Morgunblaðið - 08.07.1992, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 08.07.1992, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1992 Efnilegnr söngvari _____Tónlist_____ Jón Ásgeirsson Maren Finnsdóttir, sem stund- ar söngnám á Ítalíu, notaði sum- arleyfi sitt til að halda tónleika að Gerðubergi, sl. mánudag og naut þar til aðstöðar Ólafs Vign- is Albertsson píanóleikara. Á efnisskránni voru söngverk eftir Bellini, Rossini, Verdi, Mozart, Gounod, Puccini og Bizet, allt vinsæl og erfið verkefni. Það eina sem í raun er hægt og sanngjarnt að segja um söng Marenar, er að henni er gefin sú Guðsgjöf, sem heitir frábær- lega falleg og mikil rödd og músikgáfa, sem þó er enn nokk- uð hamin af meðvitaðri tækniút- færslu, er lýtur t.d. að öndun og tónmótun. Túlkun og „syngj- andi“ raddarinnar verður ekki frjáls fyrr en tæknin hefur náð því þjálfunarstigi að vera ósjálf- rátt og eðlilegt tæki, en ekki eitt- hvað, sem verið er að ná valdi á og þjálfa. Hvað þetta snertir er Maren nokkuð snemma á ferð: inni með sína fyrstu tónleika. í lögunum eftir Rossini, La pro- messa og L’invito, svo og Lo spazzacamino, eftir Verdi, brá fyrir blómstrandi fallegum söng EIGNAMIÐDOMN hf Sími 67-90-90 - Síðumúla 21 Kringlan Til sölu glæsileg kvenfataverslun í gömlu Kringlunni. Fallegar innr. Góð vörumboð. Verslun í vexti. Góður sölutími framundan. Langur leigusamningur fyrir hendi. Upplýsingar aðeins á skrifstofu hjá Sverri Kristinssyni eða Guðmundi Skúla Hartvigssyni. 1 51 57fl LÁRUS Þ- VALDIMARSSOM framkvæmdastjori L I I v'U’LlO/U KRISTINN SI6URJÓNSS0N, HRL. lóggiltur fasteignasali Til sýnis og sölu meðal annarra eigna: Úrvalsíbúð við Ofanleiti Endaíb. 4ra herb. 104 fm. 3 góð svefnherb. Sérþvhús. Tvennar svalir. Bflsk. m. geymslurisi. Langtlán kr. 5,9 millj. Eign i sérfl. Einbhús - gott verð - eignaskipti Glæsil. steinhús ein hæð 130 fm. Bílsk. 36 fm. Nýendurbyggt og stækk- að á útsýnisstað í Suðurbænum. í Hafnarf. Ræktuð lóð 630 fm. Endurbyggð sérhæð í gamla góða Vesturbænum 3ja herb. neðri hæð, 99,3 fm nettó. I kj. fylgir rúmg. geymslu- og föndurherb. Eignarlóð. Þríbýli. Langtlán kr. 5,0 millj. Eign í sérfl. Góðar 3ja herb. íbúðir m. bílskúrum við Álftamýri og Hrafnhóla. Eignask. mögul. Ennfremur góð 3ja herb. mikið endurn. íb. skammt frá Ellih. Grund. Skammt frá Fossvogsskóla 5 herb. góð íb. á 2. hæð 120 fm. 4 svefnherb. Sérþvhús. Bílsk. Fráb. staður. Tilboð óskast. Hveragerði - einbhús - eignaskipti Gott timburhús 117,4 fm nettó. Vel með farið á ræktaðri lóð v. Borgar- heiði. 