Morgunblaðið - 21.07.1992, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 21.07.1992, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1992 21 Umferðarnefnd Reykjavíkur: Lögregla aðeins í 7 0% slysatilvika á staðinn LÖGREGLA kemur aðeins í um 70% slysatilvika á staðinn jafn- vel þótt lög kveði á um að ávallt skuli kveðja hana til ef slys verða á fólki. Þessar upplýs- ingar koma fram í framhalds- könnun Umferðarnefndar Reykjavíkur á umferðarslysum í borginni 1988 til 1990. A um- töluðu þriggja ára tímabili eru skráðir 3376 slysaatburðir á landinu þar sem 4263 einstakl- ingar slasast. Hér er um að ræða 59% fjölgun skráðra slysa hjá tryggingarfélögunum mið- að við tímabilið 1983-1987. Fjölgun slasaðra er 49%. Meðal þess sem könnunin leiðir í ljós er að slysum á gangandi vegfar- endum fækkaði eftir að notkun ökuljósa var lögleidd allan sól- arhringinn árið 1988 og um- ferðarslys á börnum eru hlut- fallslega álíka mörg í Reykjavík og annars staðar á landinu þrátt fyrir að í borginni sé umferðar- þungi mestur. Á árunum 1988-1990 sýna skýrslur tryggingarfélaganna að 164 börn á aldrinum 0-14 ára slös- uðust í umferðinni í Reykjavík. Hér er um að ræða rúmlega 16% fækkun á ári að meðaltali frá því í síðustu könnun. Nú sem fyrr verða flest slys á gangandi börnum, þriðjungur, en nær jafnmörg slys verða á börnum í aftursæti bifreiða. Einnig hefur slysum á börnum í framsæti bif- reiða fjölgað. Ekki eru til kannan- ir um hve mörg börn sitja í fram- sæti en þeim gæti hafa fjölgað vegna þess að nú eru til barnastól- ar sem eru sérstaklega hannaðir fyrir framsæti. Ef litið er á meiðsl sem bömin hljóta, kemur í ljós að í 40% til- vika er um minni háttar áverka að ræða. Höfuðhögg og beinbrot eru sem fyrr algengust stærri meiðsla en hálsmeiðsl eru einnig algeng hjá börnum. Flest slasaðra barna í Reykjavík á aldrinum 0-5 ára eru farþegar í bifreiðum. Næsti aldurflokkur (6-9 ára) verð- Slys á börnum í Reykjavik 1988-1990 Fjöldi slasaðra á ári af hverjum 1000 í viðkomandi aldursflokki «■8 10-14 ára 6-9 ára 0-5 ára- Farþ. í framsæti Farþ. í aftursæti Áhjóli Ábifhjóli Gangandi ur tíðar fyrir meiðslum sem gang- andi og hjólandi vegfarendur en börn í öðrum aldursflokkum. Elstu bömin (10-14 ára) slasast tíðast í aftursætum bifreiða. í umferðar- könnun 1983-1987 kom það fram að drengir urðu oftar fyrir meiðsl- um en stúlkur. í könnuninni 1988-1990 hefur munurinn minnkað og er hann vart merkjanlegur. Það er hins vegar athyglisverð að meira en tvöfalt fleiri stúlkur þjást af háls- meiðslum en drengir. Samkvæmt könnuninn kemur lögregla aðeins á staðinn í um 70% slysatilvika, jafnvel þótt lög kveði á um að ávallt skuli kveðja hana til ef slys verða á fólki. Þetta er að einhveiju leyti talið skýrast af því hve margir koma nú til trygg- ingarfélaganna með meiðsl sem ekki uppgötvast fyrr en komið er af slysstað. í niðurstöðum könnun- Fékk skot úr loftriffli í andlitið KOMIÐ var með 15 ára ungling á slysadeild Borgarspítalans á laugardagskvöld eftir að hann hafði fengið skot úr loftriffli í andlitið. Við rannsókn á slysa- deild kom í ljós að unglingurinn var skaddaður á öðru auganum eftir skotið og var hann sendur í aðgerð á augndeild Landakots- spítala. