Morgunblaðið - 08.07.1992, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1992
LOKUN BANKAVIÐSKIPTA FISK VINNSLUNN AR HF. A BILDUDAL
„ÉG ÓTTAST um afdrif Fiskvinnslunnar og veit að henni verður
ekki bjargað nema með verulegum og sértækum aðgerðum," seg-
ir Magnús Björnsson stjórnarformaður fyrirtækisins. Hann segir
að þó að skuldir Fiskvinnslunnar hf. og Útgerðarfélags Bílddæl-
inga séu miklar þá séu þær ekki meiri en sem nemi eðlilegu sölu-
verði skipa fyrirtækisins.
„Leggist Fiskvinnslan hf. af þá
þýðir það gjaldþrot tuga fjölskyldna
hér. Það fólk hefur ekki í nein hús
að venda eins og atvinnuástandi
er háttað í landinu“, segir Magnús.
Magnús segir að undanfarin ár
hafi Fiskvinnslan skilað toppfram-
leiðni en það hafi ekki dugað til
þess að hafa undan afborgunum
af lánum.
Á meðan á fundi þingmanna
Vestfjarða og hreppsnefndar-
manna á Bíldudal stóð í gær barst
stjórn Fiskvinnslunnar skeyti frá
Landsbankanum þar sem stjóm og
framkvæmdastjórn Fiskvinnslunn-
ar er boðuð á fund nk. föstudag.
„Ég set allt mitt traust á banka-
stjórnina og þennan fund“, segir
Magnús, „og vona að þeir gefi okk-
ur svigrúm til að vinna okkur út
úr þessum vanda.“ Að sögn Magn-
úsar hefur bæði leynt og ljóst verið
talað um að 200 milljónir þurfi til
að gera fyrirtækin tvö á Bíldudal
vel rekstrarhæf, annað hvort með
afskriftum eða auknu hlutafé.
Magnús segir að nauðarsamningar
hafi verið nefndir í því sambandi..
Íslíkum samningum væru gjarnan
afskrifaðar þær skuldir fyrirtækja
sem ella töpuðust við gjaldþrot og
kveðst Magnús telja það hugsan-
lega leið eins og staða Fiskvinnsl-
unnar er nú.
Fiskvinnslan hf. hefur starfað í
rúm 15 ár og Útgerðarfélag Bíld-
dælinga frá árinu 1986. Við stofn-
un beggja fyrirtækjanna lögðu
Þingmennirnir Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, Sighvatur Björgvins-
son og Matthías Bjarnason við upphaf fundar á hreppsskrifstofunni
á Bíldudal.
margir einstaklingar á Bíldudal til
hlutafé. Þó að þetta hlutafé vegi
ekki þungt í prósentum er kaldr-
analegt að sumt starfsfólk Fisk-
vinnslunnar á nú yfir höfði sér
uppsögn frá fyrirtæki sem það hef-
ur lagt sitt af mörkum við að koma
á laggimar.
Viljum helst leggja upp hér
- segir Sindri
Björnsson skip-
stjóri
SJOMENN á níu 10 til 20 tonna
bátum frá Bildudal halda áfram
veiðum þótt vinnsla aflans liggi
niðri í landi. Bátarnir stunda
bolfiskveiðar, ýmist á dragnót
eða handfæri.
„Við viljum auðvitað helst
koma okkar afla í vinnslu hér, en
á meðan þetta ástand varir setjum
við aflann á markað annars stað-
ar, líklega á Patreksfirði“, segir
Sindri Már Björnsson skipstjóri á
Hallgrími Ottóssyni BA, sem
landaði 6 tonnum af þorski á
Bíldudal í gær.
Landað úr dragnótabátnum Ými BA á Bíldudal í gær, sjómaður-
inn gefur heimamanni kola í soðið.
Morgunblaðið/Róbert Sohmidt
Komið til fundarins um vanda Fiskvinnslunnar i gær, f.v. Finnbjöm Bjarnason hreppsnefndarmaður á Bíldudal, Finnur Sveinbjörnsson
hagfræðingur í viðskiptaráðuneytinu, Sighvatur Björgvinsson heilbrigðisráðherra og Ólafur Þ. Þórðarson alþingismaður. í baksýn sést niður
á höfn á Bíldudal.
Heimamenn gera sér von-
ir um bráðabirgðalausn
Landsbankinn boðar stjóm Fiskvinnslunnar hf. á fund á föstudag
Bíldudal. Frá Trausta Ólafssyni, blaðamanni Morgunblaðsins.