4 svefnherb. Bílsk. m. geymslu 29,3 fm. Eignask. mögul. Á söluskrá óskast - traustir kaupendur 2ja herb. fbúð í Árbæjarhverfi eða Fossvogi. Einbýlishús í borginni eða Norðurbænum í Hafnarfirði. Raðhús í borginni eða nágrenni 100-120 fm. Einbýlishús á einni hæð helst miðsvæðis í borginni. Margir bjóða miklar og örar peningagreiðslur. Ýmis konar eignaskipti. • • • Einbhús og 3ja-4ra herb. íb. óskast f gamla Austurb. Opið á laugardaginn. Kynnið ykkur laugardags- auglýsinguna. LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370 I lurgmMup it> " Blaóió sem þú vakrnr vió! ALMENNA FASTEIGNASALAN Maren Finnsdóttir og af óperuaríunum var O, mio babbino caro, eftir Puccini best sungið. Þrátt fyrir ýmis „nervös“ augnablik, var framsetning Mar- enar örugg og naut hún þar góðs stuðnings frá Ólafi Vigni Albertssyni. Maren Finnsdóttir er efnileg söngkona og takist henni að heyja sér meiri forða kunnáttu og tækni, mun henni búnast vel, því ærna hefur hún hæfileikana, ríkidæmi fagurrar og mikillar raddar, sem ætti að vera henni dijúgt veganesti til ferðar þeirr- ar, „að syngja fyrir þjóðir“. „Dagur villandi sýn“ Bókmenntir Jón Stefánsson STEINFUGLAR. Ljóð. Friðrika Benónýs. Eigin útgáfa. 1992. Friðrika Benónýs er ekki mælskt skáld, hún er þvert á móti afar spör á orðin og hefur strax í sinni fyrstu bók tekið þá stefnu að segja alltaf færri og færri orð: Veruleikur Ekkert meir aðeins tómið og ástin sem var ekki horfin í kófínu svarta Bókin Steinfuglar skiptist í fimm hluta og inniheldur 32 ljóð. Fyrsta ljóð bókarinnar, Veruleikur, gefur tóninn; á eftir fylgja ljóð í sama meitlaða stíl, og dimmt yfir þeim flestum. Yrkisefni Friðriku bjóða heldur ekki uppá mikla kátínu. Hún yrkir um einmanaleg- ar barferðir, sorg, bölsýni og ást- ina. Ef ástin hefur einhvern tímann fært ljóðmælandanum Ijós og gleði, þá gerir hún það ekki í dag. Ástin er bara „útvötnuð ýsa/á alt- ari/hljóðbylgjanna, eða minning sem færir fátt annað en sársauka: Nóg kveðið í hamrinum þagna þú skijáfur í tætlum aldraðra bréfa vík burt og sjást ekki meir Meitlaður stíll Friðriku gerir kröfu til lesandans, sem verður í flestum tilvikum að lesa ljóðin oft- ar en einu sinni svo þau ljúkist upp fyrir honum. En stíllinn gerir ekki síður kröfu til skáldsins. Við eigum skáld sem valda honum afar vel, ég nefni Geirlaug Magnússon og Sigfús Bjartmarsson, en mér sýn- ist sem þessi tvö skáld hafi haft einhver áhrif á Friðriku. Hættan við svona stíl er að skáldið höggvi, skeri burt of mörg orð, jafnvel orðin sem voru brúin milli lesand- ans og skáldsins. Ljóðin eru því lokuð fyrir flestum öðrum en skáld- inu, eins og ljóðið Og allir hinir Jónarnir: Það er kalt við kórbak sýnist líkum vanans og munar í ylinn. Steinfuglar er auðvitað tákn- rænn titill; fuglar orðnir að steini fljúga ekki meir. Titillinn á líka vel við ljóðin í bókinni sem reyna mörg hver að tjá tilfinningar sem eitt sinn flugu en eru núna ráðvillt- ar og „reikandi/leitandi lausna/í myrkri. Treginn og bölsýnin er ráðandi. Mér varð stundum hugsað til nýrómantísku skáldanna þegar ég hnaut um línur á borð við þess- ar: vandkvæðum bundið að rata í ljósinu dagurinn villandi sýn Eða þessar: draumurinn deginum sterkari lygin Ijúfsárust alls Nýrómantísku skáldin hafa auð- vitað ekki einkarétt