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu átti þessi atburður sér stað á Háaleitibrautinni um klukk- an 23 um kvöldið. Vitneskja fékkst um hver skotmaðurinn var og málið mun að fullu upplýst. Héðinn Ól- afsson látínn HÉÐINN Ólafsson bóndi á Fjöll- um í Kelduhverfi lést í Landspít- alanum fimmtudaginn 16. júli eftir ströng veikindi 74 ára að aldri. Héðinn lætur eftir sig eiginkonu, Sjöfn Jóhannesdóttur, og sex upp- komin börn. Einnig er móðir Héð- ins, Friðný Siguijónsdóttir, á lífi, 93 ára að aldri. arinnar kemur fram að slys á ákveðnum stöðum eða álagstímum yrðu ef til vill færri ef eftirlit lög- reglu lögreglu væri virkara. Dauðaslys eru mun tíðari í dreif- býli en á öðrum svæðum enda hraði rneifi á þjóðvegum og slys alvarlegri þegar þau verða. Morgunblaðið/Ámi Jónasson Beðið eftir björgun Þyrla Landhelgisgæzlunnar, TF-SIF, bjargaði á föstudagskvöld slösuð- um Þjóðveija, sem hafði hrapað niður i gljúfur er hann var að klifra í Svarthömrum norður af Skaftafelli. Aðstæður voru mjög erfiðar en um síðir tókst að ná manninum upp. Hann var minna slasaður en talið var í fyrstu. Á myndinni, sem tekin var úr þyrlu Landhelgisgæzl- unnar, sést hvar félagar mannsins hafa sveipað hann í teppi og bíða eftir björgunarþyrlunni. Ung stúlka kærði nauðgun UNG stúlka kærði nauðgun til lögreglunnar í Reykjavík aðfar- arnótt sunnudagsins. Að sögn hennar átti nauðgunin sér stað i húsagarði í miðborginni að afloknum dansleik. Samkvæmt upplýsingum frá Rannsóknarlögreglunni fór stúlkan í fylgd með manninum af vinveit- ingahúsi eftir lokun þess um nótt- ina. Lögreglunni tókst að hafa uppi á manninum en við yfirheyrslur sagði hann allt aðra sögu af sam- skiptum þeirra tveggja og að ekki hafi verið um nauðgun að ræða. Mál þetta er í rannsókn hjá RLR. MAZDA 323 ODYRASTUR í REKSTRI! auto motor sport Hið virta þýska bílatímarit AUTO MOTOR UND SPORT hefur verið með MAZDA 323 í langtímaprófun síðastliðin 2 ár. Nú nýlega hafði honum verið ekið 100.000 kílómetra og reyndist hann hafa lægstan rekstrar- og viðhaidskostnað allra þeirra bíla, sem tímaritið hefur tekið í slíka prófun. Ennfremur var haft samband við fjölda eigenda og luku þeir einróma lofi á bílinn, einn sagði m.a.: „Ánægðari getur maður ekki verið!“ Við bjóðum MAZDA 323 í 4 misstórum útgáfum, sem hafa gjörólíkt yfirbragð, útlit og eiginleika. Þær eru allar með vökvastýri og ríkulegum staðalbúnaði. Hægt er að velja um 4 mismunandi vélar, sem eru með bensíninnspýtingu og mengunarvörn, sjálfskiptingu eða handskiptingu og flestar gerðir fást nú með ALDRIFI. MAZDA 323 kostar frá 885 þúsund krónum. (3 dyra hlaðbakur LXI, staðgreiðsluverð með ryðvöm og skráningu.) MAZDA endist lengur 1 SKÚLAGÖTU 59, REYKJAVÍK S.61 95 50

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.