Morgunblaðið - 18.07.1992, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 18.07.1992, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 1992 31 MIDAVERÐ KR. 300 Á S OG 7 SÝNINGAR ALLA DAGA SYLVESTER STALLONE • ESTELLE GETTY ÓBORGANLEGT GRÍN OG SPENIMA Sýnd í A-sal kl. 5,7,9 og 11. TÖFRALÆKNIRINN ★ ★ ★ ★ Pressan. Leikur Sean Connery gerir þessa mynd ógleymanlega. Sýnd kl. 5,7,9og11. NÆSTUMÓLÉTT Eldfýörug gamanmynd. Sýnd kl. 5,7 og 9. Bönnuð innan 14 ára. MITT EIGIÐIDAHO Frábœr verðlaunamynd. ★ ★★ Mbl. Sýnd kl. 11. Bönnuð innan 16 ára. REGNBOGINN SÍMI: 19000 14 stórmeistarar á Norðurlandamótinu Skák Margeir Pétursson SKÁKÞING Norðurlanda, sem jafnframt er svæðamót, verður háð dagana 27. júlí til 6. ágúst næstkomandi í Ostersund í Sví- þjóð. í efsta flokki er teflt um tvö sæti á millisvæðamótinu 1993. íslendingar eiga fjóra af 18 keppendum og hafa þeir Jóhann Hjartarson, Margeir Pétursson, Jón L. Árnason og Helgi Ólafsson verið skráðir tii leiks. Þess má vænta að flestir öflugustu skákmenn Norður- landanna verði með, að Curt Hansen undanskildum, en vegna hárra stiga á Daninn frátekið sæti á millisvæðamót- inu að ári. Svíinn Ulf Andersson var um árabil stigahæsti skákmaður Norðurlanda en hefur lækkað og á því ekki sæti á millisvæðamóti. Hann er þó ekki skráður til leiks á NM. Keppendur eru eftirtaldir, rað- að upp í stigaröð sem verður væntanlega líka töfluröðin á mót- inu, en tefldar verða níu umferðir eftir Monrad-kerfi: 1. Simen Agdestein, Noregi 2.620 2. Jóhann Hjartarson 2.595 3. Thomas Ernst, Svíþjóð 2.570 4. Bent Larsen, Danmörku 2.565 5. Margeir Pétursson 2.565 6. Jonny Hector, Svíþjóð 2.535 7. Pia Cramling, Svíþjóð 2.530 8. Lars Bo Hansen, Danm. 2.530 9. Jón L. Ámason 2.525 10. Ferdinand Hellers, Sv. 2.500 11. Helgi Ólafsson 2.495 12. Einar Gausel, Noregi 2.485 13. Lars Karlsson, Svíþjóð 2.480 14. Jouni Yijölá, Finnl. 2.460 15. Carsten Höi, Danmörku 2.445 16. Jonathan Tisdall, Nor. 2.435 17. Marko Manninen, Finnl. 2.420 18. Heikki Westerinen, Fi. 2.390 Þeir Gausel, Höi og Tisdall eru alþjóðlegir meistarar, Manninen er FIDE-meistari, en hinir eru allir stórmeistarar. Hannes Hlífar til Þýskalands Hannes verður fjarri góðu gamni á Norðurlandamótinu en fær þó verðugt verkefni í kjölfar góðs árangurs á Ólympíuskák- mótinu. Frá 21. júlí til 2. ágúst teflir hann á öflugu alþjóðaskák- móti í Altensteig í Þýskalandi. Stigahæsti keppinautur Hannesar er Rússinn Dautov, en auk hans teflir hinn kunni stórmeistari Ro- manishin frá Úkraínu og margir af öflugustu skákmönnum Þjóð- veija. Með góðri frammistöðu í Altensteig gæti Hannes unnið hluta af þeim 30 stigum sem hann vantar til að fá stórmeistaratitil sinn staðfestan. Karpov