonn. Verulegur hluti farmsins hafí
þegar verið seldur til Evrópu og mið-
að sé við að það sem eftir er fari
þangað líka.
Hann segir að farmurinn hafi ver-
ið athugaður sérstaklega með tilliti
til þess hvort rottugangurinn hafi
spillt honum á einhvern hátt.
Ríkisstjórnin:
Boð um aukaaðild að VES til umræðu
RÍKISSTJÓRNIN ræddi á fundi sínum í gær boð þýzku ríkissljómar-
innar um að viðræður hefjist milli íslands og Vestur-Evrópusam-
bandsins (VES) um aukaaðild að sambandinu. Málið var kynnt í utan-
ríkismálanefnd Alþingis og er þar til umfjöllunar.
Vestur-Evrópusambandið hefur
verið samstarfsvettvangur níu
Evrópubandalagsríkja, sem jafn-
framt eiga aðild að Atlantshafs-
bandalaginu (NATO) um vamar-
og öryggismál. Þau EB-ríki, sem
ekki eru í sambandinu, eru írland,
sem er hlutlaust ríki, og NATO-
ríkin Danmörk og Grikkland.
Stefnt er að því að VES verði í
framtíðinni varnarbandalag Evr-
ópuríkja og hefur verið samþykkt
að stofna sérstaka loft-, land- og
?r. r:: ■' ■'
sjóheri á vegum sambandsins, sem
hægt verði að senda til ríkja utan
Atlantshafsbandalagsins til frið-
argæzlustarfa, neyðaraðstoðar
eða íhlutunar á borð við það, sem
gerðist í Persaflóastríðinu.
Á síðasta ári bauð þýzka stjóm-
in, sem farið hefur með for-
mennsku í sambandinu, þeim
NATO-ríkjum í Evrópu, sem eru
utan sambandsins, Noregi, íslandi
og Tyrklandi, aukaaðild að VES.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
lét á þeim tíma svo um mælt að
íslendingar ættu að taka slíku
boði jákvætt.
Á fundi utanríkis- og varnar-
málaráðherra Vestur-Evrópusam-
bandsins, sem haldinn var í Bonn
19. júní, var ákveðið að bjóða ís-
landi, Noregi og Tyrklandi til
forrnlegra viðræðna. Norðmenn
hafa þegar þekkzt boðið, eins og
fram kom í Morgunblaðinu í gær.
í yfirlýsingu fundarins, sem kennd
er við Petersberg, voru skilmálar
aukaaðildar skilgreindir. Að sögn
Jóns Sigurðssonar, starfandi utan-
ríkisráðherra, hefur ríkisstjóminni
nú borizt bréf frá Klaus Kinkel,
utanríkisráðherra Þýzkalands, þar
sem íslendingum er boðið til við-
ræðna um hugsanlega aukaaðild
að VES á grundvelli Petersberg-
yfirlýsingarinnar.
Jón sagði að ríkisstjórnin hefði
ekki tekið ákvörðun um svar við
bréfí Kinkels. Samráð yrði haft
við utanríkismálanefnd og athug-
að á vettvangi ríkisstjórnarinnar
hvað í aukaaðild að VES fælist.
„Ég legg á það mikla áherzlu að
við teljum Atlantshafsbandalagið
vera grundvöll vamarstefnu okk-
ar. Samstarfið við Atlantshafs-
bandalagsríkin og sérstaklega
Bandaríkin er grundvöllur okkar
varnarsamstarfs," sagði hann.
G | A L D E Y R 1 R
G
oðir dagar framundan í fríinu.
Njóttu lífsins í fríinu meb feröogjaldeyri
og í bol frá íslandsbanka.
Nú er sá tími ársins runninn
upp aö feröalög til útlanda ná
hámarki. Þaö ríkir alltaf ákveöin
stemmning þegar fariö er í
sumarfrí og aö mörgu þarf aö
huga áöur en lagt er í'ann.
Vegabréf, farseöill og fatnaöur
þurfa aö vera meö svo ekki sé
minnst á farareyrinn!
, .0
.......
1
:: ;
Islandsbanki tekur þátt í
feröastemmningunni og gefur
lífinu lit á „alþjóölegan" máta.
Þegarþú kaupir gjaldeyri hjá
okkur veitum viö þér ráögjöf
byggöa á reynslu og kveöjum
þig meö stuttermabol ef þú
kaupir fyrir 25.000 króntir.-
meira. * Á bolnum^ er^inaleg
kveöja á mörgtím tungumálum.
#
íM.vtKM.vi:
Fáeinir fróöleiksmolar í fríiö!
Nauösynlegt er aö hafa lítinn
hluta farareyrisins í mynt
viökomandi lands til aö mœta
smáútgjöldum í upphafi
dvalar.
Feröatékkar eru öruggir,
handhœgir og ódýrir.
Þaö er ódýrara aö nota
feröatékka en aö taka gjald-
eyri út á greiöslukort í
útlöndum.
■ Glatist feröatékkar fást þeir
bœttir en reiöufé ekki.
Starfsfólk íslandsbanka ráöleggur þér um heppilega
samsetningu á farareyri þínum.
Qóba ferb í fríib/
r
ISLAN DSBAN Kl
- í takt við nýja tíma!
n
>
r*
O
*Meöan birgöir endast.
90