á bölsýni og birtufælni á þessari öld, oft má Friðrika Benónýsdóttir rekast á álíka stemmningar í fyrstu bókum höfunda. En þó Steinfuglar sé fyrsta bók Friðriku, er fátt un- gæðislegt við ljóðin og bak við þau þykist ég skynja reynslu af ljóðum og lífi. Tæknilega séð er Steinfugl- ar líka vönduð bók og í henni eru nokkur ljóð sem óhætt er að staldra við. Helsti gallinn er niðurskurður- inn; sum ljóðin eru einfaldlega of tálguð hjá Friðriku; hún hefur tálg- að kraftinn úr þeim. Fáorð ljóð geta verið geysi kröftug, maður skynjar samþjappaðan kraft bak við hvert orð því skáldið er búið að koma mörgum orðum fyrir í eitt; stutt hnitmiðað ljóð getur veg- ið jafn mikið og pláneta. En Frið- rika hefur ekki ennþá þvílíkan kraft. Auðvitað ber þó að hafa í huga að Steinfugiarev fyrsta ljóða- bók hennar, og það er ekkert ann- að en ósanngirni í mér að kreijast mikilla landvinninga í fyrstu bók. Steinfuglar hafa gert Friðriku að skáldi, það eru miklir landvinning- ar. Tónlistartölvur fyrir fatlaða kynntar Glæsilegt parhús FULLTRÚAR frá The Drake Research Project, breskri góð- gerðastofnun, sem þróar tölvu- búnað til að auðvelda fötluðum tónlistariðkun og tónsköpun, eru nú staddir hér á landi. Stofn- unin hefur hlotið styrk frá Lista- og menningarráði Bretlands til að gera hér kvikmynd, „Handan þagnarinnar“. Þá verður hald- inn kynningarfundur á mánu- dag um starfsemi stofnunarinn- ar. Í kvikmyndinni verður íslenskt landslag í forgrunni, en tónlistin samin af íjölfötluðum einstakling- um, sem og heilbrigðum. Tölvum og tölvutækni verður beitt við tón- smíðamar. Adele Drake heldur kynningar- Dverghamrar - Vestmannaeyjum Glæsilegt parhús á mjög góðum stað við Dverghamra. Góð stofa, 4-5 góð svefnherbergi, eldhús m/nýl. innréttingu, gott baðher- bergi o. fl. Fordyri, þvottahús og geymslur. Innbyggður bíl- skúr. Állt nýmálað og í góðu ásigkomulagi. Makaskipti á ein- býlishúsi á Selfossi æskileg. Höfum jafnframt fjölda annarra eigna á skrá á Suðurlandi. Nánari upplýsingar hjá Lögmönnum Suðurlandi - fast- eignasölu, Austurvegi 38, Selfossi, sími 98-22988. fyrirlestur í Sjálfsbjargarhúsinu Hátúni 12 á mánudaginn, 13. júlí, frá kl. 14-18 og fá fatlaðir ókeyp- is aðgang. í framhaldi af fyrir- lestrinum verður boðið upp á nám- skeið þriðjudaginn 14. júlí frá kl. 10 og fá fatlaðir ókeypis aðgang. í fréttatilkynningu segir, að fyr- irlesturinn og námskeiðið höfði til allra sem starfi með fötluðum, iðju- þjálfa, sjúkraþjálfa, kennara, tón- listarfólks, tölvuáhugafólks, skóla- nema og ekki síst til fatlaðra tón- listarmanna. Tölvumiðstöð fatlaðra, verslunin Tölvuríkið og Tónstofa Valgerðar hafa aðstoðað Drake hópinn við undirbúning heinsóknarinnar og á Tónstofunni eru veittar nánari upplýsingar. Tölvubúnaður til að auðvelda fötluðum tónlistariðkun og tónsköp- un verður kynntur í Sjálfsbjargarhúsinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.