og Júdit sigursæl Anatólí Karpov, fyrrum heims- meistari, vann yfirburðasigur á alþjóðamóti í Madrid_ á Spáni sem fram fór rétt fyrir Ólympíuskák- mótið. Yngsti stórmeistari allra tíma, hin 15 ára gamla Júdit Polg- ar, stóð sig frábærlega vel á mót- inu, náði öðru sæti ásamt Vladím- ir Epishin, á undan tveimur af stigahæstu skákmönnum heims, þeim Júdasín og Salov. Það má segja að mótið í Madrid hafí verið andsvar þeirra sem af ýmsum ástæðum voru ekki með á Ólympíumótinu í Manila. Polg- arsystumar Júdit og Zsuzsa hefðu með réttu átt að eiga sæti í ung- versku sveitinni í karlaflokki, sem líklega er réttara að nefna opna flokkinn. Það náðust þó ekki samningar á milli Polgarfjölskyld- unnar og ungverska skáksam- bandsins um greiðslur til stúlkn- anna og einnig hefur heyrst að faðir þeirra hafi viljað hafa áhrif á það hvemig sveitin yrði skipuð að öðru leyti. Margir af stigahæstu rússn- esku stórmeisturunum sátu heima og má það rekja til þess að Gary Kasparov tókst að útiloka aðra en vini sína og aðstoðarmenn úr rússnesku sveitinni. Anatólí Karpov vildi ekki tefla í sveit þar sem Kasparov réði lögum og lof- um og þeir Júsupov, Salov, Bare- ev og Júdasín voru heldur ekki með. Ýmist kusu þeir að sitja heima, eða töldust ekki nægilega mikiir jábræður heimsmeistarans. Þetta kom þó ekki að sök, frábær frammistaða Kasparovs og Kramniks færði Rússum ömggan sigur í Manila. Það era þó örugg- lega ekki allir sáttir við vinnu- brögð heimsmeistarans, sem geta varla talist lýðræðisleg. Úrslitin í Madrid: 1. Karpov 7'/2 v. af 9 mögulegum, 2.-3. Júdit Polgar og Epishin, Rússlandi 5‘A 4.-6. Júdasín og Salov, Rússlandi og Romero 4*/2 v. 7.-8. Zsuzsa Polgar og San Segundo 3'/2 v. 9.—10. Granda-Zunjiga, Perú og Magem 3 v. Salov er nú fluttur til Linares á Spáni þar sem hann hefur sett upp skákskóla. Hann var þó ekki svipur hjá sjón á mótinu í Madrid og Júdit hafði ekki ýkja mikið fyrir því að bæta honum í safnið: Hvítt: Valerí Salov Svart: Júdit Polgar Kóngsindversk vörn 1. d4 - Rf6 2. Rf3 - g6 3. Bg5 Salov velur rólegt afbrigði, enda er Júdit vel heima í hvöss- ustu leiðunum. Þetta kemur þó ekki í veg fyrir að hún nái að flækja taflið snemma. 3. - Bg7 4. Rbd2 - d5 5. e3— (SJÁ STÖÐUMYND) 0-0 6. Be2 - Rbd7 7. 0-0 - He8 8. c4 Hér er 8. c3 mun algengara, en þá jafnar svartur taflið með . 8. - e5. 8. — c5! 9. Hcl — cxd4 10. Rxd4 - Re4!? Júdit er ófeimin við að raska jafnvægi stöðunnar. Salov nær nú peðameirihluta á drottningar- væng sem hann ofmetur: 11. Rxel — dxe4 12. c5 — Re5 13. b4? 13. - Rd3! Salov hlýtur alveg að hafa yfir- sést þessi möguleiki, sem tryggir svörtum yfirburðastöðu. 