Morgunblaðið - 08.07.1992, Side 4
eeer ijin. .8 juoAauJnvQiK aiaAjaiíuoflOM
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1992
Ný skýrsla OECD um efnahagshorfur á íslandi;
Reiknað með áframhaldandi
kyrrstöðu á næstu misserum
Hið jákvæða er mikil lækkun verðbólgunnar
í NÝRRI skýrslu sem OECD hefur gefið út um efnahagshorfur á ís-
landi fyrir árin 1991/1992 kemur m.a. fram að reiknað er með áfram-
haldandi kyrrstöðu í efnahag landsins á næstu misserum. Þessa þróun
má að mestu rekja til versnandi ytri skilyrða svo sem samdráttar í
þorskveiðum og verðfalls á áli á erlendum mörkuðum. En fyrirhuguð-
um álframkvæmdum sem hefjast áttu á þessu ári var slegið á frest
vegna mikils framboðs á áli frá samveldisrikjunum og söfnun birgða
í framhaldi af því. Bjarta hliðin á efnahagsmálunum er hin mikla lækk-
un verðbólgunnar.
í skýrslu OECD kemur fram að
efnahagshorfur mótist öðru fremur
af væntanlegum fiskafla og þróun
fiskverðs. Horfur í þessum efnum
eru ekki uppörvandi. Samkvæmt
nýjustu upplýsingum um ástand
þorskstofnsins er líklegt að takmarka
þurfi sókn til að tryggja eðlilegan
viðgang stofnsins. Heimsmarkaðs-
verð á físki var hátt á síðasta ári og
er enn miðað við undanfarin ár. Því
virðist sennilegra að fískverð lækki
á næstu árum en hækki. Ástandið á
álmörkuðum gæti einnig haft tölu-
VEÐUR
verð áhrif á hagvöxt á íslandi. Verð
á áli er mjög lágt um þessar mundir
í sögulegu samhengi og ætti að
hækka samfara auknum hagvexti í
heiminum. OECD telur þó ósennilegt
nú að álframkvæmdir hefjist nægi-
lega snemma til þess að mikilla
áhrifa af þeim gæti á íslenskt efna-
hagslíf næstu tvö árin.
Bjarta hliðin á íslenskum efna-
hagsmálum er hin mikla lækkun
verðbólgunnar sem komin var niður
á svipað stig og í öðrum OECD-lönd-
um í árslok 1991. OECD segir að
festa í efnahagsstjóm og hófsamir
kjarasamningar séu forsenda fyrir
áframhaldandi stöðugleika í efna-
hagsmálum. Í þessu sambandi sé
mikilvægt að ríkisstjórn láti ekki
undan kröfum um aukin útgjöld og
tefli þannig ríkisfjármálum í tvísýnu.
Slík stefna geti skilað miklum ávinn-
ingi. Lág verðbólga getur skapað
forsendur fyrir stöðugleika á fjár-
magnsmarkaði. Ávinningurinn af
slíkum stöðugleika er að stjómvöld
fylgi trúverðugri stefnu í peninga-
málum. Þennan trúverðugleika megi
styrkja með auknu sjálfstæði Seðla-
bankans í samræmi við nýtt frum-
varp til laga um bankann.
OECD telur að hallinn á ríkisbú-
skapnum nú sé meiri en svo að hægt
sé að grípa til skattalækkana eða
aukinna ríkisútgjalda til að auka eft-
irspum í hagkerfínu. Hrein lánsþörf
ríkissjóðs, sem OECD álítur mikil-
vægustu ríkisfjármálastærðina, er
nú 2-3% af landsframleiðslunni.
IDAGkl. 12.00
Heimild: Veöurstofa istands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 í gær)
VEÐURHORFUR I DAG, 7. JULI
YFIRLIT: Á Grænlandshafi er 998 mb lægð sem þokast norðaustur en
hæðarhryggur vestur af Noregi þokast heldur suður.
SPÁ: Fremur hvöss suðvestanátt með skúrum sunnan- og vestanlands,
en bjart víða um austanvert landiö.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG: Fremur hæg vestan- og
norðvestanátt. Skúrir vestan- og norðvestanlands, en þurrt og bjart um
austanvert landiö. Hiti 6 til 11 stig.
Svarsími Veðurstofu ístands — Veðurfregnír: 990600.
