Morgunblaðið - 21.07.1992, Síða 14

Morgunblaðið - 21.07.1992, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1992 Um fjölbreytni í útvarpsrekstri eftir Heimi Steinsson Nýlega sat ég ársþing Samtaka evrópskra útvarpsstöðva, sem haldið var í Ósló. Á fundi þessum bar margt gagnlegt fyrir augu og eyru. Hér verður vikið að efni, sem virðist beinlínis eiga erindi við okk- ur íslendinga, eins og nú standa sakir. Umskipti Víðast hvar eru þeir hættir, sem nefna mætti „útvarpsskipan 20. aldarinnar", á undanhaldi. Sú til- högun fól í sér einkaleyfi þjóðríkja til að reka útvarpsstöðvar í hinum ýmsu löndum Evrópu. Aðrir komu þar lítið við sögu eða ekki. Ýmis rök lágu til þessarar hátt- semi: Þyngst á metum kynni sú hugmynd að hafa verið, sem kenna mætti við „þjóðvarp": Útvarpið þótti of áhrifamikill fjölmiðill til þess að selja hann öðrum í hendur en þeim, sem skuldbundnir væru til þjónustu við alþjóð samkvæmt lögum og reglum, en að sama skapi hlutlausir í umfjöllun allri og óháð- ir sérhveijum hagsmunaaðila. Þetta grundvallarviðhorf er jafngilt nú sem þá. í dag birtist það í orðasambandinu „útvarp í almenningsþjónustu". En jafn- framt er sú breyting á orðin í Evrópulöndum, að einkaaðilum heimilast að reka útvarps- og sjón- varpsstöðvar eftir enn öðrum lög- um og reglum. Slík þróun er næsta sjálfsögð. Hún helzt í hendur við almennar hugmyndir síðari ára- tuga um frelsi til vals og athafna. Markmiðið er öðrum þræði að auka framboð og fjölga góðum kostum. Á ýmsa lund gengur um fram- kvæmdina. Sumir telja fleiri út- varpsstöðvar engan veginn efla íjölbreytni og vísa til amerískrar útvarpssögu, þar sem aragrúi stöðva er sagður japla á sömu flatneskjunni. Ástæðulaust er þó að lasta markmiðið eða gera lítið úr jákvæðum áhrifum einkarek- inna útvarpsstöðva: Auk alls ann- ars er líklegt, að þeim sé langur aldur skapaður úr því, sem komið er. Menn geta vitaskuld barið höfð- inu við steininn, ef þeim fellur sú íþrótt. En annað hefst ekki upp úr því að fordæma einkavæðingu útvarpsrekstar almennt. Umskipt- in í útvarpsheiminum eru stað- reynd, sem ekki verður haggað. Blandað kerfi Útvarpsmenn víða um Evrópu tala nú í vaxandi mæli um „bland- að kerfi“ á þessum vettvangi. Með þeim orðum er vísað á veginn fram. Líklegt er, að 21. öldin eigi, eftir að einkennast af vinsamlegum samskiptum þjóðvarps og einka- rekinna útvarpsstöðva þar um slóð- ir. Því fer fjarri, að við fáum án þjóðvarpsins verið. Seint munu t.a.m. lögmál hins fijálsa markaðar tryggja, að dreifikerfí útvarps nái til allra byggða. Þetta á vitaskuld sérlega við í stijálbýlu og vog- skomu fjallalandi. I annað stað hefur skuldbindingin, sem að fram- an gat, ekki breytzt hið minnsta. Almenningsþjónusta, hlutleysi og sjálfstæði gagnvart margs konar hagsmunaaðilum verða tæpast betur tryggð en með útvarpi í eigu alþjóðar. Síðast en ekki sízt er þjóðvarp svo áhrifaríkt einingarafl, að örð- ugt er að gera sér í hugarlund, hvernig unnt er án þess að vera. Það er samofið ýmsum grundvall- arþáttum þjóðlífs og veigamikill homsteinn tungu og menningar. Útvarpsrekstur á íslandi Hér á landi gegnir Ríkisútvarpið hlutverki „þjóðvarpsins". Svo hef- ur lengi verið og mun enn verða á ókomnum tíma. Rás 1 er þess konar vettvangur menningar, að ekki getur annan slíkan betri í landinu. Enginn sýn- ir minnstu tilburði til að skjóta Rás 1 ref fyrir rass í þessu efni. Rödd Rásar 1 heyrist á hveiju byggðu bóli. Rás 2 flytur efni við allra hæfi til afkima landsins og útnesja. Enginn hliðstæður miðill nær eyr- um svo margra Islendinga. Án Rásar 2 væri illa komið fyrir al- menningi í stijálbýli. Landshlutastöðvar Ríkisút- varpsins eystra, nyrðra og vestra auka enn þá þjónustu við byggðir landsins, sem Rás 1 og Rás 2 hafa í frammi. Heimir Steinsson „Það „blandaða kerfi“, sem áður gat, er þannig þegar komið á legg á Islandi og hefur svo verið frá því að núgild- andi útvarpslög voru sett. Þau Iög hafa reynzt vel og mættu sem bezt koma í grund- vallaratriðum óbreytt úr höndum Alþingis að lokinni þeirri endur- skoðun, sem nú er haf- in.