Morgunblaðið - 08.07.1992, Side 21

Morgunblaðið - 08.07.1992, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1992 24 Tékkóslóvakía: Reuter. Leiðtogafrúr skoða kastala EIGINKONUR leiðtoga helstu iðnríkja heims notuðu tækifærið á með- an makar þeirra sátu á fundi í Miinchen og skoðuðu Neuschwanstein- kastala, sem byggður var af Loðvík 2. konungi Bæjaralands á síðari hluta 19. aldar. Frá vinstri má sjá Marie Delors, Hannelore Kohl, Bar- böru Bush, Díönu Amato, Milu Mulroney og lengst til vinstri er Irming- ard Streibl, eiginkona forsætisráðherra Bæjaralands. Danielle Mitterand var fjarri góðu gamni, en hún kom í gær til Tyrklands frá héröðum Kúrda í Irak, þar sem hún slapp naumlega lífs af úr sprengjutilræði. Andstaðan við Havel var lykill að sjálfstæði Slóvaka Prag. Frá Jaroslav Novak, fréttaritara Morgunblaðsins. ÞAÐ að Vaclav Havel var ekki endurkjörinn sem forseti Tékkóslóvakíu á föstudag kom í sjálfu sér engum á óvart. Það var eitt af lykilatriðunum í áætlun Slóvaka um að eign- ast sjálfstætt ríki, sem virðist nú vera óhjákvæmilegt. Með andstöðu við Havel náðu slóvakískir þjóðernissinnar að vekja reiði margra Tékka, svo þeir snerust gegn áframhaldandi sambúð þjóðanna tveggja. Teningunum var kastað í sigri Vladimir Meciars í þingkosning- unum í júní, sem sýndi óánægju meirihluta Slóvaka með skugga- hliðar efnahagsumbótanna í landinu og þá einkum vaxandi atvinnuleysi. Margir sakna valdadaga kommúnista, þegar stór hluti Slóvaka hafði atvinnu við að setja saman skriðdreka og önnur vopn. Einnig hrifust margir af Meciar, hinum nýja „foringja", sem sparaði hvergi loforð um bjarta framtíð í sjálf- stæðu slóvakísku ríki. Opin andstaða Slóvaka við Havel olli mikilli gremju í tékkn- eska hlutanum þar sem hann er vinsæll og dáður. Ef Slóvakar vildu aðskilnað frá Tékkum var það góð hugmynd að leggjast gegn Havel, því mörgum Tékk- um, sem voru ákafir talsmenn sambandsríkisins, snerist við það hugur og töldu að lítill missir væri að Slóvökum. Það voru þó ekki einungis Slóvakar sem voru á móti Ha- vel, heldur líka fyrrum tékknesk- ir kommúnistar og flokkar sem kenna sig við miðju stjórnmál- anna, eins og sósíaldemókratar og Fijálslyndi flokkurinn. Þetta þykir sanna að raunverulegt markmið þessarra afla sé að auka sundurlyndi og koma óorði á nýfengið lýðræði. Það hjálpaði ekki lýðræðisöflunum að í þing- kosningunum var fjórðungi at- kvæða kastað á glæ á nærri 40 smáflokka, sem sumir buðu fram af lítilli alvöru, eins og til dæmis Bjórvinaflokkurinn og Flokkur- inn til eflingar ástalífs. Allir eru nú sammála að dagar sambandsríkisins Tékkóslóvakíu séu taldir. Næsta skref verður væntanlega að þing lýðveldisins Slóvakíu lýsi yfir fullveldi og eig- in stjórnarskrá nú í sumar og síðan á að bera málið undir kjós- endur í Slóvakíu. Skoðanakann- anir benda til að um helmingur Slóvaka vilji sjálfstæði, en hinn helmingurinn vill halda áfram að búa í sambandsríkinu, þannig Havel að niðurstaðan, hver sem hún verður, verður ekki öllum til geðs. Þó að Havel verði ekki forseti Tékkóslóvakíu getur hann geng- ið að því vísu að hann yrði kos- inn forseti ríkis Tékka þegar það hefur verið stofnað. Hann er trygging fyrir því að lýðræðis- hugsjónum Tómasar Masaryks, sem flestir Tékkar telja jafn- framt sínar hugsjónir, verði hrundið í framkvæmd. málaráðgjafi Reagans, voru loks fundnir sekir tókst að milda dóma þeirra verulega með áfrýjunum. Aðurnefndar dagbækur Weinber- gers geta breytt miklu. Hann hefur fram til þessa verið talinn blásak- laus af þátttöku í hneykslinu og strangheiðarlegur. Nú er hann sagður hafa logið um sumt, jafnt að rannsóknardómaranum sem þinginu og þagað um aðra vitn- eskju sína. Dagbækurnar sýna að hann var viðstaddur ýmsa mikil- væga fundi í Hvíta húsinu þar sem „viðskiptin" við Irana voru rædd. Fram kemur þó að hann hafi sagt Reagan að um væri að ræða ólög- legt athæfi, einnig þótt reynt væri að hvítþvo Bandaríkjastjórn með því að fá ísraela til að vera millilið- ir. Weinberger hefur eftir forsetan- um að hann gæti „svarað ásökunum um lögbrot en ekki þeim að hann hefði misst af tækifæri til að frelsa gíslana". Weinberger hafnaði boði Walsh um að viðurkenna almennt að hann hefði brotið af sér gegn því að fimm alvarleg ákæruatriði yrðu felld niður. Því hefur verið fleygt að Walsh hafi sagt Weinberger að hann yrði ákærður nema hann ljóstraði upp um meint afbrot Reagans. Weinber- ger segir að hann vilja einfaldlega komast að „öllum sannleikanum" og jafnframt að ætti hann að lýsa afstöðu sinni til varnarmálaráðherr- áns fyrrverandi sé hún þessi: „Markmiðið var ekki að klófesta hann“. Þessi ummæli hafa m.a. orðið til þess að margir telja líklegt að nafn Reagans komist senn á dagskrá ! rannsókninni. Allt parket með 22% afslætti í eina viku BOEN parket er fyrsta flokks norskt gæðaparket sem íslendingar hafa góða reynslu af sl.'20 ár. Við bjóðum 1300m2 af Eik Rustik á ótrúlega góðu verði eða kr. 2.950.- pr.m2. Allar aðrar tegundir lækka einnig um 22%. Kynnum jafnframt hið frábæra danska VESTERBY plastparket sem er allt í senn rispuþolið, glóðarjDolið og stólajoolið. Við lækkum verSið á því um 22% í eina viku eða frá kr. 3.180.* pr.m2 í kr. 2.480 .* pr.m2. Oll hjálparefni eru einnig meS góSum afslætti. Þannig getur þú sparað þúsundir á einu gólfi. Hagstæðir greiÖslukortasamningar og lipur heimsendingarþjónusta. 50 rermetrar af BOEN Eik Rustik parketi lækka um kl1* 41 •750»* TEPPABÚÐIN GÓLFEFNAMARKAÐUR • SUÐURLANDSBRAUT 26. • SÍMI 91-681950

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.