HREPPSNEFND Bíldudals, þingmenn Vestfjarðakjördæm-
is, forstjóri Byggðastofnunar og fulltrúi frá Viðskiptaráðu-
neyti funduðu um lokun Landsbankans á viðskiptum við
Fiskvinnsluna hf. á Bíldudal í gær. Fundurinn samþykkti
tilmæli til viðskiptaráðherra um að hann taki málið upp
við stjórn Landsbankans. Eftir fundinn eru heimamenn
bjartsýnni en áður á að bráðabirgðalausn finnist á vanda
Fiskvinnslunnar. Samt eru margar blikur á lofti og ljóst
að grípa þarf til verulegra aðgerða til þess að koma rekstri
fyrirtækjanna tveggja á Bíldudal á raunhæfan grundvöll.
í því sambandi hafa nauðarsamningar verið nefndir. Stjórn
Landsbankans boðaði með skeyti í gær stjórn og fram-
kvæmdastjórn Fiskvinnslunnar á fund nk. föstudag. Sam-
kvæmt skeytinu er efni fundarins aðeins lokun bankans á
viðskipti við fyrirtækið en heimamenn vona að fundarboð-
ið tákni möguleika á áframhaldandi rekstri.
Vona að við fáum svigrúm
til að vinna úr vandanum
- segir Magnós Björnsson sljórnar-
formaður Fiskvinnslunnar hf.
Niðurstaða fund-
ar þingamanna og
hreppsnefndar:
Viðskiptaráð-
herra ræði
við stjórn
Landsbankans
HREPPSNEFNDIN á Bíldudal
hafði forgöngu um að þingmenn
Vestfjarðakjördæmis, forsljóri
Byggðastofnunar og fulltrúi frá
Viðskiptaráðuneytinu komu á
fund með sveitarsljómarmönn-
um á Bildudal í gær til þess að
ræða þann vanda sem steðjar að
Bílddælingum eftir að Lands-
bankinn lokaði viðskiptum við
Fiskvinnsluna hf. Bankanum var
boðið að senda fulltrúa á fundinn
en það boð var ekki þegið.
Matthías Bjamason, 1. þingmað-
ur Vestfirðinga, var talsmaður
fundarmanna eftir fundinn. Hann
sagði að á fundinum hefðu menn
rætt þá aðferð sem Landsbankinn
beitti við lokun viðskipta við Fisk-
vinnsluna. Fundurinn samþykkti
ályktun til viðskiptaráðherra með
þeim tilmælum að hann athugi lok-
unina á bankaviðskiptum við fyrir-
tækið og ræði um úrlausn við stjórn
Landsbankans. „Bankinn heyrir
undir viðskiptaráðherra og því er
eðlilegt að hann taki á málinu“,
segir Matthías. Um heildarvanda
Fiskvinnslunnar hf. sagði Matthías
að hún stafaði ekki síst af því að
mikill niðurskurður hefði orðið á
þorskveiðum undanfarin ár en
nefndi einnig aðra áhrifavalda eins
og fastgengisstefnu og óhóflega
háa raunvexti.
Sveitarsjóður
þolir ekki
langfvarandi
stöðvun Fisk-
vinnslunnar
- segja oddviti og sveitar-
stjóri Bíldudals
„ÁRANGUR af fundinum með
þingmönnum kjördæmisins er að
mínu mati góður,“ segir Guð-
mundur Sævar
Guðjónsson odd-
viti Bíldudals.
„Allir þingmenn-
irnir sex mættu
til fundarins með
stuttum fyrir-
vara og náðu
samstöðu um
ályktun til við-
sldptaráðherra.“
Einar Mathiesen,
sveitastjóri á
Bíldudal, segir
að full samstaða
sé um málið og
framkvæmd þess
innan sveitar-
sljórnar og í því
liggi styrkur
heimamanna.
Verði lokun Fisk-
vinnslunnar var-
anleg er hætta á að Bíldudals-
hreppur lendi fljótlega í vanskil-
um.
Guðmundur Sæv-
ar Guðjónsson
Einar Mathiesen
Tekjur Bíldudalshrepps af Fisk-
vinnslunni hf. í formi aðstöðugjalda,
útsvara og annarra gjalda nema
um helmingi allra tekna sveitarfé-
lagsins. Það gefur því auga leið að
lokun Fiskvinnslunnar kemur eins
og reiðarslag fyrir byggðarlagið
auk þess sem hreppurinn á 29%