“ Fréttastofur Ríkisútvarpsins njóta almennrar viðurkenningar sem einhveijir áreiðanlegustu fréttamiðlar, er hér starfa. Sjónvarpið er, þegar bezt lætur, háborg íslenzkrar menningar nær lokum 20. aldar. Innlend dagskrár- deild lyftir þar grettistökum af litl- um efnum en miklu áræði. Tæp- lega 40 hundraðshlutar sjónvarps- dagskrárinnar eru íslenzkt efni og stefnt er að enn auknum afköstum í þeirri grein. Erlent dagskrárefni Sjónvarpsins er vandað og kapp- kostað er að stilla öllu í það hóf, sem velsæmi og góður vilji út- heimta. Ríkisútvarpinu er í mörgu ábótavant. En það er á réttri leið og stendur nú að mestu leyti und- ir þeim stóru kröfum, sem felast í orðinu „þjóðvarp“. Við hlið Ríkisútvarpsins starfa hér allnokkrar einkareknar út- varpsstöðvar. Tilgangur þeirra mun m.a. vera sá að auka fjöl- breytni og veita mönnum fleiri valkosti en ella, einkum í þéttbýli. Vel er, ef því markmiði er náð. Það „blandaða kerfi“, sem áður gat, er þannig þegar komið á legg á íslandi og hefur svo verið frá því að núgildandi útvarpslög voru sett. Þau lög hafa reynzt vel og mættu sem bezt koma í grundvall- aratriðum óbreytt úr höndum Al- þingis að lokinni þeirri endurskoð- un, sem nú er hafin. Blandað kerfi í útvarpsrekstri byggir á einni grundvallarfor- sendu: Hún felst í gagnkvæmri viðurkenningu þjóðvarps og einka- varps á hlutverki og tilverurétti beggja aðila. Friðsamleg sambúð leysir harðvítuga samkeppni af hólmi. Fjölbreytninni er fagnað en einsýni vísað á bug. Verði þessi þróun með þeim hætti, sem hér er lýst og verið hefur, má ætla, að aldingarður ís- lenzkra íjölmiðla auðkennist af grósku marglitra blóma, þegar kemur fram á 21. öld. Þá verður fróðlegt að vera hlustandi og áhorfandi í þessu landi. Höfundur er útvarpsstjóri. Á Menntabraut tU náms erlendis! slandsbanki býbur námsmenn sem stunda nám erlendis velkomna á Menntabraut þar sem þeim er veitt margs konar þjónusta í fjár- málum. Námsmaöur getur fengiö allt aö 100% lána- fyrirgreiöslu hjá íslandsbanka í tengslum viö lánsloforö LÍN. Fyrirgreiöslan er í formi stighœkk- andi mánaöarlegs yfirdráttar sem hefurþá kosti aö einungis eru greiddir vextir af nýttri heimild. Námsmannakart Námsmenn á íslandi eiga nú í fyrsta sinn kost á þvíaö taka út af tékka- eöa gjaldeyrisreikningi í um 95.000 hraöbönkum innanlands sem utan. Þetta er þœgilegasta leiöin til aö senda peninga á milli landa og mun ódýrari en aö símsenda pen- inga, millifœra inn á reikning erlendis eöa taka út meö greiöslukorti. Sérþjónusta Námsmenn á Menntabraut eiga kost á greiöslu- og innheimtuþjónustu íslandsbanka. Meira en lánafyrirgreiösla Á Menntabraut býöst námsmönnum fjölþætt þjónusta auk lánafyrirgreiöslu. Þegar námsmaöur skráir sig á Menntabrautina fær hann afhenta vandaöa íslenska skipulagsbók og penna. Árlega eru veittir námsstyrkir og aö námi loknu eru íboöi langtímalán hjá bankanum. Kynntu þér kosti Námsmannakortsins og þjónustu íslandsbanka viö námsmenn erlendis. MENNTABRAUT Námsmannaþjónusta íslandsbattka - frá menntun til framtíöar! ÍSLANDSBANKI Þeir námsmenn erlendis sem njóta lánafyrir- greiöslu bankans geta notaö yfirdráttinn þegar á þarf aö halda og tekiö lániö út af tékkareikningi hér á landi. Dýrara er aö nýta yfirdráttarheimild- ina íeinu lagi strax í upphafi mánaöar og hag- stæöara aö nota hraöbanka erlendis eftir því sem þörf krefur. Sem dæmi um kosti Námsmanna- kortsins þá er hægt aö nota þaö í56.000 hraöbönkum í Noröur-Ameríku, 7.000 á Bretlandi og um 750 í Danmörku. Engin gjaldeyrisþóknun Námsmenn á Menntabraut losna viö aö greiöa 0,5% gjaldeyrisþóknun þegar þeir kaupa gjaldeyri.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.