ö
Heiðskírt
/ r r
f f
f f f
Rigning
Léttskýjað
* / *
* /
/ * /
Slydda
Hálfskýjað
* * ♦
* *
* * *
Snjókoma
Skýjað
V 'V’
Skúrir Slydduél
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
Alskýjað heil fjöður er 2 vindstig.^
* 10° Hitastig
V V Súld
Él = Þoka
dig-.
í?
FÆRÐA VEGUM: (Ki.i7.3oígær)
Allir helstu vegir um landið eru nú greiðfærir. Fjallabaksleið nyrðri hefur
nú verið opnuð. Fært er fjallabílum um Lakaveg, Kjalveg, Sprengisand
um Bárðardal, nyrðri Gæsavatnaleið, öskjuleið, Kverkfjallaleið og um
Fljótsdalsheiði í Snæfell. Uxahryggir og Kaldidalur eru opnir allri um-
ferð. Ófært er um Fjallabaksleið syðri en gert er ráð fyrir að sú leið
opnist nú í vikunni. Vegagerðin.
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hiti veður
Akureyri 16 skýjað
Reykjsvík 9 súld
Bergen 18 léttskýjað
Helsinki 14 skúr
Kaupmannahöfn 24 léttskýjað
Narssarssuaq 7 alskýjað
Nuuk 1 þoka
Ósló 24 léttskýjað
Stokkhólmur 20 léttskýjað
Þórshöfn 12 þoka
Algarve 25 þokumóða
Amsterdam 20 léttskýjað
Barcetona vantar
Berlín 21 skýjað
Chicago 18 alskýjað
Feneyjar 22 þokumóða
Frankfurt 17 skýjað
Glasgow 22 skýjað
Hamborg 23 hálfskýjað
London 20 skýjað
Los Angeles 21 alskýjað
Lúxemborg 18 skýjað
Madríd 24 skýjað
Malaga 24 léttskýjað
Mallorca 28 léttskýjað
Montreal 15 þokumóða
New York 20 léttskýjað
Orlando 25 heiðskfrt
Paris 21 skýjað
Madeira 21 skýjað
Róm 23 léttskýjað
Vín vantar
Washington 20 léttskýjað
Winnipeg 15 skýjað
Þetta sé óþægilega hátt hlutfall og
þurfí að lækka á næstu árum. Þótt
nú sé stefnt að jöfnuði í ríkisfjármál-
um 1993 telur OECD að erfítt verði
að ná því markmiði í Ijósi horfa um
áframhaldandi kyrrstöðu í þjóðarbú-
skapnum en brýnt er að aðhalds verði
gætt í ríkisfjármálum.
Hvað varðar umbætur í hagkerf-
inu telur OECD að hagræðing í veið-
um, með auknu frelsi til kvótavið-
skipta, geti leitt til verulegs sparnað-
ar og tekjuauka fyrir sjávarútveginn
og þjóðarbúið. Til skamms tíma geti
það leitt til aukins atvinnuleysis og
byggðaröskunar en sveigjanleiki ís-
ienska vinnumarkaðarins gefur til-
efni til að ætla að þessi aðlögunar-
vandi sé leysanlegur.
Frekari umbætur á sviði fjármála
hafa einnig til lengri tíma litið örv-
andi áhrif á framleiðni hagkerfísins
vegna þess að aðhald markaðsafla
að ákvörðunum um fjárfestingar
eykst. OECD nefnir að einkavæðing
húsnæðislánakerfísins gefí einkaaðil-
um kost á meiri fjölbreytni á fjár-
magnsmarkaðinum. Og í því skyni
að gera innlenda fjármagnsmarkað-
inn skilvirkari megi einnig bjóða út
ríkisverðbréf og loka fyrir aðgang
ríkissjóðs að lánsfé úr Seðlabankan-
um eins og ríkisstjómin stefnir nú að.
Fiskimjölsverksmiðjan á Kletti.
Borgarráð;
Verksmiðjan
á Kletti fær
rekstrarleyfi
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
samhljóða að veita fiskimjölsverk-
smiðju Faxamjöls hf. á Kletti í
Reykjavík bráðabirgðaleyfi fyrir
áframhaldandi rekstri á næstu
loðnuvertíð. Leyfið er veitt með
því skilyrði að ákvæði um bráða-
birgðaleyfi verði fylgt í hvívetna.
