Morgunblaðið - 08.07.1992, Side 7
7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8f JÚLÍ 1992
Heyskapur er haf-
inn um allt land
SLÁTTUR hófst um mánaðamót júní-júlí víðast hvar á landinu og er
spretta þokkaleg. Vætutíð hefur undanfarna daga tafið fyrir bændum
á Vestur- og Suðurlandi. Sláttur er jafnvel hafinn á Norðurlandi eystra
þó að jörð hafi orðið alhvít í júnímánuði og enn sé snjór í fjöllum.
Eyrún Sæmundsdóttir í Sólheima-
hjáleigu í Mýrdal sagði að sláttur
hefði byijað um mánaðamót júní-
júlí, ekki hefði verið vel sprottið en
víða hefði heyjast ágætlega. Hún
sagði að erfitt hefði verið til útiverka
undanfarna daga vegna rigningar
og einnig hefði verið vindasamt.
Eyrún sagði að góð spretta væri og
horfur ágætar.
Davíð Pétursson á Grund í
Skorradal sagði að allur gangur
væri á heyskapnum. Sumir væru
nánast búnir á meðan aðrir væru
ekki byrjaðir. Davíð sagði að þeir sem
væru með rúlluheyskap og hefðu
ekki beitt á túnin í vor væru nánast
búnir, en þeir sem hefðu beitt hefðu
verið að bíða eftir sprettu. Hann
sagði að góð spretta væri nú vegna
vætutíðar undanfarna daga en þessi
væta kæmi jafnframt í veg fyrir að
hægt væri að helja heyskap.
Valdimar Guðjónsson í Gaul-
verjabæ í Gaulveijabæjarhreppi hafði
svipaða sögu að segja og Eyrún og
Davíð. Valdimar sagði að í síðustu
viku hefðu flestir byijað heyskap
þegar þurrkur hefði komið og hefðu
margir náð heilmikiu, en nú tefði
rigning fyrir útiverkum. Sumir væru
þó nær búnir að ná því sem væri vel
sprottið. Valdimar sagði að kuldi í
vor og sólarleysi hefði tafið sprettuna
en nú væri hún þokkaleg og horfur
ágætar.
Björgvin Þóroddsson í Garði í Þist-
ilfirði sagði að heyskapur hefði haf-
ist um mánaðamót júní-júlí. Hann
kvað einstaka bændur vera hálfnaða
með sláttinn. Hann sagði að lítil úr-
koma í vor og kuldakast í júnímán-
uði hefði dregið úr sprettu en hún
væri þokkaleg nú. Að sögn Björgvins
er það þurrkatíð en ekki vætutíð sem
hefur tafið fyrir bændum í nágrenni
við hann.
Hvernig
ferð þú að
því að eignast
þ18 milljónir?
Vinnuskóli
Reykjavíkur:
Skólastjóri
ráðinn til
starfa allt árið
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
samhljóða að ráða Arnfinn Jóns-
son, skólastjóra Vinnuskólans, til
starfa allt árið.
í erindi Jóhanns Pálssonar, garð-
yrkjustjóra Reykjavíkurborgar, til
borgarráðs kemur fram að umfang
Vinnuskólans hafi aukist verulega
og eru nemendur rúmlega 1.900 og
leiðbeinendur á annað hundrað. Það
sé því tímabært að ráða skólastjóra
til starfa allt árið.
„Jafnframt hefur komið fram í
skóiamálaráði að æskilegt sé að kom-
ið verði á nánu samstarfi grunnskói-
anna í Reykjavík og Vinnuskólans
svo sem um undirbúning sumarstarfs
Vinnuskólans og aðstoð Vinnuskól-
ans við grunnskólana hvað varðar
vettvangs- og náttúruskoðunarferð-
ir, kynningar á ýmsum þáttum at-
vinnulífsins o.s.frv."
Því er lagt til að ráðinn verði skóla-
stjóri að skólanum allt árið og jafn-
framt lýsir stjórn Vinnuskóians sig
fylgjandi nánu samstarfi við skóla-
málaráð og skólaskrifstofur.
-----».♦.♦----
Skálholtsvegur:
Lægsta tilboð
53% af áætlun
LÆGSTA tilboð í lagningu Skál-
holtsvegar, frá Skeiðavegi að
Helgastöðum, var rétt rúmlega
helmingur af kostnaðaráætlun
Vegagerðarinnar en tilboð voru
opnuð fyrir skömmu. Tilboð þetta
er frá Vörubílsljórafélaginu
Mjölni.
Vegarkafiinn er rúmir 6 km að
lengd og á verkið að vinnast í sum-
ar. Kostnaðaráætlun var 11 milljónir
kr. Tiiboð Mjölnis var 5,8 milljónir
rúmar sem er 53,2% af áætiun. Ónn-
ur tilboð voru á bilinu 7,6 til 8,6
milljónir kr.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Björn Guð-
mundsson
borinn til
grafar
Bjöm Guðmundsson útgerðarmað-
ur og kaupmaður var jarðsunginn
laugardaginn 4. júlí sl. í Vest-
mannaeyjum. Mikill mannfjöldi
fylgdi honum til grafar. Á mynd-
inni sjást bera kistuna t.v. Árni
Johnsen, Guðjón Hjörleifsson og
Bragi Ólafsson, en t.h. Arnar Sig-
urmundsson, Magnús Jónasson og
Jóhann Friðfmnsson.
Margir telja sig ekki hafa efni á ab spara þó flestir kjósi oð
tryggja fjárhagslegt öryggi sitt og eiga varasjób til ab láta draumana
rœtast. Stabreyndin er hins vegarsú ab jafnvel smáar upphœbir eru fljótar
ab vaxa. Besta leibin erabgera sparnab ab hluta af „útgjöldum" hvers
mánabar. Einstaklingur sem leggur daglega fyrir andvirb! eins sígarettu-
pakka, um 225 krónur, frá 25 ára til 64 ára aldurs á ab loknum
sparnabartíma 18 milljónir króna, m.v. 7% raunávöxtun. Sparnaburí
smáum stíl getur þannig skilab
'O^ S ^ A
sér í háum fjárhœbum án
teljandi fyrirhafnar.
Til ab tryggja þér árangur í
sparnabi býburíslandsbanki upp
á Spariþjónustu. Þú getur samib
um þrjár mismunandi leibir til ab
koma á reglubundnum sparnabi:
1. Meb sjálfvirkri millifærslu af tékka- eba sparireikningi.
2. Meb mánabarlegri skuldfœrslu á greibslukort.
3. Meb heimsendum gírósebli.
íslandsbanki býbur upp á mismunandi Sparileibir sem
bera góba ávöxtun. Þjónustufulltrúar bankans eru tilbúnir oð finna
hagstæbustu leibina fyrirþig. Þú finnurrétta svarib og réttu Sparileibina
þína í reglubundnum sparnabi meb abstob Spariþjónustu íslandsbanka.
Spariþjónusta íslandsbanka
| - rétta svarib vib reglulegum sparnabi!
a
s
u_
<
Q