14. Bxd3 - exd3 15. Dxd3?! Salov velur þann kost að láta mann af hendi fyrir tvö peð, en hann átti ekki góðra kosta völ í stöðunni. Júdit hótar að vinna peð með 15. — Bxd4 og ef riddarinn víkur sér undan þá hefur svartur biskupaparið og öflugt frípeð. 15. - h6 16. Bh4 - g5 17. Hfdl - gxh4 18. De4 - Dc7 19. Dxh4 - Bd7 20. De4 - Had8 21. a3 - Dc8 22. h3 - Kh8 23. Dh4 - Ba4 24. Hel - Dd7 25. Hc4 - e5 26. Rf3 - Bc6 27. Dh5 - Dd5 28. Hg4 - e4 29. Hg5 - De6 30. Rh4 - Kg8 31. Hg3 - Hd5 32. De2 - a6 33. Hdl - Hed8 34. Hxd5 - Hxd5 35. Dc2 Hg5 Allir sóknartilburðir hvíts hafa verið kæfðir í fæðingu og nú gæti hann með góðri samvisku gefist upp. Salov lætur sig þó hafa það að tefla 20 tilgangslausa leiki til viðbótar. 36. De2 - Be5 37. Hg4 - f5 38. Hxg5+ - hxg5 39. f4 - gxh4 40. fxe5 — Dxe5 41. Df2 - Dg3 42. Dd2 - Kh7 43. Khl - f4 44. Dd6 - fxe3 45. De7+ - Kg6 46. De6+ - Kg5 47. De7+ - Kf5 48. a4 - e2 49. Df7+ - Ke5 50. Dh5+ - Ke6 51. Dxe2 - e3 52. b5 - axb5 53. axb5 — Bd5 54. c6 — bxc6 55. bxc6 - Dxh3+ 56. Kgl - Dxg2+ og nú loksins gafst Salov upp. Metsölublað á hverjum degi! Eurocard endurgreiðir viðskiptavin- um Sólarflugs ÞEIR sem greitt hafa með Euro- card fyrir ferðir eða inn á ferðir með Flugferðum —Sólarflugi sem (jóst er að verða ekki farn- ar, fá endurgreitt frá greiðslu- kortafyrirtækinu. Gunnar Bær- ingsson, framkvæmdastjóri fyr- irtækisins, segir að þessi ákvörð- un hafí verið tekin í ljósi ákvörð- unar Visa—íslands um að endur- greiða viðskiptavinum sínum. Gunnar sagði fólk þyrfti að leggja fram fullnægjandi gögn um að það hefði greitt fyrir ferðina með Eurocard og hún hefði aldrei verið farin til þess að eiga rétt á endurgreiðslu. Hann sagði að ekki væra allar kröfur komnar inn en fyrirtækið byggist við að þurfa að endurgreiða fólki eina til eina og hálfa milljón kr. vegna þessarar ákvörðunar sem byggð væri á und- antekningu. Venjulega ætti fólk ekki kröfu á endurgreiðslu í tilfell- um sem þessum, þ.e. ekki pema gagnvart viðkomandi fyrirtæki. Aðspurður sagði Gunnar að ákvörðun um endurgreiðslu hefði verið tekin í kjölfar ákvörðunar Visa—íslands um að endurgreiða viðskiptavinum sínum. „Við getum ekki látið okkar korthafa vera á lakari kjörum en korthafa annarra fyrirtækja," sagði hann. Hlöðver Ólafsson, Sigjún Más- dóttir og Ragnar Björnsson í Western Fried. ■ VEITINGASTAÐURINN Western Fried í Mosfellsbæ hefur verið stækkaður og hann breytt um svip. Framvegis verður súpa og salatbar í hádeginu og ennfremur bætast ýmsir kjöt- og fiskréttir á skyndibitamatseðilinn. Einnig er hægt að panta smurt brauð, ýmsa pottrétti og annan veislumat í heimahús. Þá hefur staðurinn nú fengið vínveitingaleyfL Matreiðslu- meistari er Hlöðver Ólafsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.