Gert er ráð fyrir að leyfíð gildi í
tvo til fjóra mánuði. Kristín Á. Olafs-
dóttir, Nýjum vettvangi, lagði fram
bókun á fundinum, þar sem fram
kemur að vegna atvinnuástands og
í ljósi þess að verksmiðjan verður
rifín á næsta ári vegna skipulags,
þá greiði hún atkvæði með bráða-
birgðaleyfinu.
íslenskur fiskur á frönskum þjóðvegum:
Talið að fiskurinn liggi
ekki undir skemmdum
STARFSFÓLK Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna í París var í sam-
bandi við flutningsaðila fisks frá íslandi á klukkustundar fresti í
gær til að fylgjast með gangi mála en talið er að 10 til 12 gámar
af frystum fiski héðan séu í tepptum flutningabílum á frönskum
þjóðvegum.
Lúðvík B. Jónsson hjá SH í París
sagði í samtali við Morgunblaðið að
vitað væri um flutningabíla með ís-
lenskan físk sem búnir væru að vera
fastir í fímm daga. Hann sagði að
ekkert benti til þess í gær að umferð-
arhnútarnir væru að leysast og svo
virtist sem óeirðalögreglunni hefði
aðeins tekist að leysa úr málunum í
mjög litlum mæli.
Hann sagði að ekki væri vitað til
þess að fískur frá íslandi lægi neins
staðar undir skemmdum. „Við vorum
smeykir við eitt tilvik þar sem við
fréttum að bíll væri að verða olíulaus
um helgina. Sá bíll fékk hins vegar
olíu á nærstöddum bóndabæ til að
setja á frystitankinn þannig að hann
gat haldið vörunni frystri. I dag vit-
um við því ekki um neina vöru sem
er að skemmast eða liggur undir
skemmdum," sagði Lúðvík.
Fundur BSRB og Starfsmannaráðs Keflavíkur:
Ákveðið að bíða
eftir bæjarsljóra
Á FUNDI Starfsmannafélags
Keflavíkur og BSRB í gær var
farið yfir réttindi þeirra starfs-
manna á bæjarskrifstofu, í tækni-
deild og hjá Sérleyfisbifreiðum
Keflavíkur sem bæjarráð Kefla-
víkur hefur tekið ákvörðun um
að segja upp störfum. Hólmar
Magnússon, formaður Starfs-
mannafélags Keflavíkur, segir að
ekki verði ákveðið hvernig brugð-
ist verði við uppsögnunum fyrr
en rætt hafi verið við bæjarstjóra
en hann kemur úr sumarleyfi 20.
júli nk.
„Við skoðuðum stöðuna og könn-
uðum hvaða réttindi hver og einn
starfsmaður sem sagt var upp hefði,“
segir Hólmar.
„Það voru hins vegar engar
ákvarðanir teknar um hvernig brugð-
ist verði við þessu. Ætlunin er að
eiga fund með bæjarstjóra þegar
hann kemur úr fríi eftir hálfan mán-
uð. Fram að þeim tíma verður beðið
með allar aðgerðir," segir Hólmar.
Ögmundur Jónasson, formaður
BSRB, segist ekkert vilja gefa upp
um afstöðu sína fyrr en málið hefði
verið kannað nánar. „Það er Ijóst að
við munum standa á réttindum okkar
félagsmanna en málið er í athugun,"
segir Ögmundur.
Borgarráð:
Hjólaleig-a í
Laug-ardal
BORGARRÁÐ hefur samþykkt til-
lögu íþrótta- og tómstundaráðs,
að verða við ósk um að komið
verði upp aðstöðu fyrir hjólaleigu
við tjaldstæðin í Laugardal í sum-
ar. Er gert ráð fyrir um 50 reið-
hjólum til útleigu.
í erindi Geirs Birgis Guðmunds-
sonar og Jónasar Þórðarsonar er
óskað eftir aðstöðu fyrir rekstur
hjólaleigu ásamt tengdri þjónustu við
tjaldstæðin. Gera þeir ráð fyrir að
leigan geti veitt tveimur mönnum
vinnu í þijá tii fjóra mánuði en þeir
erú báðir atvinnulausir.